Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1996, Page 4
4
FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1996
Fréttir
Róbert Melax gaf sér vart tíma til þess að sitja fyrir svo Ijósmyndari DV gæti fest hann á filmu í Lyfju í gær. Apótek-
ið er hið fyrsta sem opnað er eftir að lögum um sölu lyfja var breytt og þar var mikið að gera í gær.
DV-mynd GVA
Lyijaverslunin Lyija opnaöi í gær:
Ortroð var a
fýrsta degi
- Róbert Melax ánægður með viðtökurnar
„Það er greinilegt að neytendur
kunna að meta það þegar boðið er
upp á lyf á lægra verði og ég er him-
inlifandi yfir þeim viðtökum sem
við höfum fengið hérna í dag. Hér
hefur verið örtröð frá því að við
opnuðum og þótt ég hafi vitaskuld
gert mér vonir um að menn kynnu
að meta það sem við erum að gera
þá þorði ég ekki að gera mér vonir
um þetta,“ segir Róbert Melax, ann-
ar eigenda Lyfju, nýrrar lyfjabúðar
sem opnuð var i Lágmúla í gær,
fyrst sinnar tegundar eftir að ný lög
tóku gildi, í frjálsræðisátt, varðandi
sölu á lyfjum. Róbert Melax og Ingi
Guðjónsson eru eigendur Lyfju.
Þegar DV leit inn í apótekið síðla
dags í gær var mikið að gera og Ró-
bert þakkaði fyrir að fá að setjast
niður og pústa augnablik.
„Við höfum starfað sem lyfjafræð-
ingar í tíu ár og nú þegar búið er að
auka frelsi í lyfjasölu fannst okkur
kjörið að fara inn á þennan markað
og reyna okkur. Það á síðan eftir að
koma í ljós hvort framhald verður á
þessari góðu aðsókn og að neytend-
ur standi með okkur.“
Róbert segist ekki óttast sam-
keppnina á markaðnum þótt hún sé
hörð. Hann segir mörg apótek vissu-
lega vera á markaðnum en bendir á
að 40 prósent af lyfjamarkaðnum sé
á eins og hálfs kílómetra radíus frá
honum.
„Við höfum þá sérstöðu að við er-
um með meira úrval af vörum og
hér verður hjúkrunarfræðingur
með aðstöðu til þess að veita ráð-
leggingar í sambandi við hjúkrunar-
vörur og ýmsar sérvörur,’ sjúkra-
sokka, stóma- og þvaglekavörur og
þessi þjónusta er ný í apóteki á ís-
landi.
Hjá LyQu vinnur einn lyfjafræð-
ingur og allt í allt um tíu starfs-
menn. Hún er til húsa að Lágmúla 5
og þar er opið frá 9 á morgnana til
10 á kvöldin, alla daga vikunnar.
-sv
Ráðstefna um flknisjúkdóma á Hótel Sögu:
Mun meiri aðsókn
en gert var ráð fyrir
Evrópuráðstefna um fíknisjúk-
dóma, EuroCAD/96, European Con-
ference on Additctive Disease, stend-
ur nú yfir á Hótel Sögu. Hún hófst
10. apríl og stendur til 13. apríl, þetta
í þriðja sinn sem hún er haldin.
Meginviðfangsefhi ráðstefnunnar
að þessu sinni er Addiction: A Fam-
ily Affair, Fíkn - mál allrar fjöl-
skyldunar.
Ráðstefnan er að sögn forsvars-
manna hennar mikUvægt forvama-
verkefni og einstakt tækifæri til að
kynna sér það sem efst er á baugi
varðandi alkóhólisma og aðra fíkni-
sjúkdóma.
Markmið ráðstefnunnar eru að
vekja áhuga og skUning á alkóhól-
isma og annarri efnafíkn sem sjálf-
stæðum sjúkdómi er þurfi sérhæfða
meðferð, að auka skilning á þeirri
meðferð við áfengis- og vímu-
efnafíkn sem byggist á bindindi og
12 spora leið AA-samtakanna og
annarra sjálfshjálparhópa, að stuðla
að vísindalegum rannsóknum á
fíknisjúkdómum og að skapa vett-
vang fyrir umræður um meðferð og
forvarnir.
ísland var valið vettvangur ráð-
stefnunnar að hluta vegna þess ein-
Sveinn Rúnar Hauksson, skipu-
leggjandi ráðstefnunnar, segir að
250 manns frá 15 löndum sitji ráð-
stefnuna og áhuginn sé mikill.
DV-mynd S
stæða árangurs sem náðst hefur hér
á landi í þessum málum, ekki síst
með starfi ríkisspítalanna og SÁÁ.
Ráðstefnan er á þverfaglegum
grunni og höfðar tU aUra sem vinna
á einn eða annan hátt að forvörnum
og lausn áfengis- og vímuefnavanda.
Fyrirlesarar úr fremstu röð
fræðimanna á sviði fíknisjúkdóma,
rannsókna, meðferðar og forvarna
eru á ráðstefnunni. Má þar nefna
Claudiu Black Ph.D frá Bandaríkj-
unum sem hlotið hefur alþjóðavið-
urkenningu fyrir brautryðjenda-
starf varðandi börn og fjölskyldur
sem orðið hafa fyrir barðinu á alkó-
hólisma og öðrum fíknisjúkdómum.
íslendingarnir Þórarinn Tyrfings-
son, formaður SÁÁ, Páll Biering
hjúkrunarfræðingur, Guðni Stef-
ánsson ráðgjafi, Óttar Guðmunds-
son geðlæknir og Hildigunnur
Ólafsdóttir afbrotafræðingur eru
einnig meðal fyrirlesara.
Sveinn Rúnar Hauksson, skipu-
leggjandi ráðstefnunnar sagði í sam-
tali við DV í gær að hann væri mjög
ánægður með ráðstefnuna til þessa.
Aðsóknin hefði verið mun meiri en
gert var ráð fyrir en um 250 manns
frá 15 löndum sitja hana. í gær flutti
meðal annars Óttar Guðmundsson
fyrirlestur um meðferð sem miðað-
ist við fjölskylduna. Þá sagði Sveinn
Rúnar að ánægjulegt væri hve
margir hjúkrunarfræðingar, eða
30-40 talsins, sætu ráðstefnuna og
greinilegt væri að áhuginn væri gíf-
urlegur. -ÞK
Magnesíumverksmiöja á Reykjanesi:
Raforkunotkun mundi
þrefaldast á svæðinu
DV, Suðurnesjum:
„Megináherslan hefur verið lögð
á verkefni sem snúa að rekstri og
hlutverki fyrirtækisins, það er að
virkja jarðhita í Svartsengi og ann-
ars staðar á Reykjanesi þar sem
hægkvæmt þykir. Önnur nýting á
jarðgufu og heitu grunnvatni má
kalla markaðsöflun fyrirtækisins,
einkum í Ijósi þess að við blasir að
orkusala minnkar frekar á næstu
árum,“ sagði Júlíus Jónsson, for-
stjóri Hitaveitu Suðurnesja, á aðal-
fundi fyrirtækisins á dögunum.
Hann segir að langsamlega viða-
mesta verkefnið nú sé athugunin á
möguleikum magnesíumverk-
smiðju. Með henni mundi raforku-
notkunin að minnsta kosti þrefald-
ast á svæðinu. Sala gufu gæti farið í
7-900 þúsund tonn á ári sem sam-
svarar 30 kg/sek. sem er um það bil
tvær háhitaholur af öflugustu gerð í
stöðugri vinnslu.
„Takist að stofnsetja slíka verk-
smiðju verður það ómæld lyftistöng
fyrir svæðið og hitaveitan mun
halda áfram að vinna að eflingu at-
vinnulífs á Reykjanesinu," sagði
Júlíus.
Eins og skýrt hefur verið frá í DV
var íslenska magnesíumfélagið hf.
stofnað tO að kanna hvort hag-
kvæmt er að vinna léttmálminn
magnesíum á Reykjanesi. Hlutafé er
60 milljónir króna og hluthafar eru
Hitaveita Suðurnesja, Byggðastofn-
un og Markaðs- og atvinnumála-
skrifstofa Reykjanesbæjar. Félagið
er í nánu samstarfi við erlend fyrir-
tæki í þremur löndum, Amalgamet í
Kanada, Preussag í Þýskalandi og
Consortium Magni í Rússlandi.
-ÆMK
Sluppu með
skrekkinn
Umferðarslys varð við Laxá í Kjós um páskana, þegar ökumaður missti
stjórn á fólksbíl, sem valt og kastaðist út í skurð. Þetta leit illa út en fimm
ungmenni, sem voru í bílnum, sluppu með skrekkinn. Meiðsli þeirra reynd-
ust ekki aivarleg. DV-mynd K
Tígri, lukkudýr Krakkaklúbbs DV, hefur heimsótt Kringluna síðustu daga og
heilsað upp á smáfólkið.
Smásagnakeppni 12 ára og yngri:
Tígri í Kringlunni
Krakkaklúbbur DV stendur fyrir
smásagnakeppni um þessar mundir
í samstarfi við Umferðarráð og lög-
regluna. Samkeppnin er fyrir alla
krakka 12 ára og yngri. Yfirskrift
samkeppninnar að þessu sinni er
Tígri i umferðinni. Tígri er lukku-
dýr Krakkaklúbbs DV og er ætlunin
að fá krakka til að skrifa sögur um
ævintýri Tígra í umferðinni. Hann
er um þessar mundir að læra um-
ferðarreglurnar og hann getur lent í
ýmsu ef hann fer ekki varlega í um-
ferðinni. Sögur eru nú þegar farnar
að berast og hægt er að nálgast þátt-
tökugögn í Tígrahorninu í Kringl-
unni i dag og á morgun. Einnig er
hægt að skila inn sögum á sama
stað. Tígri kemur í heimsókn í
Kringluna í dag, fóstudag, kl. 17.00
og á morgun, laugardag, kl. 12.00 og
kl. 15.00.