Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1996, Qupperneq 17
16
FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1996
FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1996
25
Iþróttir
Iþróttir
Yfirburðir hjá
Stjörnunni
Stjarnan vann yfirburðasigur
á Haukum, 26-16, í fyrsta leik
liðanna um íslandsmeistaratitil-
inn í handknattleik kvenna í Ás-
garði í gærkvöld. Staðan i leik-
hléi var 11-7.
Margrét Vilhjáimsdóttir skor-
aði 5 mörk fyrir Stjörnuna, Her-
dís Sigurbergsdóttir, Sigrún
Másdóttir og Ragnheiður Steph-
ensen 4 mörk hver.
Hjá Haukum var Judith
Estergal markahæst með 5 mörk
og Auður Hermannsdóttir 4
mörk. Næsti leikur er á dagskrá
á morgun en þrjá vinninga þarf
tO að ná titlinum.
-SK
Hammarby áfram
Pétur Marteinsson og félagar í
Hammarby komust í undanúr-
slit sænsku bikarkeppninnar í
knattspyrnu í gærkvöldi með þvi
að sigra Sylvía, 0-3. AIKvann
Örgryte, 2-1, Drömmapojkana
vann Valmö 0-1 og Malmö vann
Öster 4-3. Hammarby mætir AIK
í undanúrslitum keppninnar ctr
-jK
NBA í nótt:
Olajuwon
fór á kostum
Hakeem Olajuwon gerði 37
stig fyrir meistara Houston gegn
Denver í nótt. New York tapaði
óvænt á heimavelli og þar vakti
Danny Ferry athygli hjá
Cleveland með sín 25 stig.
New Jersey-Chicago .100-113
Miami-Milwaukee ... 115-105
Houston-Denver .....113-109
LA Clippers-Golden State . 101-111
Portland-Dallas.. 114-99
New York-Cleveland..97-101
-JKS
Elsa keppir
á ÓL í Atlanta
Badmintonsambandið fékk í
gær staðfestingu þess efnis aö
Elsa Nielsen hefði öðlast
keppnisrétt í einliðaleik kvenna
á Ólympíuleikunum í Atlanta
sem heflast 19. júlí í sumar.
„Ámi Þór Hallgrímsson og
Broddi Kristjánsson, sem barist
hafa um þátttökurétt á leikun-
um í tvíliðaleiknum, hafa farið
hægt og bítandi upp listann í
vikunni. Þeir voru í byrjun í 13.
sæti á varamannalistanum en
eru núna komnir í 6.-7. sætið.
Við getum sagt að þeir eigi jafna
möguleika á að komast á ólymp-
íuleikana,“ sagði Sigríður M.
Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
Badmintonsambandsins.
-JKS
Bláfjallagangan
Bláfjallagangan, sem er hluti
af gönguröð sem heitir íslands-
ganga, fer fram í Bláfjöllum á
laugardaginn kemur og hefst
klukkan 13. Skráning verður í
Borgarskálanum kl. 11-12.30.
Þátttökugjald er krónur 1000.
Siggi þjalfar Hauka
- Jason Ólafsson hjá Brixen með tilboð frá Lautershausen
Sigurður Gunnarsson var í gær ráðinn þjálf-
ari 1. deildar liðs Hauka í handknattleik. Sigurð-
ur hefur um nokkurra ára skeið starfað sem
þjálfari í Noregi.
„Við erum mjög ánægðir með að vera búnir að
ganga frá þessum málum og við komum til með
að halda öllum okkar mannskap. Allir leikmenn-
imir hafa skrifað undir nýja samninga og við
ætlum því að byggja á sama mannskap næsta
vetur,“ sagði Þorgeir Haraldsson, formaður
handknattleiksdeildar Hauka, í samtali við DV í
gærkvöld.
Jason með tilboð
frá Lautershausen
Jason Ólafsson, sem leikið hefur með ítalska
liðinu Brixen, er með tilboð upp á vasann frá
þýska liðinu Lautershausen sem leikur í 2. deild.
Jason var á dögunum hjá félaginu og leit á að-
stæður.
Samkvæmt heimildum DV er líklegt að hann
færi sig um set og leiki með þýska liðinu á næsta
keppnistímabili. -SK
Sigurður Gunnarsson samdi til
tveggja ára við Hauka í gær og
tekur við þjálfun liðsins.
Besta körfuknattleikslið Islands í dag, Islandsmeistarar Grindavíkur 1996. Fagnaðarlátum Grindvíkinga ætlaði aldrei að linna í fþróttahúsinu í Keflavík í gærkvöld eftir
að fyrsti íslandsmeistaratitillinn var loks í höfn eftir sex úrslitaleiki gegn Keflavík. Hafa úrslitaleikir úrvalsdeildar aldrei orðið fleiri. Á innfelldu myndinni til vinstri eru
þeir Hjörtur Harðarson og Rodney Dobard að fagna sigrinum. Báðir áttu þeir frábæran leik fyrir Grindvíkinga í gærkvöld. DV-myndir ÞÖK
„Eg er hættur“
Við þurfum ekk-
ert að skammast
okkar. Við lögðum
okkur fram og þetta
tókst ekki betur,“
sagði Jón Kr. Gísla-
son, þjálfari og leik-
maður Keflavíkur,
eftir leikinn.
„Það var sárt að
horfa á eftir titlin-
um þar sem þetta
var minn síðasti
leikur með Kefla-
vík. Ég er hættur í
Keflavík eftir að
hafa þjálfaö í 5 ár.
Það er kominn tími
til fyrir mig og
Keflavíkurliðið að
breyta til, það er
ljóst en ég veit ekki
hvað ég fer að
gera,“ sagði Jón Kr.
Gíslason landsliðs-
þjálfari sem náði
frábærum árangri
með lið Keflavíkur
á fimm ára
tímabili. -ÆMK
DV, Suðurnesjum:
„Ég er búinn að bíða eftir þessum
meistaratitli í nokkuð mörg ár, reynd-
ar síðan 1985 þegar ég byrjaði að leika
með meistaraflokki Grindavíkur. Síð-
ustu tvö árin vorum við í lokabarátt-
unni og þetta hafðist loksins núna,“
sagði Guðmundur Bragason, fyrirliði
Grindvíkinga, eftir að Grindavík
hafði tryggt sér íslandsmeistaratitil-
inn í körfuknattleik í fyrsta skipti
með stórsigri gegn Keflavík í sjötta
úrslitaleik liðanna í Keflavík í gær-
kvöldi. Lokatölur urðu 73-96 og var
sigur Grindvíkinga öruggur og verð-
skuldaður sem mest má verða.
„Það var ekki einstaklingsframtak-
ið heldur liðsheildin sem skilaði okk-
ur þessum titli. Við höfum unnið vel
saman i vörn og sókn. Það var rosaleg
tilfmning að taka á móti bikarnum.
Ég er ekki búinn að átta mig á þessu
enn þá. Þetta var alveg rosalegt,"
sagði Guðmundur enn fremur.
Allt Grindavíkurliðið lék frábær-
lega í gærkvöld og hvergi veikan blett
að finna á liðinu. Hjörtur Harðarson
fór á kostum og sömu sögu má segja
um Rodney Dobard sem sýndi ótrúleg
tilþrif er hann í tvígang tróð yfir Dav-
íð Grissom.
„Ég elska Grindavík"
„Mér líður alveg frábærlega.
Grindavíkurliðið hefur átt möguleika
á íslandsmeistaratitlinum í þrjú ár og
núna tókst loksins að vinna hann.
Grindavík er frábær staður og ég gæti
vel hugsað mér að búa í Grindavík,"
sagði Rodney Dobard eftir leikinn og
bætti við: „Leikmennirnir og fólkið
hafa verið ótrúlega vingjarnleg við
mig. Ég elska Grindavík," sagði
Dobard.
Keflavíkingar töpuðu þriðja heima-
leik sínum í röð og reyndar hafa
heimavellir ekki reynst liðunum hlið-
hollir í úrslitakeppninni. Aðeins einn
heimasigur í sex leikjum. Lið Keflvík-
inga var hreinlega ekki tilbúið í þessi
miklu átök við Grindvíkinga og því
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Islandsmeistara Grindvíkinga, var klökkur í
leikslok í gærkvöld og hér sést hann smella kossi á íslandsbikarinn.
„Við erum
langbestir"
„Við erum bara langbestir og
þá sérstaklega á útivelli. Það er
spuming hvort við spilum ekki
alla okkar leiki á útivelli á
næsta keppnistímabili," sagði
Margeir Guðmundsson, formað-
ur körfuknattleiksdeildar
Grindavíkur.
„Þetta er ólýsanleg tilfinning
og hreint út sagt glæsilegt. Mér
líður alveg rosalega vel. Núna
verður allt vitlaust í Grindavík.
Þetta er dásamlegt Það eru varla
til nægilega stór orð til að lísa
þessu,“ sagði Margeir.
-SK/-ÆMK
„Gaman að vera
Grðndvíkingur"
„Nú er gaman að vera Grindvík-
ingur, eftir öll þessi ár loksins að fá
bikarinn. Þetta er yndislegt og strák-
arnir stóðu sig alveg frábærlega,"
sagði Ólafur Þór Jóhannesson, fyrr-
um leikmaður Grindvíkinga.
„Okkar menn voru undir miklu
álagi á heimavelli Keflvíkinga I
kvöld. Þeir sýndu hins vegar mikinn
styrk og strákarnir okkar, allir sem
einn, unnu þetta með stæl. Ég er al-
veg í skýjunum eins og raunar allir
Grindvíkingar,“ sagði Ólafur Jóhann-
esson og sjá mátti mörg gleðitárin
renna niður kinnar hans er titillinn
var í höfn.
-SK/-ÆMK
„Þeir komu best
undirbúnir“
„Þetta var eins sanngjamt og hægt
er. Grindavíkurliðið er búið að spila
frábærlega vel í keppninni. Það kom
best undirbúið og átti þetta virkilega
skilið,“ sagði Teitur Örlygsson, leik-
maður Njarðvíkinga, sem var meðal
áhorfenda.
„Þetta er stórkostleg stund fyrir
Grindvíkinga og ég samgleðst þeim
alveg rosalega. Maður var farinn að
vorkenna Guðmundi Bragasyni, sem
allan sinn feril hefur leikið með
Grindavík, að fá ekki að kynnast
þessari tilfmningu. Það er farið að
síga á seinni hlutann hjá honum eins
og mér,“ sagði Njarðvíkingurinn
Teitur Örlygsson. -SK
„Er bara
klökkur"
- sagði Friðrik Ingi Rúnarsson
„Þetta er dásamlegt. Þetta er sennilega torsóttasti titill sem hægt er að
vinna í boltaíþrótt á íslandi, það þarf að fara svo langa leið og vinna svo
marga sigra,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindvíkinga.
„Þessi sigur er alveg sérstakur og sérstakt að vinna titil meö öðru fé-
lagi en maður ólst upp hjá. Þetta er frábær stund og Grindavík á þetta
svo sannarlega skilið. Allt fólkið i kringum þetta er dásamlegt og ég er
bara klökkur fyrir hönd fólksins. Þetta er bara dásamlegt," sagði Friðrik
Ingi sem náð hefur frábærum árangri með liö Grindvíkinga i vetur sem
er vel að sigri á íslandsmótinu komið. -SK/-ÆMK
Þaö er langt síðan íslandsmeistaratitli hefur verið fagnað með álíka látum og
meðai Grindvíkinga í gærkvöld. Menn réðu sér ekki fyrir kæti enda merkum
áfanga náð. Búast má við að gleði Grindvíkinga hafi staðið fram á morgun
enda fyrsti íslandsmeistaratitillinn í höfn.
Japan engin hindrun
- ísland mætir S-Kóreu í undanúrslitum Japansmótsins
íslenska landsliðið í
handknattleik er komið í
undanúrslit á Japansmót-
inu en riðlakeppninni lauk
í gær. íslendingar mættu
Japönum í síðasta leik rið-
ilsins og sigruðu þá stórt,
28-17, en í hálfleik var stað-
an, 14-6.
íslendingar mikla yfir-
burði í leiknum, allt frá
upphafi til enda. Þetta þótti
einn besti leikur liðsins til
þessa í keppninni.
Þá er orðið ljóst að
mótherjar Islands í undan-
úrslitunum verða Suður-
Kóreumenn og í hinum
leiknum mætast Norðmenn
og Bandaríkjamenn. ísland
og S-Kórea léku síöast á
heimsmeistaramótinu hér á
landi fyrir tæpu ári síðan.
Þá fóru Kóreumenn með
sigur af hólmi svo íslend-
ingar eiga harma að efna í
leiknum sem fram fer á
morgun. Líklegt má telja að
Norðmenn sigri Banda-
ríkjamenn.
Úrslitleikur mótsins
verður síðan háður á
sunnudag.
Mörkin gegn Japönum
skiptust þannig: Róbert Sig-
hvatsson 5, Davíð Ólafsson
4, Patrekur Jóhannesson 4,
Björgvin Björgvinsson 3,
Júlíus Jónasson 3, Valdi-
mar Grímsson 2, Gunnar
Viktorsson 2, Sigurður
Bjarnason 2, Sigfús Sigurðs-
son 1, Dagur Sigurðsson 1.
—JKS
Róbert Sighvatsson skoraði flest mörk gegn Japan, fimm talsins.
Kefíavík - Grindavík (37-50) 73-96
2-0, 2-6,11-15,11-22,15-24,15-33, 22-36, 2341 (37-50), 42-50, 48-52, 48-61, 53-66, 53-76,
64-76, 64-89, 73-96.
Stig Keflavíkur: Guðjón Skúlason 20, Siguröur Ingimundarson 19, Jón Kr. Gísla-
son 9, Falur Harðarson 6, Gunnar Einarsson 5, Dwight Stewart 4, Davið Grissom 4, Al-
bert Óskarsson 3, Elentínus Margeirsson 3.
Stig Grindavíkur: Rodney Dobard 21, Marel Guðlaugsson 18, Hjörtur Harðarson
18, Unndór Sigurðsson 14, Guðmundur Bragason 12, Helgi Jónas Guðfinnsson 5, Brynj-
ar Harðarson 3, lngi Karl Ingólfsson 3, Ámi Bjömsson 2.
Fráköst: Keflavík 32, Grindavík 34.
Flest fráköst Keflavlkur: Stewart 8, Sigurður 6.
Flest fráköst Grindavikur: Dobard 11, Hjörtur 8.
Flestar stoðsendingar Keflavikur: Jón Kr. 6, Stewart 3, Albert 3.
Flestar stoðsendingar Grindavikur: Hjörtur 8, Guðmundur 5, Helgi Jónas 5.
Varin skot: - Dobard 2, Unndór 1, Guðmundur 1.
3ja stiga körfur: Keflavík 6/18, Grindavík 10/25.
Vítanýting: Keflavík 7/11, Grmdavik 22/30.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Leifur S. Garðarsson. Þeir félagar dæmdu leik-
inn frábærlega vel og þrátt fyrir að lcikurinn væri frekar erfiður gerðu þeir mjög fá
mistök sem bitnuðu jafht á báðum liðum.
Áhorfendur: 1350.
Maður leiksins: Allt lið Grindavíkur sem á hrós skilið fyrir frábæra frammi-
stöðu.