Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1996, Page 50
58
afmæli
LAUGARDAGUR 13. APRIL 1996
Olöf Ketifbjarnardóttir
Ólöf Ketilbjarnardóttir húsmóð-
ir, Baldursgötu 16, Reykjavík, verð-
ur níutíu og fimm ára á morgun.
Starfsferill
Ólöf fæddist að Klukkufelli í
Reykhólasveit en fór þriggja ára
með foreldrum sínum að Saurhóli í
Saurbæ í Dalasýslu þar sem hún
ólst upp. Ólöf kynntist öllum al-
mennum sveitastörfum í foreldra-
húsum. Hún fór til Reykjavíkur
1919, lærði þar kjólasaum hjá
Stefónu Björnsdóttur 1923 auk þess
sem hún lærði útsaum og balder-
ingu hjá Jónínu Benediktsdóttur.
Hún stundaði um skeið nám við
skóla Ásgríms að Bergstaðastræti
3, fór síðan til Bandaríkjanna og
lauk þaðan prófi frá lýðháskóla í
Hartford 1928 og frá Hartford
Grammar School 1930. Hún var
sæmd heiðursmerki og heiðurs-
skjali American Legion Auxiliary
fyrir ritgerðir og góða frammistöðu
í námi í Hartford.
Ólöf var búsett í Bandaríkjunum
1925-31 en flutti þá til Reykjavíkur.
Hún starfaði hjá Ríkisútvarpinu í
níu ár eftir heimkomuna auk þess
sem hún stundaði einkakennslu í
ensku. Þá starfaði hún hjá Sláturfé-
lagi Suðurlands í Reykjavík
1958-78.
Ólöf hefur gefið út eftirtaldar
ljóðabækur: Gullregn, útg. 1988;
Mánaskin, útg. 1991, og Stjörnu-
blik, útg. 1993.
Fjölskylda
Olöf giftist 19.5. 1933 Indriða
Halldórssyni, f. 13.2. 1908, d. 3.10.
1990, múrarameistara. Hann var
sonur Halldórs Indriðasonar, út-
vegsb. í Grundarfirði, og k.h., Dag-
fríðar Jóhannsdóttur frá Kverná.
Börn Ólafar og Indriða eru Hall-
dór Indriðason, f. 29.11. 1933, d.
1980, múrarameistari og stýrimað-
ur í Reykjavík, var kvæntur Sig-
rúnu Stefánsdóttur húsmóður og
eru dætur þeirra tvær; Kolbrún
Dóra Indriðadóttir, f. 26.11. 1938,
verslunarstjóri í Reykjavík, gift
Guðmundi Guðveigssyni lögreglu-
þjóni og eiga þau fimm börn.
Dætur Halldórs og Sigrúnar eru
Oddný Björg, f. 11.4. 1956, skrif-
stofumaður í Reykjavík, var gift
Bjarna Friðrikssyni og eiga þau
eina dóttur, Birgittu; Ólöf Berg-
lind, f. 11.12. 1959, þroskaþjálfi í
Reykjavík, og á hún einn son, Hall-
dór Hrafn Jónsson.
Börn Kolbrúnar Dóru og Guð-
mundar eru Ólöf, f. 26.2.1958, skrif-
stofumaður í Reykjavík, gift Peter
Joseph Broome Salmon fram-
kvæmdastjóra og eiga þau tvö
börn, Thomas og Tönju; Eggert
Snorri, f. 1.1. 1961, húsasmiður og
brunavörður, kvæntur Jóhönnu
Guðbjörnsdóttur húsmóður og eiga
þau þrjú börn, Hafstein, Herdísi og
Önnu Björk; Indriði, f. 24.8. 1963,
múrari, kvæntur Nínu Edvards-
dóttur fóstru og eiga þau tvo syni,
Alexander og Edvard; Guðmundur
Sævar, f. 20.4. 1970, múrari en sam-
býliskona hans er Edda Sigur-
bergsdóttir og eiga þau eina dóttur,
Thelmu; Halldóra Katla, f. 24.12.
1971, ritari en sambýlismaður
hennar er Magnús Helgason
rekstrarstjóri og eiga þau eina dótt-
ur, Kolbrúnu Dóru.
Ólöf átti sjö alsystkini og flmm
hálfsystkini, samfeðra. Af alsystk-
inum hennar komust þrjú til full-
orðinsára en þrír hálfbræður. Ólöf
er nú ein á lífi af systkinunum.
Foreldrar Ólafar voru Ketilbjörn
Magnússon, f. 25.6. 1865, d. 1915, b.
á Saurhóli í Saurbæ í Dölum, og
s.k.h., Halldóra Snorradóttir, f.
18.4. 1865, d. 30.4. 1945, húsfreyja.
Ætt
Ketilbjörn var sonur Magnúsar,
hreppstjóra og fræðimanns í
Tjaldanesi, Jónssonar, b. á Kleif-
um, Ormssonar. Móðir Magnúsar
var Kristín Eggertsdóttir, óðalsb. í
Hergilsey, Ólafssonar og Guðrúnar
Jónsdóttur, af Djúpadalsætt. Móðir
Ólöf Ketilbjarnardóttir.
Ketilbjarnar var Ólöf Guðlaugs-
dóttir, prests í Vatnsfirði, Sigurðs-
sonar, prests i Lundum, Þorbjarn-
arsonar, ríka í Lundum, Ólafsson-
ar. Móðir Ólafar var Rannveig Sig-
urðardóttir, sýslumanns á Hvítár-
völlum, Jónssonar.
Halldóra var dóttir Snorra Árna-
sonar, dbrm. í Arnarstapa, Eyjólfs-
sonar. Móðir Halldóru var Ingveld-
ur Jónsdóttir frá Haukatungu, syst-
ir Oddnýjar, móður séra Ingvars
Nikulássonar.
Ólöf og fjölskylda hennar taka á
móti gestum hjá Biindrafélaginu,
Hamrahlíð 17, Reykjavík, 2. hæð, á
morgun, sunnudag, milli klukkan
16 og 19.00.
Til hamingju
með afmæíið
14. apríl
95 ára
Jóhannes Jóhannsson,
Snorrabraut 58, Reykjavík.
85 ára
Guðbjörg Pétursdóttir,
Bakkatjörn 7, Selfossi.
75 ára
Kristján Finnbjörnsson,
Bleikjukvísl 11, Reykjavík.
Kristján er að heiman.
Sigurjón Jónsson,
Aspaifelli 8, Reykjavík.
70 ára
Guðlaug Hallbjörnsdóttir,
fyrrverandi matráðskona hjá
Skeljungi í Skerjafirði,
Reynimel 84, Reykjavík.
Hún mun taka á móti gestum á
Aflagranda 40, í dag, laugardaginn
13.4. kl. 17.00.
Dýrleif Jóns-
dóttir,
Jökulgrunni 12,
Reykjavík.
Hún tekur á
móti gestum í
Grand hótel við
Sigtún á afmæl-
isdaginn kl.
19.00-22.00
Birgir Frímannsson,
Barðaströnd 27, Seltjarnarnesi.
Kristinn Jónsson,
Birkivöllum 32, Selfossi.
Atli Snæbjörnsson,
Aðalstræti 90, Patreksfirði.
60 ára
Jórunn Axelsdóttir,
Tunguseli 3, Reykjavík.
Salaleiga
Höíum sali sem henta
fyrir alla mannfagnaði
HÖTETt^nND
5687111
Þórður Hannesson,
Rauðkollsstöðum, Eyja- og Mikla-
holtshreppi.
Óskar Jóhannesson,
Ásvallagötu 3, Reykjavik.
50 ára
Marsilía Ingvarsdóttir,
Sólborgarhóli, Glæsibæjarhreppi.
Gunnar Kjartansson,
Orrahólum 7, Reykjavík.
Ásgerður Ágústsdóttir,
Heiðarlundi 6 D, Akureyri.
Margrét Rannveig Guðmunds-
dóttir,
Furulundi 13C, Akureyri.
Hildur Svavarsdóttir,
Efstasundi 73, Reykjavík.
Júlíus Berg Júlíusson,
Norðurvegi 15, Hrísey.
Ingveldur Brimdís Jónsdóttir,
Dalsgerði 5G, Akureyri.
Guðmundur Óskar Guðmunds-
son,
Lerkilundi 38, Akureyri.
Garðar Gestsson,
Vallholti 45, Selfossi.
Guðlaug Lára Björgvinsdóttir,
Hjallabraut 92, Hafnarfirði.
Kurt Sigurd Nielsen,
Sogavegi 115, Reykjavík.
Sigríður H. Þorvaldsdóttir,
Álftalandi 7, Reykjavík.
40 ára
Arnar Eiríkur Gunnarsson,
Reykjaskóla, Staðarhreppi.
Eyjólfur Valur Gunnarsson,
Brú, Bæjarhreppi.
Haraldur Sigurðsson,
Orrahólum 7, Reykjavík.
Gunnlaugur Sigurðsson,
Klaufabrekkum, Svarfaðardals-
hreppi.
Gunnar Rúnar H. Óskarsson,
Klausturhvammi 2, Hafnarfirði.
Guðný Kristín Heiðarsdóttir,
Stekkjargerði 2, Akureyri.
Þröstur Stefánsson,
Kambahrauni 32, Hveragerði.
Egill Þorsteinn Sigmundsson,
Stórholti 9, ísafirði.
Ásgerður Jóhannesdóttir,
Hverfisgötu 104A, Reykjavík.
Viggó Hólm Valgarðsson,
Miðholti 3, Hafnarfirði.
ólafur Jakobsson,
Austurgötu 27, Hafnarfirði.
Björn H. Sigurliðason,
Birkihlíð 2B, Hafnarfirði.
Hjördís Davíðsdóttir
Hjördís Davíðsdóttir húsmóðir,
Álakvísl 84, Reykjavík, er fimmtug
í dag.
Fjölskylda
Hjördís fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hún giftist 10.10. 1964
Rúnari Jóhannesi Guðmundssyni,
f. 12.2. 1941, bifreiðastjóra. Hann er
sonur Guðmundar Kristins Falk
Guðmundssonar, f. 19.9. 1913, d.
25.8. 1965, skipstjóra og útgerðar-
manns í Kópavogi, og Helgu Hjör-
dísar Hjartardóttur, f. 29.6. 1915, d.
24.8. 1986, húsmóður.
Börn Hjördísar og Rúnars Jó-
hannesar eru Geirlaug, f. 2.8. 1964,
búsett í Svíþjóð, gift Roger Sahlén
og eru börn þeirra Sandra Alma
Bergrós, f. 13.7. 1992, og Frida Isa-
bella Elínrós, f. 31.7. 1995, en börn
hennar frá því áður eru Jóhannes
Rúnar Hjelm, f. 12.2.1982, og Sigríð-
ur Hjördís Sigursteinsdóttir, f. 3.3.
1989; Valgerður Hjördís, f. 13.2.1966
og er dóttir hennar Sóldís Dröfn
Kristinsdóttir, f. 28.5. 1990; Sigur-
borg, f. 7.9. 1967, stúdent og hús-
móðir á Húsavík, gift Hermundi
Svanssyni sjómanni og eru börn
þeirra Herdís Eva, f. 9.12. 1988,
Sævar Falk, f. 7.9. 1990, og Elísa
Rún, f. 24.8. 1994.
Systkini Hjördísar: Sigríður
Kristin, f. 25.10. 1930, búsett í
Reykjavík, gift Gylfa Traustasyni;
Grímur, f. 22.12. 1933, búsettur í
Reykjavík, kvæntur Svanhildi H.
Sigurfinnsdóttur; Jóhann, f. 20.8.
1937, búsettur í Keílavík, kvæntur
Laufeyju Ósk Guðmundsdóttur;
Ósk, f. 1.1. 1948, búsett í Reykjavík,
gift Guðmundi I. Kristóferssyni;
Hólmfríður, f. 5.7. 1952, búsett í
Kópavogi, gift Sigurði Eiríkssyni.
Foreldrar Hjördísar voru Davíð
Óskar Grímsson, f. 12.4. 1904, d.
16.3.1985, húsgagnasmíðameistari í
Reykjavík, og Sigríður Geirlaug
Kristinsdóttir, f. 5.9. 1911, d. 3.3.
1988, húsmóðir.
Ætt
Davíð var sonur Gríms, b. í
Langeyjarnesi á Skarðsströnd og í
Rúfeyjum á Breiðafirði Þorláksson-
ar, hreppstjóra, silfursmiðs og
hafnsögumanns á Melum í Skarðs-
hreppi Bergsveinssonar, b. í Saur-
látri, Eyjólfssonar. Móðir Þorláks
var Katrín Þorláksdóttir. Móðir
Gríms var Þorbjörg Eggertsdóttir,
b. í Fremri-Langey, Oddssonar, b.
þar Ormssonar, ættföður Ormsætt-
arinnar Sigurðssonar. Móðir Þor-
bjargar var Þorbjörg Eyjólfsdóttir,
b. i Svefneyjum, Einarssonar og
Guðrúnar Jóhannsdóttur.
Móðir Davíðs var Jóhanna
Kristjana Jóhannesdóttir, b. á
Snartarstöðum í Lundarreykjadal,
Oddssonar, b. á Reykjum, Jónsson-
ar. Móðir Jóhannesar var Kristrún
Davíðsdóttir. Móðir Jóhönnu Krist-
Hjördís Davíðsdóttir.
jönu var Salgerður Þorgrímsdóttir,
í Akurgerði í Reykjavík, Eyleifs-
sonar. Móðir Salgerðar var Þóra
Torfadóttir.
Sigríður Geirlaug var dóttir
Kristins, bifreiðastjóri í Reykjavík,
Jónssonar, Bjarnasonar. Móðir
Kristins var Kristín Guðmunds-
dóttir. Móðir Sigríðar Geirlaugar
var Sigríður, húsfreyja í Ólafsdal í
Saurbæjarhreppi í Dölum, Guð-
jónsdóttir.
Hjördís og Rúnar taka á móti
gestum á heimili sínu eftir kl. 17.00
í dag.
Hrafnhildur Þórs Ingvadóttir
Hrafnhildur Þórs Ingvadóttir,
stjórnarráðsfulltrúi í menntamála-
ráðuneytinu, Heiðargerði 43,
Reykjavík, er fimmtug í dag.
Fjölskylda
Hrafnhildur fæddist í Reykjavík.
Hún giftist 1.7. 1978 Sævari Vigfús-
syni, f. 4.9. 1939, tæknifræðingi og
forstöðumanni skrifstofusviðs hjá
Siglingamálastofnun. Hann er son-
ur Vigfúsar Þórarins Jónssonar, f.
13.12. 1899, d. 1.11. 1977, fram-
kvæmdastjóra á Akureyri, og Sig-
ríðar Huldar Jóhannesdóttur, f.
19.12. 1917, d. 31.7. 1988, kaup-
manns.
Börn Hrafnhildar og Sævars eru
Rósa Ágústa, f. 24.6. 1964, gift Pétri
Péturssyni bílasala og eru börn
þeirra Halldór Örn Kjartansson, f.
3.4. 1985, og Anna Rakel Pétursdótt-
ir, f. 2.9. 1994; Valgeir Sigurður, f.
4.7.1966; Áslaug Kristín, f. 9.7.1968;
Inger Rut, f. 12.4. 1975 og er dóttir
hennar Hrafnhildur Alice, f. 4.6.
1995; Sævar Örn, f. 2.5. 1979.
Systkini Hrafnhildar: Inga Þórs,
f. 4.2. 1942, d. 23.2. 1986; Guðlaug
Þórs, f. 27.6. 1950; Valgerður Júlía
Þórs, f. 1.7. 1951, d. 11.9. 1968; Ing-
unn Ása Þórs, f. 14.2. 1956; Einar
Þór, f. 24.8. 1957.
Foreldrar Hrafnhildar voru
Ingvi Þór Einarsson, f. 11.2. 1922,
bifreiðastjóri í Reykjavík, og Val-
gerður Margrét Valgeirsdóttir, f.
8.3. 1922, húsmóðir.
Hrafnhildur tekur á móti ætt-
ingjum og vinum í Rafveituheimil-
inu í Elliðaárdal í kvöld milli kl.
18.00 og 21.00.
Hrafnhildur Þórs Ingvadóttir.