Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1996, Síða 56
Vertu viðbúinfn) vinningi
Vinningstölur
12.4/96
®@@®
KIN
r
> CZ> ŒD FRETTASKOTIÐ
Q= o SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
S CZ3 'Z=> s: ld *=c ^ - Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn.
on *—■1 H— LT3
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1996
Þorskkvótinn:
Búist við 10-15
þúsund tonna
aukningu í ár
„Ef við höldum okkur við jörð-
ina þá hygg ég að maður geti
vænst þess að þorskkvótinn verði
aukinn á milli 10 og 15 þúsund
lestir á þessu fískveiðiári. Það
myndi töluverðu bjarga,“ sagði
Hjálmar Ámason alþingismaður
í samtali við DV i gær.
Margir þingmenn segja opin-
berlega að þeir vilji auka kvóta
um allt að 50 þúsund lestir á
þessu fiskveiðiári. Flestir voru á
því að það væru loftkastalar.
Mikið gengur nú á vegna kvót-
ans. Það er í annan stað vegna
þess hve útkoma í togararalli, og
þá ekki síður það sem af er net-
aralli Hafró, er góð. Hitt atriðið
' er að ef gera á breytingar á kvóta
þessa fiskveiðiárs verður það að
gerast, lögum samkvæmt, fyrir
mánudaginn 15. apríl.
Sjávarútvegsráðherra mun um
helgina ræða við hagsmunaaðila
um málið. Honum ber að gera
það, lögum samkvæmt, áður en
hann tekur ákvörðun. -S.dór
Sjá bls. 2
Bráðlátur grásleppukarl:
Sviptur veiðileyfi
Fiskistofa hefur svipt grásleppu-
bátinn Sæljóma í Sandgerði grá-
sleppuveiðileyfi þar sem skipstjóri
hans lagði netin of snemma. Grá-
sleppuveiðitíminn hefst 20. mars
suðvestanlands en skipstjórinn var
byrjaður fyrir þann tíma. Við rann-
sókn málsins kom fram að hann
hafði lagt netin á hefðbundinni grá-
sleppuslóð bæði fyrir og eftir 20.
mars. c:
verð kr.
1.023.000.-
Bílheimar ehf.
Sœvarhöföa 2a Sími: 525 90001
HEFÐI HANN FA GET-
AÐ HITT Á RANGA
NONU?
Niöurstaöa í máli fimm sakborninga í kvótamáli vegna Ltibberts GmbH:
Frávísanir og skilorð
Sýkna eða frávísun frá dómi átti
við í ákærum á hendur tveimur af
fimm sakborningum í kvótamál-
inu stóra sem Héraðsdómur Vest-
fjarða kvað upp í gær. Þrír fengu
sekt eða skilorðsrefsingar.
Ari HaUdórsson, fyrrum starfs-
maður Lúbberts í Þýskalandi, vai-
dæmdur til að greiða 2ja milljóna
sekt og til að sæta 60 daga skilorðs-
bundnu varðhaldi fyrir að hafa
sem miðlari keypt 660 tonna afla-
mark frá Ósvör hf. í Bolungarvík.
Þannig gerði hann samning við
Gunnarstind á Stöðvarfirði, aðal-
lega um að veiða aflann, og síðan
Goðaborg á Fáskrúðsflrði um að
verka karfa gegn greiðslu. Ari
taldist útlendingm- vegna lögheim-
ilis erlendis og var því óheimilt að
stunda fiskveiðar í íslenskr lög-
sögu. Ari var sýknaður af ákæru
um að hafa flutt aflamark yfir á
Bessa í Súðavík.
Ákæru á hendur Björgvin
Bjarnasyni, fyrrum framkvæmda-
stjóra Ósvarar, um rangfærslur til
Fiskistofu var vísað frá dómi. Hon-
um var gefið að sök að hafa til-
greint Bessa ÍS sem viðtakanda
660 tonna aflamarks frá Dagrúnu
ÍS þrátt fyrir að hafa selt afla-
markið áður til Lúbberts. Björgvin
var sýknaður af umboðssvikum og
að hafa misnotað aðstöðu sína með
því að flytja 894 tonna aflamark
frá Dagrúnu til annarra skipa.
Kristján Jón Guðmundsson, fyrr-
um útgerðarstjóri Ósvarar, var
dæmdur í 4ra mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir skjalafals,
með því að hafa í þremur umsókn-
um til Fiskistofu um staðfestingu
á flutningi aflamarks frá Ósvör til
skipa utan byggðarlagsins leigt
rúmlega 1.300 tonna aflamark án
þess að leita áður innsagnar bæj-
arstjóra Bolungarvíkur og for-
manns verkalýðsfélags.
Dómurinn vísaði einnig frá
ákæru á hendur Ingimar Halldórs-
syni, fyrrum framkvæmdastjóra
Álftfirðings og Frosta hf., um að
hafa tekið að sér fyrir Lúbberts að
„geyma“ á Bessa ÍS 500 tonna afla-
mark sem Álftfirðingur fékk yfir-
fært frá Dagrúnu ÍS.
Ingimar var alfarið sýknaður af
þvi að hafa ranglega tilgreint
Hrungni GK í Grindavík sem við-
takanda aflamarksins frá skipun-
um Bessa ÍS og Haffara ÍS.
Reimar Charlesson, fram-
kvæmdastjóri RC. og Co, var
dæmdur í 60 daga skilorðsbundið
varðhald fyrir að hafa búið til
reikninga í nafni félagsins sem út-
flytjandi á fiski þrátt fyrir að fyrir-
tækið teldist ekki útflytjandi.
Dóminn kváðu upp Jónas Jó-
hannsson, Amgrímur ísberg og
Ingibjörg Benediktsdóttir. -Ótt
Margt má sér til gamans gera þegar fer að vora og heitt er í lofti eins og verið hefur á höfuðborgarsvæðinu undan-
farna daga. Hitt húsið stóð fyrir nokkurs konar strandveislu meðal ungra Reykvíkinga í Nauthólsvíkinni í gær með
blöðrum og öllu tilheyrandi og stóð ekki á unga fólkinu, það mætti kappklætt á staðinn og stóð að sjálfsögðu fyrir
fjörinu. Nokkrir vaskir Reykvíkingar notuðu tækifærið til hins ýtrasta og fóru í ýmsa útileiki, meðal annars var efnt
til reiptogs við mikinn fögnuð viðstaddra. DV-mynd GS
„Rafsuðu-
blindur"
velti bíl
við Litla-
Hraun
Karlmaður, sem var á leið til Eyr-
arbakka á móts við fangelsið Litla-
Hraun, velti BMW-bifreið sinni
seint á fimmtudagskvöldið og er
óhappið rakið til þess að hann var
haldinn rafsuðublindu. Maðurinn
var að vinna við rafsuðu á Stokks-
eyri og gætti þess ekki að nota við-
eigandi rafsuðuhjálm. Við svo búið
settist hann upp í bíl sinn og ók
áleiðis að Eyarbakka þrátt fyrir
blinduna sem hann fékk af hinni
skæru rafsuðulýsingu.
Þegar maðurinn var kominn á
móts við Litla-Hraun áttaði hann
sig ekki á að þjóðvegurinn sem
hann ók eftir endaði við Eyrar-
bakkaveg þrátt fyrir að hann sé vel
kunnugur staðháttum. Skipti því
engum togum að bíllinn fór út af og
valt. Manninn sakaði ekki en bíll-
inn er verulega skemmdur.
-Ótt
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Kaldi eða stinningskaldi
Á morgun verður austan- og suðaustanátt, víðast kaldi eða stinningskaldi. Rigning um suðaustanvert landið en annars þurrt. Hiti 3 til 10 stig.
Á mánudaginn verður suðaustangola eða kaldi víðast hvar á landinu. Smáskúrir eða dálítil súld sunnanlands og austan en annars þurrt.
Hiti 2 til 10 stig.
Veðrið í dag er á bls. 61
Mánudagur