Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1996, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1996, Síða 15
LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1996 15 Það fóru fjórir á mig,“ svaraði hin og hún var álíka stolt í framan og móðir á ættarmóti á Ströndum sem kynnir börn sín fyrir fjarskyldri amerískri frænku sem hún hittir í fyrsta sinn. „Hvar er Vestmannaeyingurinn sem lenti utan á mér?“ spurði mið- aldra kona á appelsínugulri kápu. Skvaldur þeirra tuga gesta sem voru samankomnir á Litlu kafii- stofunni yfirgnæfði rödd hennar og hún fékk ekkert svar. Þá hækk- aði hún rödd sína og kallaði mjórri röddu. „Veit þá einhver hvar Stokkseyringurinn sem lenti aftan á mér er?“ Það urðu fagnað- arfundir þegar maður, sem reynd- ar stóð við hlið hennar, gaf sig fram. I samstuði Það ríkti undarleg stemmning þennan skírdag. Langflestir, sem voru samankomnir á þessari af- skekktu veitingastofu, áttu það sameiginlegt að hafa með einum eða öðrum hætti lent í árekstri. Sumir höfðu aðeins haft náin kynni af einum bíl en aðrir lentu í samstuði við allt að fjóra bíla. Stemningin var ekki ósvipuð því sem gerist á ættarmótum; að vísu var það ekki sameiginlegur forfað- ir sem rak þessa hjörð saman heldur samstuð á þriðja tug bíla. Dagurinn byrjaði svo sem nógu sakleysislega. Veðrið í austur- hluta Reykjavíkur var með þokka- legu móti og húsbóndi nokkur bar upp tillögu: „Er ekki rétt að bregða undir sig betri fætinum og skella sér austur fyrir fjall?" Veðurfarslega milt svæði Hugmyndin fékk dræmar undir- tektir og það var ekki fyrr en eftir nokkra eftirgangsmuni að elsti niðjinn fékkst til að leggja í leið- angurinn. Hundurinn fylgdi svo með enda hvorki með vit né þroska til að segja nei. Stungið var upp á vetrargöllum með í ferðina en verðandi farþegi hafnaði því umsvifalaust á þeim forsendum að þetta veðurfarslega milda svæði kallaði ekki á slíkan útbúnað. Sannir Vestfirðingar létu ekki sjá sig á öðru en lakkskóm og léttum sumarjökkum. Þetta sjónarmið varð ofan á og á leiðinni út úr borginni ræddu feðgamir sín í milli hversu slakir ökumenn suð- vesturhornsins væru þegar snjóföl festir á jörðu. „Það á að banna þessu liði að fara á bílum sínum þegar spáir snjókomu," sagði far- þeginn við góðar undirtektir öku- mannsins. Hundurinn var óvenju stressaður aftiu- í bílnum og gaf frá sér hin undarlegustu hljóð. Hann fékk reglulega skammir sem hrukku af honum sem vatn af gæs. Ökumaðurinn var enn að dásama hæfileika hinna harðgerðu Vest- firðinga til að komast af í verstu vetrarveðrum hvort sem var ak- andi eða gangandi þegar skyndi- lega sáust afturljós á bíl örfáa metra fyrir framan. Hann kloss- bremsaði en hraðinn breyttist ekkert og það var ljóst að í ákeyrslu stefndi að óbreyttu. Á síðustu stundu hugkvæmdist hon- um að sleppa bremsunni og þannig náði hann á ný stjóm á bílnum og gat sveigt frá hættunni. Öruggur í hálkunni „Þama munaði litlu,“ sagði bíl- stjórinn þegar hann náði sér á strik eftir mesta áfallið. „Það vill til að maður er öruggur í hálkunni," bætti hann svo við. Að- stoöarökumaðurinn kom með óþarflega meinlega athugasemd um að nýlega væri afstaðin klöss- un upp á tæp 200 þúsund sem sKrifaðist á reikning þess sem nú hafði meö snarræði bjargað eigin bíl og annarra frá tjóni. Honum var umsvifalaust gert ljóst að um- ræðuefnið væri ekki við hæfi og heppilegra væri að hann stæði stímvaktina og reyndi að vara við þeim hættum sem leynast kynnu í hinum sunnlenska veðurofsa. „Það er bíll framundan," kallaði hann og nú gafst meira tóm til að bregðast við hættunni. Það kom í ljós að bíllinn fyrir framan var Laugardagspistill Reynir Traustason stopp og ekkert annað að gera en að stöðva líka. Hundurinn ólmað- ist sem aldrei fyrr og hlaut að launum dagblað sem fleygt var í hann. Það dugði eitt andartak til að það sljákkaði í honum en svo byrjaði ballið. Bíll kom á fljúgandi ferð út úr sortanum og geystist út fyrir veg til hliðar við bil hinna vestfirsku ökuþóra. „Þarna slupp- um við naumlega," stundi öku- maðurinn upp en orðin héngu enn í loftinu þegar högg kom á bílinn og iskur skar i eyru. I einni hend- ingu mátti greina ameriskan smá- bíl sem geystist stórskemmdur fram með vinstri hlið bílsins. Það var grafarþögn og feðgarnir litu hver á annan. „Hundurinn er þagnaður, ætli það hafi eitthvað komið fyrir hann?“ sagði sonur- inn. Þegar þeir litu aftur í bílinn sá þeir að hundurinn sat sem myndastytta með eyrun þráðbeint upp í loftið og minnti einna helst á hugljúft póstkort af hinum ís- lenska fjárhundi. Aðför að hundi? Honum var greinilega brugðið og af svip hans mátti lesa að djöflaganginum væri beint gegn sér. Þetta væri „persónuleg aðfór“ og nú hefði hann loksins gengið feti of langt. Það var á þessu nýja látbragði hans að skilja að nú yrði hann hér eftir nýr, betri og hljóð- látari hundur. Það var ljóst að bif- reið feðganna var enn orðinn spít- alamatur. Ökumaðurinn lét hug- ann reika mánuð aftur í tímann, þegar áfallið, sem sonurinn hafði á ósmekklegan hátt rifjað upp skömmu áður, dundi yfir. Þá hafði þessi sama bifreið og nú hafði laskast hlotið alvarlega áverka. Sjálfrennireið Fyrst þegar bifreiðar komu til landsins var leitað logandi ljósi aö nýyrði sem gætu prýtt þennan arf- taka hestsins, þarfasta þjónsins. Meðal þeirra orða sem þá skaut upp, þó ekki næði það fótfestu í ís- lenskri tungu var sjálfrennireið. Þessi ágæti bíll, sem nú var lask- aður í stórviðri á sunnlenskum fjallvegi, hafði gefið þessu nýyrði, sem dæmt var til að deyja, nýja og dýpri merkingu. Af einhverjum ástæðum sem enn hafa ekki verið skýrðar tók bíllinn upp á því að fara af stað án ökumanns sem hafði eitt andartak brugðið sér undan stýri og inn í nærliggjandi hús. Þegar hann hugðist vitja öku- tækisins á ný var það horf- ið.Fyrstu viðbrögð voru þau að bílnum hefði verið stolið en við nánari skoðun þá kom í ljós að hann var uppi á gangstétt svo sem hundrað metrum og fjórum akreinum frá þeim stað þar sem honum hafði verið lagt. Þar stóð hann kirfilega klemmdur milli ljósastaurs og handriðs. Þegar kom að „sjálf-renni-reiðinni kom í ljós að hún hafði hlotið sann- gjarna fótlun í framhaldi þess að þekkja ekki mun á gangbraut og akbraut og hafa ekki vit á að bíða húsbónda síns. Báðar hliöar voru skemmdar og bíllinn svo fast- skorðaður að kalla varð til krana- bíl til aðstoðar. Leitað í skjól Hann hrökk upp af hugrenning- um sínum og það var ákveðið að snúa við og fara í húsaskjól til skýrslugerðar. Skoðunarferðir út í veðurofsann til að meta tjónið höfðu tekið sinn toll og feðgarnir voru báðir orðnir kaldir og hrakt- ir: „Þetta er bara eins og fyrir vestan á þokkalegum vetrardegi,“ sagði sonurinn við undirleik glamrandi tanna. Þegar ferðin til *■ baka hófst kom í ljós að á þriðja tug bíla voru meira og minna laskaðir í mismunandi stórum grúppum. Hundurinn sat stilltur og prúður í aftursætinu og það tókst áfalla- og hávaðalaust að komast í áfangastað. „Hvað lentir þú saman við marga?" spurði konan í appelsínu- gulu kápunni kynsystur sína á svipuðu reki. „Það fóru fjórir á mig,“ svaraði hin og hún var álíka stolt í framan og móðir á ættar- móti á Ströndum sem kynnir börn sín fyrir fjarskyldri amerískri frænku sem hún hittir í fyrsta sinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.