Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1996, Side 28
36
FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1996
Ellert á eftir að ákveða sig.
Framboð til
forseta
„Það að Davíð fer ekki fram
kann að breyta stöðunni eitt-
hvað. Sannleikurinn er sá að ég
var búinn að gefa þetta frá mér.
En það kann að fara svo að ég
velti framboði fyrir mér upp á
nýtt.“
Ellert B. Schram í Tímanum.
Davíð hætti við
framboð
„Ég tel að Davíð hefði átt að
fara fram, hann hefði náð góðu
Ummæli
fylgi alls konar fólks og hefði
náð kjöri sem forseti."
Össur Skarphéðinsson í Tímanum.
Endurkoma Magic
Johnson
„Það er ekki eins og við ætlum
að stunda kynlíf án varna við
Magic á gólfinu, við ætlum bara
að spila körfubolta svo það hlýt-
ur að vera í lagi.“
Charles Barkley í Times.
Evrópusambandið
„Og þegar íslendingar ganga í
Evrópusambandið verður þeim
vísað úr því eftir tíu ár. Þeir
þola allt nema þrasið í íslending-
um.“
Guðmundur Andri Thorsson í Alþýðu-
blaölnu.
Deila um vegagerð í
Borgarfirði
„Það er langt siðan þessi deila
hætti að snúast um vegstæðið.
Hún snýst um menn.“
Jón Kjartansson bóndi í Tímanum.
Nafnabreytingar
Það er þekkt fyrirbæri meðal
fræga fólksins að breyta nöfnum
sínum til þess að auka á frama-
líkurnar. Fjölmargir þeir sem
hafa breytt nöfnum sínum voru
skírðir afar tyrfnum og óþægi-
legum nöfnum sem erfitt er að
bera fram og gripu því til þess
ráðs að fá sér nýtt nafn sem gæti
auðveldlega fests í huga fólks.
Meðal þeirra sem hafa tekið
upp ný nöfn em: Brigitte Bardot
(Camille Javal), David Bowie
(David Robert Jones), Nicholas
Cage (Nicholas Coppola), Susan
Sarandon (Susan Tomaling),
Donna Summer (LaDonna Andr-
ea Gaines) og Stevie Wonder
(Steveland Morris Hardaway).
Blessuð veröldin
Ekta nöfn
Margir af þeim sem náð hafa
heimsfrægð í skemmtanabrans-
anum hafa svo þjál nöfn að erfitt
er að ímynda sér að þeir hafi í
raun verið skírðir þessum nöfn-
um. Hér eru nokkur dæmi um
leikara sem hafa aldrei séð
ástæðu til að breyta skírnar-
nafni sínu: Kris Kristofferson,
Clint Eastwood, Olivia de HavO-
land, Dustin Hoffman, Gina
Lollabrigida, Elvis Presley,
Marianne Faithful, Marlon
Brando, Humphrey Bogart,
Dolly Parton og Errol Flynn.
Léttskýjað norðanlands
í dag verður suðaustangola og
léttskýjað um norðanvert landið en
austankaldi og skýjað sunnanlands.
Vaxandi suðaustan- og austanátt er
líður á morguninn, stinningskaldi
og rigning með suður- og austur-
Veðrið í dag
ströndinni síðdegis en heldur hæg-
ari og skýjað með köflum annars
staöar. Hiti verður á bilinu 3-12
stig.
Um 500 km suður af Reykjanesi
er nærri kyrrstæð 998 mb lægð en
skammt norðvestur af írlandi er
1000 mb lægðamiðja sem hreyfíst
norðvestur. 1035 mb hæð er yfir
Skandinavíu.
Sólarlag í Reykjavík: 20:53
Sólarupprás á morgun: 06.02
Síðdegisflóð í Reykjavík: 13.41
Árdegisflóð á morgun: 02.23
Veðrið kl. 6 í dag:
Akureyri léttskýjaó -0
Akurnes úrkoma i grennd 5
Bolungarvík léttskýjað -0
Egilsstaöir skýjaö 3
Keflavíkurflugv. skýjaó 4
Kirkjubkl. alskýjaó 5
Raufarhöfn þokumóöa 1
Reykjavík skýjað 5
Stúrhöföi úrkoma í grennd 5
Helsinki léttskýjaö -3
Kaupmannah. skýjað -1
Ósló heiöskírt -0
Stokkhólmur skýjaö -0
Þórshöfn léttskýjað 5
Amsterdam skýjað 1
Chicago heiöskírt 19
Frankfurt alskýjað 2
Glasgow rigning 5
Hamborg léttskýjaó -2
London rigning og súld 7
Los Angeles léttskýjað 15
Lúxemborg súld 5
París þokumóða 8
Róm þokumóöa 11
Mallorca þokumóða 7
New York alskýjað 16
Nice skýjað 11
Orlando heiöskírt 13
Vín þokumóða 9
Washington léttskýjaó 12
Winnipeg léttskýjaó -6
Ólafur Þór Gunnarsson landsliðsmarkvörður:
Að koma liðinu til
Frakklands
„Við töpuðum fyrsta leiknum á
mótinu á Ítalíu fyrir Sviss, 2-1, en
ég geri ráð fyrir að æfingaleikur
sem við spiluðum gegn Þjóðverj-
um fyrir mótið hafi setið nokkuð í
okkur í leiknum við Sviss. Æf-
ingaleikurinn gegn Þjóðverjum fór
1-1 sem við töldum góða niður-
stöðu gegn svo sterku liði og því
létum við ekki hugfallast þó við
heföum tapað fyrsta leiknum á
mótinu.
Maður dagsins
Það má miklu fremur segja að
tapið hafi þjappað okkur saman og
við byrjuðum að spiia eins og lið
en ekki einstaklingar eftir það.
Liðinu gekk vel og náði sigri í
mótinu með því að vinna alla leik-
ina sem eftir voru,“ sagði Ólafur
Þór Gunnarsson, markvörður U-18
ára landsliðsins í knattspyrnu.
Ólafur stóð sig frábærlega og var
kosinn maður mótsins að því
loknu.
Ólafur Þór Gunnarsson.
„Næsta verkefni U-18 liðsins er
að keppa við íra í 16 liða úrslitum
í Evrópukeppninni. Ef við vinnum
írana erum við komnir í 8 liða úr-
slitin sem verða í Frakklandi í
sumar. Það væri toppurinn ef það
tækist. írarnir eru sterkir en ný-
lokið mót virðist benda til þess að
eitthvað búi í okkar liöi og leikur-
inn gæti farið á hvorn veginn sem
er. Það ríkir almenn ánægja með
framlag þjálfarans, Guðna Kjart-
anssonar, að vonum, enda er liðið
að gera góða hluti undir hans
stjóm.
Ég hef alla mína tíð leikið með
ÍR og er uppalinn á þeim vígstöðv-
um. ÍR-ingar eru með aðstöðu í
Breiðholtinu og liðið hefur undan-
farin 10 ár verið í 2. deild i meist-
araflokki, en við ÍR-ingar litum
björtum augum á framtíðina. Ail-
ur frítími minn fer í knattspym-
una og námið hjá mér og ég hef lít-
inn tíma til að sinna öðrum mál-
um. Maður er enn þá svo ungur og
meira að segja ólofaður þessa
stundina. Ég er í stærðfræðideild í
Versló. Það er verið að athuga
hvort möguleiki er á að komast að
á viðskiptabraut í Bandaríkjunum
að loknu náminu í Versló og reyna
að fá styrk út á fótboitann," sagði
Ólafur.
Myndgátan
Steingeit
ÍÐTOKOMS'
HANN ALLTAF-
FAStAN (jrAN
D YRA.fjf
Myndgátan hér að ofan lýsir lýsingarorði
Dos Pilas heldur lokatónleika í
Rosenbergkjallaranum.
Lokatónleikar
Strákarnir í hijómsveitinni
Dos Pilas, sem starfað hafa sam-
an um árabil, hafa ákveðið að
leysa upp sveitina. En áður en af
því veröur verða haldnir
Samkomur
lokatónleikar fyrir unnendur
sveitarinnar í Rosenbergkjallar-
anum. Þeir fyrri verða í kvöld en
þeir síðari á laugardagskvöldið.
Unnendum sveitarinnar er bent
á að þetta er síðasta tækifærið til
að fylgjast með þeim sveinum á
sviði.
Söngklúbburinn
Uppsigling
Söngklúbburinn Uppsigling
ætlar að koma saman við stór-
markaðinn Samkaup í Reykja-
nesbæ í kvöld kl. 20.30. Þar verða
sungin saman ýmis sönglög og
dægurlög við undirleik á gítara,
ásláttarhljóðfæri og bassa þegar
það á við.
Bridge
Svíar og Kanadamenn áttust við í
undanúrslitaleik á síðustu heims-
meistarakeppni um Bermúdaskál-
ina. Svíarnir Bennet og Wirgren
bjuggust við að græða á þessu spili
í leiknum, en þeir höfðu doblað Eric
Kokish og Joe Silver í tveggja spaða
samningi á hættunni og sett tvo nið-
ur (500). Bennett og Wirgren áttu
eftir að verða fyrir vonbrigðum, því
sagnir voru þeim óhagstæðar á
hinu borðinu. Norður gjafari og AV
á hættu:
* KDG8543
KG9
-f 74
* 10
* ?2
* AD76
♦ KG
4 ÁD754
♦ --
* 842
* D10953
* KG986
4 A1076
» 1053
•f Á862
4 32
Noröur Austur Suður Vestur
Molson Morath Baran Bjerreg.
1G pass pass 2*
34 dobl pass 4*
pass pass dobl p/h
Markland Molson opnaði á 15-17
punkta grandi með frekar óvenju-
lega skiptingu og Bjerregaard kom
inn á tveimur spöðum. Þegar Mol-
son tók þá djörfu ákvörðun að segja
3 lauf virtist hann vera í vondum
málum eftir dobl Moraths. En Bjer-
regaard kom til bjargar og tók þá
vægast sagt undarlegu ákvörðun að
stökkva í 4 spaða. Boris Baran gat
doblað þann samning með góðri
samvisku og vörnin gaf enga mis-
kunn. Molson fann besta útspilið,
tígulkóng, og síðan kom tígull á ás
og Baran gerði vel í því að spOa
næst hjartatíunni. Molson tók tvo
slagi á hjarta, laufás og spilaði síð-
an áfram hjarta. Sagnhafl spilaði
spaðagosa, Baran drap á ás, spilaði
tígli sem sagnhafi trompaði lágt og
norður yfirtrompaði. Spaðatían var
enn slagur svo spilið fór 1400 niður
og Kanadamennirnir græddu 14
impa. ísak Örn Sigurðsson