Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1996, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1996
9
DV
Sjö ára stúlka fórst í heimsmetstilraun á flugvél:
Leyfið bornum að
fljúga ef þau vilja
- sagði
„Vissulega vil ég að öll bömin
mín deyi hamingjusöm, þó ég kysi
að það gerðist ekki við sjö ára ald-
ur. En leyfið börnum að fljúga ef
þau vilja það. Þetta hafði ekkert
með aldur hennar að gera, það var
greinilega eitthvað að,“ sagði móðir
hinar sjö ára Jessicu Dubroffs sem
fórst þegar flugél hennar hrapaði
stuttu eftir flugtak í Wyoming-ríki í
gærdag. Jessica hafði einsett sér að
verða yngsti flugmaður sem flygi
þvert yfir Bandarikin og til baka.
Jessica var að hefja annan kafla
flugs síns, samtals um 11 þúsund
kílómetra leið, þegar flugvél hennar
hrapaði til jarðar í íbúðahverfi í
bænum Cheyenne. Faðir hennar og
flugkennari fórust einnig í slysinu.
Litlu munaði að vélin lenti á íbúðar-
húsi en brot úr flakinu dreifðust
yfir stórt svæði. Slæmt veður var,
rigning og rok, þegar vélin fór í loft-
ið. Áhugaflugmaður, sem varð vitni
að slysinu, sagði að vélin hefði virst
ætla aftur til flugvallarins en hún
hafi látið illa að stjórn eins og væri
móðir hennar
Jessica Dubroff.
hún ofhlaðin.
Jessica hafði byrjað að fara í flug-
tíma sex ára gömul og hafði um 40
flugtima og 50 lendingar og flugtök
að baki. Fjölskylda hennar ítrekaði
að Jessica mundi stýra vélini alia
slysið
leið en flugkennarinn gripi einung-
is inn í í neyðartilvikum. Ekki er
vitað með vissu hver stýrði vélinni
þegar slysið varð. Jessica var ekki
hærri en svo að sessu þurfti í flug-
mannssætið svo hún sæi út og sér-
smíðaðar álstengur svo hún næði á
pedala í gólfinu.
Yfírmaður handarískra flugmála
fyrirskipaði strax endurskoðun á
reglum varðandi aldurstakmörk
þeirra sem stjórna flugvélum. Form-
lega bar flugkennarinn ábyrgð á
fluginu og var Jessica skilgreind
sem farþegi. Samkvæmt lögum fær
enginn flugpróf nema hann hafi náð
16 ára aldri en það er síðan undir
flugstjóranum komið hvort hann
treystir öðrum til að stýra vélinni,
óháð aldri.
Metið sem Jessica reyndi að slá
var sett af níu ára dreng 1988.
Heimsmetabók Guinness hefur til-
kynnt að hætt hafi verið við verð-
launaflokk fyrir yngstu flugmenn-
ina af ótta við að hvetja til áhættu-
samra flugferða. Reuter
Stúlkur sem líkjast Marilyn heitinni Monroe gera sig til á Timestorgi í New York en þar var unnið að gerð auglýsing-
ar fyrir bandarískan kexframleiðanda. Símamynd Reuter
ísraelar gerðu loftárásir á Hizbollah í Líbanon:
Skæruliðar hóta
óvæntum árásum
Sextán fórust í
bruna á flugvelli í
Diisseldorf
Enn er ekki ljóst hvað olli bnm-
anum sem varð að minnsta kosti
sextán manns að bana í flugstöð-
inni í Dússeldorf í Þýskalandi í
gær.
„Neistaflug frá verkfærum kann
að hafa valdið eldsvoðanum," sagði
Hans-Júrgen Leinweber, talsmaður
slökkviliðsins í Dússeldorf.
Allt bendir til að eldurinn hafi
komið upp þegar verið var að gera
við í blómabúð í þeim hluta flug-
stöðvarinnar þar sem farþegar
koma inn. Yfirvöld hafa útilokað
að um íkveikjuárás hafi verið að
ræða.
Slökkviliðsmenn börðust við
eldinn í margar klukkustundir. Að
sögn þýskrar sjónvarpsstöðvar er
þetta mesta óhapp sem orðið hefur
á þýskum flugvelli. Hinir látnu
voru þýskir, franskir, breskir og
ítalskir. Reuter
ísraelsmenn létu að þvi liggja í
gær að þeir kynnu að gera nýjar
loftárásir á Beirút, höfuðborg Lí-
banons, ef Hizbollah-skæruliðar
gerðu fleiri árásir á ísrael.
Mikil spenna ríkir nú í Líbanon
eftir árásirnar í gær og hétu skæru-
liðarnir, sem fylgja stjómvöldum í
íran að málum, að þeir mundu
hefna þeirra, ekki aðeins með árás-
um á norðurhluta Israels, heldur
mundu þeir koma Símoni Peres, for-
sætisráðherra ísraels, í opna
skjöldu með árásum sínum á
óvænta staði.
„Ef þeir vilja að Beirút verði eins
og Kiryat Shmona, verður hún eins
og Kiryat Shmona," sagði Ori Orr,
aðstoðarvarnarmálaráðherra ísra-
els, sem á sínum tíma stjómaði her-
sveitum við víglínuna á landamær-
um Líbanons. Hann var þar að vísa
í norður-ísraelska bæinn sem
skæruliðar léku illa í árásum á
þriðjudag.
ísraelski herinn réðst m.a. með
þyrlum sinum á úthverfi sítamú-
slíma í Beirút en það var fyrsta árás
ísraela á höfuðborg Líbanons í fjórt-
án ár.
Yfirmaður norðurdeildar ísra-
elska hersins sagði líklegt að árás-
irnar mundu standa í nokkra daga.
Orr sagði að ef líbönsk stjórnvöld
og bandamenn þeirra, Sýrlendingar,
hefðu ekki hemil á starfsemi Hiz-
bollah skæruliðanna væri uppbygg-
ingunni í landinu eftir margra ára
borgarastríð stefnt í voða.
Reuter
Útlönd
Dole mætti ekki að jarðarfor
Bandaríski blökkuleiðtoginn
Jesse Jackson veittist að Bob
Dole, væntanlegum forsetafram-
bjóðanda Repúblikanaflokksins, í
gær og sagði hann hafa móðgað
blökkumenn með því að vera ekki
við útför Rons Browns viðskipta-
ráðherra á miðvikudag.
Dole var ekki einn um að sýna
sig ekki því allir leiðtogar
repúblikana í þinginu voru fjar-
verandi.
Brown, sem var blökkumaður,
fórst í flugslysi í Króatíu fyrir
páska á leiö heim ffá Bosníu.
Reuter
Til sölu
þessi gleryfirbygging sem staðsett er að
Laugavegi 70 (sett upp sem tilraunaverkefni).
Þetta eru tvær einingar, hvor um sig 8 m
að lengd, breidd 2,30 m.
Einfalt í uppsetningu.
Upplýsingarí símum 552-4910 og 552-4930.
Húsbréf
Utdráttur
húsbréfa
Nú hefur fariö fram útdráttur húsbréfa
í eftirtöldum flokkum:
4. flokki 1992 - 10. útdráttur
4. flokki 1994 - 3. útdráttur
2. flokki 1995 - 1. útdráttur
Koma þessi bréf til innlausnar 15. júní 1996.
Öll númerin verða birt í næsta Lögbirtingablaði.
Auk þess liggja upplýsingar frammi í Húsnæðis-
stofnun ríkisins, á Húsnæðisskrifstofunni á
Akureyri, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfa-
fyrirtækjum.
cSg HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SlMI 569 6900