Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1996, Page 25
FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1996
33
Sviðsljós
Svo bregðast krosstré sem önnur tré vestur í Hollywood:
Bo Derek harðneitar að
koma kviknakin fram
Öðruvísi mér áður brá. Banda-
ríska leikkonan Bo Derek neitar að
koma nakin fram í kvikmynd. Hún
vílaði slíkt þó ekki fyrir sér hér á
árum áður, eins og fjölmargar bíó-
myndir hennar eru fagurt vitni um.
En ekki er nóg með að hún neiti
að koma nakin fram heldur hefur
hún nú rofið samning sem hún
gerði þar um. Ekki eru allir jafnkát-
ir með þá ákvörðun hennar og hef-
ur henni því verið stefnt fyrir til-
tækið.
Bo og framleiðslufyrirtæki henn-
ar, Crackajack, sömdu um og fengu
sextán milljónir króna í fyrirfram-
greiðslu í júni á síðasta ári fyrir
klukkustundarlanga kvikmynd sem
Demi Moore
vill fá að
dansa við
dauðann
Demi
Moore hefur
mikinn
áhuga á að
leika aðal-
hlutverkið í
kvikmynd-
inni Bad
Death. Um
er að ræða
hlutverk
spæjara fyr-
ir tryggingafélag sem grunar að
ekki sé allt með felldu í meint-
um dauða manns nokkurs. Mað-
urinn er sagður hafa sprungið í
tætlur í bát sínum en Demi tel-
ur að um svindl sé að ræða,
kauði sé hreint ekki dauður og
ætli að næla sér í eigin dánar-
bætur. Við frekari rannsókn
kemst Demi að því að maðurinn
hefur leikið sama leik margoft
áður. Skemmst er frá því að
segja að konan finnur manninn
og verður svo ástfangin af hon-
um.
Upphaflega stóð til að Julia
Roberts og Tim Robbins færu
með aðalhlutverkin en það gekk
ekki eftir einhverra hluta vegna.
átti að sýna á kapalstöð þar sem
áhorfendur ráða hvaða myndir þeir
glápa á og borga sérstaklega fyrir
þær og ekki aðrar. Til stóð að gefa
hana einnig út á myndbandi.
í myndinni átti Bo Derek að
spranga um á Evuklæðunum einum
saman í heilar tólf mínútur. Reikn-
ingsglöggir lesendur sjá að það er
ansi hátt hlutfall af heildarlengd. Eig-
inmaður leikkonunnar fógru, hinn
aldraði John Derek, féllst á að skrifa
handrit myndarinnar, leikstýra
henni og sjá um að safna saman
nauðsynlegu fé til framleiðslunnar.
Bo ákvað hins vegar að láta samn-
inginn um kapalmyndina sigla sinn
sjó þegar henni bauðst miklu ábata-
Bo Derek var ekkert að fela kropp-
inn fyrr á árum.
samari samningur við framleiðendur
Bijan ilmvatnsins um að taka þátt í
mikilli auglýsingaherferð. Fregnir
herma að stúlkan fái margar milljón-
ir dollara fyrir snúð sinn.
Sjónvarpsfyrirtækið, sem Bo ætl-
aði að vinna fyrir, hefur nú stefnt
leikkonunni og fyrirtæki hennar og
krefst skaðabóta.
Bo Derek er að sjálfsögðu frægust
fyrir leik sinn í kvikmyndinni 10
þar sem hún fór með hlutverk ungr-
ar stúlku sem heillaði miðaldra
karl, Dudley Moore, upp úr skón-
um. Bo lék einnig í öðrum frægum
en ekki jafn góðum, myndum, svo
sem um Tarsan og Rudolf Val-
entino.
Leikkonan Sharon Stone stillir sér upp fyrir framan myndavélarnar með doktor Mathilde Krim, öðrum stofnanda Am-
Far, stofnunar sem annast rannsóknir á alnæmi. Þær stöllurnar voru viðstaddar sérstaka hátíðarsýningu á síðustu
mynd Sharon Stone, Last Dance, í New York fyrr í vikunni til styrktar AmFar. Kvikmyndin verður frumsýnd um
gjörvöll Bandaríkin í dag.
Burt gæti
misst húsið
vegna vanskila
Burt Reynolds má muna fífil
sinn fegri, maðurinn sem einu
sinni óð í peningum en er nú í
blankara lagi Hann á m.a.s. á
hættu að missa húsið sitt í Flór-
ída þar sem hann hefur ekki
staðið í skilum með mánaðarleg-
ar afborganir upp á um hálfa
milljón króna. Karlinn hefur
ekki greitt siðan í ágúst á síð-
asta ári og eru lánardrottnar
orðnir órólegir.
Whoopi dauð-
langar á sviðið
Whoopi Goldberg langar, eins
og svo marga starfsbræður
hennar og systur í leikarastétt,
afskaplega mikið að fá að
spreyta sig eina ferðina enn á
leiksviði. Það var vegna frammi-
stöðu hennar á sviði sem hún
var fengin til að leika í Color
Purple Spielbergs á sinum tíma.
Nú eru likur á að hún fá óskina
uppfyllta og leiki með Frank
Langella í Two for the Seesaw.