Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1996, Blaðsíða 18
26
FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1996
íþróttir
Unglingasundmót Ægis í Sundhöll Reykjavíkur:
Krakkarnir stóðu sig vel
- og Maren Rut, ÍA, bætti sig um heila sekúndu í 100 m bringusundi
Arnar H. ísaksen, 8 ára, Ægi.
móti og er það vel ráðið þar sem sá
aldurshópur er nánast fullorðins-
flokkur þegar sundíþróttin er ann-
ars vegar.
Bætti mig um heila sekúndu
Hin bráðefnilega Maren Rut
Karlsdóttir, ÍA, 13 ára, stóð sig frá-
bærlega, sigraði í þremur greinum,
100 m bringusundi telpna, sem hún
synti á 1:25,39 mínútum, 100 metra
skriðsundi og 100 m fjórsundi:
„Ég bætti mig um heila sekúndu í
100 m bringusundi og er ég mjög
ánægð með það. Jú, ég keppti líka í
200 m skriðsundi og 100 m fjórsundi.
En bringusundið er mín aðalgrein.
Þjálfarinn minn er frábær en það er
hún Sigurlín Þorbjörnsdóttir,“ sagði
Maren.
Umsjón
Halldór Halldórsson
Unglingasundmót Ægis fór fram
sunnudaginn 31. mars í Sundhöll
Reykjavíkur. Keppt var í 12 grein-
um og stóðu krakkarnir sig mjög
vel og settu sum þeirra persónuleg
met. Ljóst er að framtíðarhorfur eru
bjartar í þessari vinsæli íþrótta-
grein sem endranær.
Þrír krakkar unnu í
þremur greinum
Þrír krakkar sigruðu í þrem
greinum í mótinu, Maren Rut Karls-
dóttir, ÍA, Jóhann Ragnarsson, ÍA,
og Jóhanna B. Durhuus, Ægi. Ljóst
er að þessir krakkar hafa ekki sleg-
ið slöku við æfingar.
Stúlkna- og drengjaflokkur
ekki lengur með
Sú breyting hefur verið gerð að
elstu unglingaflokkarnir, piltar og
stúlkur, keppa ekki lengur í þessu
Ég var svolítið þreyttur
Árnar H. ísaksen, Ægi, er 8 ára
og sigraði í 100 m skriðsundi:
„Ég var pínulítið þreyttur eftir
sundið en samt ekkert voðalega
mikið. Ég keppi líka í 100 m bringu-
sundi,“ sagði Arnar.
Jóhanna Lára Brynjólfsdóttir, Ægi, er 10 ára og bráðefnileg sundkona og
keppti í meyjaflokki. Hún er tiltölulega nýbyrjuð að æfa sund en það er ekki
að sjá á myndinni því hér er heldur betur skrið á manneskjunni og siglingin
markviss enda ku hún hafa sett markið hátt eins og bræður hennar, tví-
burarnir, Ólafur og Guðmundur, knattspyrnukapparnir fræknu í Val.
DV-myndir Hson
Nokkuð ánægður
Lárus Arnar Sölvason, 14 ára,
Ægisdrengur, var í miklu stuði og
sigraði í tveimur greinum í dren-
gjailokki:
„Jú, ég er svo sannarlega sáttur
með árangurinn og þá sérstaklega
200 m skriðsundið. Ég hef æft að
mestu leyti á bakka undanfarið og
eru þær æfingar aðallega teygju- og
magaæfingum. Nei, ég er ekki enn-
þá byrjaður í lyftingum. Mig langar
í miklu meiri æfingar en ég fæ það
bara ekki ennþá,“ sagði Lárus.
íslandsmótið í handbolta - 4. flokkur, B-lið:
ÍR og Valur komin í úrslitin
í úrslitaumferð hjá B-liðum í 4.
flokki karla sigraði ÍR en Valur
varð í 2. sæti. Bæði þessi lið leika
því til úrslita 3.-5. maí. Úrslit
leikja.
ÍR-Stjarnan..................16-8
iR-Grótta....................14-9
ÍR-Valur....................12-12
Stjarnan-Grótta.............10-17
Stjaman-Valur................8-18
Grótta-Valur.................11-12
Lokastaðan:
ÍR 3
Valur 3
Grótta 3
Stjarnan 3
Þrjár bestu í 100 m skriðsundi hnátna, frá vinstri: Þóra Magnúsdóttir, Ægi (2.
sæti), Dagrún Davíðsdóttir, ÍA (1. sæti), og Arna Björg Ágústsdóttir, Ægi (3.
sæti).
Lárus Arnar Sölvason, 14 ára, Ægi,
sigraði f tveim greinum.
Maren Rut Karlsdóttir, 13 ára, ÍA,
vann þrjár greinar í mótinu.
Neikvæð viðbrögð ráðamanna gagnvart sundíþróttinni:
Aðstaðan fýrir neðan allar hellur
- segir Kristinn Delaney, frammámaður í Sundfélaginu Ægi
Kristinn Delaney.
Mikið hefur verið rætt og ritað
undanfarin ár um hina slæmu
sundaðstöðu sem keppnisfólk á ís-
landi býr við. Lítið virðist ætla að
rætast úr í þeim efnum þrátt fyrir
hina miklu alvöru þessa máls.
Hvemig væri að yfirvöld endur-
skoðuðu forgangsröðina. Margir
líta nefnilega á 50 metra innisund-
laug sem forvarnarstarf og er það
ekki fjarri lagi.
En hvað segir Kristinn Delaney
um þetta alvarlega mál sem varðar
sundíþróttina í Reykjavík og
reyndar á öllu landinu en hann hef-
ur verið frammámaður í Sundfélag-
inu Ægi um árabil?
„Aðstaða til sundíþróttarinnar
sem keppnisgreinar á íslandi er
mjög slæm, svo að ekki sé meira
sagt og að mínu mati er nánast
ógerningur að lyfta henni á hærra
plan miðað við núverandi aðstæð-
ur. Sundíþróttin er og verður inni-
íþrótt og þá ekki hvað síst hér á
landi. Keppnisfólk hefur aðeins að-
gang að þremur innisundlaugum,
þ.e. i Hafnarflrði, Reykjavík og
Vestmannaeyjum.
Hinar 60 ára gömlu sundhallir í
Reykjavík og Hafnarfirði eru ágæt-
is æfingalaugar en keppnisaðstaða
er afar slæm. í fyrsta lagi eru laug-
arnar of stuttar og engin aðstaða
fyrir áhorfendur, umsjónarmenn
móta eða fjölmiðla, enda eru engir
möguleikar á að halda hér alþjóð-
leg sundmót.
Ráðamenn hafa hundsað í
áraraðir beiðni forráðamanna
sundíþróttarinnar um að taka á
þessu mikilvæga máli, sennilega
vegna skorts á skilningi.
Smáþjóðaleikarnir í hættu
Smáþjóðaleikarnir verða hér eft-
ir eitt ár og enn er ekki vitað
hvernig á að lappa upp á einhverja
bráðabirgðalausn vegna aðstöðu-
leysisins. Mælirinn er löngu orð-
inn fullur,“ sagði Kristinn að lok-
um.
Unglingasundmót Ægis:
Úrslit
Unglingasundmót Ægis fór
fram í Sundhöll Reykjavíkur 31.
mars. Úrslit urðu sem hér segir.
200 m skriðsund sveina:
Jóhann Ragnarsson, ÍA.....2:35,44
Magnús Sigurðsson, KR.....2:41,91
Bergur Þorsteinsson, KR ... . 2:46,27
200 m skriðsund drengja:
Lárus Sölvason, Ægi......2:10,61
Eyþór Ö. Jónsson, Ægi.....2:14,36
Jakoh Sveinsson, Ægi......2:14,58
200 m skriðsund meyja:
Jóhanna Durhuus, Ægi......2:35,35
Berglind Árnadóttir, KR .. . . 3:04,19
Bima Björnsdóttir, ÍA....3:17,44
200 m skriðsund telpna:
Maren Karlsdóttir, ÍA....2:27,65
Louisa ísaksen, Ægi......2:29,70
Ama Ágústsdóttir, Ægi....2:32,23
100 m skriðsund hnokka:
Amar ísaksen, Ægi........1:48,84
100 m skriðsund hnáta:
Dagrún Davíðsdóttir, ÍA..1:38,97
Þóra Matthíasdóttir, Ægi.... 1:42,53
EUí S. Sigurjónsd., Árm..1:45,64
100 m bringusund sveina:
Jóhann Ragnarsson, ÍA....1:32,39
Magnús Sigurðsson, KR....1:41,77
Kári Þ. Kjartanss., KR...1:43,52
100 m bringusund drengja:
Jakob Sveinsson, Ægi.....1:14,36
Einar ö. Gylfason, Arm...1:16,76
Lárus A. Sölvason, Ægi...1:17,95
100 m bringusund meyja:
Jóhanna Durhuus, Ægi.....1:26,40
Elín M. Leósdóttir, ÍA...1:36,87
Sunna Jóhannsd., Árm.....1:38,53
100 m bringusund telpna:
Maren Karlsdóttir, ÍA....1:25,39
Louisa ísaksen, Ægi......1:26,24
Ama Ágústsdóttir, Ægi....1:29,49
100 m bringusund hnokka:
Atli Skúlason, Árm.......2:14,52
Oddur Viðarsson, Árm.....2:16,99
Ásmundur Gunnarss., A. .... 2:34,81
100 m bringusund hnáta:
Dagrún Davíðsdóttir, ÍA..1:53,07
Þóra Matthiasdóttir, Ægi.... 1:55,54
Ásbjörg Gústafsd., Ægi...2:00,40
100 m fjórsund sveina:
Jóhann Ragnarsson, ÍA....1:23,18
Magnús Sigurðsson, KR....1:30,74
Bergur Þorsteinsson, KR .. .. 1:34,57
100 m fjórsund drengja:
Lárus Sölvason, Ægi......1:10,05
Einar Ö. Gylfason, Árm....1:12,52
Jakob J. Sveinsson, Ægi .... 1:12,57
100 m fjórsund meyja:
Jóhanna Durhuus, Ægi......1:22,96
Elín M. Leósdóttir, ÍA....1:29,21
Bima Bjömsdóttir, ÍA......1:35,92
100 m fjórsund telpna:
Maren Karlsdóttir, ÍA.....1:19,39
Ama B. Ágústsd., Ægi......1:20,25
Louisa ísaksen, Ægi......1:20,63
4x50 m skriðsund drengja:
1. Drengjasveit Ægis.....1:55,71
2. Drengjasveit Ármanns .... 2:10,97
3. Sveinasveit KR........2:34,89
4x50 m skriösund telpna:
1. Sveit Ægis............2:11,10
2. Sveit ÍA..............2:26,59
3. Sveit Ármanns.........2:31,31
Fimleikar unglinga:
Unglinga- og
seniormeistara-
mótið 13. apríl
Unglinga- og seniormeistara-
mót íslands í fimleikum fer fram
á laugardaginn, 13. apríl, í Laug-
ardalshöll. Mótið stendur frá kl.
13-17. Yfirdómari er Sandra
Dögg Ámadóttir. Umsjónaraðili
er KR og Stjaman.
Handbolti, 6. fl. kvenna:
Úrslitakeppnin
um helgina
Úrslitakeppnin í 6. flokki
kvenna fer fram í Kaplakrika og
Strandgötu 12., 13. og 14. april. í
Kaplakrika verður spilað á föstu-
dag frá kl. 17.00- 21.00. Á laugar-
dag verður leikið í Strandgötu
frá kl. 8.00- 15.00 og á sunnudag
frá kl. 9.00-15.30 á sama stað. Það
gæti oröið meiriháttar að fylgj-
ast með úrslitakeppni þessa ald-
ursflokks og em foreldrar sem
aðrir hvattir til að koma og fylgj-
ast með skemmtilegum leikjum
krakkanna.