Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1996, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1996
matgæðingur vikunnar
Dóróthea J. Eyland er matgæðingur vikunnar:
Indverskur karríréttur
sælkerinn
Uppskrift að pitsu
- fyrir fjóra
Brauð með fyllingu borðað
s með puttunum - þannig var pits-
: an upprunalega hugsuð í Suður-
Evrópu og þannig er hún best.
Pitsur eru sívinsælar, hollar og
góðar hvort sem um helgi er að
ræða eða jafnvel í miðri viku sé
uppskriftin bara nógu einföld.
Hér á eftir kemur grunnupp-
skrift að pitsudeigi, tómatsósu
og gimilegu áleggi ofan á pits-
una og nú eiga allir að prófa.
Gjörið svo vei.
Uppskrift að deigi
1,5 dl volgt vatn
1 tsk. þurrger
sykur á hnífsoddi
225-250 g hveiti
Htsk. salt
1 msk. ólífuolía
1 msk. ólífuolía
|(til að pensla með)
Blandið saman vatni, sykri og
geri og látið standa í 5-10 mínút-
ur. Sigtið 225 g hveiti og salt í
skál og hrærið gerblöndunni og
olíunni saman viö smám saman.
Hnoðið deigið, ef til vill með
aukahveiti, í um 10 mínútur
þangað til deigið er mjúkt og
teygjanlegt.
Hnoðið deigið í kúlu og látiö
hefast undir klút í einn og hálf-
an klukkutíma. Hnoðið deigið í
nokkrar mínútur og skiptið því í
tvo hluta. Rúllið hvorn hluta út
| á bökunarpappír og setjið á bök-
unarplötuna. Brettið aöeins upp
á kantana og penslið með olíu.
Látið tómatsósu og fyllingu ofan
; á.
■
Tómatsósa
1 dós hakkaðir tómatar
1 finskorinn hvítlaukur
1 tsk. oregano
1 lárberjablað
1 tsk. rauðvíns-
eða hvítvínsedik
/2 tsk. sykur
salt og pipar
I.
Öllu er blandað saman í með-
alstóran pott og soðið á góðum
hita í um 20 mínútur meðan
hrært er stöðugt í pottinum. Sós-
an á að vera þykk. Sósan er sett
ofan á pitsudeigið þegar búið er
að fletja deigið út í tvær pitsur,
um 25 sentímetrar á breiddina.
Pitsa með grillaðri
papriku og kapers
2 rauð piparaldin
j 2 gul piparaldin
1 grænt piparaldin
3-4 msk. kapers
2 tsk. oregano
1 tsk. þurrkaðar chili-flögur
35 g rifinn mozzarella-ostur
Fjarlægið kjarnann úr pipar-
aldinunum og setjið á grillið í
ofninum. Grillið þar til húðin fer
að dökkna og hægt er að flysja
húðina af. Setjið aldinin í plast-
poka og kælið. Flysjiö og skerið í
bita. Smyrjið tómatsósunni á
deigið, setjið bitana á pitsuna,
dreifið kapers yfir, oregano,
chiliflögunum og leggið rifinn
ost yfir.
Pitsurnar eru bakaðar við 250
gráður í 10-12 mínútur.
Um 415 kílókalóríur eru í
hvorri pitsu. -GHS
R»öaM*íBa6a«tíeifflssfcíBB
og djöflakaka Rósmary
„Ég held að ég verði með eitthvað
fljótlegt því að ég er meira fyrir það
sjálf. Mér datt í hug að hafa forrétt í
hring með kavíar og rækjur í
sýrðum rjóma. Þó að ég sé sjálf
ekkert agalega hrifin af pott-
réttum þá er einn pottréttur
mjög vinsæll á mínu heimili.
Það er indverskur karrípott-
réttur. Svo er ég með djöfla-
köku sem ég fékk einu sinni
hjá svissneskri konu í Kaup-
mannahöfn," segir Dóróthea
J. Eydal á Akureyri en hún
er matgæðingur vikunnar
að þessu sinni.
Dóróthea segir að allt
mögulegt sé í pottréttinum
en ekki þurfi að nota nema
kjöt og lauk. „Þetta er virki-
lega puntulegur og skemmti-
legur réttur,“ segir hún.
Uppskriftirnar hennar
koma hér á eftir.
3 msk. olía til steikingar
Kjötið er skorið í litla ten-
inga og þeim er velt upp úr
hveiti ásamt salti, pipar og
paprikukryddi og síðan er
kjötið léttsteikt í olíunni.
Laukurinn, púrran og karrí-
ið er látið veltast aðeins í
olíu, ekki brúnast. Allt er síð-
an soðið í um 45 mínútur.
Með þessu eru borin fram
hrísgrjón og indversk
sojasósa. Að auki er borið
fram með 1 litlum skálum,
sem raðað er í kringum pott-
inn eða skálina með kjötinu,
niðursneiddir bananar, rús-
ínur, kókosmjöl, gróft karrí
og mango chutney. Einnig
getur verið gott að bera fram
salthnetur.
Forráttur:
Kavíarrönd
250 g majónes
/21 sýrður rjómi 18%
1 krukka rauður kavíar
(grásleppuhrogn)
200 g rækjur
7 blöð matarlím
kryddedik eða sítrónusafi
franskt sinnep
karrí
salt
pipar
Majónesi og sýrðum rjóma er
blandað saman auk kryddtegunda
eftir smekk, þá rækjum og kavíar og
að lokum útbleyttu og bræddu mat-
arlíminu. Blandan er sett í hringform
og það kælt. Hringnum er síðan
hvolft á fat og fallegt er að setja rækj-
Dóróthea J. Eydal er matgæðingur vikunnar og gefur
uppskrift að kavíar- og rækjuhring í forrétt, huggulegum
og skemmtilegum indverskum pottrétti og svissneskri
djöflaköku. DV-mynd Sigurður Hlöðversson
ur inn í hringinn og skreyta hann að
utan með hálfum eggjum, svolitlum
kavíar, tómat- og sítrónubátum. Rétt-
urinn er borinn fram með snittu-
brauði.
Eftirréttur:
Djöflakaka
Rósmary
Aðalréttur:
Indverskur
karrípottur
/2 kg nautakjöt eða annað kjöt
2 sneiddir laukar
2 sneiddir púrrulaukar
1 msk. karrí
3 grófhakkaðir tómatar
2 meðalstórar courgettur
(kúrbítar) í sneiðum
kjötsoð (úr teningi)
125 g súkkulaöi er brætt í svolitlu
vatni. 3 eggjarauður eru hrærðar
með tæplega 3 msk. af sykri og
súkkulaðinu er bætt út í. 3 eggjahvít-
ur eru stífþeyttar og settar varlega
saman við. Makkarónukökur eru
settar í botn á djúpu fati og bleytt í
með Kirch og vatni eða öðru áfengi.
Súkkulaðisósunni er síðan hellt yfir
og kakan er skreytt með þeyttum
rjóma. Kakan er kæld vel. Þeyttur
rjómi er borinn fram i skál „því að
kakan hrópar á mikinn rjóma,“ segir
Dóróthea.
Dóróthea skorar á sænska kunn-
ingjakonu sína, Eivor Jónsson, sem
hefur verið búsett hér á landi í fjölda-
mörg ár: „Ég veit að hún á margt gott
til í pokahorninu," segir hún.
Jónína Gissurardóttir er sælkeri vikunnar:
Núðluréttur kryddaður
að afrískum hætti
„Ég hef búið erlendis og þetta er
kryddað með svolítið afrfsku sniði,
en maðurinn minn var í þróunar-
starfi í Tansaníu um tíma, og svo er
hluti af þessu með hollensku ívafi.
Hollendingar eru líka mikið með
pastarétti eins og við,“ segir Jónína
Gissurardóttir en hún er sælkeri
vikunnar að þessu sinni.
Jónína gefur hér uppskrift að
góðum núðlurétti en hún fékk auka-
verðlaun fyrir hana í uppskrifta-
samkeppni Vöku-Helgafells og
Manneldisráðs. í samtali við DV
sagðist Jónína hafa verið að þróa
uppskriftina í langan tíma. Hún
taldi réttinn ekki veislurétt en aftur
á móti góðan pastarétt.
200-250 g lamba- eða svínalundir
1 pk. eggjanúðlur
2-3 gulrætur
/2 púrra, bæði græni og hvíti
hlutinn er notaður
1 laukur
baunaspírur
olía til steikingar
1-2 egg
kjötkraftur
(ekki nauðsynlegur)
soyasósa
Kryddlögur fyrir kjötið
3-4 msk. sætt sinnep
2-3 hvítlauksgeirar
2-3 tsk. cumin
1 tsk. koriander-duft
1 tsk. chili sósa (hot)
/2 tsk. salt
/2 tsk. piparblanda (rauður pipar)
Kjötið er skorið mjög smátt og lát-
ið liggja í kryddleginum í að
minnsta kosti 3-4 klukkutíma. Eggj-
anúðlurnar eru settar í sjóðandi
léttsaltað vatn í 4-5 mínútur og tekn-
ar strax upp. Grænmetið er skorið í
ekki of litla bita og steikt í olíu. Síð-
an er kjötið steikt. Grænmetinu er
því næst blandað saman við kjötið
og kryddað með kjötkrafti og
soyasósu. Eggin eru hrærð saman
og blöndunni er hellt yfir og hrært
vel í. Þá eru baunaspírurnar settar
út í. Að síðustu eru núðlurnar sett-
ar saman við. Öllu er blandað vel
saman.
Kjötið notað
sem krydd
„Þetta er mjög fljótlegur réttur,
það er þegar búið er að skera kjötið
niður og setja í kryddlöginn. Kjötið
Jónína Gissurardóttir er sælkeri vikunnar að þessu sinni og gefur uppskrift
að góðum núðlurétti sem kryddaður er að afrískum hætti.
er nánast notað sem krydd og er
þetta þar af leiðandi léttur og góður
réttur. Það er auðvitað smekksat-
riði hversu sterkir svona réttir eiga
að vera og er alltaf hægt að velta því
fyrir sér hversu mikið á að nota af
hverju kryddi," segir Jónína í upp-
skrift sinni.
„Þessi réttur er mjög vinsæll hjá
mér og bæti ég stundum út í hann
bitum af skinku og einnig má nota
annað grænmeti, ég reyni bara að
hafa það nógu litríkt," segir hún.
-GHS
Grillspjót
Grillspjót er gott og
skemmtilegt að borða,
ekki sist nú þegar fer að
vora og stöku fjölskylda
er jafnvel farin að nota
grillið. Þegar grillaö er á
spjóti er nauðsynlegt að
gæta þess að allir grfllbit-
arnir séu tilbúnir sam-
tímis og ekkert á spjótinu
brenni. Hér kemur tillaga
að því sem sniðugt er að
hafa á spjótinu en auðvit-
að getur hver og einn haft
það sem honum þykir
best.
Uppskriftin
Svinakjöt
200 g kalkúnabringa
eða kjúklingabringa
200 g kjúklingalifur
1 pakki beikon
1 pakki pylsur
10 litlir laukar
10 litlir tómatar
1 paprika
Skerið kjötiö í teninga
og kjúklingalifrina í að-
eins stærri bita. Pakkið
hverjum kjötbita í
beikonsneið. Skerið
paprikuna í teninga.
Smyrjið kjötið og lifrina
með olíu. Stráið kryddi
yfir, til dæmis timjan,
merian, oregano, salvíu,
basilíku, steinselju eða
öðru kryddi. Hitið lauk-
inn í 3-4 mínútur og
kælið. Raðið öllum bitun-
um upp á spjót. Grillið
við mikinn hita og snúið
spjótunum þar til kjötið
er orðið gott á öllum hlið-
um. Borið fram meö kart-
öflusalati, blönduðu salati
og snittubrauði. -GHS