Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1996, Qupperneq 25
TBf^J LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1996
25
Ungir og stæltir strákar í hefð-
bundnum karlastörfum, eins og bif-
vélavirkjun og trésmíði, virðast
passa vel inn i karlmennskuímynd-
ina og veljast kannski frekar til fyr-
irsætustarfa en fólir og slappir
skrifstofumenn og grúskarar. Þetta
á að minnsta kosti við um Atla Þór
Alfreðsson, sem nýlega var kjörinn
herra Hafnarfjörður, en hann er 21
árs trésmíðanemi og vinnur jafnt í
sólskini og blíðu sem slyddu og slag-
viðri við að setja klæðningu utan á
húsið við Tryggvagötu 15 í Reykja-
vík.
Atli Þór var kjörinn herra Hafn-
arfjörður í fyrirsætukeppni sem
tiskuverslunin Herra Hafnarfjörður
stóð fyrir í Miðbæ Hafnarfjarðar
fyrir nokkru. Strákarnir fengu tvær
vikur td að undirbúa sig, fara í ljós
og líkamsæfingar. Það voru tuttugu
ungir menn sem tóku þátt í keppn-
inni og níu þeirra komust í úrslit.
Atli Þór segist í fyi stu hafa neitað
að taka þátt í keppninni því að sér
hafi þótt það púkalegt en hann hafi
þó að lokum látið tilleiðast og borið
sigur úr býtum eftir harða keppni.
Atli Þór Alfreðsson, herra Hafnarfjörður 1996, var við vinnu sína uppi á efstu hæð húss við Tryggvagötu nú í vikunni þegar DV heimsótti hann. Vinnufélag-
ar hans brugðust vel viö bón um að sitja fyrir. Á myndinni eru trésmiðirnir Guðmundur Sigurgeirsson, Sigurður Grétarsson, Jónas Þórðarson og Gestur
Yngvason og svo hillir í Birgi Þór Birgisson bak við Atia Þór, sem er í forgrunni. DV-mynd GS
Atli Þór Alfreðsson, 21 árs Grafarvogsbúi, er herra Hafnarfjörður 1996:
Trésmíðanemi sem passar
við karlmennskuímyndina
Fá&u þér miöa f’yrir kl. 20.2() i kvölcl
hvernig skyldi fólk taka því þegar
ungir karlmenn taka þátt í fyrir-
sætukeppni?
„Það er rosalegt misjafnt.
Gaurarnir hér í vinnunni sam-
þykkja þetta ekki alveg en vinir
manns óska manni til hamingju og
mútta er náttúrlega yfir sig hrifin.
Maður útskýrir fyrir þeim að þetta
sé ekki fegurðarsamkeppni, Mr.
Beauty, þá tekur fólk þessu ágæt-
lega. Það eru bara þessir öfund-
sjúku sem hlæja. Fólk í tískubrans-
anum horfir líka á þetta allt öðrum
augum en aðrir,“ segir hann.
Atli Þór fékk í verðlaun vöruút-
tektir fyrir 85 þúsund frá ýmsum
fyrirtækjum í Miðbæ Hafnarfjarðar,
þar af var fataúttekt fyrir um 50
þúsund þannig að hann ætti tví-
mælalaust að vera vel gallaður
næstu árin. -GHS
Vanur tískusýningum
Það er engin tilviljun að leitað
var til Atla Þórs með þátttöku í fyr-
irsætukeppninni því að hann hefur
sótt námskeið hjá Kolbrúnu Aðal-
steinsdóttur í Módelskóla Johns
Casablanca og unnið talsvert við
það að sýna fatnað á
tískusýningum und-
anfarin þrjú ár. En
hvemig skyldi það
vera, hyggst tré-
smíðaneminn hasla
sér völl i fyrirsætu-
bransanum í fram-
tíðinni?
„Ég er í tískusýn-
ingum eins og er en
ekki svo mikið í
myndatökum. Ef
einhver tilboð koma
þá íhugar maður
málin og náttúrlega
vona ég að það verði
eitthvað að gera í
þessu. Þetta er bara
erfiður bransi hér,
fila borgað, og valið
stendur í rauninni
um það að fá lítinn
pening fyrir margar
sýningar eða mik-
inn pening og enga
sýningu. Fyrirsætu-
fyrirtæki sem vilja
borga módelunum
vel eru bara undir-
boðin,“ segir hann
og kveðst ekki
myndu slá hendinni
á móti því að fara
utan til að vinna
sem fyrirsæta en
sækist ekki neitt sérstaklega eftir
því.
Atli Þór segir að sig dreymi um
að komast til útlanda til að læra
arkitektúr og hönnun og bendir á að
trésmíðin sé' ágætur undirbúningur
undir slíkt nám. Hann á eftir hálft
ár á samningi og klárar bóklega
námið í trésmíðinni eftir eitt ár.
Áður hefur hann meðal annars
stundað nám í MK, enda fæddur og
uppalinn Kópavogsbúi þó að hann
búi nú í Grafarvoginum.
Andlit fyrirtækisins
Þegar DV heimsótti Atla Þór í
vinnuna nú í vikunni var hann með
Atli Þór bar sigur úr býtum í módelkeppni í Miðbæ
Hafnarfjarðar fyrir tveimur vikum og hlaut titilinn
herra Hafnarfjörður. Hann hefur starfað nokkuð við
tískusýningar undanfarin ár auk trésmíðinnar.
DV-mynd TJ
félögum sínum önnum kafinn uppi
á efstu hæð að festa klæðningu utan
á hús Myndlistaskólans í Reykjavík
sem verið er að gera upp. Vinnufé-
lagar hans voru með létt spaug,
tengt því að sitja fyrir, og sögðu
meðal annars að Atli Þór væri and-
lit fyrirtækisins en þeir fengust þó
tO að taka þátt í myndatökum DV
og stóðu sig með prýði í þeim. En
Þrefaldur
, vinningur!
-vertu viðbúinm) vinningi