Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1996, Blaðsíða 20
2» %éttir
LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1996
Hefur kært greiðslukortafyrirtækin fyrir að mismuna söluaðilum:
Viðskiptavinir greiði allan
kostnað við kortanotkunina
- Samkeppnisstofnun Qallar um málið
„Bæði kreditkortafyrirtækin mis-
muna verslunareigendum með
ósanngjamri gjaldskrá. Kostnaður
hverrar verslunar miðast við veltu
og samkvæmt raunhæfum dæmum
sem ég hef sett saman og reiknað út
sýnist mér munurinn á hæsta og
lægsta þrepi í gjaldskrá hjá
Eurocard vera 250%, munurinn er
333,3% hjá Visa og munurinn í
debetkortaviðskiptunum er 400%.
Þetta skapar mjög óeðlileg og ójöfn
skilyrði fyrir söluaðila,“ segir Sig-
urður Lárusson söluturnseigandi
sem kært hefur kreditkortafyrir-
tækin og bankakerfið fyrir að mis-
muna verslunareigendum með því
að láta þá borga misháan færslu-
kostnað eftir því hversu velta fyrir-
tækjanna er mikil.
Kostnaðurinn 60 kr.
á móti 20-25 kr.
Sigurður segir að með því að
ganga út frá ákveðnum líkum geti
hann reiknað það út að hver færsla
hjá sér kosti um 60 krónur á móti
20-25 krónum hjá öðru fyrirtæki
sem borgi lægri kostnað, fyrirtæki
sem hann sé i bullandi samkeppni
við eins og t.d. bensínstöðvamar.
Hann segir að auk þessa sé söluaðil-
um mismunað eftir einhvers konar
áhættukerfi. Þegar hann hafi verið
með Visa hafi posinn alltaf hringt
og tékkað af færslur sem fóru yfír
Greiðslukortafyrirtækin semja við hvern og einn:
Það er eðli
frjálsra viðskipta
- segir Einar Einarsson, forstjóri Visa íslands:
„Það er alrangt að við séum að
mismuna okkar viðskiptavinum.
Það er eðli frjálsra viðskipta að
semja við hvern. Alls staðar í versl-
unum er mönnum veittur magnaf-
sláttur og góðir viðskiptavinir fá
staðgreiðsluafslátt. Okkur er engin
óþökk í því að Samkeppnisstofnun
skoði þessi mál í heild sinni því það
vill svo vel til að við höfum ekkert
að fela,“ segir Einar Einarsson, for-
stjóri Visa íslands.
Einar sagði að þetta væri kross-
ferð eins manns gegn greiðslukorta-
fyrirtækjunum og honum væri vita-
skuld heimilt að hafa sina skoðun á
því hvemig þessir hlutir ættu að
vera.
„Þeir viðskiptahættir sem hér em
stundaðir með greiðslukort em alls
ekki neitt séríslenskt fyrirbrigði.
Þetta er krossferð eins manns og við
gemm okkur ekki neina rellu út af
því þótt hann hafí á þessu aðrar
skoðanir en við,“ segir Einar.
-sv
Góðir vordagar eru tilvaldir til að bregða sér niður á tjörn og seðja sárasta
sult anda, gæsa og álfta. Garðar Svansson átti brauðafganga í poka og sá
ekki eftir bitanum í gæsirnar. DV-mynd sv
þúsund krónur og síðan annað slag-
ið lægri upphæðir. í stórmörkuðum
t.d. sé hringt miklu sjaldnar og við
hærri fjárhæðir. Þessi flokkun sé
söluturnum dýr og því enn eitt
dæmið um óréttlætið í þessu.
Hugmyndafræöin gölluð
„Hugmyndafræðin á bak viö þessi
viðskipti er meingölluð líka. Ég
kalla kreditkortafyrirtækin verð-
bréfafyrirtæki og ekkert annað.
Kostnaðurinn við verðbréfín er
geysilega mikill og það er alveg ljóst
að vömverð þarf að hækka til þess
að standa straum af honum. Mér
finnst allt annað en eðlilegt að þeir
sem borga með peningum borgi
hærra verð vegna þeirra sem borga
með verðbréfum." -
Samkeppnisstofnun hefur þetta
mál til meðferðar og Sigurður segist
óttast að úrskuröurinn í málinu
verði takmarkaður þar sem hér á
landi skorti lög um greiðslukort.
„Ég veit ekki við hverju á að bú-
ast en ég geri mér ekki von um full-
an sigur. í honum fælist að við sæj-
um eðlilega samkeppni milli
greiðslumiðla og hún getur aldrei
átt sér stað nema svo aðeins að kort-
hafinn sjálfur greiði allan þennan
kostnað. Það er enda bara sjálfsagt
mál að sá sem biður um ákveðna
þjónustu borgi fyrir hana,“ segir
Sigurður Lárusson.
„Það er nokkuð síðan við fengum
þetta mál inn á borö til okkar og við
höfum haldið óformlega fundi með
greiðslukortafyrirtækjunum. Ég vil
segja það eitt að við skoðum þetta
mál eins og önnur með opnum
huga,“ sagði Guðmundur Sigurðs-
son, hjá Samkeppnisstofhun, við DV
í gær. Hann sagði þó að vegna þessa
erindis og annarra hluta yröu
greiðslukortaviðskipti almennt
skoðuð ofan í kjölinn. Sú rannsókn
tæki eflaust einhvem tíma en hafist
yrði handa á næstu dögum.
-sv
Aðalframkvæmdastjóri UNESCO í opinberri heimsókn:
Til Þingvalla og
Nesjavalla í dag
Aðalframkvæmdastjóri Menn-
ingarmálastofnunar Sameinuðu
þjóðanna, UNESCO, Spánverjinn
Federico Mayor, er staddur hér á
landi í opinberri heimsókn í boði
Bjöms Bjamasonar menntamála-
ráðherra. í fylgd með honum er
kona hans, Angeles Mayor, og
Horst Gödicke, deildarstjóri hjá
UNESCO.
Mayor hefur verið aðalfram-
kvæmdastjóri UNESCO frá árinu
1987. Hann er doktor í lyfjafræði
og hefur starfað sem prófesor og
háskólarektor. Um skeið var
hann þingmaður og gegndi starfi
menntamálaráðherra Spánar frá
1981-1982.
Þetta er í annað sinn sem aðal-
framkvæmdastjóri UNESCO
heimsækir ísland en fyrirrennari
Mayors, M’Bow, kom hingað sum-
arið 1977.
í gær ávarpaði Mayor málþing
í Viðeyjarstofu um sáttmála
UNESCO um vemdun menning-
ar- og náttúmminja heims en ís-
land gerðist aðili að sáttmálanum
í desember 1995.
Að loknu hádegisverðarboði
hjá forseta íslands að Bessastöð-
um heimsótti Mayor Háskóla ís-
lands og flutti fyrirlestur um hlut-
verk háskóla í nútímasamfélagi.
Síðan heimsótti Mayor Þjóðar-
bókhlöðuna og í dag heimsækir
hann Árnastofnun. Þá fer hann í
skoðunarferð til Nesjavalla og
Þingvalla. Þingvellir er einn
þeirra staða sem væntanlega
verður óskað eftir að komist á
heimsminjaskrá UNESCO um
merka menningar- og náttúru-
minjastaði.
Mayor heldur utan ásamt fylgd-
arliði sínu í fyrramálið.
-ÞK
Hagnaður Spron tvöfaldaðist
Aðalfundur Sparisjóðs Reykjavík-
ur og nágrennis, SPRON, fyrir árið
1995 var haldinn í gær. Þar kom
fram í ræðu fráfarandi sparisjóðs-
stjóra, Baldvins Tryggvasonar, að
hagnaður sjóðsins á árinu nam 115
milljónum króna. Þetta er nærri
tvöfalt betri afkoma en árið 1994
þegar hagnaðurinn nam 60 milljón-
um króna. Betri afkoma er einkum
rekin til minni afskrifta.
Heildarinnlán hjá SPRON, með
verðbréfaútgáfu, námu 10 milljörð-
um á síðasta ári og hækkuðu um
tæpa 2,2 milljarða milli ára. Þetta er
langt umfram meðaltalsaukningu
innlána hjá bönkum og sparisjóðum
á síðasta ári sem var 3,9%. Heildar-
útlán sjóðsins námu 9,1 milljarði og
jukust um 20% milli ára. Á af-
skriftareikning voru lagðar tæpar
24 milljónir samanborið við 69 millj-
ónir árið áður.
SPRON er sem kunnugt er stærsti
sparisjóður landsins. Baldvin lætur
af störfum í sumar sökum aldurs og
Guðmundur Hauksson, forstjóri
Kaupþings, tekur þá við.
-bjb
Forsetaframboð:
Skorað á Ólaf Egilsson
með undirskriftum
- Guðmundur Rafn Geirdal byrjar í dag
„Ég er að íhuga framboð en er
ekki búinn að tímasetja ákvörðun í
þeim efnum, af eða á,“ sagði Ólafur
Egilsson sendiherra í samtali við
DV frá Helsinki i Finnlandi í gær.
Ólafur staðfesti að í gangi væri und-
irskriftasöfnun um að skora á hann
í framboð. Hann hefði þó ekki feng-
ið neina lista í hendur með nöfnum
stuðningsmanna.
Guðmundur Rafn Geirdal, nudd-
ari og forsetaframbjóðandi, fer af
stað með undirskriftasöfnun í dag
til að fullnægja kröfum um að telj-
ast fullgildur frambjóðandi. Að lág-
marki 1.500 nöfn þarf á listana en að
hámarki 3.000 manns. Guðmundur
Rafn sagði í samtali við DV að kosn-
ingaundirbúningur væri farinn af
stað fyrir alvöru. Framimdan væru
fundir með ýmsum hópum þjóðfé-
lagsins, m.a. með háskólanemend-
um og MH-ingum á þriðjudaginn.
-bjb
Happdrætti DAS:
3,8 milljóna Nissan Patrol gekk út
Kona á besta aldri á höfuðborgar- DAS þegar dregið var út á fimmtu- miðann góða hjá Vídeómarkaðnum í
svæðinu fékk jeppa af gerðinni Niss- dag. Verðmæti jeppans er 3,8 millj- Kópavogi en hún vill að svo stöddu
an Patrol í vinning í Happdrætti arðar króna. Konan endurnýjaði halda nafni sínu leyndu. -bjb