Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1996, Síða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1996, Síða 37
33V LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1996 erlendar fréttir FBI-maðurinn George Grotz ræðir við fréttamenn nærri fjallakofanum þar sem hinn meinti „Unabomber" sprengjuvargur var handtekinn. Allir nema Kaczynski. Hann heyrð- ist aldrei segja aukatekið orð um pólitík. Hann slóst ekki í lið með andstæðingum styrjaldarreksturs- ins. Hann var ekki með sítt hár og í sandölum heldur vel rakaður, stutt- klipptur, í jakka og með bindi. Nem- endur hans kunnu iUa við hann og þegar þeir gáfu honum einkunn, sögðu þeir að tímarnir hjá honum hefðu verið vita gagnslausir. Ted Kaczynski sagði óvænt upp starfi sínu í Berkeley þann 20. janú- ar 1969, sama dag og Richard Nixon tók viö forsetaembættinu í fyrsta skipti. í viðtölum við yfirmenn deUdar sinnar sagðist hann ekki vita hvað hann hygðist gera, hann vildi bara kveðja stærðfræðina fyrir fullt og aUt. Fjölskyldan hafði skýringu á upp- sögninni á reiðum höndum. Faðir- inn sagði Ralph Meister, félaga sín- um, að Teddy John hefði hætt stærðfræðikennslunni af því að hann hefði ekki vUjað kenna verk- fræðingum hvemig þeir ættu að fara að því að smíða kjarnorku- sprengjur. Einn í kofa úti í skógi Frá Kaliforníu hélt Kaczynski til vesturhluta Montana þar sem hann byggði sér kofa á landi sem hann og David bróðir hans höfðu fest kaup á og svaf f tjaldi á meðan. Eins og all- ir sómakærir Bandaríkjamenn hélt Kaczynski akandi áleiðis til Mont- ana en paUbUlinn hans bUaði að- eins þremur dögum eftir komuna þangað. Upp frá því ferðaðist hann um á reiðhjóli, sem slökkviliðsmað- ur einn hafði gefið honum, eða hreinlega gekk til Lincoln tU að kaupa sér hveiti tU að baka úr brauð. Bæjarstæðið er afskaplega faUegt, eins og þeir vita sem sáu kvikmynd- ina A River Runs through It. Hún gerist á sömu slóðum og fór kvik- myndatakan meira að segja fram ekki langt frá. Kaczynski hafði ekki nema tvö til þrjú hundruð doUara til að lifa af á ári og það segir sig því sjálft að hann varð að afla sér matar úti í náttúrunni. Hann veiddi ýmis smá- dýr sér til matar, eins og íkorna, og hann ræktaði kartöflur og næpur í garðholu sem hann bar eigin saur á sem áburð. Uppskeruna geymdi hann síðan í gryfju sem hann hafði grafið undir kofanum en hann átti þó í vök að verjast vegna ágangs svangra kanína og dádýra sem sóttu mjög í fæðuna. Passar við lýsinguna Hvort Theodore John Kaczynski Símamynd Reuter er sprengjuvargurinn sem banda- ríska lögreglan var búin að leita að í átján ár skal ósagt látið. Hitt er víst að myndin sem atferlisfræðing- ar FBI höfðu gert sér af honum passar afskaplega vel við Kac- zynski. Strax í upphafi var álitið að hér væri á ferðinni gáfaður, ná- kvæmur einfari sem ólst upp á Chicago-svæðinu. Fyrst var talið að sprengjuvargurinn hefði hlotið litla formlega menntun en síðan var það endurskoðað og gengið út frá því að hann hefði gengið í háskóla. Og undir það síðasta var lögreglan á því að maðurinn, sem þeir leituðu að, væri á sextugsaldri. „Hann passar fullkomlega við þetta,“ segir Louis Bertram. starfs- maður FBI í Salt Lake City í Utah, sem rannsakaði sprengjutilræðin í mörg ár. Byggt á Reuter, Washington Post, International Herald Tribune og Ottawa Citizen sviðsljós Skilnaður Pavarotti-hjónanna í uppsiglingu: Eiginkonan hefur látið sannfærast Ótrúlega margar konur þegja og horfa framhjá framhjáhaldi makans en þó kemur að því að þær missa þolinmæðina, óska eftir skilnaði og taka nafn eiginmannsins af póstkassanum. Þannig er staðan núna hjá Pavarotti-hjónunum ítölsku eftir að hinn heimsfrægi óperusöngvari, Luciano I fyrstu trúði eiginkona hans ekki að sambandið myndi haldast en nú er hún orðin sannfærð, hefur krafist skilnaðar og er búin að taka nafn Lucianos af póstkassanum. t Luciano Pavarotti, 60 ára, hefur átt í ástarsambandi með 27 ára gömlum ritara sínum. Pavarotti, 60 ára, gerði ástarævintýri sitt með einkaritara sínum, hinni 27 ára gömlu Nicolettu, opinbert. Fyrst eftir að ástarævintýri Pavarottis og einkaritarans var gert opinbert fyrir nokkru neitaði eiginkonan Lucianos, Adua Pavarotti, að trúa því að stórsöngvarinn og fjölskyldu- maðurinn Luciano ætlaði að snúa baki við hinu ljúfa fjöl- skyldulífi. Nú hefur hún hins vegar sannfærst og hefur krafist þess að fá 8 milljarða króna í sinn hlut. Enginn trúir þó á að skilnaður Pavarotti-hjónanna verði að veruleika fyrr en búið er að undirbúa skilnaðarpapp- írana því að Adua hefur víst tekið við Luciano sínum úr örmum annarrar konu áður. 45 SKRIFSTOFA MÍN er nú að Síðumúla 14, 2. hæð. Sími 588 1090. FULLTRÚI ER Hildur Sólveig Pétursdóttir LÖGFRÆÐINGUR. Hörður Einarsson hrl. Viltu verða vinur? Kynningarfundur fyrir verðandi sjálfboðaliða Vinalínunnar verður haldinn þriðjudaginn 16. apríl kl. 20.30 í Þverholti 15. Sjálfboðaliðar Vinalínunnar eru ekki sérfræðingar heldur venjulegt fólk, sem vill deila með öðrum reynslu sinni og tíma. Markmið okkar er að vera til staðar, hlusta og gera okkar besta til að liðsinna þeim sem hringja. Upplýsingar veittar í símum Vinalínunnar fyrir hádegi og á kvöldin. Allir 25 ára og eldri velkomnir. VINALÍNAN+ Reykjavíkurdeild Rauða krossins tfOlM *» m Krakkar? •§ Það verður mikið fjör í Tígrahorninu í Kringlunni á morgun laugardag. Tígri, lukkudýr Krakkaklúbbs DV, kemur í heimsókn kl. 12.30 og kl. 15.00 og lögreglan kemur kl. 13.00 og sýnir hvernig reiðhjólin eiga að vera útbúin fyrir vorið. Allir krakkar fá glaðning frá Krakkaklúbbnum, blöðrur og nammi. Þið getið fengið þátttökugögn í Tígrahorninu. Einnig er hægt að skila inn sögum á sama stað. Allir krakkar sem skila inn sögu fá verðlaun. Til að skila inn sögunni þarftu að koma við í Tígrahorninu í Kringlunni eða senda hana til Krakkaklúbbs DV, Þverholti 14, 105 Reykjavík. Komið í heimsókn í Tígrahornið og heilsið upp á Tígra. I ítiJJji í samstarfi við

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.