Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1996, Page 14
14
LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1996 J3' V
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjórl: JÓNAS KRISTJÁNSSON
Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLT111,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVÍK, SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Ofbeit hrossa
Minnkandi kvótar í ríkisreknum hlutum landbúnað-
arins hafa leitt til offramleiðslu í greinum, sem standa
utan við kvóta og ríkisrekstur. Um leið og sauðfé og
nautgripum fækkar, fjölgar hrossum langt umfram
auknar þarfir markaðarins og burðargetu sumra bú-
jarða.
Offramleiðsla reiðhrossa hefur lækkað markaðsverð
miðlungshrossa niður fyrir framleiðsluverð þeirra.
Hrossarækt byggist í vaxandi mæli á nógum tíma fólks,
sem reiknar sér ekki mikið kaup við ræktun og tamning-
ar, en hefur grundvallartekjur sínar af öðru.
Því miður er hluti þessarar óarðbæru ræktar stjórn-
laus með öll. TU eru bújarðir, þar sem hrossum fjölgar
nánast með viUtum hætti, án þess að bóndinn stundi
neitt ræktunarskipulag að heitið geti. Sumir þessara
bænda hafa hreinlega orðið gjaldþrota á slíku.
Þekktar eru nokkrar jarðir á landinu, sem eru nauð-
beittar af hrossum. Á mörgum fleiri jörðum eru tU of-
beitt hólf, sem sums staðar stinga mjög í augu við þjóð-
vegi landsins. Þessi mikla beit er minnisvarði um mis-
vitra hrossabændur, sem hafa misst ræktunartökin.
Að vísu þarf að gera greinarmun á þessari ofbeit og of-
beit sauðfjár, sem stunduð er á afréttum, þar sem ríkir
uppblástur og landeyðing. Ofbeit hrossa er stunduð í
heimahögum, þar em ekki er hætta á uppblæstri og land-
eyðingu. Hún er því ekki sams konar vandamál.
Ofbeit hrossa er eigi að síður vandamál og þar að auki
gersamlega ástæðulaust vandamál. Markaðurinn þarf
ekki öU þessi hross og engir opinberir sjóðir koma þeim
bændum til bjargar, sem sitja uppi með ofbeitta haga og
hundruð hrossa, er enginn viU kaupa.
Af þessari ástæðu er nauðsynlegt að herða opinbert
eftirlit með hrossahaldi og burðargetu bújarða, ef tU viU
á svipaðan hátt og löngum hefur verið með skepnuhaldi
og vetrarfóðri. Unnt þarf að vera að grípa fyrr í taumana
hjá þeim, sem ekki finna fótum sínum forráð.
Samtök á borð við Félag hrossabænda og hrossarækt-
arsambönd héraðanna þurfa að taka miklu öflugra frum-
kvæði í'þessum efnum. Með því gættu þau almennra
markaðshagsmuna félagsmanna og um leið hagsmuna
ruglukoUanna, sem ofbeita sér til tjóns.
Almenn samtök hestamanna þurfa líka að taka tU
hendinni vegna almennra hagsmuna í greininni. Nauð-
beit nokkurra jarða og fjölmargra hrossahólfa kemur
óorði á hestahald og stuðlar að ýktum hugmyndum hjá
fólki um meinta skaðsemi hrossa í náttúrunni.
Margir telja tU dæmis, að hross haldi tU á afréttum og
stuðli að uppblæstri og landeyðingu. Þeir telja, að ferða-
lög með hross um óbyggðir séu óeðlUegt álag á landkosti
þessara staða. Hvort tveggja er misskUningur, sem
stafar af sýnilegri ofbeit hrossa í heimahögum.
Ekki er hægt að sjá, að sumarumferð manna með
hrossahópa um merkUega gróðurstaði á borð við Marar-
dal við HengU og Þjófadali á KUi hafi nokkur skaðleg
áhrif á gróðurfar. Auðvitað eru hrossagötur aUs staðar í
landslaginu eins og þær hafa verið í þúsund ár.
Nú er svo komið, að þúsund ára gamlar hrossagötur
hafa verið merktar sem gönguslóðir og reynt að banna
umferð hesta um þær. Þetta gerist í skjóli óorðs, sem fer
af hestamennsku vegna ástæðulausrar ofbeitar á aUt
öðrum stöðum í landinu, í heimahögum við þjóðvegi.
Hagsmuna sinna vegna þurfa því samtök ræktenda,
seljenda, leigjenda og notenda hrossa að taka upp hvass-
ari stefnu gegn staðbundinni ofbeit hrossa.
Jónas Kristjánsson
Hizbollah tekur við
að þjarma að Peres
Fyrstu daga vikunnar dundi
hríð Katjúsha-eldílauga frá stöðv-
um skæruliða Hizbollah í Suður-
Líbanon á nyrstu byggðum ísra-
elsmanna í Galíleu. Fólk í borg-
inni Kirjat Shemona og nálægum
þorpum varð að hírast í loftvarna-
byrgjum og tugir særðust.
Á fimmtudag svaraði Israelsher
með loftárásum á stöðvar Hiz-
bollah í Bekaa-dal austarlega í Lí-
banon og í suðurúthverfum höfuð-
borgarinnar Beirút. Utanríkisráð-
herra ísraels lýsti yfir að enginn
staður í Líbanon gæti verið óhult-
ur fyrir hefndarárásum meðan Lí-
banonsstjórn léti Hizbollah hald-
ast uppi árásir á ísrael.
Viðsjárnar eru þær mestu á
þessum slóðum frá innrás ísraels í
Líbanon 1982. Og þær blossa upp í
aðdraganda kosninga í Israel. Úr-
slit þeirra geta svo ráðið úrslitum
um afdrif friðarsamkomulags nú-
verandi stjórnar ísraels og Frelsis-
samtaka Palestínumanna.
Eftir að ofstækisfullur andstæð-
ingur friðarsamkomulagsins í Isr-
ael myrti Rabin forsætisráðherra
sinn til að koma því fyrir kattar-
nef, ákvað Shimon Peres, eftir-
maður hans, að flýta kosningum
frá því í október til 29. maí. Sæk-
ist hann eftir endurnýjun umboðs
kjósenda til að ljúka þeirri friðar-
gerð sem hafln var undir forustu
Rabins.
ísraelsmenn báru mikið traust
til Rabins, að hann væri réttur
maður til að sjá fyrir öryggi
þeirra, bæði vegna hermennsku-
ferils síns og skörulegrar fram-
komu. Peres hefur aldrei notið
slíks persónutrausts.
Nú er í fyrsta sinn í ísrael val-
inn forsætisráðherra í almennri
kosningu jafnframt því sem kosið
er til þings. Fyrst í stað eftir boð-
un kosninga voru yfirburðir Peres
Eriend tíðindi
Magnús Torfi Úlafsson
í skoðanakönnunum 30 af
hundraði umfram helsta keppi-
nautinn, Benjamin Netanyahu,
foringja Likud-samsteypunnar.
Kom þar bæði til samúðarbylgja
með Verkamannaflokki Rabins
eftir morðið og andúð á Netanya-
hu fyrir að hafa átt þátt í að skapa
jarðveg fyrir ódæðið með illskeytt-
um árásum Likud á fallna forsæt-
isráðherrann fyrir friðargerðina.
Þessi staða breyttist í kjölfar
sjálfsmorðssprenginga erindreka
Hamas, samtaka heittrúaðra
Palestínumanna, á almannafæri í
ísrael. Eftir að sex tugum
óbreyttra vegfarenda hafði verið
banað með þessum hætti tók gagn-
rýni að beinast að Peres og ríkis-
stjórn hans en Netanyahu rétti við
í fylgiskönnunum að sama skapi.
Aðgerðir ísraelskra og palest-
ínskra yfirvalda gegn Hamas virð-
ast hafa borið nokkurn árangur,
að minnsta kosti hafa hryðju-
verkasveitir þeirra haldið að sér
höndum upp á síðkastið. Þá kem-
ur Hizbollah til skjalanna.
Á tveim tungum leikur hvaðan
Hamas berst fé, efniviður og þjálf-
un til aðgerða sinna gegn friðar-
samkomulaginu. Enginn vafi er
hins vegar á að Hizbollah, en
nafnið merkir Flokkur guðs, er
sköpunarverk útbreiðsluarms
írönsku klerkastjórnarinnar fyrir
það sem hún kallar íslamska bylt-
ingu.
Hugmyndafræðingar íranska
klerkaveldisins láta einskis
ófreistað til að ónýta friðargerð
milli ísraels annars vegar og
Palestínumanna og nágrannaríkja
þess hins vegar. Ævarandi barátta
gegn ísrael er forsenda og tilveru-
skilyrði útbreiðslu boðskaparins
um íslamska byltingu.
Fjárstreymi, vopnasendingar og
stjórn frá Teheran er þó ekki Hiz-
bollah nóg til að geta haldið uppi
árásum á nyrstu héruð ísraels.
Sýrlandsstjórn, sem ræður því
sem hún vill í Líbanon, og líbönsk
stjórnvöld þurfa líka að veita
hreyfingunni svigrúm.
Harðar árásir Israelshers á lí-
banskt land í vikunni eru til þess
sniðnar að þrýsta á þessa aðila að
hafa hemil á Hizbollah. Önnur
meginárásin var gerð á tvennar
búðir við Baalbek í Bekaa-dal, en
þar eru höfuðstöðvar sýrlenska
hersins sem dvalið hefur í Lí-
banon á annan áratug.
Árásin á úthverfl Beirút hlýtur
að koma við auman blett á Lí-
banonsstjórn, því meginverkefni
hennar er og verður um langa
framtíð að reisa borgina og at-
vinnulíf hennar úr rústum borg-
arstríðs og ísraelskrar innrásar.
Til þess þarf að laða að erlenda
fjárfesta, og fyrsta krafa þeirra er
um öryggi.
ísraelsmenn í Kirjat Shemona skýla sér í loftvarnabyrgi fyrir eldflaugaárás Hizbollah. Símamynd Reuter
skoðanir annarra
f
Hjónabönd samkynhneigðra
„Hjónabönd samkynhneigðra valda tilfmninga-
hlöðnum ágreiningi. Andstæðingar vilja gera slík
hjónabönd ólögleg eins og reyndar hefur gerst í Ge-
orgíuríki. Slíkum lögum hefur verið hafnað í 12
ríkjum en óvissa rikir 15 ríkjum. Sú fáránlega staða
getur orðið að löglegt hjónaband verður ólöglegt sé
farið yfir ákveðin ríkjamörk. Baráttan gegn hjóna-
böndum samkynhneigðra sýnir skort á umburðar-
lyndi og ógnar grunvallaratriði stjórnarskrár sem
segir að ríki virði að fullu lög annarra ríkja.“
Úr forustugrein New York Times 8. apríl.
Ógnun úr norðri
„Þrátt fyrir ógnanir við landamærin eru Norður-
Kóreumenn í veikri stöðu, heftir af kreppu og ein-
angrun. Rætt er um að þjóðfélag þeirra hrynji
vegna þessa og yfirvofandi hungursneyðar. En slík
þróun er ekki vís og þrátt fyrir veika stöðu getur
rúmlega milljón manna her valdið hræðilegu tjóni.
Stjórnvöld í Washington gera þó rétt í að taka síð-
ustu atburðum á Kóreuskaga með ró, ýkja ekki
gildi þeirra og gefa þannig Norður-Kóreumönnum
ástæðu til að ætla að þeir muni græða á öllu saman
við samningaborðið.“
Úr forustugrein Washington Post 10. apríl.
Ríkið gælir við yfirmenn
„Enn á ný er staðfest að ríkið er mjög góður vinnu-
veitandi, sérstaklega fyrir yfirmenn. Nýlega opin-
beruð gögn sýna að yfirmenn hjá ríkinu hafa fengið
ævintýralegar launahækkanir og hlunnindi eftir
starfslok. Dæmi eru um að yfirmenn fái full laun í
eitt ár eftir starfslok, 80 prósenta biðlaun í 5 ár og frí-
an bil og símastyrk að auki. En hvað skyldi gerast
þegar áætlanir ríkisins um niðurskurð og uppsagnir
verða að veruleika? Verða boðin biðlaun?"
Úr forustugrein Verdens Gang 9. apríl.