Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1996, Side 16
16
FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1996
FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1996
25
íþróttir
íþróttir
Knattspyrna:
Birkir stóð sig vel
en Brann heppið
Birkir Kristinsson fékk góða
dóma í norskum blöðum fyrir
frammistöðu sína með Brann
gegn Viking í úrvalsdeildinni í
fyrradag en liðin skildu jöfn, 1-1.
Hann var sagður einn af þremur
bestu hjá Brann, bæði í Verdens
Gang og Dagbladet.
Ágúst Gylfason kom inn á
sem varamaður 8 mínútum fyrir
leikslok og nældi sér í gult spjald
á þeim tíma.
Brann var mjög heppið en iið-
ið lék illa og jafnaði 3 mínútum
fyrir leikslok. Um 20 þúsund
áhorfendur troðfylltu vöilinn í
Bergen og urðu fyrir miklum
vonbrigðum með liðið.
Gestur Gylfason lék ekki með
Strömsgodset þegar liðið gerði
1-1 jafntefli við Bodo/Glimt á
útivelli.
Lilleström er með 10 stig, Ros-
enborg 9 og Bodo 8. Brann er í 6.
sæti með 5 stig og Strömsgodset
í 7. sæti, einnig með 5 stig.
-VS
Saunders til West Ham
Allt útlit er fyrir að Dean
Saunders gangi til liðs við West
Ham fyrir næsta keppnistímabil.
Saunders, sem gekk til liðs við
tyrkneska félagið Galatasaray
frá Aston Villa, er metinn á 120
milljónir króna.
Redknapp framlengir
Meira úr herbúðum West
Ham. Harry Redknapp, stjóri
West Ham, hefur framlengt
samning sinn við félagið til árs-
ins 2001. Þá er Redknapp að und-
irbúa tilboð í Króatann Robert
Jarni hjá Sampdoria. Jarni er 28
ára vamarmaður sem leikið hef-
ur með landsliði Króatíu.
Rösler til Bayern?
Þjóðverjinn Uwe Rösler, sem
leikur með Maþchester City, er
einn þeirra leikmanna sem
Bayern Múnchen hefur mikinn
áhuga á að fá i sínar raðir og hef-
ur Franz Beckenbauer, stjóri
Bæjara, staðfest það.
Margir vilja Vialli
Glasgow Rangers og Middles-
brough berjast nú um að fá ítal-
ann Gianluca Vialli frá Juventus
til liðs sig sig. Fregnir herma að
Vialli sé hrifinn af 600 milljóna
króna tilboði frá Rangers en
Bryan Robson, stjóri Middles-
brough, hefur ekki sagt sitt síð-
asta og flaug hann til ítalíu í gær
til viðræðna við Vialli.
Kluivert í fangelsi
Patrick Kluivert, hinn 19 ára
gamli leikmaður Ajax og hol-
lenska landsliðsins, var í fyrra-
dag úrskurðaður í 6 mánaða
fangelsi. Kluivert er gert að sök
að hafa orðið manni að bana áf
gáleysi en glæfralegur akstur
hans í september á síðasta ári
varð til þess að hann ók bifreið
sinni á aðra með þeim afleiðing-
um að ökumaður lést. Þá var
Kluivert gert að eyða 240 kiukku-
stundum í vinnu í þágu samfé-
lagsins.
Dahlin í bann
Aganefnd þýska knattspyrnu-
sambandsins úrskurðaði í gær
sænska landsliðsmanninn Mart-
in Dahlin, leikmann Borussia
Mönchengladbach, í 8 leikja
keppnisbann. Ástæöa bannsins
er sú að Dahlin gaf leikmanni
Kaiserslautern olnbogaskot í
andlitið í leik liðanna í síðasta
mánuði. Þar með hefur Dahlin
leikið sinn síðasta leik með
Gladbach. Þrjár umferðir eru eft-
ir í þýsku úrvalsdeildinni og
hann hefur ákveðið að yfirgefa
herbúðir félagsins.
Frjálsar íþróttir:
Guörún valin
best í lowa
Guðrún Arnardóttir frjálsíþrótta-
kona stóð sig vel á móti í Des Moins
í Iowa um síðustu helgi. Hún sigr-
aði í 400 metra grindahlaupi á tím-
anum 57,9 sekúndum og í 100 metra
grindahlaupi á tímanum 13,42 sek-
úndur. ílok mótsins var hún svo
kosin iþróttakona mótsins. Hún
hlaut 19 atkvæði af 20 mögulegum
og þar með skaut hún ekki ófrægari
frjálsíþróttakonu en Gwen Tor-
rence, aftur fyrir sig. Þess má geta
að Michael Johnson, heimsmeistari
í 200 og 400 metra hlaupi, var kos-
inn besti íþróttamaður mótsins.
-GH
Sænska knattspyrnan:
Rúnar kjörinn
maður leiksins
- skoraöi þriöja markið í 3-0 sigri
DVi Sviþjóö:
Rúnar Kristinsson var útnefndur
maður leiksins eftir sigur Örgryte á
Djurgárden, 3-0, í úrvalsdeildinni í
gærkvöld. Rúnar átti drjúgan þátt í
tveimur fyrstu mörkunum og skor-
aði siðan það þriðja úr vítaspyrnu
fimm mínútum fyrir leikslok.
Rúnar lék nú inni á miðjunni en
ekki á vinstri kantinum eins og í
fyrstu leikjunum. Hann nýtti tæki-
færið vel og var allt í öllu í miðju-
spili Örgryte.
Úrslitin í úrvalsdeildinni í gær-
kvöld:
Oddevold-Gautaborg...............0-2
AIK-Malmö........................0-1
Norrköping-Trelleborg ...........3-1
Halmstad-Öster...................2-2
Örgryte-Djurgárden ..............3-0
Helsingborg er efst eftir 3 umferð-
ir með 9 stig. Gautaborg er með 7,
Örgryte 7, Malmö 7, Oddevold 6,
Halmstad 5, Norrköping 4, AIK 4,
Umeá 3, Öster 1, Örebro 1, Djur-
gárden 1, Degerfors 1 og Trelleborg
er neðst án stiga. -EH/VS
U-18 ára landsliðið í knattspyrnu:
Eiður með í Dublin
Guðni Kjartansson, þjálfari U-18 Ólafur Þór Gunnarsson .........ÍR
ára landsliðs karla í knattspyrnu, Tómas Ingason...... ..........Val
hefur valið 16 leikmenn sem leika ívar Ingimarsson .............Val
gegn írum í Dublin þann 7. maí en Rúnar Ágústsson..............Fram
leikurinn er í 16-liða úrslitum Valur F. Gíslason ...........Fram
Evrópumótsins. Þorbjörn A. Sveinsson........Fram
Síðari leikurinn fer fram hér á Siguröur E. Haraldsson......Fram
landi 14. maí en sigurliðið kemst í Árni Ingi Pjetursson...........KR
úrslitakeppni átta liða um Edilon Hreinsson ..............KR
Evrópumeistaratitilinn. Ásgeir Ásgeirsson ..........Fylki
Þetta er sama liðið og vann Heiðar Siguijónsson.......Þrótti
mótið á ítaliu svo glæsilega fyrir Amar Viðarsson.................FH
rúmum mánuði en nú bætist Jóhann B. Guðmundsson .. Keflavík
atvinnumaðurinn Eiður Smári Arngrímur Amarson........Völsungi
Guðjohnsen í hópinn. Njörður Steinarsson......Selfossi
Hópurinn er þannig skipaður: Eiður S. Guðjohnsen...........PSV
Fær Ferguson gylliboö?
Stjórnendur Manchester United
ætla að gera allt sem í þeirra valdi
stendur til að halda í framkvæmda-
stjórann Alex Ferguson og vilja
gera nýjan þriggja ára samning við
hann.
„Við erum mjög ánægðir með
störf Fergusons og enn á ný hefur
hann sannað hversu góður stjórn-
andi hann er. Við erum sérstaklega
ánægðir með hvernig ungu strák-
arnir í liðinu hafa blómstrað undir
hans stjórn,” sagði Martin Edwards,
stjórnarformaður Manchester Unit-
ed.
Blöð í Englandi fullyrða að Ferg-
uson fái gylliboð frá United en þau
tala um að hann fái 50 milljónir
króna fyrir samninginn á ári og
verði þar með hæst launaði knatt-
spyrnustjórinn í ensku knattspyrn-
unni. -GH
Draumalið DV
- sjá bls. 27
PSV í úrslit
PSV, lið Eiðs Smára Guðjohn-
sens, er komið í úrslit hollensku
bikarkeppninnar eftir 3-1 sigur
á Roda í gærkvöldi. Roda var
lengi yfir en Cocu, Nilis og Eyk-
elkamp svöruðu fyrir PSV á síð-
ustu 25 mínútunum. Ronaldao
lék á ný með PSV eftir langvinn
meiðsli en meiddist aftur og fór
af velli. PSV mætir Spörtu í úr-
slitaleiknum þann 16. maí.
Fiorentina vann
Fiorentina sigraði Atalanta,
1-0, í fyrri úrslitaleik liðanna í
ítölsku bikarkeppninni í knatt-
spyrnu í gærkvöldi. Gabriel
Batistuta skoraði sigurmarkið á
51. mínútu. Liðin mætast aftur á
heimavelli Atalanta í Bergamo
18. maí og leggja eflaust allt í söl-
umar því Atalanta hefur ekki
unnið titil í 33 ár og Fiorentina
ekki í 21 ár.
:
Gunnar samdi
við Elverum
- til þriggja ára. Óskar Þorsteinsson fer líklega með honum
Gunnar Gunnarsson þjálfar Elverum í Noregi næstu þrjú árin en hyggst leggja
handboltaskóna á hilluna sjálfur.
naBBBBnMwnaBBMHBMttráaaifrBwmiiwwinnnnnaBHWBBBaiwnawwmnwnannni
Gunnar Gunnarsson var í gærkvöldi ráðinn
þjálfari norska handknattleiksliðsins Elverum
til þriggja ára. Gunnar þjálfaði Hauka og lék
með þeim á liðnum vetri.
„Ég fór til Noregs um síðustu helgi og leist
mjög vel á mig hjá félaginu og ákvað að slá til.
Ég get sagt samningnum upp eftir eitt ár og ég
fékk eins árs leyfi frá vinnu minni hér heima
en annars er hann til þriggja ára. Það verður
góð tilbreyting að þjálfa í fullu starfi í stað
þess að vera í tvöfaldri vinnu eins og hér
heima,“ sagði Gunnar við DV í gærkvöldi.
Gunnar lék með Haukunum í vetur en á
ekki von á því að taka fram skóna í Noregi.
„Ætli maður sé ekki búinn með þann þátt
núna og ég reikna alls ekki með því að leika
með Elverum," sagði Gunnar.
Elverum komst í 1. deildina fyrir tveimur
árum, undir stjórn Þóris Hergeirssonar sem
hafði verið með liðið í þrjú ár og náð frábær-
um árangri. ívetur endaði það í 7. sæti.
„Stefnan hefur verið sett á að styrkja liðið og
komast í toppbaráttuna næsta vetur,“ sagði
Gunnar.
Óskar líka til Elverum?
Allt bendir til þess aö Óskar Þorsteinsson
fylgi Gunnari til Élverum en Óskar hefur ver-
ið aðstoöarmaður hans undanfarin þrjú ár,
fýrst tvö ár hjá Víkingi og siðan hjá Haukum.
Hann mun þá þjálfa kvennalið félagsins, sem
leikur í 2. deild, og unglingalið karla en það
spilar í 3. deild meistaraflokks.
„Það er mjög líklegt að ég fari fyrst Gunnar
er búinn að ganga frá þótt það sé ekki endan-
lega ákveðið enn þá,“ sagði Óskar við DV í
gærkvöld.
Elverum er sannkallað íslendingafélag. Þór-
ir þjálfaði þar í þrjú ár eins og áður hefur
komið fram, Grimur bróðir hans lék með El-
verum, einnig Hermundur Sigmundsson og
Matthías Matthíasson, nýráðinn þjálfari ÍR,
hefur spilað með Elverum undanfarin þrjú ár.
-VS
' ' ' - ,
Úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt:
Meistararnir slógu
LA Lakers út
- Houston mætir Seattle í 2. umferð - Indiana náði í oddaleik
Hoddle
sagði já
- þjálfar enska landsliðið
næstu fíögur árin
Glenn Hoddle verður yngsti landsliðsþjálfari
Englands frá upphafi.
Glenn Hoddle verður næsti
þjálfari enska landsliðsins í knatt-
spyrnu. Hann tekur við starfi
Terry Venables eftir Evrópu-
keppnina í Englandi í sumar og
stýrir liðinu næstu fjögur árin.
Fyrsta verkefni Hoddles með liðið
er 1. september en þá leika Eng-
lendingar gegn Moldövum í und-
ankeppni HM.
Hoddle verður þar með yngsti
þjálfari enska landsliðsins frá upp-
hafi en hann er 38 ára. Hoddle átti
farsælan feril sem knattspymu-
maður. Lengst af lék hann með
Tottenham og síðar fór hann til
Monaco í Frakklandi. Fyrir 5
ámm gerðist hann spilandi fram-
kvæmdastjóri hjá Swindon og það-
an fór hann til Chelsea þar sem
hann hefur stjórnað liðinu undan-
farin tvö ár. Hoddle var fastamað-
ur í enska landsliðinu í mörg ár og
lék 53 landsleiki
„Ég hef ákveðnar hugmyndir
um hvernig ég vil að knattspyma
sé spiluð og ég mun ekkert breyta
því. Ég hef litla ánægju af að sjá
boltann á lofti frá öðmm enda vall-
arins til hins,” sagði Hoddle þegar
Ijóst var að hann tæki við starfinu.
Hoddle fær dágóð laun fyrir
starfið eða 25 milljónir króna fyrir
hvert ár.
United á grænni grein
- eftir jafntefli Newcastle og Nottingham Forest
LA Lakers og Sacramento féllu úr
leik í úrslitakeppni NBA í riótt.
Lakers varð að láta í minni pokann
fyrir meisturum Houston og Sacra-
mento tapaði fyrir Seattle. Indiana
tókst hins vegar að jafna metin í 2-2
í einvígi sínu við Atlanta og odda-
leikur liðanna fer fram í Indiana á
sunnudagskvöldiö. Úrslitin í nótt
urðu þessi:
Atlanta-Indiana...........75-83
Smith 19, Blaylock 17 - Smits 17,
Mckey 14.
Houston-LA Lakers .......102-94
Olajuwon 25, Horry 17 - Ceballos
25, Campbell 15, Van Exel 15.
Sacramento-Seattle ......87-101
Simmons 22, Edney 14 - Payton
29, Kemp 23.
Hakeem Olajuwon átti einna
stærstan þátt í sigri Houston á
Lakers. Hann skoraði 25 stig í leikn-
um, tók 11 fráköst átti 7 stoðsend-
ingar, varði 4 skot og skoraði mikil-
vægar körfúr á lokakaflanum þegar
Houston sigldi fram úr.
Berum mikla virðingu fyrir
Lakers
„Lykilinn að sigrunum i tveimur
síðustu leikjunum var frábær varn-
arleikur og þá sérstaklega í fjórða
leikhlutanum. Robert Horry var
hreint frábær, bæði í sókn og vörn,
og skoraði mikilvægar 3ja stiga
körfur. Við berum mikla virðingu
fyrir Lakers sem hefur mjög góðu
liði á að skipa,” sagði Olajuwon eft-
ir leikinn.
Svíar meistarar
í borðtennis
Svíar sigruðu Frakka, 4-1, í
úrslitaleiknum í Evrópukeppni
karla í borðtennis sem fram fór í
Bratislava í gærkvöldi. Frakkar,
sem voru handhafar titilsins,
unnu fyrsta leikinn en síðan
tóku Svíar völdin með Jan Ove
Waldner í fararbroddi og sigr-
uðu i hinum fjórum leikjunum.
Magic náði sér ekki á strik
Það munaði miklu fyrir Lakers
að Magic Johnson náði sér aldrei á
strik og skoraði aðeins 8 stig. Hann
eyddi síðustu 6 mínútunum á
bekknum og fylgdist með félögum
sínum falla úr keppninni.
„Þetta var einfaldlega ekki dagur
Magic og þvi fannst mér rétt að láta
hann sitja á bekknum undir lokin
og treysta á ungu mennina í liðinu.
Þetta var hörkueinvígi en við náð-
um samt aldrei að sýna okkar réttu
hliðar,” sagði Del Harris, þjálfari
Lakers.
„Ég held að honum hafi fundist
liðið vera að leika vel og það væri,
gott án mín. Þeir voru að gera góða
hluti og ég vildi ekki trufla það,”
sagði Magic Johnson eftir leikinn.
„Fyrst af öllu langar mig að segja
að ég ber mikla virðingu fyrir liði
Lakers. Við Del Harris höfum verið
vinir lengi og lið hans er mjög gott,”
sagði Rudy Tomjanovic, þjálfari
Houston.
Houston mætir Seattle í 2. umferð
úrslitakeppninnar og fer fyrsti leik-
urin fram í Seattle annaö kvöld.
Oddaleikurinn í Indiana
Indiana tryggði sér oddaleik með
því að leggja Atlanta að velli. Leik-
mönnum Atlanta voru mjög mis-
lagðar hendur í sókninni og hittni
þeirra í leiknum var afar slök, til að
mynda aðeins 22% í fjórða leikhlut-
anum.
„Nú er möguleikinn meiri okkar
megin því oddaleikurinn er á okkar
heimavelli. Við sýndum góðan
karakter og börðumst sem einn
maður og það skilaði okkur sigri.
Við náðum hraðaupphlaupum, tók-
um fleiri fráköst og töpuðu boltarn-
ir lentu okkar megin," sagði Rik
Smits, Hollendingurinn 1 liði Indi-
ana, eftir leikinn.
„Það er alveg á hreinu að við
verðum að gera miklu betur í næsta
leik til að eiga möguleika á að fara
áfram. Við vorum á köflum eins og
áhorfendur og baráttan var lítil. Við
höfum unnið í Indiana og menn eru
sér meövitandi um það,” sagði Wil-
kens, þjálfari Atlanta.
Eftir að hafa fallið úr leik í 1. um-
ferð úrslitakeppninnar síðustu tvö
árin tókst nú Seattle að yfirstíga þá
hindrun með því að vinna öruggan
sigur á Sacramento. Gary Payton og
Shawn Kemp áttu báðir frábæran
leik í liði Seattle og frammistaða
þeirra gerði það öðru fremur að
verkum að sigurinn var öruggur.
„Við komum einbeittir til leiks og
tókum leikinn mjög alvarlega.
Shawn var hreint frábær og sýndi
að hann er okkur mjög mikilvæg-
ur,” sagði Þjóðverjinn Detlef
Schrempf í liði Seattle eftir leikinn.
Það var mikil blóðtaka fyrir
Sacramento að þeirra besti maður,
Mitch Richmond, gat ekki leikið síð-
ari hálfleikinn vegna meiðsla á
ökkla sem hann hlaut eftir 5 mín-
útna leik I öðrum leikhluta. -GH
Meistaratitillinn blasir við Manch-
ester United eftir að Newcastle gerði
1-1 jafntefli við Nottingham Forest á
útivelli i úrvalsdeildinni í gærkvöld.
United dugir nú jafntefli i Middles-
brough á sunnudaginn, svo framarlega
sem Newcastle vinnur ekki Tottenham
með 6-7 marka mun.
Bæði mörkin í gærkvöld voru stór-
glæsileg. Peter Beardsley kom New-
castle yfir á 32. minútu með því að
bijótast upp á eigin spýtur í gegnum
vörn Forest. Ian Woan jafnaði með
stórkostlegu skoti í markvinkilinn af
30 metra færi á 75. mínútu. Á síðustu
mínútu leiksins komst Phillipe Albert
inn fyrir vöm Forest en Mark Crossley
varði frá honum.
Tottenham vann Leeds, 3-1, á úti-
velli og náði Arsenal að stigum í 5.-6.
sæti en liðin berjast um UEFA-sæti
ásamt Everton og Blackburn. David
Wetherall kom Leeds yfir en Chris
Armstrong jafnaði og Darren Anderton
skoraði síðan tvívegis fyrir Tottenham.
-VS
íslandsmótið
í pílukasti
íslandsmeistaramótið i pfiu-
kasti verður haldið að Garða-
torgi 1, Garðakránni, 9.-13. maí.
Þátttaka tilkynnist Benedikt H.
Benediktssyni í síma 896 4635 og
einnig er hægt að skrá sig á
keppnisstað í síðasta lagi 30 mín-
útum fyrir keppni. Þátttökugjald
er 1.500 krónur og sama gjald er
fyrir hvert par i tvímenningi.
Heimsfrægur
pílukastari
Jamie Harvey, sem er í dag 5.
stigahæsti pílukastari í heimi í
karlaflokki, er staddur hér á
landi þessa dagana. Áhugamönn-
um um pílukast gefst kostur á að
hitta hann og ræða við hann um
íþróttina og sjá hann leika listir
sínar. í kvöld verður kappinn á
Ránni í Keflavík klukkan 1930, á
Grand Rokk á Klapparstíg í
Reykjavík á laugardaginn klukk-
an 16, á Glaumbar klukkan 19.30
á laugardag, í Garðakránni
klukkan 14 á sunnudag og í Haf-
urbiminum í Grindavík klukk-
an 19.30.
Deildabikarinn:
ÍA mætir ÍBV
á morgun
Sex lið eru nú eftir í deildabik-
arkeppni karla í knattspyrnu og
hefur þeim verið skipt í tvo
riðla. í A-riðli eru: ÍA, ÍBV og
Fram og í B-riðli Grindavík,
Fylkir og Breiðablik. Leikin
verður einföld umferð í riðlun-
um og efstu liðin leika til úrslita
15. eða 16. maí.
Tveir leikir eru í keppninni á
morgun. Á Akranesi leika
heimamenn við ÍBV og verður
spilaö á aðalleikvanginum þar.
Grindvikingar fá Fylkismenn í
heimsókn. Báðir leikirnir hefiast
klukkan 14.
Á þriðjudag er önnur umferð.
ÍBV og Fram leika í Eyjum og
Fylkir og Breiðablik leika á
Kópavogsvelli. Báðir leikirnir
hefjast klukkan 19.30. Síðasta
umferðin er svo fostudaginn 10.
maí en þá leika Fram og ÍA og
Breiðablik fær Grindavík í
heimsókn.
Fjórir Framarar
ekki með í Eyjum
Fjórir leikmenn úr Fram
verða fjarri góðu gamni þegar
liðið mætir ÍBV í deildabikarn-
um á þriðjudagskvöldið. Þeir
Þorbjöm Atli Sveinsson, Valur
Fannar Gíslason, Rúnar Ágústs-
son og Sigurður E. Haraldsson
leika allir með unglingalandslið-
inu gegn írum sama dag. Þor-
björn Atli hefði reyndar ekki
leikið hvort eð er þar sem hann
tekur út leikbann.
-VS
Tuttugu mörk
Blikastúlkna
Breiðablik hefur skoraö tutt-
ugu mörk í tveimur síðustu
leikjum sinum í deildabikar-
keppni kvenna. Blikastúlkumar
unnu KR, 8-2, um síðustu helgi
og Aftureldingu, 12-0, á þriðju-
daginn.
ÍA vann Hauka, 4-2, Valur
vann Stjömuna, 5-1, og Stjaman
vann Hauka, 3-1.
Tveir síðustu leikir riðla-
keppninnar eru á morgun en þá
mætast Valur-ÍA og KR-ÍBA.
Á sunnudag verður leikið um
5.-8. sæti. Stjaman og Aftureld-
ing leika um 5. sætið og ÍBA og
Haukar um 7. sætið.
Undanúrslitin verða á mánu-
dagskvöld. Þar leika Breiðablik
og KR gegn ÍA og Val en ekki er
ljóst fyrr en á morgun hvaða lið
mætast.
-VS
Sigurður og Oli Þór
með Keflvíkingum?
Sigurður Björgvinsson og Óli Þór
Magnússon, knattspymumennirnir þraut-
reyndu, hafa æft af krafti að undanfomu
með 1. deildar liði Keflavíkur. Líkur eru á
að þeir spili með því í sumar. Óli Þór
hafði ákveðið að hætta og Sigurður lék
með Reyni í 4. deild í fyrra. Ljóst er að
þeir myndu styrkja hið unga lið Keflvík-
inga talsvert. -ÆMK/VS
Muresan með
mestar framfarir
Gheorghe Muresan, Rúmen-
inn risavaxni hjá Washington,
var í gær kjörinn sá leikmaður í
NBA-deildinni í körfubolta sem
sýndi mestar framfarir í vetur.
Muresan, sem var með bestu
skotnýtinguna í deildinni, hlaut
50 atkvæði en George McCloud
frá Dallas kom næstur með 23.
Souness rekinn
frá Galatasaray
Graeme Souness var í gær rek-
inn úr starfi sínu sem þjálfari tyrk-
neska knattspymufélagsins Gal-
atasaray en hann hafði verið þar í
eitt ár. Fatih Terim, landsliðsþjájf-
ari Tyrkja, tekur líklega viðaf hon-
um í dag. Galatasaray varð bik-
armeistari um síðustu helgi en
missti af meistaratitlinum.
GOLF - GOLF - GOLF - GOLF - GOLF - GOLF
OPNA
ENDURVINNSLUMÓTIÐ
í golfi verður haldið á Strandavelli laugardaginn 4. maí.
Leikinn verður 18 hótu höggleikur, með og án forgjafar.
MnrÍJT FRÁ KL. 8.
Skráning rástíma hjá Golfklúbbi Hellu í síma 487-8208