Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1996, Page 27
LAUGARDAGUR 13. APRIL 1996
ekki skilið að sumar mynda minna
séu kallaðar vatnslitamyndir. Ég er
meira að lita teikninguna og er mik-
ið í ofurraunsæi eða realisma. Ég
nota hluti sem mótiv og uppstill-
ingu.“
Sem dæmi hefur Jóhann notað
gamla hluti eins og bíla, sprungna
húsveggi, gömul landbúnaðar- og
byggingatæki og marga fleiri hluti
sem mótív í myndum sínum. Hlut-
ina teiknar hann frá ýmsum sjónar-
hornum og sýnir þannig m.a. for-
gengileika tímans.
„Ég hef til dæmis málað fram-
hlutann af gömlum bU og kalla það
portrett. Þótt maður sé að teikna
eitthvað ofurraunsæilegt spinnur
maður samt alltaf eitthvað upp -
maður verður að hugsa myndina
abstrakt til að höfða tU ákveðinna
tilfinninga. Ég er þó meira að fást
við það sem sumir skynja eins og
lyktina - svipað og í ljóðum og bók-
menntum. Ef vel er ort um sveitina
þá finnur fólk lyktina af moldinni,
oliunni og fólkinu. Sama er með
myndirnar mínar. Ef vel tekst til þá
skynja ég alla þessa hluti og fleiri
tU. Það er þessi blúsaði fílingur,
þessi ljúfsári tregi sem ég er að
reyna að ná fram. Ég segi oft að
besta mynd sem ég hafi gert sé af
sprungu í vegg húss hér niðri í bæ.“
Listamaður frá
barnæsku
Jóhann vinnur myndir sínar
þannig að hann- veltir viðfangsefn-
inu fyrir sér, stillir því jafnvel upp
á einhvern máta og ljósmyndar það.
Síðan vinnur hann eftir ljósmynd-
inni en bregður þó jafnvel út frá
upphaflegri uppstillingu og litum til
að fá betra jafnvægi í myndirnar.
Aðspurður um listhneigð sína
segist Jóhann hafa verið svona síð-
an hann man eftir sér. Hann fluttist
tU Vestmannaeyja 18 ára og lítur í
dag á sig sem Vestmannaeying,
enda er mikið af myndefni hans sótt
til bygginga, stokka og steina í Eyj-
um.
í dag er Jóhann ekki að fást við
sín hugðarefni heldur tekur hann
að sér flestöll verk tU að hafa í sig
og á. Hann sinnir ákveðnum verk-
efnum fyrir fyrirtæki í Eyjum, svo
sem hönnun skilta og umbúða, svo
að fátt eitt sé nefnt, og málar mynd-
ir eftir óskum viðskiptavina. í hjá-
verkum málar hann minjagripi með
myndir af lundum sem hann segir
að seljist eins og heitar lummur til
aðkomumanna.
Innbyggð hvöt
- Hvað gefur það þér að mála?
„Þetta er einhver innbyggð hvöt.
fyrir þá sem vilja mikið fyrir litið!
orð mín eru líka aö vera bjartsýnn
þangað tU annað kemur í ljós. Þetta
„annað“ er bara alltaf að koma fram
í dagsljósið. Það skyggir á gleðina."
PP
Umhverfis- og náttúruvernd eru
ofarlega í huga Jóhanns. Fyrir
nokkrum árum setti hann til dæmis
saman bækling þar sem hann safn-
aði saman ljósmyndum af nokkrum
Umhverfis- og
náttúruverndarmaður
„Það er þessi blúsaði fílingur, þessi Ijúfsári tregi, sem ég er að reyna að ná fram. Ég segi oft að besta mynd sem ég
hafi gert sé af sprungu í vegg húss hér niðri í bæ,“ segir Jóhann um myndir sínar.
Mynd Jói
28" LITASJÓNVARP
Kolster litasjónvarp með Black Line
myndlampa, fjarstýringu, 2x20 W Nicam
Stereo með Surround hát. tengimögui,
aðgerðir á skjá, textavarp með ísl.
stöfum, 2x Scart tengi, Pal möttaka.
ALLT ÞETTA FYRIR AÐEINS
6ð.9DO
STGR.
o o
SIÐUMULA 2 • SIMI 568 9090 • OPIÐ LAUGARDAGA
Margir myndu kalla það bUun, sem
það kannski er, en það er ofsalega
gaman að geta haft tekjur af því sem
jafnframt er áhugamál manns. Hins
vegar er það mjög erfitt í svona
þröngu samfélagi sem er hér í Eyj-
um að mörgu leyti. Ekki síst ef höfð
er í huga hin gamla kenning um að
enginn sé spámaður í sínu föður-
landi. Ég held samt að í hugum
fólksins sé ég einhver þúsundþjala-
smiður. Annars er voðalega erfitt að
tjá sig af viti um sjálfan sig. Ég er
samt sagður hugsjónamaður."
Ævintýralegar fantasíur
Talið berst að því sem Jóhann
kallar ævintýri og fantasíur. Blaða-
mann rekur minni til þess aö hafa
heyrt af því að einhvern tímann
kom Jóhann fram með þá hugmynd
að bora gat í Stórhöfða og setja í
hann lyftu fyrir ferðamenn.
„Ég hef gaman að því að spinna
upp hluti til að hneyksla menn.
Menn hafa blandað því dálítið sam-
an hvað er raunhæft af því sem ég
segi og hvað ekki og í samfélagi eins
og hér grípa menn svona hluti á
lofti. Samt sem áður er hægt að
setja hluti upp á alla vegu. Við verð-
um að muna að það besta sem gert
hefur verið var einhvern tímann
talið vera brjálæði eða yfírgengileg
heimska.
Ég get til dæmis hugsað upp
þannig dæmi að hingað kæmi mold-
ríkur Ameríkani sem hrífist svo af
staðnum að hann myndi setja í
hann gífurlegar fjárhæðir. Þá yrð-
um við að vera klár með eitthvað.
En vissulega var hugmyndin
fantasía. Þetta er eins og með mínar
bestu hugmyndir og myndir - eng-
inn hefur viljað kaupa þær og
hlusta á þær af alvöru.
Samt verð ég að segja að hug-
myndin um Stórhöfða var ekki al-
veg út í hött þegar ég fékk hana
fyrst. Það var fyrir gos þegar við
vorum að verða uppiskroppa með
efni til uppfyllingar og það var allt
eins dýrt að sækja það í Heimaklett
eins og annað. í kringum 1970 var
líka kjarnorka og kjarnorkubyrgi í
umræðunni og plássleysið var mik-
ið. Hugmyndin sjálf kann að hafa
verið fáránleg en kringumstæðurn-
ar voru það ekki. í stórborgum úti í
heimi voru byggð neðanjarðarkerfi
til að spoma gegn því að borgir
hættu að þróast. Af hverju gat ekki
sami hlutur átt sér stað hér. Hug-
myndin var umhverfísvæn en á
þessum tíma minntist ég ekki á
hana af ótta við að það yrði hlegið
að mér. Að auki hafði grjót úr
Heimakletti verið notað til bygginga
hér í Eyjum fyrr á öldinni."
stöðum í Heimaey þar sem rask
hafði verið unnið af mannavöldum
en ekkert gert í því að reyna að
fegra umhverfið á ný. Framtakið
hlaut dræmar undirtektir bæjaryf-
irvalda, að sögn Jóhanns. Svo mikið
náttúrubarn er hann að hann hefur
haldið þeirri hugmynd á lofti að vel
komi til greina að hann láti jarða
sig inni í Heimakletti til að taka
ekki pláss undir gröf sína á svæði
sem annars gæti notið sín ósnortið.
En vikjum aftur að Jóhanni og
myndlistinni. Hann segist hafa mjög
gaman af því aö nostra við myndir
en grípur þó í það sem til fellur.
„Ég verð að gera það. Eins og ég
sagði þá er það óraunhæft fyrir mig
að segja að mér finnist það skítt að
geta ekki lifað af listinni. Ég er
raunsæismaður og hef aldrei náð
flugi fyrir sjálfan mig þótt mér finn-
ist gaman að fara í huganum í
fantasíuferðalög. Ég hugsa aldrei:
„Ef ég fengi happdrættisvinning-
inn.“ Ég þakka frekar fyrir að fá að
vera það sem ég er og gera það sem
ég fæ að gera. Ég trúi því að hver sé
sinnar gæfu smiður og kenni sjálf-
um mér um ef illa fer. Einkunnar-