Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1996, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1996, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1996 Spurningin Hvað sástu síðast í bíói? Lilja Dögg Bjarnadóttir nemi: man það ekki. Þórður Sigurðsson stýrimaður: Ábyggilega Waterworld. Páll Viggósson nemi: Heat. Ljósbrá Baldursdóttir nemi: Ap- pollo 13. Hún var ágæt. Lesendur Viturleg ákvörðun forsætisráðherra R.L. skrifar: Flestir hugsandi menn munu telja ákvörðun forsætisráðherra, að fara ekki í framboð til forseta Is- lands, bæði viturlega og heillavæn- lega fyrir land og þjóð. Það hefði verið mikið feilspor hjá forsætisráð- herra að etja kappi við þrjá eða fleiri frambjóðendur í embætti for- seta. Ekki síst þar sem vitað er að stjórnmálamaður á ekki upp á pall- borðið í þetta embætti, a.m.k. ekki að þessu sinni. Tekið skal undir með forsætisráð- herra að ekki þarf stjórnmálamaður að vera óæskílegri á Bessastaði en hver annar þjóðfélagsþegn. Staðan er einfaldlega sú að þjóðin er ekki tilbúin að taka við manni beint úr stjómmálaerjunum í þetta embætti. Stjórnmálamaður verður að hafa staðið utan þeirrar baráttu um ein- hvern tíma. Það átti t.d. við um Ás- geir Ásgeirsson og naut hann þeirr- ar stöðu sinnar í kosningunni. Þannig má líta á framboð Guðrúnar Agnarsdóttur sem hefur staðið utan stjómmálanna um alllcmgt skeið. Hið sama verður ekki sagt um Ólaf Ragnar Grímsson sem kemur beint úr eldlínunni. Ég tel mig geta séð fyrir að héðan af verði baráttan um forsetaembæt- tið á milli kvennanna tveggja sem báðar bera sama nafnið. Þetta með nöfnin kynni svo að verða einhverj- um fátíðum kjörklefagesti til að mislíta og kjósa þá konuna sem hann hugðist láta liggja mUli hluta. En stjórnmálamaður er ekki ofar- lega í hugskoti þorra landsmanna að þessu sinni. Svo mikið er víst. Sé staðreyndin hins vegar sú að landsmenn séu búnir að kúvenda svo í forsetamálum að þeim sé nokk sama hver fer í þetta embætti, þar með taldir stjórnmálamenn, þá þarf að mínu mati að vinda bráðan bug að því að finna enn einn kandidat- inn sem tUtækur er að etja kappi við fyrrverandi formann Alþýðu- bandalagsins beint. - Það verður varla liðið á landsvísu að stjórn- málamaður úr eldlínunni, tUtölu- lega nýbúinn að farga dálæti sínu á hinu ógurlega Sovétskipulagi, renni beint af augum inn í forsetaembætt- ið með það eitt að leiðarljósi að „koma íslandi á heimskortið" eins og fyrrverandi formaður Alþýðu- bandalagsins orðaði það svo skil- merkilega að aUir sáu glitta í far- miðann í annarri hendi og dagpen- inga í hinni. Vinda þarf bráðan bug að því að finna enn einn frambjóðandann til að etja kappi við fyrrverandi formann Alþýðu- bandalagsins beint - segir m.a. í bréfinu. Við styðjum framboðið Árni Einarsson skrifar: Nú eru menn farnir að skrifa undir og styðja frambjóðendur til forseta opinberlega. Þannig birtist heil síða í Morgunblaðinu með nöfnum þekktra sem óþekktra borg- ara ásamt óskum um gleðilega páska. Já, við undirrituð styðjum framboðið... Og hér sannast gjarnan hið fornkveðna, að oft má af vinun- um sjá hver maðurinn er. Þarna voru útgerðarmenn og sjó- menn, læknar og lögfræðingar, leik- arar og rithöfundar, bændur og ráð- gjafar. Fleiri en einri og fleiri en tveir af hverri tegund. Ég sá hins vegar ekki nema eina flugfreyju, einn dósent, einn ljós- myndara, einn sóknarprest og einn fyrrverandi veitingamann. Þrír þeir síðustu gætu þó komið sér vel í fleiri eintökum, þegar líða tekur á kosningabaráttuna. Ljósmyndir t.d. verða seint úreltar í svona baráttu og blessunar þarf sífellt að njóta ásamt miklum og góðum veitingum þegar drífa þarf fólk á kosningamið- stöðvar. Það er sem sé einn frambjóðand- inn sem hefur tekið á sig rögg og býður landsmönnum að sjá, svart á hvítu, hverjir það eru sem styðja við bakið á honum. Og það með páskakveðjum. En hvað með aUa hina sem ætla að styðja þennan frambjóðanda? Verða þeir ekki undrandi þegar þeir sjá þennan nafnalista í Morgunblaðinu og þeirra sjálfra hvergi getið? Ég sé þó fram á mikla lestrartíð hjá okkar þjóð. Héðan af verður ekki undan því vikist að birta öll nöfn þeirra sem styðja hvern fram- bjóðanda fyrir sig og geta starfsheit- is þeirra og búsetu. Og vei þeim sem birtir ekki nöfn allra stuðnings- manna sinna. Ég er hins vegar því marki brenndur að ég styð alla fram komna frambjóðendur og vil ekki gera upp á milli þeirra. Ég mun því senda mitt nafn til allra frambjóð- endanna en kýs engan þeirra af sömu ástæðu. Rafmagnsvagnar í umferðina Jónsson skrifar: Margir hafa líklega fagnað því að loks ætlaðí Reykjavíkurborg að ganga á undan með góðu fordæmi og nýta eitthvað af umframrafmagn- inu með þvl að láta kanna notkun rafmagnsvagna hjá SVR, á Lauga- vegi og Hverfisgötu til að byrja með. En það koma samt upp efasemdir. Talað er um einhvem „hleðslubún- að“ sem kostaði 5-6 milljónir og settur upp inni við Kirkjusand og á Hlemmi! - Jú, hér átti að fara nota rafhlöður senr entust í u.þ.b. tvö ár og þá kæmi upp vandamál með að flytja þær út til förgunar ásamt öll- um þeim kostnaði sem því fylgdi. ILl§HiH)í\ þjónusla allan í síma i kl. 14 og 16 Rafmagnsvagnar eru ekki lengur tilraunaframkvæmd í borgum nágranna- landanna heldur vel þekkt og vinsæl samgöngubót. Ég er orðlaus. Veit ekki borgar- stjórn Reykjavíkur að vítt og breitt um heiminn eru rafmagnsvagnar eða bUar sem nota rafmagn frá streng í loftlínu með fram eða yfir akleiðunum? í borgum eins og Ósló, Kaupmannahöfn, Genf, og öðrum borgum í Sviss. Og víðar og víðar, og talin mikil bót frá venjulegum al- menningsvögnum, án tilheyrandi mengunar og hávaöa. Hvaðan koma þá hugmyndir um batterísvagna? Engar krár fyrir hádegi Kristinn Sigurösson skrifar: Ég veit ótal dæmi þess að þeir sem hafa verið við skál kvöldið áður og vaknað hafa rykaðir fara beint á krá fyrir hádegi og fyUirnð heldur áfram. Ótal for- eldrar, afar og ömmur, systur eða bræður líða vítiskvalir vegna þess að allt þetta bitnar á ættingjum því þótt menn séu vinnandi duga laun ekki til og oft dettur því vinnudagm: úr. Það leysir ekki vandann að krárnar séu lokaöar, t.d. til kl. 16, en gæti dregið úr honum. Er ekki ráð að reyna þetta? Og í engu tUviki ætti að opna krár fyrir hádegi. Lágmarkslaun og verðbólga Sigurbjörn skrifar: Ef menn vilja vekja liðna tíð með verðbólgu og vandræðum, þá er þetta stórvirkasta leiðin að því marki, segir framkvæmda- stjóri VSÍ í blaðaviðtali alveg ný- lega um þá hugmynd eins þing- manns okkar um að lögbinda lágmarkslaun. Er þá virkilega svo komið að láglaunastefnan verði að halda veUi tU að koma í veg fyrir verðbólgu á íslandi? Og svo er þetta með 16 ára krakk- ana, að þeir fái ekki vinnu ef lág- markslaun verði lögbundin t.d. við 80. þús. krónur. Mætti nú ekki hafa sérstakan launataxta fyrir aldurshópinn 16-18 ára og þá eitthvað lægri, segjum 60 þús- und krónur eða svo? Eða eru menn alveg staðnaðir í stuðn- ingnum við láglaunataxtana? Næsti borgarstjóri? H.S.Á. skrifar: Hver verður næsti borgar- stjóri? Er nokkuð úr vegi að spyrja svo þegar ekki er um ann- að rætt en álögur á okkur borg- arbúa, skuldir borgarinnar og vandamál sem nú hrannast upp í borgarrekstrinum? Nú segjast sjálfstæðismenn ætla aö afnema holræsagjaldið sem þýðir á miUi 10-30 þúsund króna skattalækk- un á hverja fjölskyldu. Á næsta ári verður farið að bjóða fram borgarstjóraefni af háifu minni- hlutans í borgarstjóm og því ætti að gera könnun á því hvort einhver nýr kostur er vænlegri en annar I þessum efrium. „Enn ein stöðin“ lömuð Dísa Sig. hringdi: Síðasta útsending Sjónvarps á „Enn einni stöðinni" var ekki boðleg. Ekki bara vegna seink- unar þáttarins heldur var efnið svo yfirgengUega klént að það stóðst ekki væntingar manna í þetta sinn. Og Enn ein stöðin hefur verið að dala að undan- fömu. Nú er svo komið að Spaugstofumenn eru ekki lengur eftirsóttir sem grínistar í svona þætti. „Stöðin“ er því lömuö og virðist ekki geta náð sér upp aft- ur. Það er eins og einhver ósýni- leg hönd hafi verið lögð á annars ágætt skopskyn þessara manna í undanfornum þáttum. Gerum allt fyrir Kínverjana Sæmundur hringdi: Nú er varaforseti kínverska þingsins í heimsókn hér á landi i boði forseta Alþingis. Hvaða heimild hefur Aiþingi til að bjóða þessum Kínverjum þótt al- þingisforseti hafi farið að ganga á Kínamúrnum? Umfram allt, geriö vel við Kínverjana, þeir geta átt eftir að taka vel á móti fleiri íslendingum. Og hlúa vel aö sendiráði okkar í Kína sem er svo mikilvægt fyrir útflutning okkar til Kína! Já, gerum allt fyrir Kínverjana.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.