Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1996, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1996, Síða 31
LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1996 tónlist 3» ísland — plötur og diskar- | 1. ( 1 ) Pottþétt 3 Ýmsir t 2. (12) The Score Fugees | 3. ( 2 ) Grammy Nominees 1996 Ýmsir j 4. ( 4 ) Presidents of the USA Presidents of the USA I 5. ( 3 ) Jagged Little Pill Alanis Morissette t 6. ( 7 ) The Bends Radiohead f 7. ( 5 ) Greatest Hits Take That I 8. ( 6 ) Antology 2 The Beatles | 9. ( 8 ) Mercury Falling Sting 110. (14) Music forthe Jilted Generation Prodigy 111. ( 9 ) All Eyez on Me 2Pac 112. (20) Murder Ballads Nick Cave and The Bad Seeds 113. (Al) Mellon Collie & The Infinite... Smashing Pumpkins 114. (16) Drullumall Botnleðja It 15. (17) Croucie D’ou La Emelíana Torrini 116. (10) (What's the Story) Morning Glory? Oasis 117. (- ) Wildest Dreams Tina Turner 118. ( - ) Golden Heart Mark Knopfler 119. (19) Expecting to Fly Bluetones 120. ( - ) ln Sound from Way Out! Beastie Boys London —-lög- J 1. (1 ) Firestarter The Prodigy J 2. ( 2 ) The X-Files Mark Snow t 3. ( 4 ) Return of the Mac Mark Morrison $ 4. ( 3 ) Children Robert Miles t 5. ( 6 ) Ohh Ahh...Just A Little Bit Gina G t 6. ( - ) California Love 2Pac Featuring Dr. Dre $ 7. ( 5 ) Give Me a Little More Time Gabrielle t 8. ( - ) Bulls on Parade Rage against The Machine 4 9. ( 8 ) X-Files Dj Daco $ 10. ( 9 ) How Deep Is Your Love Take That NewYork p -lög- J 1. (1 ) Because You Loved Me Celine Dion J 2. ( 2 ) Always Be My Baby Mariah Carey J 3. ( 3 ) Nobody Knows The Tony Rich Project t 4. ( 5 ) Ironic Alanis Morissette | 5. ( 4 ) Down Low (Nobody Has to now) R. Kelly Featuring Ronald Isley J 6. ( 6 ) Sittin' up in My Room Brandy t 7.(10) 1,2,3,4 (Sumpin' New) Coolio $ 8. ( 7 ) Not Gon' Cry Mary J. Blige t 9. (12) Doin It LL Cool J * 10.(11) Follow You down Gin Blossoms Bretland — plötur og diskar — | 1. (1 ) Greatest Hits Take That J 2. ( 2 ) (What'sThe Story) Morning Glory? Oasis J 3. ( 3 ) Falling into You Celine Dion r t 4. ( - ) Wildest Dreams Tina Tumer J 5. ( 5 ) Jagged Little Pill Alanis Morissette t 6. ( 7 ) Bizarre Fruit/Bizarre Fruit II M People $ 7. ( 6 ) Hits Mike and the Mechanics t 8. ( - ) Maximum High Slied Seven « 9. ( 8 ) Garbage Garbage J 10. (10) Different Class Pulp Bandaríkin — plötur og diskar — t 1.(2) Jagged Little Pill Alanis Morissette # 2. (1 ) Anthology 2 The Beatles J 3. ( 3 ) Falling into You Celine Dion t 4. ( - ) Tíny Music... Stone Temple Pilots I 5. ( 4 ) The Score Fugees t 6. (- ) The Coming Busta Rhymes | 7. ( 6 ) Daydream Mariah Carey 4 8. ( 5 ) All Eyez on Me 2Pac « 9. ( 8 ) (What's the Story) Morning Glory? Oasis $10. ( 7 ) Waiting to wxhale Úr kvikmynd villtustu draumar linu Turner Tina Turner: Fyrsta hljómleikaferðin í sjö ár um Evrópu hefst í maíbyrjun. Nýja platan með Tinu Turner fékk hvorki nafnið Stiletto né Rock’n’Roll Suicide eins og spáð hafði verið á aðdáendasíðu söng- konunnar á veraldarvefnum síðast- liðið sumar. Og lagið Bring Me some Water eftir Melissu Etheridge, sem fullyrt hafði verið að yrði eitt aðallagið á plötunni, er ekki með. Þess í stað hefur platan fengið nafn- ið Wildest Dreams eða Villtustu draumar og á henni er að finna úr- val laga eftir fólk á borð við Arthur Baker, Mike Chapman, Terry Britt- en og Graham Lyle, John Waite Sheryl Crow og Pet Shop Boys pilt- ana Neil Tennant og Chris Lowe svo að nokkrir séu nefndir. Og að sjálfsögðu má ekki gleyma liðsmönnum U2, Bono og The Edge. Þeir sömdu fyrsta lagið á Wildest Dreams sem út var gefið á smá- skífu, - James Bondlagið Gold- eneye. Nokkru áður en platan kom út kom síðan smáskífa númer tvö, Whatever You Want, eftir Arthur Baker. Til að fylgja því eftir var samstarfsmaður Bjarkar og Red Hot Chili Peppers, Stephan Sednaoui, fenginn til að útbúa myndband og var það frumsýnt í MTV síðla í mars. Wildest Dreams er sögð vera fyrsta plata Tinu Turner síðan For- eign Affair kom út fyrir sjö árum. Þá er sleppt úr safnplötunni Simply the Best sem var gefin út 1991 og What’s Love Got to Do With It sem kom út tveimur árum síðar. Á henni voru lög úr kvikmynd með sama nafni sem unnin var eftir sjálfsævisögu hennar I, Tina. Báðar fengu þær plötur góðar viðtökur. Simply The Best seldist í fjórum milljónum eintaka og hin litlu minna upplagi. Trevor Horn við stjórnvölinn Tina Tumer var búin að biða lengi eftir tækifæri til þess að vinna með upptökustjóranum Trevor Horn þegar hún bað hann að hafa yfirumsjón með hljóðritun fjögurra laga á Wildest Dreams. Hann hefur náð góðum árangri með lagasmiðn- um og söngvaranum Seal á undan- fomum árum og hefur mörg afrekin unnið önnur á löngum ferli sínum. Þegar Horn var búinn að hljóðrita fjögur lög var hann beðinn um að vinna áfram að plötunni og á endan- um stýrði hann upptöku tíu laga af sautján sem tekin voru upp vegna útgáfunnar. Aðrir sem koma að stjórn takka og tóla við upptökuna eru Terry Britten sem á tvö lög á plötunni, Neil Tennant og Chris Lowe stýra upptökum síns lags og Nellie Hooper sá um Goldeneye. Upptaka plötunnar fór að öllu leyti fram í Englandi. Vinna við hana hófst í ágúst í fyrra og í febrú- ar var hún endanlega hljóðblönduð. Af lögunum sautján sem voru hljóð- rituð komust tólf á plötuna. Sum hinna - jafnvel öll - verða væntan- lega notuð til að hafa með smáskíf- um sem koma út í vor og sumar til að kynda undir sölu plötunnar og hljómleikaferð um Evrópu sem hefst í maí. Hljómleikaferðin Evrópuferðarinnar hefur reyndar lítillega verið getið í DV áður. Hún hefst sem sagt í París 3. maí. Þar verða þrennir tónleikar og er löngu uppselt á þá alla. Sömu sögu er að segja um fjölmarga tónleika ferðar- innar sem á að standa allt fram til jóla. Tina ætlar að koma fram átta sinnum í Rotterdam í Hollandi. Uppselt er í öll skiptin. Sömu sögu er að segja af Fimm tónleikum í Brussel í Belgíu, þrennum í Stokk- hólmi og þannig mætti lengi telja. Tina hefur ekki farið í Evrópuferð síðan hún fylgdi Foreign Affair eft- ir árið 1990 og aðdáendurnir virðast hafa verið orðnir óþolinmóðir að bíða eftir nýrri ferð. Fyrir löngu er búið að velja í hljómsveitina sem fer með Tinu í Evrópuferðina. John Miles og James Ralston verða gítarleikarar í sveitinni þeirri. Kenny Moore sér um píanóleikinn og Alan Clarke úr Bire Straits um annan hljómborðs- leik. Jack Bruno verður trommu- leikari, Bob Feit sér um bassann og vöðvabúntið Timmy Cappello leikur á saxófón, ásláttarhljóðfæri og hljómborð. Allir hafa þeir áður unn- ið með Tinu að Alan Clarke undan- skildum. Tina, sem er á 57. aldursári, seg- ist ekki kviða langri hljómleikaferð- inni. „Ég hef fengið góða hvíld og hlakka til að snúa aftur. Ég veit að ég er með góða plötu og á henni eru nokkur lög sem verða á dagskránni. Ég hlakka til að fást við þau.“ Tina hefur löngum notið meiri vinsælda í Evrópu en heimaland- inu, Bandaríkjunum. Enda er hún flutt til Evrópu, býr ýmist i Frakk- landi eða Sviss. Söngferillinn er orðinn talsvert langur. Hann hófst í lok sjötta áratugarins og fátt bendir til annars en að hann geti staðið fram á næstu öld.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.