Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1996, Page 2
16
sjBnskir dagar
" ■" 1 ■ — —■ ■ — ■
MIÐVHÍUDAGUR 17. APRÍL 1996 £> "V
Stokkhólmur hefur veriö kölluð
Feneyjar Norðurlanda. Borgin er
byggð á 14 eyjum þar sem vatnið
Málaren rennur út í Eystrasalt.
Vatnið í borginni er svo hreint að
hægt er að veiða lax í henni miðri
og baða sig.
Elsti hluti Stokkhólms er lítil
eyja, Gamli bærinn. Þar eru sumar
. götumar svo þröngar að hægt er að
snerta húsin beggja megin við þær
rétti maður út handleggina. Húsin
eru frá miðöldum og hæst gnæfir
konungshöllin með sínum 600 her-
bergjum og fjölmörgu söfnum.
í Gamla bænum eru skemmtiieg-
ar verslunargötur þar sem úir og
grúir af antikverslunum, tísku-
verslunum minjagripaverslunum,
listaverkasölum og veitingastöðum.
Mest er örtröðin á Vásterlánggatan.
Samhliða henni liggur Prástgatan
sem er ein fallegasta gatan í Gamla
bænum. Þar ríkir hins vegar kyrrð
og friður.
Veitingastaður
Bellmans og Taubes
Á Österlánggatan í Gamla bæn-
um er veitingastaðurinn Gyldene
Freden. Þangað kom stundum
skáldið Carl Michael Bellman. Síð-
an hafa ýmsir listamenn vanið
komur sínar á staðinn, þar á meðal
skáldið og söngvarinn Evert Taube.
Á Járntorget í Gamla bænum
stendur stytta af Evert Taube, mitt
á milli veitingarstaðarins Gyldene
Freden og fyrrum heimilis Taubes.
Aðrir skemmtilegir borgarhlutar
eru Södermalm, Östermalm, Kungs-
holmen og Djurgárden en á þeim
síðastnefnda er Skansen, sem er
stór dýragaröur og byggðasafn, og
tívolí. Þar eru einnig nokkur söfn,
þar á meðal Vasasafnið með skip-
inu Vasa sem sökk í jómfrúferð
sinni 1628. Flakinu var bjargað 1961
og hafði það þá legið á hafsbotni í
333 ár.
Með gufuskipi í
skerjagarðinn
Bátsferðir í kringum Djurgárden
Elsti borgarhluti Stokkhólms er Gamli bærinn.
Stokkhólmur:
Nóbelsmatur
í Ráðhús-
kjallaranum
Nóbelshátíðin í desember fer
fram í Ráðhúsi Stokkhólms.
Þar er setið undir borðum og
dansað að lokinni afhendingu
Nóbelsverðlaunanna. Sá sem
vill leika kóng eða drottningu
eða Nóbelsverðlaunahafa eina
kvöldstund getur pantað hvaða
Nóbelsmáltíð sem er, allt frá ár-
inu 1901, í Ráðhúskjallaranum.
Panta þarf með nokkurra daga
fyrirvara.
Rúmlega
4 þúsund
verslanir
Verslanirnar í Stokkhólmi
eru rúmlega 4 þúsund. Helstu
verslunargötumar eru í kring-
um Hamngatan, Drottninggat-
an, Sergels Torg og í Gamla
Stan. Nýjasta „kringlan" er
Sturegallerian þar sem eru 20
verslanir og nokkrir veitinga-
staöir. Vöruhúsið NK á
Hamngatan er einnig heim-
sóknar virði.
Frá einni af stöðvum neðanjarð-
arlestarinnar í Stokkhólmi.
Lengsta lista-
sýning í heimi
Neðanjarðarlestarkerfið _ í
Stokkhólmi er 110 kOómétra
langt og eru stöðvarnar alls 100.
Stöðvarnar eru í raun listasýn-
ing því listamenn hafa fengið
að spreyta sig við að skreyta
þær. í neðanjaröarlestakeifinu
er því að sjá lengstu listasýn-
ingu í heimi sem vakiö hefur
alþjóða athygli.
• s :fRSKA
Stokkhólmskortið:
Veitir veru-
legan afslátt
Með því aö kaupa svokallað
Stokkhólmskort, sem kostar 175
sænskar krónur og gildir í einn
dag fyrir 1 fullorðinn og 2 börn
undir 18 ára, er hægt að spara
talsvert. Með kortinu er ferðast
ókeypis í neðanjarðarbrautinni
og strætisvögnum. Frítt er í
ákveðnar skoðunarferðir með
strætisvögnum og bátum. Auk
þess veitir kortið ókeypis að-
gang að 70 söfnum. Kortið veit-
ir afslátt á mörgum veitinga-
stööum og gisti menn á hóteli í
Stokkhólmi veitir kortið 50
krónu afslátt af leikhúsmiða sé
hann keyptur á síðustu stundu.
Flóamarkaður
í Skárholmen
Á flóamarkaðnum í úthverf-
inu Skárholmen í suðurhluta
Stokkhólms er hægt að kaupa
allt á milli himins og jarðar.
Þar standa hundruð Stokk-
hólmsbúa ög selja muni sína.
Opið er alla daga vikunnar en
mest er um að vera um helgar.
Feneyjar Norðurianda
eru vinsælar og sömuleiðis ferðir undir brýr í skerjagarðinum fyrir utan Stokkhólm eru 24 eyjanna og Stokkhólms og er hægt að ferðast um
Stokkhólms. þúsund eyjar. Reglulegar ferðir eru milli margra í nýtískulegúm bátum og gufuskipum. Tilvalið er
að leigja sér lítil sumarhús á eyjunum vilji menn
dvelja þar. Þar er einnig að finna hótel, gistihús
og farfuglaheimili. Einnig er hægt að tjalda í
skerjagarðinum.
Vilji menn ráða ferð sinni um skerjagarðinn er
hægt að leigja sér kajak eða seglbát. Övenjuleg og
vinsæl skoðunarferð er ferð í loftbelg yfír borg-
ina. Stokkhólmur er eina höfuðborgin í heimin-
um þar sem slíkar ferðir eru leyfðar.
Gamaldags
jólamarkaðir
Á mörgum eyjanna er heilmargt um að vera
allt árið. Gamaldags jólamarkaðir í skerjagarðin-
um eru vinsælir og jólahlaðborðin þar svigna
undan kræsingum alveg eins og í borginni. Jóla-
markaðir í Gamla bænum og á Skansen á
Djurgárden eru sérlega heillandi. Á veturna nota
margir tækifærið og skauta á vötnum á þar til
gerðum skautum. Skautana er hægt að leigja al-
veg eins og svigskíði og gönguskíði.
I Stokkhólmi eru alls yfir 200 hótel, stór og
smá. Farfuglaheimilin í borginni flest með fjöl-
skylduherbergi og þar býr fólk á öllum aldri. Far-
fuglaheimilin eru bæði i miðborginni og úthverf-
unum. -IBS
Reglulegar feröir eru út í eyjarnar í skerjagarðinum.