Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1996, Side 32
Aíla laugaráagaj
Vertu viShátnfnj!
uifiningU *
@@(23)
KIN
Vinningstölur
2.5/96
@@@
KIN
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 3. MAÍ1996
Dollaraseðill í flöskuskeyti við Hornafjarðarós:
Gullbrúðhjón á Flórída
vilja íslensk hjón í heimsókn
DV, Höfn:
„Við vorum á gangi skammt
frá Hornafjarðarósnum þegar ég
sá dollaraseðil í flösku sem lá í
sandinum. Þegar við opnuðum
flöskuna var bréfmiði þar líka,“
sagði Guttormur Rafnkelsson í
Ámanesi í Hornafirði en hann
var þar á gangi ásamt eiginkonu
sinni, Svanhvíti Kristjánsdótt-
ur, fyrir skömmu.
Á bréfmiðanum stóð að flösk-
unni hefði verið kastað frá skipi
í Mexíkóflóa - milli Mexíkó og
Kúbu - í nóvember 1994. Finn-
andi var beðinn að hafa sam-
band með því að hringja í síma-
númer sem gefið var upp.
Svanhvít fékk vinkonu sína
til að hringja og tilkynna fund-
inn. Um kvöldið hringdu svo
hjón sem að þessu höfðu staðið.
„Þeim fannst það mjög spenn-
andi að flaskan skyldi finnast
hjá fólki með víkingablóð i
æðum. Það var víst toppurinn
en þau voru að halda upp á gull-
brúðkaup sitt, 50 ára hjúskap-
arafmælið um borð í skemmti-
ferðaskipi. Hann er norskur, 76
ára að aldri, en frúin 72 ára af
þýskum og írskum ættum. Þau
hafa bæði unnið í Appolo-geim-
stöðinni á Flórída og búa þar
skammt frá. Þau ætla að senda
okkur bréf og vilja endilega fá
okkur í heimsókn til sín. Við
ætlum að senda þeim myndir
héðan og kannski verður land-
kynning af þessu öllu saman,“
sagði Svanhvít.
Flórída-hjónin hringdu síðan
aftur. Þá voru þau komin með
kort af íslandi og vildu vita hvar
Hornafjörður væri og hve langt
væri þangað frá Reykjavík.
Þeim fannst þetta greinilega allt
saman mjög áhugavert og aö
flaskan skyldi fara alla þessa
leið á aðeins 17 mánuðum sem
gefur líka vel til kynna hve
Golfstraumurinn er sterkur.
-JI
DV-mynd Júlía
Guttormur og Svanhvít með flöskuna og dollarann.
Helgarblað DV:
Viðtal við
Guðmund J.
í helgarblaði DV á morgun má
finna margvislegt lesefni. Þar er
viðtal við verkalýðshetjuna Guð-
mund J. Guðmundsson en hann hef-
ur átt við heilsuleysi að stríða, lá á
gjörgæsludeild og var hætt kominn
um tíma.
í blaðinu er einnig viðtal við ís-
lenska söngvarann Hrein Líndal
sem starfar að mannúðarmálum í
einni elstu riddarareglu í heimi og
grein um bók þýskrar ferðakonu
* sem kom hingað til lands fyrir 150
árum. -GHS
fŒHH!
í gærkvöld var generalprufa í Reiðhöllinni fyrir sýningu norðlenskra og sunnlenskra hestamanna sem haldin verð-
ur um helgina. Alls verða þrjá sýningar og hefst sú fyrsta í kvöld. Hestamaðurinn frækni, Sigurbjörn Bárðarson, beit-
ir hér einum gæðinga sinna fyrir kerru en margir fagrir fákar munu sjást á sýningunni.
DV-mynd GS
Sophia Hansen og Sigurður Pétur
Harðarson komu til landsins frá Ist-
anbúl í gær. Þau munu nú undirbúa
Sophiu fyrir réttarhöld ytra þann 13.
júní en þá eiga dætur hennar að
mæta fyrir dómara. Hinn 11. maí
mun Ólafur Egilsson sendiherra
fara til Ankara til að leggja fram mót-
mæli og í Ijósi árangurs þeirrar ferð-
ar munu íslensk stjórnvöld ákveða
framhaldsaðgerðir til stuðnings
Sophiu.
DV-mynd ÆMK
íslendingur
fórst í Taílandi
Friðrik Gislason, 31 árs Hafnfirð-
ingur, lét líflð í slysi í Taúandi á
laugardaginn. Hann mun hafa fallið
úr járnbrautarlest en ekki er vitað
nákvæmlega um tildrög slyssins.
Friðrik var ókvæntur og barnlaus.
pETTA ER EIGINLE^A'
HALFGERT DOLLARAGRIN!
Veðrið á morgun:
Léttskýjað
suðvestan-
lands
Á morgun verður norðaustan-
gola eða kaldi og slydduél um
landið norðanvert, skúrir suð-
austan til en léttskýjað suðvest-
anlands.
Hiti verður á bílinu 0 til 9 stig,
hlýjast sunnanlands en kaldast
við ströndina norðan til.
Veðrið í dag er á bls. 44
Utgerðarmenn
Tökum á móti
trollvír
i^HRINGRÁSHF.
ENDURVINNSLA
brother.
Litla
merkivélin
loksins
með Þ og Ð
Nýbýlavegi 28, sími 554 4443