Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1996, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1996, Side 7
FÖSTUDAGUK 12. APRÍL 1996 7 DV Sandkorn Fréttir Tapaðir sauðir Svokallaö bisk- upsmál og þær deilur sem orð- íð hafa innan þjóðkirkjunnar hafa tröllriðið landslýö að undanförnu. Hver íslending- urinn á fætur öðrum hefur sagt sig úr þjóðkirkjunni ogspurning hvort hún heyri ekki sögunni til þegar haldið verður upp á 1000 ára afmæli kristnitökunnar árið 2000. Félagar í öörum trúfélögum kætast og mun eftirfarandi vísa hafa fæðst hjá ása- trúarmanni: Loftið kjafthátts kúlnahríð klýfur, sundiung skapast meðan hirðar heyja stríð hundruö sauða tapast. Kýrskýr lögfræði í Viðskiptablaö- inu mátti ný- lega lesa ágæta sögu um spænskan lög- fræðing og son hans. Sonurinn var að útskrif- ast úr mennta- skóla og fékk aö fylgjast með störfum fóður sins til að sjá hvort Iögfr æðin heillaöi hann. Á fyrsta degi kom verkamaður til lögfræðingsins sem átti i deilum við erfíngja búgarðs um eignarhald á kúm sem hann hafði annast. Taldi verkamaðurinn sig eiga rétt á kún- um. Lögfræðingurinn sagðist taka málið að sér og engar áhyggjur þyrfti að hafa af kúnum. Skömmu seinna kom erfingi búgarðsins og sagöist eiga í deilum við verka- manninn um eignarhald á kúnum. Lögfræðingurinn sagðist taka að sér máliö fyrir erfmgjann og engar áhyggjur þyrfti að hafa af kúnum. Þegar maðurinn var farinn kom sonur lögfræðingsins, sagðist ekki vita mikið um lögfræði en kýrnar hefðu skapað siöferðilegt vandamál fyrir þá feðga. Lögfræðingurinn sváraði að bragði: „Hafðu engar áhyggjur. Við munum eignast kým- ar.“ í himnaríki Við höldum okkur við Gull- mola Viðskipta- blaðsins. Þar segir af ungu og ástfóngnu pari sem lést i hörmulegu bíl- slysi skömmu fýrir giftingu. Þau fóru til himnaríkis, hittu Lykla- Pétur og báðu um giftingu. Lykla-Pétur samþykkti bónina en bað þau að bíða mn stund. Þau biðu i 100 ár þar til Lykla-Pétur kom og sagði að þau gætu nú gifst, sem þau og gerðu. Eftir 30 ára samlífl komust hjónin að þeirri niðurstöðu að þau gætu ekki eytt eilíföinni saman og báðu Lykla- Pétur um skilnað. Lykla-Pétur brást illa við og sagði: „Gerið þið ykkur grein fyrir þvi að það tók mig 100 ár að ná í prest hingað upp tU að gifta ykkur. Mér tekst aldrei að útvega lögfræðing." Langholts- kirkjudeilan hefur teygt anga sina víðar i þjóðfélaginu en marga grun- ar. Kunningi Sandkomsrit- ara kom með umslag, merkt kór Langholts- kirkju, sem var utan um boðs- bréf á tónléika. í sjálfu sér ósköp venjulegt umslag en kunningi vor vakti athygli á póststimplinum og frímerkinu. Stimpillinn var dag- settur sama dag og Bolli Gústafsson kvað upp úrskurð sinn í Langholts- kirkjudeilunni. Ekki nóg með það heldur prýddi frímerkið mynd af Laufási þar sem Bolli þjónaði lengi áður en hann gerðist vígslubiskup á Hólum. Skemmtileg tilviijun, eða hvað? Tilviljun? Umsjón: Björn Jóhann Björnsson Benedikt Davíðsson, forseti Alþýðusambands íslands: Lögin munu þvælast fyrir gerð næstu kjarasamninga „Ráðherramir höfnuðu því að draga frumvörpin umdeildu tn baka. Þeir áréttuðu og bentu á að þeirra og Alþingis væri valdið. Við hentum þeim þá á að við myndum að sjálf- sögðu ekki taka það af þeim. Hins vegar sögðum við að ef mál færu fram eins og nú horfir og þeirra ósk- ir standa til með þessi frumvörp væru allar líkur á því að ekki næðist árangur af nefndarstarfi félagsmála- ráðuneytisins eins og til stóð. Þvert á móti myndu þessi lög þvælast fyr- ir við gerð kjarasamninganna um næstu áramót. Þau myndu taka upp mikinn tima sem ella yrði notaður til að finna lausn i kjaradeilunrii. Það væri auðvitað hið versta mál,“ sagði Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ, eftir fund verkalýðsforingja og ráðherra í gær. Benedikt sagði að ráðherrarnir hefðu sagst vilja afgreiða frumvörp- in um starfskjaralögin annars vegar og stéttarfélög og vinnudeilur hins vegar á vorþinginu. Aftur á móti hefðu þeir sagst tilbúnir að taka við öllum ábendingum og líklegir til að taka tillit til þess sem launþegahreyf- ingin legði mesta áherslu á og væri innan þess ramma sem lýst væri í aðfaraorðum að frumvörpunum. „Þetta sættum við okkur ekki við. Til þess að geta komið að málinu er krafa okkar sú að við fáum að semja um megin atriðin við gagnaðOa okk- ar án þess að yfir okkur hangi svipa um lagasetningu. Við höfum oft bent á að þau atriði sem vega hvað þyngst í frumvarpinu um stéttarfélög og vinnudeOur eru þau atriði sem í áfangaskýrslunni til félagsmálaráð- herra eru næstum órædd í starfs- hópnum. Hvað þá úti í hreyfingunni hjá okkur. Það er því alveg morgun- ljóst að sú umræða klárast ekki áður en vorþinginu lýkur. Þess vegna vilj- um við að hætt verði við að afgreiða frumvörpin á vorþinginu og að sest verði niður og samið um þessi mál,“ sagði Benedikt Davíðsson. -S.dór Nýjar DV, Búöardal: í byrjun nóvember 1995 var byrj- að á byggingu tveggja félagslegra íbúða við Stekkjarhvamm í Búðar- dal og er þeim nú lokið nema frá- gangi utanhúss og lóðar. íbúðirnar eru 87 m2 hvor og kosta rúmlega 7 milljónir króna. íbúðimar voru teknar í notkun 15. mars og 1. aprO. Trésmiðja Guð- mundar Friðrikssonar í Grundar- firði annaðist smíði húsanna og gekk það verk fljótt og vel fyrir sig. Að sögn Kristins Jónssonar, for- manns húsnæðisnefndar Dalabyggð- ar, er allnokkur eftirspum eftir íbúðum sem þessum og fyrirhugar húsnæðisnefndin byggingu tveggja íbúða til viðbótar á þessu ári. -MB Kristinn Jónsson afhendir Stein- unni Jóhannsdóttur lykla að nýju íbúðinni. DV-myndir Melkorka Úthafsveiðiskip: Ekki fá öll skip að leita hafnar - nema í neyðartilfellum Það eru skip frá Grænlandi, Fær- eyjum, Evrópusambandinu, Noregi, PóUandi og Rússlandi sem mega leita hér eftir þjónustu eða landa afla sínum á íslandi. Ef Rússar mótmæla samkomulag- inu um skiptingu heddaraflans, eins og þeir hafa haft á orði, verður tekin afstaða td þess í ráðuneytinu hvort rússnesk skip mega leita hingað eftir þjónustu. -S.dór DANMÖRK Verð frá kr. hvora leið með flug- vallaskatti r ■■ Sala: Wihlborg Rejser, Danmörk 1 s. 00-45-3888-4214 L Fax 00-45-3888 4215 - Á íbúðir í Búöardal Félagslegu íbúðirnar við Stekkjarhvamm. "3 Rannsóknaráð íslands Rannsóknastofnun byggingariönaðarins cjíÍjb HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS Húseigendur - Húsbyggjendur! Laugardaginn 13. apríl nk. halda Húsnæðisstofnun ríkisins, Rannsóknastofnun byggingar- iðnaðarins og Rannsóknaráð íslands kynningarfund í Ársal Hótel Sögu kl. 13.30-17.00. Fundurinn er ætlaður bæði almennum húseigendum og fagmönnum. Á staðnum veita sérfræðingar Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins ráðgjöf um byggingaraðferðir, viðgerðir og viðhald og sérfræðingar Húsnæðisstofnunar veita upplýsingar um fjármögnun og lánafyrirgreiðslu. Einnig verða haldin erindi og rannsóknaverkefni verða kynnt í sýningarbásum og starfsemi stofnananna kynnt. ERINDI: Kl. 13.30 Viðhaldsþörf mannvirkja á íslandi. Gilda erlendar viðmiðanir? Björn Marteinsson, verkfrceðingur og arkitekt. Kl. 14.00 Loftræstar útveggjaklæðningar á hús. Örugg lausn? Jón Sigurjónsson, verkfrœðingur Kl. 14.30 Múr-einangrunarkerfi til utanhússklæðninga. Uppbygging og reynsla: - Sementsbundin kerfi - Akrylbundin kerfi Björn Marteinsson, verkfrœðingur og arkitekt Kl. 15.00 Viðhald og viðgerðir steyptra húsa Helgi Hauksson, verkfrœðingur Kl. 15.30 Nýjar aðferðir við sprunguviðgerðir Rögnvaldur Gíslason, verkfrœðingur Kl. 16.00 Ný viðhorf í húsalögnum, vatnstjónavamir Einar Þorsteinsson, tœknifrœðingur Kl. 16.30 Málun húsa - ending Rögnvaldur Gíslason, verkfrœðingur RÁÐGJÖF: Húsbyggingatækni - hljóðtækni - lagnir - málning - steinsteypa - byggingarkostnaður - lánafyrirgreiðsla - o.fl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.