Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1996, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1996, Blaðsíða 28
36 FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1996 Stjórnar ASÍ afsláttarklúbbum í framtíðinni? Afsláttar- klúbbar „Ég sé hlutverk í framtíðinni fyrir verkalýðsfélög sem afslátt- arklúbba." Hannes Hólmsteinn Gissurarson, í Alþýðublaðinu. Glæpónar í Reykjavík „Ég gæti jafnvel gengið svo langt að segja að allir eigendur skemmtistaða í Reykjavík væru glæpónar." Dan Morgan, eigandi Vegas, í Helg- arpóstinum. Ummæli Náðarbréf til Irving „Er virkilega svo komið á þeim fákeppnismarkaði sem hér er með bensín að íslenskir neyt- endur þurfi að senda náðarbréf til Irvingfeðga.“ Jóhannes Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Neytendasamta- kanna, í DV. 101 tegund af bjór „Við veröum með 101 tegund af bjór.“ Tómas Tómasson veitingamaður, í Tímanum. Subbulegt skítastarf „Pólitík getur verið subbulegt skítastarf og ég veit ekki hvort ég sé tilbúin að hella mér út í það.“ Þóra Arnórsdóttir, í Helgarpóstin- um. Dómarar eru á öllum aldri en aðeins er vitað um einn sem hefur orðið 100 ára í starfi. Lögfræðingar sem endast vel í starfi Þótt ótrúlegt sé þá var elsti dómarinn sem komist hefur á spjöld sögunnar rúmlega 105 ára gamall þegar hann lét af störf- um. Þetta var Albert R. Alexand- er (1859-1966). Hann var allan sinn starfsferil dómari í undir- rétti og skiptarétti í Clinton- sýslu í Missouri i Bandaríkjun- Blessuð veröldin um. Sá lögfræðingur sem hefur enst best í sínu starfi var Willi- am George, bróðir breska forsæt- isráðherrans David Lloyd Geor- ge. Hann lauk lagaprófi 1880 og stundaði lögfræðistörf fram til ársins 1966 er hann lét af störf- um 101 árs gamall. Traustur verjandi Sjálfsagt vildu margir lögfræð- ingar hafa sömu afrek á bakinu í starfi og Sir Lionel Luckhoo á lögfræðiskrifstofu Luckhoo og Luckhoo í Georgetown í Guyana. Honum tókst af fá 245 skjólstæð- inga sýknaða í röð. Sá síðasti af þessum 245 var maður sem ákæröur var fyrir morð 12. ágúst 1982. Elsta lögfræðiskrifstofa sem enn er starfandi er Thomp- son, Snell & Pasmore í Ton- bridge í Kent. Hún getur rakið upphaf sitt til ársins 1570 þegar séra Nicholas Hooper gerðist nótaríus i hjáverkum. Skýjað með köflum og smáskúrir Vestur af írlandi er 1000 mb. lægð en minnkandi hæðarhryggur fyrir austan land. Grunnt lægðardrag er yfir landinu norðanverðu. Á landinu er breytileg átt, víðast fremur hæg. Skýjað með köflum og Veðrið í dag smáskúrir hér og þar. Norðaustan gola eða kaldi í kvöld og nótt með éljum eða snjómuggu norðaustan- og austanlands. Hiti á bilinu 2 til 7 stig í dag, hlýjast suðvestan til, en kólnar niður fyrir frostmark á Norðaustur- og Austurlandi í nótt. Á höfuðborgarsvæðinu er suð- austan eða breytileg átt, lengst af hægviðri eða gola. Skýjað með köfl- um og stöku skúrir. Hiti 5 til 8 stig í dag en 2 til 4 i nótt. Sólarlag í Reykjavík: 22.00 Sólarupprás á morgun: 4.49 Síðdegisflóð í Reykjavík: 18.31 Árdegisflóð á morgxrn: 6.45 Veöriö kl. 6 i morgun: Akureyri alskýjaó 5 Akurnes skýjað 2 Bergsstaðir rigning og súld 3 Bolungarvik þoka í grennd 4 Egilsstaðir slydduél 2 Keflavíkurflugv. skýjað 5 Kirkjubkl. alskýjað 4 Raufarhöfn alskýjað 2 Reykjavík úrkoma í grennd 6 Stórhöfði skýjað 5 Helsinki rigning 7 Kaupmannah. þoka 7 Ósló rigning 6 Stokkhólmur rigning 7 Þórshöfn skýjað 2 Amsterdam þokumóóa 9 Barcelona skýjað 9 Chicago léttskýjaó 8 Frankfurt skýjað 9 Glasgow léttskýjað 1 Hamborg þoka á síö.klst. 7 London alskýjað 6 Los Angeles þokumóða 17 Lúxemborg þokumóða 6 París skýjað 7 Róm þrumuv. á síö.klst. 15 Mallorca skýjað 11 New York léttskýjað 14 Nice léttskýjað 11 Nuuk alskýjaö 2 Orlando skýjað 21 Vín léttskýjaö 15 Washington léttskýjað 16 Winnipeg heióskírt -1 Jóhann Örn Ólafsson danskennari: Lærði kántrídansinn á Keflavíkurflugvelli „Þetta hófst þannig að fólk sem ég þekkti, fólk sem hafði farið í frí til Flórída og fleiri staða, hafði dottið inn á skemmtistaði þar sem verið var að dansa kántrídansinn og kenna hann og voru öll dans- gólf sneisafull af fólki. Það var síð- an verið að spyrja mig hvaða dans þetta væri eiginlega. Ég hafði eng- in svör og fór að líta í kringum mig svo ég gæti alla vega svarað fólkinu. Ég frétti af félagi á Kefla- víkurflugvelli sem heitir Top of the World Two Step Club. Það var velkomið að fylgjast með og fór ég nokkrar ferðir upp á völl og lærði nokkra dansa, setti síöan saman dans sjálfur, sem var syrpa úr Maður dagsins nokkrum dönsum. Ég og félagi minn, Sigurður Ágúst, fórum síð- an að sýna þennan dans á böllum og skemmtunum," segir Jóhann Örn Ólafsson danskennari, sem hefur verið meó námskeið í kán- trídönsum í Danssmiðju Her- manns Ragnars, sem hann rekur ásamt Hermanni Ragnari. Jóhann segir að í framhaldi af því hafi hann farið að sanka að sér Jóhann Örn Ólafsson. dönsum utan frá og búa sjálfur til dansa og siðan haldið fyrsta nám- skeiðið í fyrra. „Ég byrjaði með stutt námskeið í fyrrasumar, sem voru tvö kvöld í viku og þeim lauk með dansleik. Þetta var eiginlega ekkert auglýst en spurðist út og fékk ég margar fyrirspurnir og þannig þróaðist það í að farið var að auglýsa námskeið á sama hátt og gert er með samkvæmis- dansana. Eftir áramót var ég að staðaldri með hátt í hundrað manns á námskeiðum. Þá hefur mikið verið um að hópar séu að koma í eitt skipti og fá tilsögn og eða ég er pantaður til að kenna dansinn fyrir árshátiðir og einka- samkvæmi svo eitthvað sé nefnt.“ Jóhann Öm, sem er búinn að vera lengi í dansinum, kennir einnig samkvæmisdansa. Kántríd- ansinn sem byrjaði sem aukabú- skapur er að verða stór þáttur í kennsiu hjá honum: „Nú í vor eru tuttugu ár frá því ég hóf að læra dans. Ég hef keppt í dansi allt frá því fyrsta keppnin var haldin 1986, fyrst sem áhugamaður en hef síð- ustu árin keppt í flokki atvinnu- dansara." Eiginkona Jóhanns Arnar er Guðrún Björnsdóttir og eiga þau einn son, Davíð. Þegar Jóhann Örn var spurður um áhugamál sagöist hann vera nýbúinn að kaupa sér raðhús og áhuginn beindist að því að dunda sér í hús- inu: „Þá get ég nefnt að í vetur endurnýjaðist áhugi minn á ensku knattspyrnunni, en hann hafði leg- ið í dvala og um daginn komst ég síðan á Anfield Road og fylgdist með leik uppáhaldsfélagsins, Liverpool, þaö var stórkostleg reynsla." -HK Myndgátan Lausn á gátu nr. 1503: Landeyða DV Páskahret í Tjarnarbíói annað kvöld verður síðasta sýning á íslenska leikritinu Páskahreti eftir Árna Hjartarson sem leikfélagið Hug- leikur sýnir. Leikritið er í senn gamanleikrit og sakamálaleikrit þar sem glæpasögu í Agötu Christie stíl er plantað niður í ís- lenskt umhverfi. í leiðinni er skotið á ýmsa þætti í íslensku þjóðlífi. Leikhús Leikritið gerist í skíðaferð milli Þórsmerkur og Land- mannalauga í dymbilviku. Páskahret brestur á og ferðahóp- urinn nær við illan leik að sælu- húsinu í Hrafntinnuskeri. í gleð- skap um kvöldið er glæpurinn framinn. f hópnum er sýslu- mannsfulltrúi frá Hvolsvelli sem fær nú þá ósk sína uppfyllta að glíma við dularfulla morðgátu. Leikstjóri er Hávar Sigurjóns- son. Tónlistarkrossgátan Tónlistarkrossgáta nr. 110 Lausnir sendist til: Ríkisútvarpið Rás 2 Efstaleiti 1, Reykjavík Merkt: Tónlistarkrossgátan. Bridge í síðasta mánuði var spiluð land- skeppni fjögurra þjóða í flokki yngri spilara. Þar spiluðu fjórar af sterk- ustu þjóðum Evrópu, ítalir, Danir, Frakkar og Pólverjar. ítalir fóru með sigur af hólmi en Danir urðu i öðru sæti. f leik Dana og Pólverja kom þetta spil fyrir. í opnum sal gengu sagnir þannig, suður gjafari og aUir á hættu: * ÁG9642 643 ♦ K109862 4 K983 Suður Vestur Norður Austur 14 2* pass pass 24 pass 3-f pass 3G p/h Það var ekki gæfulega sagt á þessi spil hjá Pólverjunum og vest- ur spilaði út hjartasjöunni í upphafi og Danirnir tóku 7 fyrstu slagina. Nú var að sjá hvort Danirnir í NS gætu gert betur úr spilum sínum. Sagnir á hinu borðinu gengu þannig: Suður Vestur Norður Austur lf 24 pass pass pass! Það verður að kallast djörf ákvörðun hjá suðri að passa á þessa sterku hendi en hún heppnaðist fullkomlega. Vestur fékk ekki nema 5 slagi og 3 niður gáfu 300 stig. Með 300 stig til viðbótar á hinu borðinu græddu Danimir 12 impa. ísak Örn Sigurðsson * 1092 ♦ AG74 4 -- 4 G85 V D53 4- 10642 * 853 N V A S 4 -- * ÁKD7 ♦ — 4 ÁDG7

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.