Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1996, Qupperneq 10
BOMRG
JARÐVEGSÞJÖPPUR
Ýmsar stærðir, bensín eða dísil.
Gæði á góðu verði.
’ Skútuvogi 12A, s. 581 2530
tíús og garðar
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1996 IjV
Blómaval við Sigtún er löngu
’ landsþekkt og finnur ræktunará-
Trjáplöntur, runnar
og sumarblóm
Opið til kl. 21.00
GRÓÐRARSTÖÐIN SKULD
Lynghvamrrii 4, Hafnarfirði, sími 565-1242
GÆÐAMOLD
í GARÐINN
.r
Grjóthreinsuð
mold, blönduð
áburði, skeljakalki
og sandi. Þúsækir
eða viðsendum.
Afgreiðsla á gömlu
sorphaugunum í
Gufunesi.
hugafólk ávallt eitthvað freistandi
þar. í vetur færði Blómaval út kví-
arnar og í samvinnu við Höld hf. á
Akureyri var opnuð ný Blómavals-
verslun á Akureyri hinn 23. mars
síðastliðinn.
Sama verð
Hin nýja verslun á Akureyri er
að Hafnarstræti 26 og blasir við öll-
um sem eru á leið út á flugvöll eða
austur á land. Þar er boðið upp á
sama vöruúrval og í Reykjavík og
er verðið það sama á báðum stöð-
um. Stefnt er að því að Blómaval á
Akureyri sé sem líkast Blómavali í
Reykjavík og gilda öll tilboð jafnt á
báðum stöðum.
Blómavalsverslanimar bjóða upp
á mikið úrval af inniblómum, af-
skornum blómum og skreytingum,
pottum, verkfærum, sumarblómum,
trjám og runnum, gjafavörum og
hollustuvörum. Að auki býður
Blómaval á Akureyri viðskiptavin-
um sínum veitingar í vistlegum
veitingaturni, og er þar skrefi á
undan Reykjavíkurversluninni.
Blómaval á Akureyri er opið alla
daga kl. 10-21 og er. framkvæmda-
stjóri þar Stefán J.K. Jeppesen.
Blómaval á Akureyri var opnaö 23. mars, Akureyringar veittu hinni nýju verslun góðar móttökur og fjölmenntu strax
fyrsta daginn.
GÆÐAMOLD
MOLDARBLANDAN - GÆÐAMOLD HF.
Pöntunarsími 567-4988
Sólstofur Svalahýsi
eftirþínum óskum, úr viðhaldsfríu efni
Smíðum einnig:
• Rennihurðir
• Renniglugga
• Fellihurðir
• Glugga
• Útihurðir
• Skjólveggi o.fi.
Ekkert viðhald - íslensk framleiðsla
BM Vallá:
Alltaf eitthvað nýtt
Sériega glæsilegur litbæklingur meö upplýsingum um framleiöslu BM Vallár
er kominn út.
Hjá BM Vallá er að finna mesta
úrval hérlendis af hellum, steinum
og forsteyptum einingum. Á hverju
ári bætist við framleiðsluna, bæði
nýjar hellutegundir sem og viðbæt-
ur i litum eða öðru hjá eldri tegund-
um.
Nýjungar
I ár koma þrjár nýjar framleiðslu-
línur á markaðinn. Steinflísar eru
flísar sem henta jafnt innanhúss
sem utan og þó einkum á verandir
og garðstofur. Steinflísarnar eru
með sérstaka steinflöguáferð og fást
í faflegum jarðlitum. Steinflísarnar
eru til í þremur stærðum, 30x30,
30x36 og 60x60, og er hægt að búa til
ýmis skemmtileg munstur með
þessum stærðum.
Kastalasteinn er mjög líkur forn-
steininum sem flestir þekkja, hann
er framleiddur í fimm stærðum en
með tugum ólíkra yfirborðsáferða.
Herragarðssteinn er framleiddur
í stærðinni 20x10 í múrsteins- eða
grásteinslit. Hann hefur verið með-
höndlaður á þann hátt að hann hef-
ur gamalt útlit sem margir sækjast
eftir.
Allt fyrir kúnnann
BM Vallá leitast við að koma til
móts við kröfur viðskiptavina sinna
á sem bestan hátt. Undanfarin ár
hefur Björn Jóhannsson landslags-
arkitekt F’ILA veitt ókeypis ráðgjöf
við notkun á vörum frá BM Vallá.
Þessari þjónustu hefur verið gríðar-
vel tekið og þarf að panta tíma hjá
honum með fyrirvara.
Sýningarsvæðið Fornilundur
verður glæsilegra með hverju ár-
inu. Nú hefur aðkoman við Breið-
höfða verið endurunnin og er t.d.
gott aðgengi fyrir fatlaða þar nú. í
Fornalundi getur að líta nær alla
framleiðslu BM Vallár fyrir garðeig-
andann.
Glæsilegur bæklingur
Garðurinn og umhvefið er heitið
á sérlega glæsilegum bæklingi sem
er nýútkominn hjá BM Vallá. í bæk-
lingnum, sem er litabæklingur í
stærðinni A4, eru fallegar myndir af
aflri framleiðslu þeirra fyrir garð-
eigandann og allar helstu upplýs-
ingar um hverja tegund, s.s. í hvaða
stærðum og litum þær fást. Einnig
eru mjög góðar leiðbeiningar um
hellulagnir, hleðslur og fleira í bæk-
lingnum. Allar nýjungar eru sér-
staklega merktar en bæklingur mun
koma út á hveiju ári þannig að
alltaf verður hægt að sjá í fionum
hvað er til hjá fyrirtækinu.
5