Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1996, Síða 14
14
ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚNÍ 1996
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjðri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjórí: JÓNAS KRISTJÁNSSON
Aöstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI11,
blaöaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI14,105 RVlK, SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreiflng: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, s!mi: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á máriuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaösins i stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
r
Oviss framtíð risaveldis
Kjósa verður á ný milli Jeltsíns Rússlandsforseta og
Zjúganovs, leiðtoga kommúnista. Þegar talningu um 98
prósenta atkvæða í kosningunum i Rússlandi á sunnu-
dag var lokið hafði Jeltsin naumt forskot á aðalkeppinaut
sinn. Jeltsín var með 34,8 prósent en Zjúganov 32,1 pró-
sent. í þriðja sæti var Alexander Lebed, fyrrverandi hers-
höfðingi, með tæplega 15 prósent. Aðrir frambjóðendur
fengu mun minna fylgi.
Þar sem enginn fékk meirihluta atkvæða verður kosið
milli tveggja efstu manna. Forsetakosningarnar í Rússl-
andi eru afar þýðingarmiklar og merkur áfangi á þym-
um stráðri lýðræðisbraut hins víðfeðma ríkis. Það að
kosningamar fóru vel fram, að mati eftirlitsmanna, er
ákveðinn sigur því hefðin er ekki fyrir hendi. Gert er ráð
fyrir að síðari hluti kosninganna fari fram fljótlega í júlí.
Það má því búast við snarpri kosningabaráttu í Rússl-
andi næstu vikur. Þar keppa þeir Jeltsín og Zjúganov um
fylgi annarra frambjóðenda, einkum fylgi Lebeds, sem
hefur sterka stöðu. í þeirri baráttu takast á þeir sem að-
hyllast frekari lýðræðisþróun í Rússlandi og fylgja forset-
anum og hins vegar Zjúganov og fylgismenn, kommúist-
ar sem vilja afturhvarf til fortíðar.
Vesturlönd hafa leynt og ljóst stutt Jeltsín í von um að
framhald verði á þeirri þróun sem hófst með falli Sovét-
ríkjanna. Þar mega menn ekki til þess hugsa að að
kommúnistar komist aftur til valda. Þegnar Sovétríkj-
anna bjuggu við kúgun og ófrelsi. Stefna þess stórveldis
var fjandsamleg og hættuleg Vesturlöndum.
Hinu er ekki að neita að falli Sovétríkjanna fylgdi upp-
lausn og agaleysi. Efnahagslíf fór úr böndunum og verð-
bólga hefur verið gríðarleg. Meirihluti almennings býr
við bág kjör en nýrik yfirstétt veit ekki aura sinna tal.
Tíðni glæpa hefur stóraukist. Vegna þessa ástands hefur
kommúnistum vaxið fiskur um hrygg á nýjan leik.
Zjúganov hefur nýtt sér upplausnarástandið og fengið
menn til þess að gleyma hatrinu á kommúnistastjórnina
sem ríkti í Sovétríkjunum fyrir fall þeirra. Breytingin frá
miðstýringu efnahagslífsins yfir í markaðsbúskap hefur
verið sársaukafull og Zjúganov sækir meðal annars fylgi
til þeirra sem hafa orðið útundan í þeirri þróun.
Staða Jeltsíns var talin vonlítil fyrr á árinu. Hann stóð
í óvinsælum stríðsrekstri sem kostaði miklar mannfórn-
ir. Hann var heilsutæpur og og magnaðar drykkjusögur
fóru af honum. Trúðslæti og ölvun á erlendri grundu
urðu ekki til þess að auka tiltrúna. En á seinni stigum
kosningabaráttunnar hefur hann sýnt styrk og er nú að
uppskera í samræmi við það.
Ekki er að efa að á þeim dögum sem nú fara í hönd
munu þeir Jeltsín og Zjúganov bjóða Lebed gull og græna
skóga í þeirri von að ná til sín því mikla fylgi sem stend-
ur á bak við hann. Það er því sýnt að staða Lebeds verð-
ur styrk í Kreml þegar upp verður staðið. Það tafl sem
framundan er snýr og að frambjóðendunum Javlenskí,
leiðtoga Jabloko-flokksins, sem fékk um 7 prósent og
þjóðemissinnanum Zhírínovskí sem fékk um 6 prósent.
Þótt Rússlandsforseti hafi þráfaldlega misstigið sig vita
menn hvar þeir hafa hann. Það sama verður ekki sagt
um harðlínumanninn og kommúistann Zjúganov. Nái
hann kjöri verður klukkunni snúið til baka með ófyrir-
sjáanlegum afleiðingum. Því er stuðningur Vesturlanda
við Jeltsín mikilvægur. Því aðeins að lýðræði nái fótfestu
í Rússlandi verða samskipti risaveldisins í austri og ann-
arra rikja með eðlilegum hætti. Komandi júlíkosningar
skipta því sköpum.
Jónas Haraldsson
.Ui'rjr'
„Dómarinn segir einnig aö húsnæöiskerfiö sé svo flókiö aö ekki sé hægt fyrir venjuiegt fólk aö skilja þaö,“ seg
ir Jón m.a. í greininni.
vrrr':í:Á'
■ áSt*
i
Sovésk
húsnæðisstefna
Efri deild þjóðar-
innar virðist oft lít-
ið vita um lífshætti
og afkomu neðri
deildarinnar og
hafa lítinn áhuga á
að vita það. Ráða-
menn koma því oft
af fjöllum þegar
birtist skýrsla eða
frétt sem ekki rím-
ar við rútínubullið
í þeim sjálfum.
Þetta á t.d. við um
„félagslega hús-
næðiskerfið" sem
nú er hrunið um
allt land vegna vit-
lausrar stjórnunar
og stendur á brauð-
fótum hér á borgar-
svæðinu.
Kjallarinn
Jón Kjartansson
frá Pálmholti, form.
Leigjendasamtakanna
Vitlausir út-
reikningar
21. maí sl. kvað
Héraðsdómur upp
þann dóm að hús-
næðisnefnd
Reykjavíkur skyldi
greiða konu tæpar
3 milljónir kr. í
skaðabætur auk
vaxta, dráttar-
vaxta, málskostnaðar
auka vegna vitlausra
á verðmæti verka-
mannaíbúðar við Þóru-
fell sem konan flutti úr
eftir 20 ára búsetu. Hér
er ekki rúm til að rekja
forsendur dómsins í
smáatriðum en m.a.
voru löngu greidd lán
framreiknuð, auk
reikniliða sem engin
skýring fylgdi. Áður en
málið fór til dóms hafði
konan reynt að leita
réttar síns með öðrum
hætti. Fyrst skrifaði
hún húsnæðisnefnd en
því bréfi var ekki svar-
að. Þá leitaði hún til fé-
lagsmálaráðuneytis sem
vísaði málinu til Hús-
næðisstofnunar sem ber
„Hér er ekki rúm til aö
rekja forsendur dómsins í
smáatriðum en m.a. voru
löngu greidd lán framreikn-
uö, auk reikniliða sem engin
skýring fylgdi.“
og virðis- skv. lögum að úrskurða í deilu
útreikninga sem þessari. Lögfræðingur Hús-
næðisstofnunar segir í bréfi að
„útreikningurinn hafi verið réttur
miðað við þær reglur sem farið
hafi verið eftir“. Hvorki Húsnæð-
isstofnun né húsnæðismálastjórn
kváðu upp úrskurð i málinu og
beiðni lögmanns konunnar þar
um var ekki svarað. Dómarinn
segir einnig að húsnæðiskerfið sé
svo flókið að ekki sé hægt fyrir
venjulegt fólk að skilja það, konan
hafi enga ráðgjöf fengið og öll at-
riði reiknuð af nefndinni einni.
Fordæmisgildi
Þetta er að vísu héraðsdómur og
málinu verður áfrýjað en það sýn-
ist þó skipta litlu máli því staðfesti
Hæstiréttur dóm þennan hefur
hann fordæmisgildi fyrir aðra.
Hnekki Hæstiréttur hins vegar
dómnum og sýkni nefndina er
búið að viðurkenna vinnureglur
sem ólíklegt er að fólk sætti sig
við. Þá skal því ekki gleymt að 3
fulltrúar af 7 í húsnæðisnefnd eru
tilnefndir af verkalýðsfélögum og
hver er ábyrgð þeirra? Fyrst og
fremst sýnir þó dómurinn fárán-
leika þessa dýrasta húsnæðiskerf-
is í heimi sem löngu er hætt að
gegna hlutverki sínu en virðist
lifa sjálfstæðu kommissarlífi að
sovéskri fyrirmynd.
Jón Kjartansson frá Pálmholti
Skoðanir annarra
Vill opna
Bessastaði
„Guðrún Katrin Þorbergsdóttir, eiginkona Ólafs
Ragnars Grímssonar, hefur sett fram snjalla og at-
hyglisverða hugmynd um að opna Bessastaði fyrir
almenning. Hún vill að á ákveðnum tímum geti fólk
komið og skoðað Bessastaðastofu og fornminjarnar
sem fundist hafa á forsetasetrinu. í útlöndum er
fólki sumstaðar kleift að heimsækja hallir og híbýli
fyrirfólks, og er skemmst að minnast að Elísabet II
Englandsdrottning opnaði Buckinghamhöll við góð-
ar undirtektir."
Úr forystugrein Alþýðublaðsins 14. júní.
Aukinn réttur
þjóðaratkvæðis
„Á landsfundi Þjóðvaka sem haldinn var 8. júní sl.
var áréttuð stefna flokksins um að gera þurfi grund-
vallarbreytingar á stjórnskipun landsins með aukn-
um rétti til þjóðaratkvæðis, jöfnun atkvæða og raun-
verulegum aðskilnaði löggjafar- og framkvæmda-
valds, t.d. að ráðherra viki af þingi eða komið verði
á beinni kosningu til framkvæmdavaldsins."
Jóhanna Sigurðardóttir í Mbl. 14. júní.
í sjógangi
framvindunnar
„Fyrir tveimur árum beið nýrra stjómenda í
Reykjavík risavaxið verkefni, sem var að byggja upp
afla þá innviði borgarkerfisins sem fúnað höfðu
vegna vanrækslusynda sjálfstæðismanna næstu árin
þar á undan. Reykjavík var orðin að eins konar fjár-
hagslegri og starfslegri Kolbeinsey, sem stöðugt
molnaði úr í sjógangi framvindunnar og beið þess að
sökkva endanlega í sæ óstjórnar og skuldaklafans."
Úr forystugrein Tímans 14. júní.
V