Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1996, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1996, Page 26
26 LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1996 13 Myndirnar hans Jóa listó lykta af raunveruleika: Of mikið um tilskóluð, háakademísk sófaverk - lífslistamaðurinn ræðir um lífið, listina og ævintýralegar fantasíur „Ég hef gaman af því að spinna upp hluti til að hneyksla menn. Menn hafa blandað því dálítið saman hvað er raunhæft af því sem ég segi og hvað ekki og í samfélagi eins og hér grípa menn svona hluti á lofti. Samt sem áður er hægt að setja hluti upp á alla vegu. Við verðum að muna að það besta sem gert hefur verið var einhvern tíman talið vera brjálæði eða yfirgengileg heimska," segir Jói listó eða Jóhann Jónsson lífslistamaður. DV-myndir pp Hann er kallaður Jói listó af Vest- mannaeyingum en heitir fullu nafni Jóhann Jónsson og er sannkallað náttúrubarn í listinni. Framan af var hann lítt lærður í myndlist en fékkst við hana samhliða fisk- vinnslu og stillingu flökunarvéla í frystihúsi í Eyjum. Síðan fór hann í myndlistarnám og lærði undir handleiðslu Þórðar Ben, Gunnlaugs Stefáns Gíslasonar og fleiri kenn- ara. Nú hefur hann viðurværi sitt af myndlistinni í einu eða öðru formi. Eftir að kreppti að í þjóðfélaginu hefur verið minna um eiginlega myndlistarsköpun af hans hálfu. Því hefur Jóhann snúið sér meira að hönnun og vinnu fyrir fyrirtæki. Vatnslitapenslarnir, sem hann held- ur mest upp á, eru þó alltaf skammt undan. Hann liggur ekki heldur á skoðun sinni þegar kemur að því að tjá sig um stöðu myndlistarinnar i dag. „Þetta er orðið þannig þjóðfélag, finnst mér, að það fer í taugarnar á fólki ef það þarf að hugsa. Það hang- ir bara á fjarstýringunum og lætur mata sig. -Þá kemur maður að þess- um myndlistarheimi á íslandi sem maður fylgist með úr ijarlægð því ég er ekki í þessari elítu ef hún er þá til. Það er mikið málað af tilskól- uðum, háakademískum sófaverk- um. Þetta er fín list að meðaltali fyr- ir fagurkera. Það vantar hins vegar eitthvað inni á milli í myndlistina. Eitthvað sem skiptir máli fyrir all- an almenning í landinu og tekur í lurginn á stöðnun og vanahugsun embættismanna og flettir ofan af lygi og blekkingum stjórnmála- manna,“ segir Jóhann. Hann er einnig lítið hrifinn af þeirri mynlistarumfjöllun og um- ræðu sem finna má í fjölmiðlum. „Maður verður að veiða froðuna ofan af froðunni í þessari myndlist- arumfjöllun og umræðu. Þetta er orðin ein samfelld flatneskja. Eftir að það fór að koma svona mikið af listfræðingum er búið að sjóða allt niður - það er búið að flokka allt í réttar skúffur og hillur - og engu verður breytt héðan af. Maður sér engar deilur um eitt né neitt leng- ur,“ segir Jóhann. Á fjórða áratug í myndlistinni Jóhann, sem er fæddur árið 1948 í Kelduhverfi í N-Þingeyjarsýslu, hef- ur átt við myndlist í hátt á fjórða tug ára en fáar sýningar haldið. Þó eru myndir hans bæði á einkasöfn- um, bæði hérlendis og utan. Fyrir nokkrum árum hélt hann einkasýn- ingu í Eyjum og seldust allar mynd- ir hans upp á skömmum tíma. Jóhann segir allt of lítið um nýj- ungar í myndlist. Oft þegar hann fari á sýningar hér hafi hann til dæmis séð sömu hluti í erlendum myndlistartímaritum. Sama sé að segja um suma innlenda myndlist- argagnrýni. Hann sé stundum að lesa sömu frasana hér og í erlendum tímaritum. „Það er helst að hann Bragi Ás- geirsson myndlistargagnrýnandi sé að erta menn svolítið með því að benda á ýmislegt sem ég verð að segja áð eigi rétt á sér. Það er stór- hættulegt þegar menn eru farnir að segja að myndlist framtíðarinnar verði eitthvað stærri og betri af því að hún er kennd í stærra og betra húsnæði. Þetta er hroðalegt. Ég hrífst af einfaldleikanum og nefni sem dæmi neðanjarðarlist frá kommúnistalöndunum sem ég hef verið að kynna mér lítillega undan- farið. Ég vil sjá miklu færri fara í listnám. Það er allt of mikið af fólki sem er árum saman í myndlistar- námi og kann fátt. Eins og Bragi segir þá kunna sumir af þeim ekki einu sinni að strekkja striga á ramma, það kann ekki tæknina og efnafræðina sem er nauðsynlegt að kunna skil á til að málverk endist og fúni ekki. Uppistaðan er að kunna handverkið. Þrátt fyrir að ég segi þetta þá verður að viðurkenn- ast að innan um eru að gerast mjög góðir hlutir.“ Bragi til áminningar Það segir kannski dálítið um Jó- hann að hann heldur mikið upp á Braga og hans skoðanir án þess að hafa nokkurn tímann hitt hann. Jó- hann er með vinnuaðstöðu í kjall- ara undir heimili sínu og á vegg, fyrir ofan teikniborðið, hangir stór og táknræn mynd af Braga. „Ég hef hana hér mér til áminningar. Hann er strangur og ég hef alltaf dáðst að honum. Þótt ég hafi aldrei hitt hann þekki ég menn sem eru myndlistar- skólagengnir og hafa lært undir hans handleiðslu." Fyrst og fremst teiknari „Mér finnst ég fyrst og fremst vera teiknari. Mest af því sem ég hef gert á siðustu 15 árum eru vatnslitamyndir sem ég vil sjálfur kalla vatnslitateikningar. Vatnslitir eru þannig efni að þeir eiga það

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.