Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1996, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1996, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1996 Útlönd Samkynhneigður vinnur forræðismál Dómari í Los Angeles úrskurð- aði að 46 ára gamall samkyn- hneigður maður fengi forræði yfir lítillega vangefinni stúlku en hann er hvorki líffræðilegur né félagslegur faðir hennar. Maður- inn hafði alið stúlkuna upp frá fæðingu. Hann og móðirin höfðu gert óformlegt samkomulag um að hann æli hana upp eftir að þau slitu samvistum á sínum tíma. Dómarinn staðfesti fyrri dóm í sömu veru en honum hafði verið hafnað fyrir áfrýjunardómstóli. Samkvæmt úrskurðinum fær móðirin eingöngu að hringja í dóttur sína einu sinni í viku. Lög- menn mannsins sögðu að það væri skaðlegt fyrir stúlkuna að vera hjá móður sinni og maður- inn væri best til þess fallinn að sjá henni farborða. Reuter 1— Húsbréf Innlausnarverð húsbréfa í 1. ílokki 1991 3. flokki 1991 1. ílokki 1992 2. flokki 1992 1. flokki 1993 3. flokki 1993 1. flokki 1994 1. flokki 1995 Innlausnardagur 15. april 1996 l.flokkur 1991: Nafnverð: Innlausnarverð: 1.000.000 kr. 1.584.706 kr. 100.000 kr. 158.471 kr. 10.000 kr. 15.847 kr. 3. flokkur 1991: Nafnverð: Innlausnarverð: 1.000.000 kr. 1.410.083 kr. 500.000 kr. 705.042 kr. 100.000 kr. 141.008 kr. 10.000 kr. 14.101 kr. 1. flokkur 1992: Nafnverð: Innlausnarverð: 5.000.000 kr. 6.944.107 kr. 1.000.000 kr. 1.388.821 kr. 100.000 kr. 138.882 kr. 10.000 kr. 13.888 kr. 2. flokkur 1992: Nafnverð: Innlausnarverð: 5.000.000 kr. 6.835.129 kr. 1.000.000 kr. 1.367.026 kr. 100.000 kr. 136.703 kr. 10.000 kr. 13.670 kr. s 1. flokkur 1993: Nafnverð: Innlausnarverð: e 5.000.000 kr. 6.294.799 kr. í 1.000.000 kr. 1.258.960 kr. 100.000 kr. 125.896 kr. 10.000 kr. 12.590 kr. 3. flokkur 1993: Nafnverð: Innlausnarverð: 5.000.000 kr. 5.861.788 kr. 1.000.000 kr. 1.172.358 kr. 100.000 kr. 117.236 kr. 10.000 kr. 11.724 kr. 1. flokkur 1994: Nafnverð: Innlausnarverð: 5.000.000 kr. 5.752.855 kr. 1.000.000 kr. 1.150.571 kr. 100.000 kr. 115.057 kr. 10.000 kr. 11.506 kr. 1. flokkur 1995: Nafnverð: Innlausnarverð: 5.000.000 kr. 5.423.843 kr. 1.000.000 kr. 1.084.769 kr. 100.000 kr. 108.477 kr. 10.000 kr. 10.848 kr. Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands Suðurlandsbraut 24. r£h HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS HÚSBRÉFAOEILD • SUÐURLANDSBRAUT U • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 569 6900 I>V Brian Jenkins, frambjóðandi breska Verkamannaflokksins í Staffordskíri, fær kossa frá eiginkonunni Joan og dótt- urinni Caroline eftir að hann vann yfirburðasigur í aukakosningum þar í gær og fékk helmingi fleiri atkvæði en fram- bjóðandi íhaldsflokksins. Símamynd Reuter Breski íhaldsflokkurinn tapaði stórt í aukakosningum í gær: Þingmeirihlutinn kominn í eitt sæti - frambjóðandi Verkamannaflokksins fékk helmingi fleiri atkvæði John Major, forsætisráðherra Bretlands, og íhaldsflokkur hans biðu herfilegan ósigur í aukakosn- ingum tii breska þingsins í Stafford- skíri í miðhluta Englands í gær og er þingmeirihluti flokksins nú að- eins eitt sæti. Brian Jenkins, frambjóðandi Verkamannaflokksins, fékk ríflega 26 þúsund atkvæði, tvöfalt meira en Jimmy James, frambjóðandi íhalds- flokksins. í þingkosningunum 1992 sigruðu íhaldsmenn með rúmlega sjö þúsund atkvæða mun. Breska sjónvarpinu BBC reiknaðist svo tU að Verkamannaflokkurinn hefði bætt hlut sinn um 22 prósent. „Þetta er yfirburðasigur. Það er sögulegt afrek að bæta hlut sinn um 22 prósent," sagði Anthony King, prófessor í stjórnsýslufræðum við háskólann í Essex. „Þetta eru stórkostleg úrslit,“ sagði Tony Blair, leiðtogi Verka- mannaflokksins, í viðtali við BBC frá Washington þar sem hann mun m.a. hitta BUl Clinton Bandarikja- forseta síðar i vikunni. Með þessum ósigri íhaldsflokks- ins vakna enn á ný efasemdir um að Major geti setið á forsætisráðherra- stólnum þar til kjörtímabilið renn- ur út í maí 1997 af því að dauði enn eins þingmanns íhaldsflokksins mundi gera meirihluta flokksins í þinginu að engu. Major neyddist þá Þjóðernissinninn Zhírínovskí: Beitir börnum í kosningabaráttu Þjóðernissinninn Vladimír Zhírínovskí hefur nú tekið tU þess ráðs að beita börnum í baráttunni fyrir forsetakosningarnar í srnnar. Hefur hann stofnað barnahreyflngu undir nafninu Ungir fálkar. Á þriðja tug barna voru á skrifstofu Zhírínov- skis þegar hann tUkynnti um stofnun hreyfingarinnar. Voru sum þeirra klædd í bláa skyrtu, með svart bindi og míníútgáfu af húfu eins og þeirri sem Zhírínovski ber gjarnan á höfði. Úðuðu þau í sig kökum og sælgæti og virtust ekki vita almennnilega hvað væri á seyði. Zhírínovskí er töluvert á eftir keppinautum sinum í skoðanakönn- unum en neitar því alfarið að stofnun ungra fálka hafi nokkuð með kosn- ingabaráttuna að gera. Reyndar sagði hann hugmyndina fengna frá unglið- um kommúnista en hans hreyfing væri mun betri. Zhírínovskí lék á als oddi með börnunum, gaf þeim köku, kosning- amyndband og barmmerki með mynd Vladimír Zhírínovskí. af sjálfum sér. Hann bað bömin að passa sig á að falla ekki í hendur njó- snara erlendra ríkja eða lenda í því að senda unga hermenn til Tsjetsjen- íu þegar þau væru orðin fullorðin. Zhírínovskí sagði að ungir fálkar mundu fyrst og fremst reka sumar- búðir og tryggja börnum örugga ferð út í lífið. Reuter til að boða til þingkosninga. „Þetta eru slæm úrslit fyrir okk- ur. Ég neita því ekki,“ sagði Steph- en Dorrell heilbrigðisráðherra. Hann bætti þó við að íhaldsflokkur- inn hefði nú áöur tapað i aukakosn- ingum en síðan unnið í almennum þingkosningum. íhaldsflokkurinn nýtur nú þrjátíu prósentustigum minna fylgis en Verkamannaflokkurinn, ef marka má skoðanakannanir, vegna óá- nægju almennings með svikin lof- orð um skattalækkanir og vegna ýmissa hneykslismála sem hafa skekið flokkinn. Major og hans menn hafa ekki sigrað i aukakosn- ingum frá árinu 1989. Reuter Stuttar fréttir Ferja aftur til hafnar Farþegaferja sem strandaði skammt undan höfninni í Ramsgate á Englandi í gærkvöld komst aftur á flot eftir þrjá tíma og sigldi til hafn- ar. Andreotti með bófunum Giulio Andreotti, fyrr- um forsætis- ráðherra Ital- íu, kom iyrir rétt með mafíu- bófum í gær tO að svara til saka fyrir ákæru um að hann hefði tyrirskipað morðið á blaðamanni. Áfram við völd Stjórnarflokkurinn I Suöur- Kóreu virðist ætla að sitja áfram viö völd þótt hann hafi glataö þingmeiri- hluta sínúm í kosningum i gær. Tveir gáfust upp Tveir félagar úr öfgahópnum Frí- mönnum, sem lögreglan í Montana hefur setiö um í nokkurn tima, gáfust upp í gær. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.