Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1996, Qupperneq 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚNÍ 1996
Sparið 300.000
Til sölu Grand Cherokee Laredo ‘96, með öllu,
einnig aksturstölvu. Ekinn aðeins 1.000 km.
Verð 3.520.000 stgr.
Upplýsingar í síma 897 4666.
Menning
Mikið músík-
festíval
Þaö er erfitt aö lýsa Jötninum, ærslaóperu Leifs
Þórarinssonar með fáum orðum. Tónlist í klassískum
stíl, rapp og rokksöngvar hrynja yfir sviðið, þar sem
furðuverur, hetjur og bergþursar þenja raddböndin.
Verkið er byggt á forngrískum púkaleik eftir
Evripídes, í þýðingu Helga Hálfdanarsonar. Þar er
óspart gert gys að hálfheilögum sagnahetjum á horð
við sjálfan Ódysseif og þeim ógnarlegu þrautum, sem
hann þarf að vinna áður en hann getur snúið til síns
heima eftir sigurinn í Tróju.
Púkaleikir eða satírur
af þessu tagi voru til
foma gjarna sýndar
í samfloti við
harmleikina, til að
létta mönnum lund,
en þessi mun vera
hinn eini, sem hefur
varðveist.
í Jötninum segir frá því
hvemig Ódysseifur bjargar sér og
sínum mönnum með bragðvísi úr
klóm hins ógurlega bergrisa Pólý-
Leiklist
Auður Eydal
-femosar.
Sá býr á eyju og
_ hefur um sig
’hirð ánauðugra
þræla, þar á meðal em skógarpúkinn Sílénos og
smápúkamir synir hans. Sílenos þessi var fóstur-
faðir vínguðsins Bakkosar, sem kemur líka nokkuð
við sögu.
Leifur kemur síðan að leikritinu og semur við það
tónlist, þannig að textinn er að megninu til sunginn
en sumt er þó mælt af munni fram.
Ærslaópera viröist sannarlega réttnefni, þegar
horft er á framvinduna á sviðinu, þar sem
ókindur af öllu tagi hafa í frammi hina
ámátlegustu tilburði og ekki síður vegna þess
hvemig Leifur leikur sér með ólíkar tónlistar-
stefnur og undirstrikar satíruna með óvænt-
um vendingum i músíkinni.
Öðrum megin á sviðinu sitja hljóðfæra-
leikarar með lútu, selló viólu o.fl. á
meðan rafvæddir gítarar, bassar og
hljómborð þruma hinum megin.
Stef með yfirbragði sígildarar tón-
listar kallast á sama hátt á við önnur
í rokk og rapp stíl og úr þessu verður
mikið músíkfestíval, þar sem spaug-
semin ræður ríkjum.
Söngvarar og leikendur stóðu sig yfirleitt með
ágætum, þó að sumt mætti pússa ennþá betur. Bún-
ingar og gervi vora fríkuð í meira lagi í stíl við ann-
að í sýningunni, en lýsingin var stundum ekki nógu
markviss.
í leik mæddi mest á Amari Jónssyni, sem var
magnaður Ódysseifur og Gísla Rúnari Jónssyni, sem
kreisti safann til hins ítrasta úr hlutverki Sílenosar
gamla lævísa skógarpúkans. Fjöldi annarra leikara og
söngvara kemur fram og hópatriði eru mikilvæg, þar
sem Ólöf Ingólfsdóttir stýrir hreyfingum og dansi
ásamt leikstjóranum Ingu Bjamason.
Það skal tekið fram að vonir standa til þess að Jöt-
unninn verði færður upp að hausti ásamt Trójudætr-
um, sem Hvunndagsleikhúsið sýndi í Iðnó í vetur.
Þess vegna er freistandi að líta á uppfærsluna í Loft-
kastalanum sem nokkurs koncir hálfleik, og vonandi
að þessi fyrirhugaði dúett verði að vem-
leika.
Gísli Rúnar Jóns-
son, oþekkjan-
legur f hlutverki
sínu í Jötninum.
Hvunndagsleikhúsið synir í Loftkastalanum:
Jötuninn
ærslaóperu eftir Leif Þórarinsson
byggða á púkaleik Evrípídesar
í þýðingu Helga Hálfdanarsonar
Leikstjóri: Inga Bjarnason
Tónlistarstjóri: Hörður Bragason
Dans og sviðshreyfingar: Olöf Ingólfsdóttir
Lýsing: Alfreð Sturla Böðvarsson
Umgjörð: G.Erla
Búningar: Áslaug Leifsdóttir og hópurinn.
Dúkar og flísar:
(fermetraverð)
Verð Verð
Áður Nú
Gólfdúkur............
Gólfflísar eldri gerð.
FIHri rtarA
M.
METRO
... miðstöð heimilanna
1.055.- 799.-
1.496.- 1.122.-
2.992.- 1.496.-
1.750.- 1.299.-
Smáauglýsingadeild DV er opin:
• virka daga kl. 9-22 • laugardaga kl. 9-14 • sunnudaga kl. 16-22
Smá-
auglýsingar
5505090
Póstburöargjöld hækka um 15% að meðaltali:
Oeðlilega
mikil hækkun
- segja Neytendasamtökin - taprekstur, segir Pósturinn
„Fimmtán prósenta hækkun að
meðaltali er alls ekki í samræmi
við verðbólgu í landinu og ætli við
hefðum ekki orðið vör við ef
starfsfólkið hefði verið að fá
launahækkun sem þess næmi.
Pósturinn býr við algera einokun
og þess vegna getur fyrirtækið
leyft sér hluti af þessu tagi,“ segir
Drífa Sigfúsdóttir, formaður Neyt-
endasamtakanna, í samtali við DV
um 15 prósenta meðalhækkun
Pósts og síma á póstburðargjöld-
um sem tók gildi um síðustu ára-
mót.
„Ástæðumar fyrir þessari
hækkun eru einfaldlega þær að
tap hefur verið á póstþjónustunni
mörg undanfarin ár og sýnu mest
var hún á síðasta ári, nam þá
a.m.k. 400 milljónum króna. Sam-
kvæmt skipun frá ráðherra var
póstburðargjaldið hækkað en á
móti urðum við að lækka kostnað
fólks af símanum. Síminn hefur
verið að niðurgreiða póstinn en
markmiðið er að hver eining Pósts
og síma geti starfaö sjálfstætt,"
segir Hrefna Ingólfsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi Pósts og síma. Hún
segir póstburðargjöldin ekki hafa
hækkaö síðan 1991 en á sama tima
hafi þjónustan aukist, pósturinn
sé nú fluttur á nætumar, fleiri
pósthús verið reist og að nú hafi
einfaldlega verið kominn tími á að
lagfæra gjaldskrána.
„Það er ljóst að þessi hækkun
mun samt ekki duga okkur til þess
að koma rekstrinum yfir núllið
svo að leita þarf leiða til að hag-
ræða. Þótt þjónustan hafi aukist
hefur póstmagnið ekki aukist.
Markaðurinn er svo lítill hér á
landi," segir Hrefna.
-sv