Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1996, Page 18
18
LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1996 JLlV
Vekjaraklukkan reif mig upp kl.
6 sem er ekki minn venjulegi fóta-
feröartími. Ég var þess vegna
svolitla stund að átta mig á því
hverju þetta sætti. En ástæðan fyr-
ir því að ég þurfti fram úr á þess-
um ógurlega tíma var sú að þeir
höfðingjar Leifur og Björn í Morg-
unútvarpi rásar 2 höföu séð það af
visku sinni að brýna nauðsyn bæri
til þess að kynna nýjan þingmann
fyrir þjóðinni og því ætti ég að
vera mætt í morgunspjall klukkan
hálfátta. Þegar maður býr í Kefla-
vík, Reykjanesbæ, ætti ég raunar
að segja, fylgja því viss óþægindi
að mæta morgunhress inn í út-
varpshús klukkan hálfátta. Auk
þess hafði ég kviðið þessu spjalli
nokkuð því þegar varaþingmaður
hleypur þannig í skarðið með litl-
um fyrirvara er hann misvel inni í
þingmálum sem sum hver hafa
verið þaulrædd lungann úr vetri.
Og þó þessi tiltekni varaþingmað-
ur hefði setið við yfir páskana að
lesa sér til vissi ég vel að í ýmsum
málum var ég verr heima en
skyldi og aðgangsharðir spyrlar
gætu komið mér í bobba. Ég mætti
svo á tilteknum tíma með tilheyr-
andi hjartatitring en svo reyndist
þetta aðeins þægilegt spall um allt
og ekki neitt og vonandi hefur sá
hluti þjóðarinnar sem vaknaður
var haft notaleg kynni af nývökn-
uðum þingmanni sínum.
Styrkjum úthlutað
Úr útvarpshúsinu fór ég niður í
Vonarstræti 12 en þar hafði verið
útbúin fyrir mig skrifstofa í gamla
húsinu sem þau byggðu á sinni tíð,
Dagur í lífi Sigríðar Jóhannesdóttur, þingmanns Alþýðubandalags:
Lestur þingmála og
kennsla útlendinga
Skúli Thoroddsen og Teódóra. Það
er góður andi í því húsi. Þar náði
ég að lesa enn slatta af þingmálum
og umræðum áður en ég mætti á
fundi í stjórn Menningarsjóðs
klukkan hálftíu. Við, þessar þrjár
konur sem sitjum í þeirri stjórn,
höfðum það verkefni með höndum
að skipta 13 milljónum króna milli
130 umsækjenda sem sækja um
styrki til ýmiss koriar útgáfu.
Flestir sem um þessa styrki sækja
eru að gefa út eða semja ágæt verk
sem full þörf er á að styrkja en
hlutverk okkar sem sitjum í stjórn
Menningarsjóðs er að skera niður
og þeir sem á annað borð fá ein-
hverja úrlausn fá allflestir mun
minna en þeir sóttu um, oftast
minna en þeir eiga skilið, og marg-
ir munu verða óánægðir, sumir
sárir.
Eftir fundinn í Menningarsjóði
lá leiðin enn niður í Vonarstræti
að lesa meira í þingmálum en
klukkan 12 náði ég þó hádegisverði
með þingflokksformanni okkar,
Svavari Gestssyni, og nokkrum
ágætum félögum og eftir fundinn
áttum við Svavar stuttan fund.
Klukkan 2 fór ég svo á fund í
menntamálanefnd en þar var til
umfjöllunar framhaldsskólafrum-
varpið og var sá fundur mikil lífs-
reynsla fyrir undirritaða. Hann
stóð til klukkan 4 og enn var hald-
ið niður á skrifstofuna í Von-
arstæti til að lesa enn meira um
þingmál en klukkan 6 var keyrt til
Keflavíkur, þar sem fjölskyldan
snæddi mjög fljótgerðan kvöld-
verð, og klukkan 8 var ég mætt i
skólann til að kenna útlendingum
íslensku.
Káinn var
heimilisfastur
Útlendingahópurinn minn er
núna 10 manns. Þetta er allt sérs-
takt indælisfólk og kemur úr ýms-
um áttum en hefur sameiginlegan
áhuga á að læra íslensku. Ég lið-
sinni þeim eitt kvöld í viku og það
verð ég að segja að þetta starf mitt
með útlendingunum hefur veitt
mér mikla lífsfyllingu. Einmitt
þetta kvöld sagði ein stúlkan, sem
er af íslehskum ættum frá Dakóta,
að Káinn hefði í áratug verið heim-
ilisfastur hjá afa hennar og ömmu.
Þetta kom upp fyrir tilviljun þegar
ég var að kenna þeim litla vísu eft-
ir Káinn sem hún kunni, þó að
hún kunni að öðru leyti ekki mik-
ið í íslensku, og var maður þar enn
minntur á hve lítill heimurinn er.
Klukkan 10 lauk kennslunni og þá
fór ég á fund með kennslukonunni
sem ætlar að taka við af mér með-
an ég sit á þingi. Við vorum nefni-
lega svo stálheppin að fá umsvifa-
laust ágætan reyndan kennara til
þess að hlaupa í skarðið fyrir mig
svo börnunum verður að mínu
mati vel borgið þó ég verði við
annað bundin á næstunni.
Um kiukkan hálftólf var ég svo
komin heim. Þar biðu mín nokkur
símtöl sem verða flest að bíða til
morguns. Meira að segja reyfar-
inn, sem ég er að lesa og lá á nátt-
borðinu mínu, fékk að liggja í friði
þó æsispennandi sé.
Vonandi verða ekki allir þing-
mannsdagar mínir með þessum
hætti.
Finnur þú fimm breytingar? 354
Kveikja, rafkerfið og blöndungurinn eru í góðu lagi en mér sýnist
sem þú sért með of háan blóðþrýsting.
Nafn:
Heimili:
Vinningshafar fyrir þrjú hundruð fimmtugustu og
aðra getraun reyndust vera:
1. Nanna Gísladóttir Wium 2. Ingibjörg Halldórsdóttir
Skólavegi 2 Ásgarði 12
230 Keflavík 108 Reykjavík
Myndirnar tvær virðast
við fyrstu sýn eins en þeg-
ar betur er að gáð kemur í
ljós að á myndinni til
hægri hefur fimm atriðum
verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu
merkja við þau með krossi
á myndinni til hægri og
senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilis-
fangi. Að tveimur vikum
liðnum' birtum við nöfn
sigurvegaranna.
1. verðlaun:
ELTA útvarpsvekjari að verðmæti kr.
4.275, frá Bræðrunum Ormsson, Lág-
múla 8, Reykjavík.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr.
1.790. Vinningarnb- verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 354
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík