Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1996, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1996, Qupperneq 15
FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1996 15 Sjúkraflutningar og ferðakostnaður í grein Sigurðar Gunnarssonar læknis í DV þann 23. aprU sl. eru nokkur atriði sem nauðsynlega þarf að leiðrétta. Hið fyrsta er þar sem hann seg- ir að sjúklingur geti „haft fjár- hagslegan hag af því að láta flytja sig með sjúkraflutningi þótt það beri ekki brýna nauðsyn tU“. Um þátttöku almannatrygginga í greiðslu sjúkraUutnings fer eftir 36. gr. laga um almannatrygging- ar, staUið i. Þar segir að sjúkra- tryggingar skuli greiða: „Óhjá- kvæmilegan Uutningskostnað sjúkratryggðs í sjúkrahús [....] enda sé Uutningsþörf svo bráð og heUsu hins sjúkratryggða svo varið að hann verður ekki Uuttur eftir venjulegum farþega- og Uutningsleiðum ....“ Ljóst má vera að löggjafinn sel- ur hinum sjúkratryggðu ekki sjálf- dæmi um mat á Uutningsþörf eða heUsufari. Það getur því ekki ver- ið sjúklingur, sem af hagkvæmnis- ástæðum lætur Uytja sig þannig, heldur er það þriðji aðili og í lang- Uestum tilvikum læknir sem ákvarðar slíkt. Um þetta gilda ekki aðrar reglur en viðkomandi lagagrein. Reglur um ferðakostnað Reglur um ferðakostnað sjúk- linga eru settar samkvæmt staUið j. í tUvitnaðri grein almannatrygg- ingalaga, en þar segir að sjúkra- tryggingar skuli greiða: „Óhjá- kvæmilegan ferðakostnað með takmörkunum og eftir reglum sem tryggingaráð setur og ráðherra staðfestir fyrir sjúkratryggða sem þarfnast ítrekaðrar meðferðar hjá lækni eða í sjúkrahúsi með eða án innlagningar." Síðasta málsgrein 36. greinar heimilar ráðherra að ákveða víðtækari hjálp en greinin mælir fyrir um. Tryggingaráð hef- ur sett reglur samkvæmt þessari grein og hefur þeim verið breytt Kjallarinn Vigfús Magnússon aðstoðartryggingayfirlæknir nokkrum sinnum, alltaf að ég hygg til rýmkunar með skírskotun tU heimUdar ráðherra. Síðasta breyting var staðfest af ráðherra 28. mars síðastliðinn og tók gUdi 1. aprU. Hinar breyttu reglur voru sendar til aUra heUsugæslustöðva fyrstu vikuna í aprU. Ákvarðanir um greiðsluþátttöku sjúkratrygg- inga eru eitt af verkefnum trygg- ingayfirlæknis. Kallar á lagabreytingu Af grein Sigurðar læknis má ráða að hann hafi ekki lesið hina nýju útgáfu reglnanna, en í þeim eru þær breytingar helstar að sjúkratryggingar skulu taka þátt í kostnaði vegna bráðaferða, þ.e. þegar Uutningsþörf er bráð, en heUsu sjúklings þó þannig varið að hann verði Uuttur eftir venju- legum farþega- og Uutningsleiðum. Þá er nú heimiluð greiðsluþátt- taka vegna heimferðar sjúklings, sem sendur hefur verið með sjúkraUugi (bU), en slíkt var ekki heimUað áður. Enn fremur vegna tUtekinna afbrigða á meðgöngu og loks heimferðir um helgar fyrir sjúklinga, sem dveljast fjarri heimahögum lengur en 4 vikur vegna læknismeðferðar. Hvað varðar ábendingu læknis- ins, er snýr að reglubundnu eUir- liti með sjúklingum, sem getur t.d. falist í læknisskoðun og töku blóð- sýna, er það laukrétt að slíkt eftir- lit getur hæglega farið að miklu leyti fram á heimaslóð i samvinnu heUsugæslulæknis og viðkomandi sjúkrahúss og/eða sérfræðings. í því sambandi má benda lækninum á það nýmæli í reglum trygginga- ráðs að nú skal læknir sá sem sendir sjúkling til rannsóknar eða meðferðar rita skýrslu vegna ferðakostnaðar. Áður var aUur gangur þar á og oftar en ekki skýrsla rituð af þeim lækni, sem sjúklingur (iðulega að eigin frumkvæði) hafði leitað tU um mislangan veg. Með þessari breytingu er stefnt að því að lækn- ir á heimaslóð, sem í slíkum tU- vikum er í senn trúnaðarmaður sjúkratrygginga og sjúklings, úr- skurði um nauðsyn ferða. Trygg- ingayfirlækni er á hinn bóginn ætlað að taka af tvímæli um hvort tilfellið heyri undir reglurnar. BreytingartUlaga læknisins um fyrirkomulag þessara mála kaUar á lagabreytingu, sem er utan verk- sviðs undirritaðs, en vissulega væri æskilegt að einfalda þetta sem mest má. Vigfús Magnússon í langflestum tilvikum er það læknir sem ákvarðar og metur flutningsþörf, segir m.a. í greininni. „Tryggingaráð hefur sett reglur sam- kvæmt þessari grein og hefur þeim verið breytt nokkrum sinnum, alltaf að ég hygg til rýmkunar með skírskotun til heimild- ar ráðherra.“ I leit að óvini Undanfarna mánuði hefur HaU- dór Ásgrímsson utanríkisráðherra verið að semja við Bandaríkja- menn um áframhaldandi erlenda hersetu á fslandi. óg einn morgun snemma að liðinni páskahelgi skaut hér upp aðstoðarráðherra úr Bandaríkjastjórn til að undirrita samninginn. Sá fullyrti skv. frétt- um RÚV 9. aprU sl. að núna fynd- ist engin hernaðarógnun á Norð- ur-Atlantshafí. Það vissu reyndar aUir nema HaUdór Ásgrímsson. Enn á herliðið samt að heita „varnarlið" og samningurinn „varnarsamningur“. Það verður æ örðugra fyrir íslenska valdamenn að fóðra þessar nafngiftir og finna þeim rök. Undarlegur málatilbúnaður Þessi málatilbúnaður hlýtur að teljast mjög undarlegur, að ekki sé meira sagt, með tiUiti tU þess að tyUiástæða hersetunnar er löngu horfin með andláti Rússagrýlunn- ar og leit að nýjum óvini hefur enn engan árangur borið. Um tíma hefur litið svo út að Kjallarinn Sigurður Flosason bifreiðarstjóri Norðmenn gætu orðið sá óvinur sem okkur vantar (vegna deilu um fiskveiðar) en ekki hafa enn heyrst þau rök að við þyrftum að hafa hér erlendan her af þeim sök- um. Það er ljóst, og hefur raunar aUtaf verið, að hemámssinnar hafa ekki einu sinni sjáifír trúað eigin rökum fyrir erlendri hersetu á fslandi, enda saga síðustu fimm- tíu ára ólygnust. Ekki stórmannleg afstaða Ástæða undirlægjuháttarins gagnvart erlendu herveldi hefur aUtaf verið efnahagsleg og runnin frá þeim sem sáu gróðaveg í afsali landsréttinda. Og nú þegar Bandaríkjamenn eru í fjárhagsþrengingum vegna kostnaðar við vígbúnaðarbrjálæð- ið og eru þess vegna víða að leggja niður herstöðvar koma íslensk stjórnvöld á Qórum fótum og biðja þá að leggja ekki niður herstöðina á Miðnesheiði, enda þótt margt bendi til að þeir vilji það af fjár- hagsástæðum. Stórmannleg getur þessi afstaða varia talist, enda mun sagan geyma muninn á viðhorfum Bjama frá Vogi og félaga, sem sömdu um fuUveldið 1918 og lýstu yfir ævarandi hlutleysi íslands, og viðhorfum HaUdórs Ásgrímssonar og félaga sem virðast hafa það áhugamál helst að semja um ævar- andi erlenda hersetu á íslandi. Sigurður Flosason „Ástæða undirlægjuháttarins gagnvart er- lendu herveldi hefur alltaf verið efnahags- leg og runnin frá þeim sem sáu gróðaveg í afsali landsréttinda.“ Með og á móti A að leggja Kvikmynda- sjóð niður í núverandi mynd? Guðný Halldórs- dóttlr kvikmynda- gerðarmaður. Dýr yfirbygg- ing yfir ekki neitt „Kvikmynda- sjóður íslands er stofnun sem er farin að snúast um sig sjálfa, dýr yflr- bygging yfir ekki neitt. Það er ekki við stofnunina að sakast, enda setur hún ekki fjárlög. Það gerir Alþingi. Þessi skoðun mín er viðbragð við ummælum menntamálaráð- herra sem voru á þá leið að Kvikmyndasjóðurinn yrði aldrei öflugri. Fínt - en þá verðum við að fara betur með peningana sem ríkið lætur af hendi og búa til myndir fyrir þá. Það hefur enginn innan veggja Kvik- myndasjóðs nokkuð um það að segja hvernig eða hvaða myndir eru gerðar á íslandi. Því ráða út- lendingar sem leggja alvöru fjár- magn í myndirnar. Þó er þessi listgrein líklegast sú eina sem er ábatasöm fyrir íslenska ríkið og kvikmyndagerð stendur að ein- hverju leyti undir öðrum list- greinum, sama hvað hver segir. Þess vegna finnst mér að kvik- myndagerðarmaður ætti að setja homsteininn í nýtt tónlistarhús því það er enginn betur að því kominn." Eilíf barátta um fjármagn „Kvikmynda- sjóöur hefur sannað gildi sitt. Það sem háir honum mest er að hann þyrfti að hafa meira fé milli hand- anna til þess að gegna hlut- verki sínu eins vel og hann getur gert. Þetta er samfelld bar- átta um fjármagn handa sjóðn- um. Það hefur verið mikil gróska í íslenskri kvikmynda- gerð á undanfornum árum og Kvikmyndasjóður hefur verið mikill örlagavaldur i þeirri grósku. En það verður að taka tillit til þess að Kvikmyndasjóð- ur hefur mörg önnur verkefni á sinni könnu en að úthluta styrkj- um til kvikmyndagerðar og ef þeim verkefnum væri létt af sjóðnum þá væri hann að sjálf- sögðu betur í stakk búinn til að að styrkja kvikmyndagerð í landinu. Sjóðurinn hefur haft þá stefnu á undanfomum árum að styrkir til kvikmynda fari ekki yfir fjórðung af heildarkostnaði. Þetta er nauðsynlegt til þess að lenda ekki í þeirri gryfju að kvikmyndirnar séu búnar ein- vörðungu fyrir smekk úthlutun- amefndar þannig aö þeir sem setja einnig peninga í myndirnar hafi trú á þvi að þær höfði einnig til áhorfenda." -HK Vilhjálmur Egilsson, formaöur stjórnar Kvikmyndasjóðs. Kjallarahöfundar Æskilegt er að kjallaragreinar berist á tölvudiski eöa á netinu. Hætt er við að birting annarra kjallaragreina tefjist. Netfang ritstjórnar er: dvritst@centrum.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.