Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1996, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1996, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚNÍ1996 Fréttir________________________________________________________________________pv Giftusamleg björgun skipshafnarinnar á Sæborgu GK 457: Það var mikið lan að við vorum svo nærri - segir Ásgrímur Ingólfsson, skipstjóri á Jónu Eðvalds SF Það voru tiifinningaþrungnir end- urfundir á Reykjavikurílugvelli síð- degis í gær þegar aðstandendur skip- brotsmannanna 11 af Sæborgu GK 457 tóku á móti ástvinum sínum en Sæ- borgin sökk i hafið um 165 milur norðaustur af Norðfjarðarhorni í fyrradag. Allir skipverjarnir, 11 tals- ins, komust af. „Þetta fór mjög giftusamlega, það má segja það,“ segir Hrólfur Gunn- arsson, skipstjóri á Sæborgu. Hrólfur sagði í samtali við DV við komuna til Reykjavíkur í gærkvöldi að allt hefði hjálpast að við björgun skipshafnar- innar. Veður hefði verið mjög gott, allur öryggis-, samskipta-, og björgun- arbúnaður hefði reynst í fullkomnu lagi og mannskapurinn fumlaus. „Þá áttun við ekki von á skipum svona nærri eins og Jóna Eðvalds reyndist svo vera, þannig að hún kom að okkur miklu fyrr en við áttum von á,“ sagði Hrólfur. Aðspurður um hugsanlega ástæðu þess að skipið sökk sagðist hann ekki átta sig á henni og úr þessu yrði erfitt að ganga óyggjandi úr skugga um hana þar sem Sæborgin hvfldi nú á 2.000 metra dýpi. Hrólfur segir að þeir hafi verið ný- Það voru tilfinningaþrungnir endurfundir á Reykjavíkurflugvelli síðdegis í gær þegar fjölskyldur og venslafólk skip- brotsmannanna af Sæborgu GK 457 heimtu ástvini sína úr helju. Hér heilsar Arnar Már Örlygsson Elínu Maríu Óla- dóttur, eiginkonu sinni, og litla syni sínum, Orlygi Erni. byrjaðir á sUdinni og nánast aUur kvóti skipsins þvi enn óveiddur. Skipbrotsmenn af Sæborgu GK 457 um borö í Jónu Eðvalds SF á Hornafirði í gærdag. Lengst til vinstri stendur Hróifur Gunnarsson, skipstjóri á Sæborgu, og heidur í hönd Ás- gríms Ingólfssonar, skipstjóra á Jónu Eðvalds. DV-mynd Jóna Imsland Skipverjarnir á Sæborgu bera aUir mikið lof á skipstjórann og segja að viðbrögð hans öU hafi ein- kennst af fumleysi og yfir- vegun og aUar aðgerðir hans verið hárréttar. Þeg- ar slagsíða kom á skipið og það byrjaði síðan að sökkva að framan hefði hann gefið skipun um að yfirgefa það en það hefði síðan sýnt sig að vera hár- rétt ákvörðun þvi að frá því að það byrjaði að haUa og þar tU það hvarf í djúp- ið hefðu ekki liðið nema um 20 mínútur. Ásgrímur Ingólfsson er skipstjóri á Jónu Eðvalds DV-mynd ÞOK sem bjargaði skipbrotsmönnunum og flutti þá til lands. Ásgrímur er korn- nnpiir maftnr hp nvfpkinn vift slHn- stjórninni á Jónu Eðvalds. Hann fékk tUkynningu um skipstapann 10 mín- útur fyrir kl. 12 á miðnætti en þá var Jóna Eðvalds stödd í um 15 mUna fjarlægð frá þeim stað þar sem Sæ- borgin sökk og var stefnan strax tek- in þangað. „Það var mikið lán að við vorum svona nærri og að veðrið var jafngott og raun ber vitni,“ segir Ás- grímur. Hann segir að þeir hafi svo komið auga á björgunarbátana þegar þeir áttu um þrjár og hálfa sjómílu ófama og síðan náð talstöðvarsam- bandi við skipbrotsmenn þegar þeir áttu eina og hálfa mUu ófarna. Skipbrotsmenn voru í tveimur gúmmíbjörgunarbátum en auk þess höfðu þeir með sér gúmmíbát af Zo- diac gerð. Allir voru þeir í flotgöllum og þurrir og óhraktir. Skipbrotsmenn áttu ekki von á neinu skipi tU sín svona snemma en töldu að næstu skip væru í 50-60 mílna fjarlægð og voru því að vonum ánægðir þegar þeir heyrðu vélarhljóðið í Jónu Eð- valds nálgast. Aðspurður hvernig tUflnning það væri að bjarga 11 mönnum úr sjávar- háska sagði Ásgrímur skipstjóri að hún væri mjög góð og að hann teldi sig lánsaman að hafa fengið að reyna hað -SÁ Myndin er af Sæborgu meöan skipiö hét Sæborg RE 20. Dagfari Hamingja aö hætti Halims Væru íslendingar að því spurðir á hvern þeir legga mesta fæð þarf vart að efast um niðurstöðuna. Þá vafasömu nafnbót fengi án efa Tyrkinn Halim Al. Sopiha Hansen, fyrrum eiginkona Halims, hefur átt í einkastríði við hann árum saman eftir að hann rændi frá henni dætr- um þeirra tveimur. Þetta stríð hef- ur breyst frá því að vera stríð einn- ar konu gegn karli í það að verða barátta heillar þjóðar fyrir því að fá réttlætinu fuUnægt. íslendingar hafa fylgst með bar- áttu Sophiu árum saman og stutt hana dyggilega, hvort sem er sið- ferðilega eða fjárhagslega. Þrátt fyrir þetta hefur baráttan verið sorglega vonlaus. Stjórnvöld hafa haft nokkur afskipti af málinu en ekki hert baráttu sína fyrr en und- ir það síðasta. Betur má þó ef duga skal. Tyrknesk stjórnvöld hafa á eng- an hátt tekið á Halim þrátt fyrir endurtekin brot á mannréttindum Sophiu og dætranna. Hún fær eng- in samskipti að hafa við bömin og þau ekki við hana. í þvi skjóli ger- ist Halim sífellt hortugri. Hafa menn þó kynnst ýmsu frá hans hendi. Sophiu var dæmdur um- gengnisréttur viö dæturnar en þann rétt hefur Halim hundsað al- gerlega. Litlar líkur eru á að breyt- ing verði á því nema tyrknesk stjórnvöld hysji upp um sig bux- urnar og taki á þrjótnum Halim. Fjölmiðlar hafa fylgst náið með þessu máli árum saman og sam- skiptin við Halim verið með ýms- um hætti. Annað veifið næst í Halim og þá kemur fram að hann er ráðinn í því að hundsa úrskurði dómstóla. Hann fer í felur ef hon- um sýnist svo og þarlendum yfir- völdum dettur ekki í hug að leita. Telji Halim íjölmiðla ganga of nærri sér beitir hann ofbeldi og fantabrögðum. Þess er að minnast er blaðamaður DV myndaði Halim við heimili hans þá réðst hann á hann vopnaður og eyðilagði myndavélina. Það er ekki við mann að eiga. Lýsing sumra tyrk- neskra fjölmiðla á Halim er því rétt eins og fram kom um helgina. Þar segir að faðirinn í þessari forræðis- deilu sé eins og djöfullinn sjálfur. Þessi lýsing frjálslyndra fjöl- miðla á þó ekki upp á pallborðið hjá bókstafstrúarmönnum. í einu blaða þeirra sagði að nú væru syst- urnar loksins hamingjusamar. Hamingjan sú felst í þvi að faðir- inn elur þær upp í ofsatrú, hörku og kúgun. Hann rændi börnunum frá móður sinni og meinar þeim æ síðan að hitta hana. íslenskur læknir sem skoðaði stúlkurnar fyr- ir fjórum árum hefur látið í ljósi grun um að stúlkurnar hafi verið kynferðislega misnotaðar. Auk þess er á kreiki orðrómur um að faðirinn hyggist gifta stúlkurnar áður en þær komast af bamasaldri. Það er því ekki að efa að það er mikil hamingja að fá að alast upp við þessar aðstæður. Hamingja að hætti Halims virð- ist líka vera fólgin í því að láta flytja sig í réttarhöld í smárútu með fjölda slæðuklæddra stúlkna og láta hræða sig til frásagnar og ósannsögli um sinn hag fyrir rétt- inum. íslensk yfirvöld þurfa heldur bet- ur að taka sig saman í andlitinu og frelsa stúlkurnar úr greipum þessa ofstopa- og ofsatrúarmanns. Það þarf að frelsa þær til þess að þær fái að kynnast því á ný hvað ham- ingja er. Allt það uppistand sem orðið hef- ur í þessu máli skaðar samband ís- lands og Tyrklands. Tyrknesk yfir- völd hafa hlíft fantinum Halim þrátt fyrir alþjóðlegar skuldbind- ingar um að virða mannréttindi. Allt þetta fer illa í íslenska alþýðu sem þó getur litið að gert annað en að styrkja Sophiu í baráttunni. Sophia hefur tapað dýrmætum tíma með börnum sínum. Haldi það þóf áfram sem verið hefur er hættan sú að málið tapist endan- lega á tíma. Stúlkurnar eru komn- ar á unglingsár. Fari málið fyrir mannréttindadómstól tekur það langan tíma. Krafan er því sú og eina ráðið að íslensk stjórnvöld beiti sér af alefli í samningum og samræðum við tyrknesk stjórn- völd. Málið verður ekki leyst nema til þess komi. Hamingjan er ekki hjá Halim. Það fann Sophia og við það ástand hafa dæturnar mátt búa nauðugar. Mál er að linni. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.