Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1996, Qupperneq 12
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1996
2. húsoggarðar
Garður Jóhanns Pálssonar, garð-
yrkjustjóra Reykjavíkurborgar
Að Logafold 88 býr garðyrkju-
stjóri Reykjavíkurborgar, Jóhann
Pálsson, og er óhætt að segja að
garðurinn beri þess merki að
áhugamaður um ræktun búi þar.
Milli 5 og 600 tégundir og afbrigöi
skreyta garðinn og frá því snemma
vors og fram á haust er eitthvað
nýtt að gerast.
Gerði garðinn sjálfur
Jóhann byrjaði að gera garðinn
1988. Þá stóð húsið á mel og var efn-
ið sem kom upp úr grunninum not-
að til að móta garðinn. Jarðvegur-
inn var frekar snauður en Jóhann
dreifði 10-15 sm lagi af hrossaskít
ýfir hann allan og stakk síðan sam-
an. Það tók hann 2 sumur, allt var
unnið í höndunum og fyrir hvern
fermetra sem hann stakk komu upp
einar hjólbörur af grjóti sem keyra
þurfti burt. Nú er léttur og góður
jarðvegur í garðinum sem hentar
flestum tegundum vel.
Jóhann er líffræðingur og grasa-
fræðingur að mennt og mikill gróð-
urgrúskari. Sem garðyrkjustjóri
Reykjavíkurborgar hefur hann mik-
il samskipti við Grasagarðinn í
Laugardal og fylgist vel með öllu
sem þar er prófað. Það er þó ekki
nóg fyrir hann, hann vill prófa
plöntumar sjálfur og er til dæmis
mikil vinna á hverju vori að fjar-
lægja plöntur úr garðinum sem ann-
aðhvort þrífast ekki nógu vel eða
eru ekki nógu spennandi.
Villigarður
Jóhann segir garð sinn hálfgerð-
an villigarð. Stefnan er að hann
hugsi um sig sjálfur. Runnagróður-
inn er það þéttur að það heldur beð-
unum nokkuð illgresisfríum, þó
þarf alltaf að taka eina og eina lúku
af arfa í burt en það er í algeru lág-
marki. Skemmtilegar plöntur sem
sá sér fá að vera þar sem þær vilja
vera, þó með smástýringu.
Garðurinn snýr í suður og segir
Jóhann að hann snúi eiginlega vit-
laust, allt það besta snúi út að götu
og verður hann að ganga fram fyrir
garðinn til að fylgjast með sumum
plantnanna.
Jóhann notar eitur sem minnst.
Þó þarf alltaf að eitra eina og eina
plöntu, sérstaklega hafi hún lent illa
í haustfetanum sem er mjög snögg-
ur með plönturnar og getur farið
mjög illa með þær og jafnvel gengið
af þeim dauðum.
Allt skráð
Alltaf er eitthvað um að vera í
garðinum. Snemma á vorin skreytir
aragrúi af dvergkrókusum hann og
þegar þeim lýkur taka páskaliljurn-
ar við sem Jóhann segir það alþakk-
látasta og auðveldasta í ræktun.
Paradísarlilja er einstaklega fögur meö alveg snjóhvít blóm.
Stór eplarós, Rosa eglanteria, gefur góöan eplailm yfir sumarttmann.
Myndir jp
kvæmið sem hann hafi prófað enn
sem komið er.
Paradísarlilja er einstaklega fal-
leg blómplanta með alveg snjóhvít
blóm en helsti gallinn við hana hve
blómin standa stutt.
Grámispill er mjög fallegur jarð-
lægur mispill sem ber mikið af berj-
um og fær einstaklega fallega haust-
liti, hann er mjög harðger.
Rauðblaðarós Nova er harðgert
afbrigði af rauðblaðarós sem
blómstrar mikið og lengi.
Ekki eru allar plönturnar hjá Jó-
hanni ræktaðar vegna fegurðarinn-
ar. Eplarós er ekki ræktuð
blómanna vegna enda blómstrar
hún litið, a.m.k. hér á landi. Ein yfir
tveggja metra há er í garðinum og
gefa laufblöð hennar dýrlegan
eplailm yfir sumartímann.
Um leið og maður gengur út og í
gegnum garðinn þá hugsar maður
með sér að renna oftar þarna fram
hjá, sérstaklega þegar rósirnar fara
að blómstra, til að líta dýrðina aug-
um.
Þær komi upp aftur og aftur án
nokkurrar fyrirhafnar.
Síðan tekur hvað við af öðru. Gíf-
urlega mikið er af rósum í garðin-
um, einnig sýrenur, kvistir og mik-
ill fjöldi fjölærra blómplantna.
Mikiö af plöntunum er sjaldgæft
og jafnvel ekki til í öðrum görðum
en á milli getur að líta algengar ís-
lenskar tegundir eins og t.d. burni-
rót. Þó Jóhann þekki flestar plön-
turnar er fjöldinn slíkur að hann
treystir ekki á minnið og er með öll
beð teiknuð upp þar sem hver
planta er mérkt.
Uppáhaldsplöntur
Jóhann á mikið af uppáhalds-
plöntum. Sólber eru í sérstoku upp-
áhaldi og er hann stöðugt að prófa
ný kvæmi. Hann segir þægilegt að
rækta þau auk þess sem þau séu
sérlega bragðgóð. Melalatti sé besta
Fallegir haustlitir. Vinstra megin er grámispill kominn i
haustliti meðan skriömispiliinn hægra megin viö tröpp-
urnar er algrænn, fyrir miöri mynd má sjá bjartvíöi.
Jóhann segir páskaliljur eitt þaö alauðveldasta í
Fyrirhafnarlaust komi þær upp ár eftir ár.
ræktun.
Milli 500 og 600 tegundir plantna skreyta garö Jóhanns.
Gífurlegur fjöldi rósa er í garðinum. Hvíta rósin er „Polstjárnan", hægra
megin viö hana koma „William Baffin", „John Cabot" og stórar rósin í horn-
inu er „Hurdalsrosen". Vinstra megin viö „Polstjárnan" „Pike’s Peak“.