Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1996, Blaðsíða 38
LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1996 i
46 sviðsljós
Yasmin Le Bon, eiginkona Simons Le Bon, er 30 ára fyrirsæta:
Á fullu í tískuheiminum
með börnin sín þrjú
Yasmin Le Bon, eiginkona rokk-
stjörnunnar Simons Le Bon, er ein
af frægustu fyrirsætum heimsins og
ein af skærustu stjörnum Elite- fyr-
irsætufyrirtækisins. Yasmin nýtur
nokkurrar sérstööu í tískuheim-
inum því að þær eru ekki margar
fyrirsæturnar sem hafa verið giftar
í tíu ár og eiga þrjú lítil börn. Fyrir-
sæturnar þurfa að halda sér grönn-
um og fallegum þrátt fyrir þá
streitu og þann þeyting sem fylgir
fyrirsætustarfinu. Yasmin Le Bon
hefur þó tekist að samræma allt
þetta; hún sinnir börnum og búi og
henni gengur vel í faginu þrátt fyr-
ir barnaskarann sinn.
Þegar Yasmin Le Bon varð
mamma í fyrsta sinn fyrir sex árum
tók hún þá óvenjulegu ákvörðun að
taka börnin með sér í vinnuna og
hasla sér völl þar. Síðan hefur hún
tekið krakkana með sér í myndatök-
ur og sex árq dóttir Yasminar og
Simons, Amber, er nú orðin vön fyr-
irsæta en þau minni, Saffron, 4 ára,
og Tallulah, 1 árs, eru tiltölulega ný-
byrjuð í faginu. Þau kynntu haustog
vetrartískuna með mömmu sinni
fyrir Marks og Spencer búðirnar í
Bretlandi nýlega.
Þegar Yasmin byrjaði sjálf að
sitja fyrir 18 ára var hún harðákveð-
in í því að gifta sig ekki fyrir þrí-
tugt, hvað þá eignast börn. En það
var ást við fyrstu sýn þegar hún
hitti Simon Le Bon í fyrsta skipti.
„Ef einhver hefði sagt þegar ég var
18 ára að ég ætti eftir að giftast 21
árs og yrði komin með þrjú börn
um þrítugt þá hefði ég hlegið," seg-
ir Yasmin.
Yasmin er fædd í Bretlandi, dótt-
ir enskrar konu og íransks manns.
Sem unglingur átti hún sér tvö
markmið; að ferðast eins mikið og
hægt væri og læra eins mikið og
hún gæti áður en hún yrði þrítug.
Yasmin velti því ekki mikið fyrir
sér að verða módel en lét slag
standa þegar henni var bent á það.
Hún hefur tekið sér nokkrum sinn-
um frí frá vinnunni til að fylgja
Simoni eftir á ferðalögum og til að
eignast börnin. Þess á milli hefur
hún unnið sem fyrirsæta og farið
með fjölskyldunni í frí ti1 Jamaíka.
Sean Bean, breski leikarinn sem leikur erkióvin 007 í Gullauga, á í vandræð-
um með hjónabandið því að eiginkona hans er óánægð með það hvað hann
ver miklum tíma í knattspyrnu. Bean er mikill áhangandi Sheffield United.
Yasmin Le Bon er ein af skærustu stjörnum fyrirsætufyrirtækisins Elite. Hún
er gift Simoni Le Bon, söngvara Duran Duran. fc
Yasmin og Simon Le Bon eiga þrjú
börn saman og hefur Yasmin látið
þau öll sitja fyrir á myndum með sér.
Þessi mynd var tekin þegar Yasmin
og Simon voru með börnin í fríi á
Jamaíka nýlega.
Amber, 6 ára, og Tallulah, 1 árs, eru
farin að sitja fyrir hjá tískuljósmynd-
urum.
Sean Bean er ákafur Sheffield-aðdáandi:
Hjónabandið í hættu vegna
sjúklegs áhuga á knattspyrnu
Breski leikarinn Sean Bean, sem
lék erkióvin 007 í nýjustu James
Bond-myndinni Gullauga, hefur
.stofnað hjónabandi sínu með leik-
konunni Melanie Hill í hættu vegna
óbilandi og allt að því sjúklegs
áhuga á knattspymu. Bean er ákaf-
ur aðdáandi Sheffield United og
sækir alla leiki liðsins sem hann
kemst á og hefur þetta gengið svo
langt að eiginkonan talar um að fá
skilnað og hefur vísað kappanum í
gestaherbergið.
Eiginkona Beans, sem leikur eig-
inkonu á móti honum í nýrri mynd
sem heitir When Saturday Comes og
fjallar einmitt um knattspyrnu, hef-
ur kvartað mikið yfir áhuga eigin-
mannsins á fótboltanum við vini
sína og umgengni hans á heimilinu.
Hún segir að hann sé fjarri heimil-
inu í sex mánuði á ári vegna vinnu
sinnar. Þegar hann loks komi heim
sinni hann engum heimilisverkum
og sé rokinn á knattspyrnuleiki
strax og færi gefst. Þetta vill hún
ekki sætta sig við.
„Ég er dauðþreytt á þessu og vil
hann út af heimilinu. Hann kemur
fram við mig eins og fótaþurrku,"
segir Melanie um sambúðina við
eiginmanninn.
Bean glottir hins vegar í kampinn
og segir að sér hafi þótt stór-
skemmtilegt að leika á móti kon-
unni sinni í nýju myndinni því að
þar hafi hann getað beðið konuna
sína um að strauja skyrtuna fyrir
sig - nokkuð sem hann ekki kopist
upp með heima.
... að Eddie Fulong, stjarnan
úr Terminator 2 myndinni, ætl-
aði að giftast sinni heittelsk-
uðu, Jacqueline Domac, sem er
32 ára, nú þegar hann er orðinn
18 ára. Þau kynntust við töku á
Terminator-myndinni þegar
hann var 13 ára en hún 26.
. . . að Sean Penn hefði náð
sér í nýja dömu. Sú er ekki af
verra taginu - sjálf Elle Macp-
herson ofurfyrirsæta. Þau sáust
nýlega saman á kaffihúsi í New
Orleans en áður hafði sést til
þeirra við svipuð tækifæri i Los
Angeles og New York.
. . .að spekingarnir í Holly-
wood hörmuðu nú dauða Al-
freds Hitchcocks. Hann hefði
getað gert enn eitt snilldarverk-
ið þegar Sharon Stone er ann-
ars vegar. Von er á nýrri mynd
með Stone innan skamms þar
sem hún leikur á móti Isabelle
Adjani í mynd eftir Jeremiah
Chechik, sem leikstýrði Benny
and Joon.
. . .að hjartaknúsarinn Ant-
onio Banderas væri ótrúlega til-
finninganæmur maður. Nýlega
lét hann hafa eftir sér að þrátt
fyrir troðfulla fataskápa hefði
hann tekið slíku ástfóstri við
tvennar buxur sem hann ætti
að hann gæti ekki fleygt þeim
þrátt fyrir að þær væru slitnar
og komnar úr tísku.
. . .að fyrirsætan og kvik-
myndastjarnan Halle Berry
gæfi lítið fyrir mótmæli Jesse
Jackson við óskarsverðlaunaaf-
hendinguna á dögunum.
Jackson var að mótmæla því
hve fáir blökkumenn hefðu ver-
ið tilnefndir en Berry gaf þá yf-
irlýsingu að hún ætlaði að vera
jákvæð gagnvart þessarri stað-
reynd. Það gæfi líklega betri
raun.