Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1996, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1996, Qupperneq 36
44 erlendar fréttir LAUGARDAGUR 13. APRIL 1996 Bandaríska lögreglan telur sig hafa hinn svokallaða „Unabember" undir lás og slá: Sprengjuvargurinn sem aldr - átján ára leit lauk miðvikudaginn fyrir páska í afskekktu héraði í Montana Theodore John Kaczynski lá í bæli sínu í litla kofanum í Montana þegar lögreglan lét til skarar skríða gegn honum miðvikudaginn fyrir páska. Lögreglan var búin að hafa gætur á manninum í heilan mánuð áður en hún handtók hann, manninn sem grunaður er um að vera hinn svo- kallaði „Unabomber" sprengjuvargur og hafa valdið dauða þriggja manna í sextán sprengjutilræðum á tæpum tveimur áratugum. „Ted, við þurfum að tala saman,“ fréttaljós á laugardegi sagði einn laganna vörður við hann við handtökuna, Hvað þessi 53 ára gamli fyrrum stærðfræðikennari við Kaliforníuhá- skóla í Berkeley hugsaði þá og hvað hann hugsar nú, í klefanum í Lewis og Clark sýslufangelsinu í Helena í Montana, er ekki vitað. Þægindin fyrir öllu Eitt er þó víst: Kaczynski býr við öllu meiri þægindi nú en heima í kof- anum sínum. í fangaklefanum er þó alltént klósett, vaskur og rúm. í tólf fermetra kofanum við Humbug Contour veg, malarveg upp á Skalla- fjall vestan við vatnaskilin miklu í vestanverðri Norður-Ameríku, þar sem Kaczynski hefur búið í fjölda ára, var hins vegar fátt af því sem nútímamaðurinn litur á sem sjálf- sagða hluti. Þar var ekkert rennandi vatn, ekkert salerni, ekkert rafmagn, enginn sími. Kaczynski skorti hins vegar ekki bækurnar og mátti þar m.a. finna verk eftir Shakespeare og Thackeray. Allt frá því Kaczynski var hand- tekinn hefur lögreglan verið að ieita að sönnunargögnum í híbýlum hans og hefur orðið nokkuð ágengt. Lag- anna verðir hafa fundið þar virka sprengju, auk annars efnis til sprengjugerðar. Áfram verður haldið að leita til mánudags að minnsta kosti og lengur ef þörf krefur. Fréttamenn virða fyrir sér tólf fermetra kofann þar sem ár í afskekktu héraði í Montana-fylki. Theodore Kaczynski, sem grunaður er að sé „Unabomber" sprengjuvargurinn, bjó i mörg herrans Símamynd Reuter Hinn fullkomni felustaður Einkaspæjari kallaður til sprengjuvargsins þar sem hann agnúaðist út í tæknisamfélag nútímans sem blöðin New York Times og Washington Post birtu. Þar sá David hversu lík skrifin voru bréfum sem hann hafði fengið frá Ted. Hann ákvað því að Kofi Kaczynskis er í nokkurra kílómetra fjarlægð frá smábænum Lincoln í Montana sem er að mati kunnugra hinn fullkomni stað- ur fyrir þá sem vilja vera út af fyrir sig. Enda hefur þetta svæði Klettafjallarna alltaf laðað að sér fólk í leit að einveru. Ekki færri en tug- ur manna býr við svipaðar aðstæður og Kaczynski í námunda við Lincoln. Sumir þeirra eru ef til vill í felum en aðrir þurftu bara á ódýru húsnæði að halda og íbúarnir þúsund í Lincoln taka vel á móti hverjum sem er. „Unabomber" sprengjuvargurinn, svo kall- aður vegna þess að hann beindi sprengjum sínum einkum gegn háskólum og flugfélögum, hafði komist hjá handtöku allt frá því fyrsta sprengjan hans sprakk í maímánuði 1978 í há- skólanum í Evanston í IUinois-fylki. Hjólin fóru þó ekki að snúast af verulegum hraða fyrr en yngri bróðir Kaczynskis, David, fór til lögreglunnar í febrúar með grunsemdir sínar um að bróðir hans og sprengjuvargurinn væru ef til vill einn og sami maðurinn. Engar sannanir eru enn fyrir því en líkurnar á því þykja yfirgnæfandi. David Kaczynski, sem er félagsráðgjafi að atvinnu, hafði fengið það óþægilega sterkt á tilfinninguna að bróðir hans kynni að vera sprengjumaðurinn. Hann byggði grunsemdir sínar á því að fréttir um hvar sumum sprengnanna hafði verið komið fyrir og vit- neskja hans um hvar bróðir hans var niður- kominn komu heim og saman. Það sem gerði útslagið var stefnuskrá Theodore Kaczynski, meintur sprengjuvargur, dúsir nú í sýslufangelsinu í Helena í Montana. Símamynd Reuter ráða einkaspæjara til að rannsaka málið fyrir sig svo lítið bæri á. Einkaspæjarinn fékk svo til liðs við sig fyrrum atferlisfræðing hjá al- ríkislögreglunni, FBI. C.lint Van Zandt, fyrrum sérfræðingurinn frá FBI, segir að David Kaczynski sé þjóð- hetja. „David tók erfiðustu ákvörðun sem nokkur maður gat tekið þegar hann vó og mat hagsmuni bróður síns gagnvart öryggishags- munum þjóðarinnar. Ég er viss um að það var algjör martröð. Við höfum kannski staðfest verstu martröð hans,“ segir Van Zandt. Óvenjulegum gáfum gæddur Frá þvi að Kaczynski var handtekinn hafa fjölmiðlar keppst við að reyna að varpa ljósi á það hvern mann hann hefur að geyma. Það hefur hins vegar komið í ljós að varla virðist nokkur maður hafa þekkt hann á meðan hann var enn virkur þátttakandi í þjóðfélaginu. Hann sagði fátt og var ráðgáta flestum eða öll- um þeim sem ungengust hann. Enginn minn- ist þess að hann hafi nokkurn tíma hlegið, engan rekur minni til þess að hann hafi nokk- urn tíma átt vini. Fyrrum starfsfélagi hans segir hann hafa verið „sjúklega feiminn". Önnur orð sem not- uð eru til að lýsa honum eru „hlédrægur“, „rólyndismaður" og „einlægur". Það kom snemma í ljós að Teddy John, eins og fjölskvlda hans kallaði hann, var óvenju- lega miklum gáfum gæddur. Dag einn, þegar pilturinn var sex ára gamall, ákvað besti vin- ur föður hans, barnasálfræðingur að nafni Ralph Meister, að leggja fyrir hann greindar- próf. Meister komst að þeirri niðurstöðu að greindarvísitala drengsins væri einhvers stað- ar á bilinu 160 til 170 en meðalgreind er ein- hvers staðar um 100. Snemma beygist sprengjukrókurinn Kaczynski-fjölskyldan bjó í Evergreen Park, sem er verkamannaúthverfi við Chicago. Fjöl- skyldufaðirinn, Theodore R. Kaczynski, kall- aður Turk, vann í pylsufabrikku í suðurhluta Chicago. Hann og eiginkona hans, Wanda, voru vel lesin, frjálslynd í skoðunum en voru ekki í miklum efnum. Yngri sonur þeirra, David, var sjö árum yngri en Teddy John og ekki nærri eins hlédrægur. Teddy John fékk snemma áhuga á sprengju- efni. Þegar hann var tólf ára, lék hann sér stundum að því, ásamt félaga sínum, Dale Eickelman, að búa til sprengjur og sprengja þær. „Við vorum vanir að fara út á akur og ég man að Ted kunni að setja saman hluti eins og rafhlöður, víra, kalíumnítrat og ég veit ekki hvað og fá þá til að springa," segir Eickelman sem nú er mannfræðiprófessor við Dartmouth-háskóla. „Við sprengdum bara ill- gresi, ekkert meira,“ sagði hann. Teddy John lauk menntaskóla aðeins sext- án ára gamall, tveimur árum á undan áætlun, og innritaðist í hinn virta Harvard-háskóla þar sem hann fékk tækifæri til að umgangast marga af framtíðarleiðtogum Bandaríkjanna. Hann gerði þó ekkert slíkt heldur forðaðist hann skólafélaga sína eins og heitan eldinn. Pilturinn bjó á heimavist en að sögn eins skólafélaganna flýtti hann sér alltaf eins og hann gat inn í herbergið sitt að kennslustund- um loknum og skellti hurðinni á eftir sér. Á matmálstímum sat hann einn til borðs en ef skólafélagarnir settust hjá honum, varð hann órólegur og fór. „Hann leyfði okkur ekki að kynnast sér,“ segir Patrick S. Mclntosh, stjörnufræðingur í Kólóradó. Stuttklipptur innan um lubbana Herbergi Kaczynskis var alltaf fullt af drasli og þaðan lagði stöðugt megnan óþef. Félagar hans á heimavistinni þurftu margoft að leita til húsvarðarins og fá hann til að skipa Kaczynski að taka til hjá sér. Að loknu stærðfræðináminu í Harvard fór Kaczynski til framhaldsnáms í Michigan-há- skóla og lauk þaðan doktorsprófi. Lokaritgerð hans þótti óvenju glæsileg og fyrir hana hlaut hann verðlaun. Frá Michigan lá leiðin síðan til Berkeley í Kaliforníu þar sem Kaczynski fékk stöðu lektors við Kaliforníu-háskóla. Þangað kom hann 1967 þegar hinu fræga ást- arsumri var að ljúka. I Berkeley voru allir á kafi í pólitík og stærðfræðingarnir voru mjög virkir í andstöðunni við stríðið í Víetnam.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.