Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1996, Page 6
6
FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1996
Mikill verðmunur er á íslensku grænmeti, tómötum, agúrkum og grænni papriku, en DV kannaði verðmuninn í fimm
stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu í gær. Mestur reyndist munurinn á hæsta og lægsta verði vera á paprikunni,
rúmlega 100 prósent. DV-mynd ÞÖK
Verðkönnun DV á íslenskum tómötum, agúrkum og grænni papriku:
Um 100 prósenta
munur á paprikunni
- tæplega 80 prósenta munur á tómötunum
Neytendur
Almannatryggingar:
Spurt og
svarað
Umsjónarmaður Neytenda-
síðunnar, Svanur Valgeirsson,
tekur við spurningum um al-
mannatryggingar í síma 550-5000
og 550-5814 og í bréfasíma 550-
5999 og síðan svara Svala Jóns-
dóttir og Ingibjörg Stefánsdóttir
hjá fræðslu- og upplýsingadeild
Tryggingastofnunar spurning-
um lesenda. Frá Félagi eldri
borgara komu nokkrar spurn-
ingar.
Húsaleigu-
bætur
1. Kona nokkur fékk húsa-
leigustyrk frá Félagsmála-
stofnun á liðnu ári þar sem
hún gat ekki greitt háa húsa-
leigu af þeim bótum sem hún
hafði. í ágúst fékk hún til-
kynningu um að hún ætti
ógreidda skatta og kom þá í
ljós að það var vegna húsa-
leigustyrksins. Að auki var
bætt við vöxtum af skuld sem
hún hafði ekki hugmynd um
og tekjutrygging hennar var
skert, einnig vegna áður-
nefnds styrks. Nú er spurt
hvernig standi á þessu.
Svar
Hér verður að gera greinar-
mun á framfærslustyrkjum
annars vegar og húsaleigubót-
um hins vegar. Hvort tveggja er
greitt frá sveitarfélögum og
hvort tveggja er skattskylt eins
og aðrar tekjur. Skattskyldar
tekjur, aðrar en bætur al-
mannatrygginga og húsaleigu-
bætur, hafa áhrif á tekjutrygg-
inguna. Ef um er að ræða styrk
frá Félagsmálastofnun, til þess
að greiða húsaleigú, en ekki
húsaleigubætur, þá skerða þess-
ar greiðslur almannatrygging-
una. Húsaleigubætur skerða
ekki bætur frá Tryggingastofh-
un. Ef viðkomandi getur ekki
fengið húsaleigubætur er hugs-
anlegt að hann geti fengið upp-
bót á lífeyri vegna húsaleigu-
kostnaðar. Um hann er sótt hjá
lífeyrisdeild Tryggingastofnun-
ar.
Eru í skuld
2. Maður nokkur hefur
fengið greiddan fullan eUilíf-
eyri frá því að hann varð 67
ára fyrir þremur árum. Kon-
an hans, sem varð 67 ára á
siðasta ári, fékk sömu bætur
en nú nýverið fengu þau
hjónin bréf frá Trygginga-
stofnun þess efnis að á síð-
asta ári hafi þau átt að fá
lægri bætur vegna þess að
þau hafi bæði fengið eUilíf-
eyri. Þau höfðu ekki hug-
mynd um þetta og nú er fariö
að draga vissa upphæð af
þessari skuld af bótum þeirra
mánaðarlega. Þau munar
verulega um þetta og líta svo
á að þetta séu mistök Trygg-
ingastofnunar og spyrja
hvort þau eigi að gjalda fyrir
það.
Svar
Annað hjóna fær aðeins
lægri grunnlifeyri en einstak-
lingur sem býr einn, eða 13.373
kr. á móti 12.036 kr. þegar bæði
fá lífeyri. Þama munar 1.337 kr.
á mánuði sem þið hafið fengið
ofgreiddar. Ofgreiðslur geta átt
sér stað vegna villna í tölvu-
vinnslu, mannlegra mistaka,
misskilnings eða þess að veittar
eru rangar upplýsingar. Of-
greiðslur eru leiðréttar um leið
og hið rétta kemur í ljós og yf-
irleitt fær fólk riflegan tíma til
að borga fjárhæöirnar til baka
svo að sem minnst óþægindi
hljótist af. -sv
íslenskt grænmeti streymir nú
inn á markaðinn og stórmarkaðirn-
ir og aðrir seljendur auglýsa vöruna
í gríð og erg. DV ákvað að kanna
verðlag á íslenskum tómötum,
agúrkum og grænni papriku og í
ljós kom að geysilegur verðmunur
er á milli stórmarkaðanna. Mestur
reyndist hann á grænni papriku.
Fimm staðir
Verð var tekið á fimm stöðum í
gær, fimmtudag: í Kaupgarði í
Mjódd, 10:11, Nóatúni, Hagkaupi og
Bóhusi. Þar sem Fjarðarkaup er
með sérstakt tilboð sem gildir bara
á fimmtudögum var ekki hægt að
Um mánaðamótin mars/apríl
könnuðu Neytendasamtökin, með að-
stoð nokkurra verkalýðsfélaga, verð-
lag i 57 matvöruverslunum víðs veg-
ar um landið. Eftir að hafa fellt brott
39 óalgengar eða „vafasamar" vöru-
tegundir standa 137 vörutegundir eft-
ir. Heildarniðurstöður könnunarinn-
taka verðið þar með í könnunina.
Ekki reyndist unnt að fá uppgefið
það verð sem gilti í fyrradag eða
það verð sem gilda á fyrir daginn í
dag. Rétt er að taka fram að verðið
á þessum vörum breytist hjá sum-
um í hverri viku, hjá öðrum dag-
lega. Ljóst er að verðið hefur lækk-
að frá því að varan fór fyrst að fást
i búðunum og telja má víst að hún
eigi eftir að lækka enn frekar. ís-
lensk græn paprika fékkst ekki í
Nóatúni.
Mikill verðmunur
Eins og áður segir reyndist verð-
munurinn mjög mikill á milli versl-
ar eru í fullu samræmi við könnun
sem gerð var í nóv. '95, þ.e. að ákveð-
. in tengsl eru á milli verðlags og fjar-
lægðar verslunar frá höfuðborgar-
svæðinu. Verslanir á Akureyri eru
sem fyrr undantekning frá þessu.
fBónus í Hafnarfirði kom best út í
könnuninni og KEA-Nettó var í öðru
ananna og mestur var munurinn á
hæsta og lægsta verði á grænni
papriku. Hún kostaði það sama í
Haugkaupi og Kaupgarði í Mjódd,
798 kr., en i Bónusi kostaði hun 397
kr. Munurinn er um 101 prósent.
Munur hæsta og lægsta verðs á
tómötum var tæp 80 prósent og 43
prósent á agúrkum. Bónus var alltaf
með lægsta verðið. Ekkert mat er
lagt á gæði vörunnar, bragð eða út-
lit, heldur einungis horft á verðið.
Starfsmenn hverrar verslunar
staðfestu með undirskrift að það
verð sem upp er gefið væri græn-
metisverðið á fimmtudaginn.
sæti. I KEA voru mun fleiri vöruteg-
undir til. Næst á eftir komu KASKÓ
í Reykjanesbæ og Skagfirðingabúð.
Með hæsta verð voru verslanir á
Vestfjörðum, Félagskaup á Flateyri,
Heimaval á Suðureyri, Versl. Gunn-
ars Sig. á Þingeyri og Kaupf. Dýrfirð-
inga á Þingeyri. -sv
DV
Almannatryggingar:
Spurt og
svarað
3. Maðurinn minn var tón-
skáld og á liðnu ári og fékk ég
þrisvar sinnum greiddar smá-
upphæðir frá STEF vegna
þess að verk hans hafa verið
flutt. Það kom mér samt vel
því ég hef eingöngu trygginga-
bætur mér til framfæris. Ég
var algerlega grandalaus um
að það skerti tekjutryggingu
mína en það kom síðan á dag-
inn. Auk þess þurfti ég að
greiða skatt af þessari upp-
hæð eftir á. Af hverju er þetta
svona?
Svar
Greiðslur fyrir höfundarrétt
eru skattskyldar eins og aðrar
tekjur, t.d. laun. Þú mátt fá
217.320 kr. greiddar á ári áður
en tekjutryggingin þín fer að
skerðast, hafir þú engar aðrar
tekjur. Tekjutryggingin fellur
ekki niður fyrr en þú hefur feng-
ið 873.458 kr. greiddar á árinu,
um 74.319 kr. að meðaltali á
mánuði.
Misháar
bætur?
4. Ég er gift kona og við
hjónin fáum hvort um sig
36.641 kr. frá Tryggingastofn-
un á mánuði en vinkona min
sem er einhleyp fær 57.445 kr.
Hvernig getur staðið á þessu?
Mér var bent á að sækja um
uppbót en þar sem ég nota
sem betur fer ekki lyf var því
synjað. Þá fáum við ekki held-
ur niðurfellingu á sjónvarps-
og útvarpsgjaldi. Við hjónin
getum alls ekki komist af með
þessar bætur.
Svar
Ef hjón fá bæði lífeyri frá
Tryggingastofnun fær hvort
þeirra 90% af fullum grunnlíf-
eyri, 12.036 kr. á mánuði í stað
13.373. Þið fáiö hvort um sig
jafnháa tekjutryggingu og vin-
kona þín, 24.605 kr. á mánuði.
Vinkona þín fær einnig heimil-
isuppbót og sérstaka heimilis-
uppbót, samtals 14.118 kr„ sem
þeir sem búa einir, og hafa litl-
ar eða engar tekjur aörar en frá
Tryggingastofnun, geta átt rétt
á. Einstaklingur með fullan elli-
lifeyri, tekjutryggingu og
óskertar heimilisuppbætur fær
nú 52.096 kr. á mánuði. Vinkona
þin fær uppbót vegna lyfja eða
annars kostnaðar. Þessar 57.445
kr. passa ef miðað er við þær
reglur sem giltu um greiðslu
uppbótar þar til í febrúar sl. Nú
fær vinkona þín líklega 4.680 kr.
í uppbót eða samtals 66.776 kr.
Aöeins þeir lífeyrisþegar sem
hafa uppbót á lífeyri fá undan-
þágu frá greiðslu afnotagjalda
RÚV samkvæmt útvarpslögum.
Ekki kemur fram hversu mikið
þið hjónin fáið úr lífeyrissjóð-
um en greinilegt er af þeim
greiðslum sem vinkona þín fær
að hún hefur engar aðrar tekjur
en bætur almannatrygginga.
Þeir sem ekki geta framfleytt
sér af tekjum frá almannatrygg-
ingum og lifeyrissjóðum geta
leitað til félagsmálayfirvalda
síns sveitarfélags eftir flárhags-
aðstoð.
Hvaö viltu
vita?
Ef þið hafið spurningar um
eitthvað sem varðar komugjöld
á sjúkrahús, greiðslu ferða-
kostnaðar vegna ferða til lækna
innanlands, ellilífeyri, öryrkja-
lifeyri, slysabætur eða annað
sem varðar greiðslur Trygginga-
stofnun sendið þær þá til Neyt-
endasíðunnar. Tryggingastofn-
un mun síðan svara þeim hér á
síðunni við fyrsta tækifæri. -sv
-sv
Verðkönittm á islensku grænmeli
- tómatar, agúrkur og græn paprika -
Verökönnun Neytendasamtakanna og verkalýðsfélaganna:
Mikill verðmunur