Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1996, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1996
5
pv_________________________Fréttir
Heimsmarkaðsverð á olíu hætt að stiga:
Höfum ekki ákveð-
ið verðbreytingar
- segir Kristinn Björnsson, forstjóri Skeljungs
Olíu- og bensínverðhækkunum úti í heimi hefur linnt í bili. Gasolía hefur
lækkað lítillega en bensín ekki.
„Olíu- og bensínverðhækkunum
úti í heimi hefur linnt í bili. Gasol-
ía hefur lækkað lítiliega en bensín
ekki. Við fylgjumst með þessu og
höfum engar ákvarðanir tekið um
verðbreytingar," segir Kristinn
Björnsson, forstjóri olíufélagsins
Skeljungs, við DV.
Kristinn segir að ástæða bensín-
hækkananna sé fyrst og fremst lág
birgðastaða í Bandaríkjunum og
Kanada, sú lægsta frá því að mæl-
ingar hófust. „Þeir hafa verið að
kaupa geysilega mikið af bensíni frá
Evrópu þannig að það magn sem
ætti að vera til þar hefur hreinlega
verið sogið yfir til Ameríku," segir
Kristinn. Þá hafi bandarískar olíu-
hreinsistöðvar keypt mikið af gróf-
ari tegundum olíu og búið til úr
þeim bensín og hafi það leitt til þess
að slík olía, sem m.a. er flutt hingað
til nota á íslensk fiskiskip, hafi
hækkað verulega í verði.
Bensín hliðarafurð
Bandaríska dómsmálaráðuneytið
hefur skipað rannsóknarnefnd sem
á að kanna hvað hæft er í ásökun-
um um að olíukaupmenn leyni
bensínbirgðum í því skyni að
hækka bensínverð sem mest áður
en sumarfrí byrja í Bandaríkjunum.
Bensín sem hefur hækkað verulega
undanfarnar vikur í verði á heims-
markaði vegna mikilla hækkana í
Bandaríkjunum er farið að siga aft-
ur. Þetta þykir skjóta skökku við
það að miklar bensínbirgðir söfnuð-
ust upp í Evrópu einmitt vegna þess
að vetur hefur verið harður og mik-
ið framleitt af gasolíu til húsahitun-
ar en bensín er hliðarafurð sem
verður til þegar jarðolía er unnin.
Þess vegna búast nú margir við
verulegri verðlækkun á bensíni
vegna þessara miklu birgða. Það
sem hins vegar virðist trufla það að
markaðslögmálin nái að virka á
Evrópska bensínmarkaðnum nú er
að eftirspurn er mikil eftir bensíni í
Bandaríkjunum. Bensínverð í
Bandaríkjunum er nú mjög hátt og
svipað og var meðan á Persaflóa-
stríðinu stóð, eða 25-35 sent á
gallon, misjafnt eftir landsvæðum.
Að sögn Rögnvalds Gíslasonar,
efnaverkfræðings á Iðntæknistofn-
un, fer vinnslan á olíu þannig fram
í grófum dráttum að jarðolían er
eimuð og léttustu og rokgjörnustu
efnin eru fyrst skilin frá, þeirra á
meðal er sú efnablanda sem er uppi-
staðan í bensini. Þannig liggi í hlut-
arins eðli að þegar mikið hefur ver-
ið framleitt af gasolíu til húsahitun-
ar hafi orðið til mikið af bensíni.
Bjarni Bjarnason, fulltrúi for-
stjóra Olíufélagsins hf., segir marg-
ar skýringar á hækkunum á bensíni
á heimsmarkaði og ein sé sú að olíu-
verð hafi farið hækkandi að undan-
fornu. Þá sé mikil eftirspurn eftir
bensíni í Bandaríkjunum og hafi
það einnig aftur áhrif á heimsmark-
aðsverð olíu. Bjarni bendir hins
vegar á þátt ríkisins í bensínverði
hér á landi og nefnir sem dæmi að
ef bensínlítrinn kosti 70 krónur þá
fái ríkissjóður í vörugjaldi,
veggjaldi og virðisaukaskatti yfir 50
krónur í sinn hlut.
Hækki innkaupsverð hvers bens-
ínlítra um 1,20 krónur verður
hækkun til neytenda 3,00 krónur
■vegna þess að ofan á hið nýja inn-
kaupsverð leggst prósentuálagning
vörugjalds, veggjalds og 24,5% virð-
isaukaskatts ofan á allt saman. Rík-
ið fær einfaldlega 1,80 króna hagnað
af 1,20 króna erlendri bensinhækk-
un.
Mjög mikil hækkun varð á heims-
markaðsverði á jarðolíu og olíuaf-
urðum þegar Persaflóastríðið skall
á. Þá ákvað þáverandi fjármálaráð-
herra að lækka vörugjald af olíuvör-
um til þess að hækkunin á inn-
kaupsverði margfaldaðist ekki
vegna álaga rikisins og ruglaði
verðlag í landinu, vísitölur og þar
með forsendur kjarasamninga. Pró-
sentulækkun vörugjaldanna varð
ekki til þess að tekjur ríkisins af
álögum á olíuvörur lækkuðu, vegna
þess að lægri vörugjaldsprósenta
lagðist á hærra grunnverð. Árni
Sigfússon, formaður FÍB, hefur rit-
að fjármálaráðherra bréf og farið
fram á slíka prósentulækkun nú. Að
sögn Runóífs Ólafssonar, fram-
kvæmdastjóra FÍB, voru viðbrögð
ráðherra jákvæð við erindinu, að
því tilskildu að slík lækkun yrði
ekki til að rýra tekjur ríkissjóðs af
bensíngjöldum. -SÁ
Aðalfundur Taflfélags Reykjavíkur 1996
verður haldinn að Faxafeni 12 fimmtudaginn 9. maí kl. 20.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin
S D B EHF. JAFNASEL 6, 109 REYKJAVÍK,
SÍMI: 5874747. FAX: 5874748
ACIER SUMARHJ ÓLB ARÐ AR
(ECO TYRES) FRÁ BRETLANDI
FRAMLEIDDIR TIL AÐ UPPFYLLA
FYLLSTU ÖRY GGISKRÖFUR
SÝNISHORN ÚR VERÐSKRÁ.
STÆRÐ 155R13
STÆRÐ 165R13
STÆRÐ175/70R13
STÆRÐ 175/70R14
KR. 2.695.-STAÐGR.
KR 2.934.-STAÐGR.
KR 2.995.-STAÐGR.
KR 3.595.- STAÐGR.
OPIÐ ALLA VIRKA DAGA
FRÁKL. 08.00 TIL 19.00
LAUGARDAGA FRÁ 09.00 TIL 17.00
SÍMI5874747