Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1996, Blaðsíða 11
JjV LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1996
11
Það getur verið erfitt að vera gest-
gjafi, sinna gestunum og sjá um að
þeir njóti veitinganna en með þess-
um franska kjól eru þau vandamál
úr sögunni. Gestgjafinn klæðist ein-
faldlega kjólnum í boðinu og getur
þá rætt öll heimsins áhugamál við
gestina og boðið þeim samtímis
upp á hressingu. Eins og sjá má er
þægilegast að hafa snittur og ýmis
konar smærri brauðmat á hillunum í
kjólnum en hugsanlega er einnig
hægt að fá aðra útgáfu af kjólnum
fyrir fljótandi veitingar og þá er boð-
ið fullkomið.
Bróðir brúðgumans málaði
doppurnar meðan parið var f
brúðkaupsferðinni.
r
I brúðkaupsferðalaginu:
Grænar
doppurá
bleikt hús
Hrekkjalóma má finna víðar
en á íslandi og flestir eiga þeir
það sammerkt að vilja gjarnan
koma á óvart.
í Bretlandi tók sig til ungur
hrekkjalómur, sem er málari að
atvinnu, og málaði grænar dopp-
ur á bleikt hús bróður síns og
eiginkonu hans, Rachel og Gor-
don Matkin frá Derby, meðan
þau voru á brúðkaupsferðalagi í
útlöndum.
Unga parinu brá verulega við
heimkomuna og segir Rachel að
þau hafi verið alveg orðlaus af
undrun þegar leigubíllinn
renndi í hlað heima i Derby.
„Við borðum Cheerios hringi... á meðan jörðin hringsnýst um möndul sinn...!“
Cheerios
sólarhringurinn
Málið er einfalt, í hvert sinn sem þú borðar Cheerios borðar þú
hollan og góðan mat. Cheerios er trefjaríkur matur, svo til laus
við sykur og fitu en hlaðinn steinefnum og vítamínum.
Þess vegna er ráðlegt að borða Cheerios hvenær sem
hungrið segir til sín - á nóttu sem degi.
-einfaldlega hollt
allan sólarhringinn!
YDDA F45.23/SIA