Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1996, Side 19
FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1996
27
íslenska óperan meö Galdra-Loft á Listahátíð:
Síöasta verkefni
óperunnar á árinu
- 53 milljóna framlag verður uppurið
Óperan Galdra-Loftur eftir Jón Ásgeirsson, sem frumsýnd verður á Listahá-
tíð í sumar, er síðasta verkefni íslensku óperunnar á þessu ári.
DV-mynd GS
I>V
Tvær nýjar
Úrvalsbækur
Tvær nýjar Úrvalsbækur eru
komnar á markað. Önnur nefriist
Brotin ör (Broken arrow) en sam-
nefnd kvikmynd er einmitt sýnd
um þessar mundir í Háskólabíói og
Regnboganum. Hin bókin nefnist
Sinnaskipti, Summer Surrender á
ffummálinu, og er eftir Lyndu Kay
Carpenter. Ingóifur P. Steinsson
hannaöi bókarkápumar.
Brotin ör er
eftir Jeff Rovin
eftir kvik-
myndahandriti
Graham Yost.
Kvikmyndin
kemur frá 21th
Century Fox en
framleiðandi er
Mark Gordon í
samvinnu við
WCG Entertainment. Leikstjóri er
John Woo og aðalleikarar eru John
Travolta og Christian Slater. Hér er
á ferðinni mikil spennusaga sem
segir frá herflugvél sem týnist með
tvær kjarnasprengjur; Enginn
nema flugmennirnir veit hvað er að
gerast. Báðir skjóta sér út úr flug-
vélinni og sleppa heilir á húfi. En í
huga annars jjeirra er þetta aðeins
fyrsti áfanginn í mun viðameiri og
banvænni áætlun. Hann svífst
einskis til að hafa yfirráðin yfir
„brotnu örvunum" en svo nefnast
týndar kjarnasprengjur á dulmáli
bandaríska hersins. Ragnar Hauks-
son þýðir bókina sem fyrst var gef-
in út í Bandaríkjunum i febrúar sl.
og hefur ásamt myndinni hlotið
mjög góðar viðtökur.
Sinnaskipti
er rómantísk
saga úr villta
vestrinu. Þýð-
endur eru .Elín
Margrét Hjelm
og Rósa Anna
Björgvinsdótt-
ir. Segir þar af
Sunnu St. Clair
sem er á leið út
í óvissuna til að finna heitmann
sinn en eyðimörk Kalifomíu kemur
henni á óvart. Chase McCain verð-
ur samferðamaður hennar, þvert
móti vUja sínum, og ferð þeirra yfir
eyðimörkina verður þeim báðum
þraut og gleði í senn. -bjb
Fyrirlestur um
barnabókmenntir
Dr. Jean Webb, lektor við
Worcester CoUege of Higher Ed-
ucation í Bretlandi, heldur opinn
fyrirlestur um barnabókmenntir í
Odda á morgun kl. 14 í boði félags-
vísindadeildar Háskóla íslands.
Fyrirlestri hennar verður fléttað
inn í málstofu um börn og bækur
sem deildin og Bamabókaráðið,
íslandsdeUd IBBY, munu standa
fyrir þennan dag.
Dr. Webb hefur einkum fengist
við aö rannsaka hvernig texti í
barnabókum virðist í fljótu bragði
vera sakleysislegur en er á sama
tíma hlaðinn séreinkennum um-
hverfis og menningar. -bjb
Óperan Galdra-Loftur, sem frum-
sýnd verður á Listahátíð í Reykja-
vík í sumar, verður síðasta verkefni
íslensku óperunnar á þessu ári. Þar
sem fjárframlag þessa árs, um 53
milljónir af fjárlögum, verður
uppurið verður næsta ópera ekki
sett upp fyrr en um áramót en ís-
lenska óperan hefur yfirleitt náð að
sýna eina óperu að hausti. Fyrir
tveimur árum kom upp svipuð
staða nema hvað þá þurfti að loka
óperunni á miðju ári vegna fjár-
skorts og segja upp fostum starfs-
mönnum. Ólöf Kolbrún Harðardótt-
ir, framkvæmdastjóri íslensku óper-
unnar, sagði í samtali við DV að
ekki yrði gripið nú til neinna upp-
sagna þeirra sjö starfsmanna sem
starfa hjá óperunni en allt listafólk
er lausráðið í hvert verkefni.
Mikið umleikis í vetur
„Það hefur verið mikið umleikis
hjá okkur í vetur. Við höfum verið
með Carmina Burana, Madama
Butterfly og Hans og Grétu. Galdra-
Loftur er því fjórða verkefnið á ár-
inu. Hún kemur í staðinn fyrir þá
sýningu sem að öðrum kosti hefði
komið upp í haust. Vonandi náum
við að sýna Galdra-Loft nokkrum
sinnum í haust. Einnig er verið að
ræða þann möguleika að hópur
komi hér inn með leiksýningu, í
samvinnu við okkur. Óperuupp-
færsla verður síðan öðru hvoru
megin við áramótin, annaðhvort
jólasýning eða janúar-, febrúarsýn-
ing,“ sagði Ólöf Kolbrún.
Eins og áður sagði eru sjö stöðu-
gildi hjá íslensku óperunni. Ólöf
Kolbrún er framkvæmdastjóri og
Garðar Cortes óperustjóri. Þetta eru
hvort tveggja hálfar stöður. Síðan
eru nokkrar stöður á skrifstofu. Þá
hafa í vetur verið tvær stöður leik-
stjóra og búningahönnuðar. Samn-
ingar við þá renna út í júní og sagði
Ólöf ekki liggja fyrir hvort auglýst
yrði eftir þeim stöðum fyrir næsta
starfsár.
Beint framlag hins opinbera til ís-
lensku óperunnar er 48 milljónir á
núgildandi fjárlögum. Síðan koma 5
milljónir sem framlag á móti 5 millj-
ónum sem óperan þarf að safna
sjálf. Með Galdra-Lofti, sem áætlað
er að kosti um 19 milljónir í upp-
færslu, verður fjármagn ársins
uppurið.
Nokkur draumastykki
„Það hefur ekkert verið ákveðið
um óperur næsta starfsárs. Við von-
umst til að geta sett upp stóra sýn-
ingu sem ekki hefur verið áður hjá
okkur en við höfum farið yfir nán-
ast allan þennann vinsældaskala í
óperubókmenntunum. Ýmislegt hef-
ur verið í umræðunni, m.a. óper-
urnar Peter Grimes eftir Benjamin
Britten, Turandot eftir Puccini og
Faust eftir Gounod. Þetta eru stykki
sem okkur dreymir um að setja upp,
hvenær sem við komumst í það,“
sagði Ólöf Kolbrún við DV.
-bjb
Hamingjurán
á Smíða-
verkstæðinu
Æfingar eru vel á veg komnar á
næsta verki sem Þjóðleikhúsið tek-
ur til sýningar á Smíðaverkstæð-
inu, söngleik sem nefnist Ham-
ingjuránið. Höfundur er Bengt Ahl-
fors, einn fremsti revíu- og gaman-
leikjahöfund Norðurlanda, og heitir
það á frummálinu Stulen lycka. Fyr-
irhugað er að frumsýna Ham-
ingjuránið í maíbyrjun.
Leikendur i Hamingjuráninu eru
Hilmir Snær Guðnason, Steinunn
Ólína Þorsteinsdóttir, Örn Árnason,
Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Vigdís
Gunnarsdóttir, Bergur Þór Ingólfs-
son og FIosi Ólafsson.
Leikstjóri er Kolbrún Halldórs-
dóttir og Þórarinn Eldjárn þýðir
verkið. Höfundur leikmyndar er
Axel H. Jóhannesson, Þórunn E.
Sveinsdóttir hannar búninga, Ijósa-
hönnuður er Bjöm Bergsteinn Guð-
mundsson og tónlistarstjóri Jóhann
G. Jóhannsson. -bjb
Leikendur í Hamingjuráni á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins.
Menning
Rósa og Lína langsokkur.
Heimsókn til
Línu langsokks
Barnaleikritið vinsæla, Lína
langsokkur, hefur verið til sýninga
hjá Leikfélagi Reykjavíkur í Borgar-
leikhúsinu frá því í september. Að-
eins 3 sýningar eru eftir og sunnu-
daginn 28. aprU nk. verður síðasta
sýningin með Linu.
Morgunblaðið stóð fyrir Litaleik
um Linu langsokk og sendu rúmlega
300 börn myndir tU blaðsins. Fyrstu
verðlaun fékk Rósa Hauksdóttir og
bauð Lína henni ásamt fjölskyldu í
leUchúsið. Eftir sýningu kom Rósa
baksviðs tU að heUsa upp á Linu og
var meðfylgjandi mynd þá tekin.
Ljós til að mála
nóttina
Mál og menn-
ing hefur sent
frá sér ljóðabók-
ina Ljós tU að
mála nóttina
eftir Óskar
Árna Óskars-
son. Þetta er
fimmta bók höf-
undar með
frumsömdum ljóðum en sú fyrsta
kom út árið 1986.
Ljós tU mála nóttina skiptist í
þrjá hluta, tveir þeirra samanstanda
af sjálfstæðum ljóðum en sá þriðji er
ljóðaflokkurinn Vegamyndir. Ein-
kenni þessarar bókar er sérstakt
nostur við hið smágerða í lífinu og
spurt um hvað sé stórt og hvað
smátt.
Fýrsta Ijóðabók
Inga Steinars
Sólskin nefn-
ist fyrsta ljóða-
bók Inga Stein-
ars Gunnlaugs-
sonar, skóla-
stjóra á Akra-
nesi, sem kom-
in er út hjá
Hörpuútgáf-
unni. Ingi
Steinar er þó enginn nýgræðingur á
skáldabekk. Hann er kunnur í.hópi
hagyrðinga og hefur um árabU feng-
ist við ljóðagerð og hverskonar
kveðskap. Bókin skiptist i fjóra
flokka og ljósmynd á kápu er eftir
Guðjón Guðmundsson.
Sautjánda Ijóða-
bók Matthíasar
Hörpuútgáf-
an hefur sent
frá sér bókina
Vötn þín og
vængur eftir
Matthías Jo-
hannessen.
Þetta er sautj-
ánda ljóðabók
Matthíasar en
fyrsta kom út fyrir 38 árum. Hér er
á ferðinni ein stærsta og veigamesta
ljóðabók Matthíasar og sú bók sem
sýnir einna best helstu yrkisefni
hans og listræn tök. Bókin skiptist í
átta flokka og kápumynd er eftir
RAX.
VOTNWN
OGVÆNGllR
Fyrirlestur
felldur niður
Af óviðráðaiUegum orsökum hef-
ur fyrirlestur Eduardo Souto
Moura, sem halda átti í Norræna
húsinu mánudaginn 15. aprU næst-
komandi, verið feUdur niður. Þetta
átti að vera síðasti fyrirlesturinn í
röð 8 fyrirlestra sem Arkitektafélag
íslands, Norræna húsið og Kjarvals-
staðir hafa staöið fyrir í vetur. -bjb