Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1996, Síða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 1996
Fréttir dv
Dagvinna, yfirvinna og afköstin:
Menn láta ekki vinna
yfirvinnu að þarflausu
- segir Hannes G. Sigurösson, hagfræöingur VSÍ
í hátíðarræðu sinni 17. júní sagði
Davíð Oddsson forsætisráðherra að
það hefði komið í ljós þegar yfir-
vinnubann var sett á árið 1978 að af-
köst hefðu sáralítiö minnkað. Með
þessu er forsætisráðherra að segja
að hægt sé að ná sömu afköstum og
sömu launum þótt vinnutíminn sé
styttur.
DV leitaði eftir því hvort ein-
hverjar rannsóknir hefðu farið fram
sem sönnuðu þessa fullyrðingu.
„Ég held að fuliyrðingar um stór-
aukin afköst á dagvinnustund í yfir-
vinnubanninu 1978 séu byggðar á
afar litlum eða engum rannsóknum
og hæpnum forsendum. Það hefur
einhver byrjað að segja þetta og svo
hver étiö upp eftir öðrum án þess að
neinar rannsóknir eða kannanir
hafi verið gerðar um það hvort af-
köst í dagvinnu aukist svo við af-
nám aukavinnu að engu muni um
aukavinnuna. Ég fullyrði að vinnu-
veitendur leita hagkvæmustu lausn-
ar hverju sinni. Ef það nást sömu af-
köst á 8 tímum og 10 tímum myndu
menn auðvitað láta vinna 8 tíma en
væru ekki að bæta við 2 tímum í
aukavinnu að óþarfu," sagði Hann-
es G. Siguröursson, hagfræðingur
Vinnuveitendasambands íslands.
„Ég veit ekki til þess að nein
könnun hafi farið fram um hvort og
þá hve mikið afköst aukast í dag-
vinnu við það að afnema auka-
vinnu. Það eina sem gæti dregið úr
viö mikla aukavinnu er bónusinn
eða sem menn kalla fljótandi hluta
kaupsins. Færiböndin í frystihúsun-
um ganga alveg jafn hratt í dag-
vinnu og aukavinnu," sagði Snær
Karlsson hjá Verkamannasamband-
inu.
„Mér er ekki kunnugt um að
mælingar á þessu séu til. Hins veg-
ar höfum við í fiskvinnslu reynslu
fyrir því að þegar fólk var í bónus
frá morgni og langt fram á kvöld
duttu afköst niður þegar leiö á dag-
inn og á kvöldin. Þess vegna hefur
það verið aflagt að vinna svona
lengi eins og gert var hér áður fyrr.
Það hefur gerst á síðustu árum að
hlutur hálfs dags fólks í fiskvinnsl-
unni hefur farið vaxandi. Þá kemur
í ljós að afköst manneskju sem vinn-
ur 4 tíma eru meiri en þess er vinn-
ur 8 tíma. Sú manneskja sem vinn-
ur 8 tímana nær ekki að tvöfalda af-
köst þeirrar sem vinnur 4 tima,“
sagði Amar Sigurmundsson, for-
maður Samtaka fiskvinnslustöðva,
um þetta mál. -S.dór
Ördeyða í Smugunni:
Fá 200
kíló í sex
tíma hali
„Þetta er alger ördeyða og eng-
ar líkur á að það breytist fyrr en
ísinn fer af miðunum og sjór
hlýnar," segir Tor Fuglevik, hjá
norsku strandgæslunni.
Nýjustu fréttir af Smuguveið-
um eru þær að það eru nú þrír
togarar við veiðar. Þeir fá um
200 kiló af Gatfiski í sex tíma
hali. Togaramir hafa verið á
miðunum frá því í apríl og enn
ekki fengið fuUfermi.
Strandgæslumenn bíða eftir
að fyrstu íslensku togararnir
komi. Eftirlit Norðmanna verður
með sama hætti og síðustu ár og
sagði Fuglevik að ekki yrði farið
að óskum norskra útgerðar-
manna um meiri aðgangshörku
við erlenda togara.
-GK
Spennandi leikur:
Hver verður
Evrópumeist-
ari DV?
- glæsilegir vinningar í boöi
Læstust inni
á veitingahúsi
Gestir lokuðust inni á veit-
ingahúsinu Hvítakoti við Lækj-
argötu aðfaranótt sunnudags.
Eftir að hafa dúsað inni í læstu
húsinu á annan klukkutíma sá
fólkið sér ekki aðra leið færa en
að brjóta glugga til þess að láta
vita af sér. Engum sögum fer af
því hvað fólkið var að gera þeg-
ar húsinu var lokað og aðrir
komu sér heim í háttinn. -sv
Skaut sig
í höndina
Vinnumaður á bæ undir Eyja-
fjöllum skaut sig í höndina með
riffli á laugardagsmorgun. Sá
haíði fengið félaga sinn í heim-
sókn og saman höfðu þeir stytt
sér stundir við drykkju. Þegar
eldvatnið var byrjað að verka
fann vinnumaðurinn rifFil sem
bóndi hafði falið og skot fann
hann líka. Honum tókst síðan að
hlaða gripinn og hleypa af með
fyrrgreindum afleiðingum. Mað-
urinn var fluttur á slysadeild í
Reykjavík. -sv
Leitin að Evrópumeistara DV er
hafln. Um er að ræða léttan leik
sem DV býöur öllum lesendum sín-
um að taka þátt í á meðan Evrópu-
keppnin í knattspyrnu stendur yfir.
Spurt verður tveggja spurninga:
Hver verða þrjú efstu liðin og hver
verður markakóngur keppninnar?
Allt sem lesendur þurfa að gera er
að fylla út svarseðil sem birtist dag-
lega í DV. Skilafrestur er til fostu-
dagsins 28. júní. Hver þátttakandi
getur sent inn eins marga seðla og
hann vill.
Daglega veröa dregnir út
skemmtilegir vinningar úr öllum
innsendum seðlum. Til dæmis eru í
boði 10 miðar á tónleikana með
Björk þann 21. júní auk geisladiska,
bíómiða og fleiri vinninga.
í lokin verður dregið úr réttum
innsendum seðlum og Evrópumeist-
ari DV hlýtur Sony myndbandsupp-
tökuvél að verðmæti 59.900 frá Jap-
is.
Dagfari
Ef aðeins við hefðum forseta
eins og Jeltsín. Þá væri ekki frétta-
leysi, gúrka eða deyfð. Hér er allt i
helgislepju og vandræðum þegar
kemur að fréttaflutningi um for-
seta landsins, forsætisráðherra eða
aðra flokksbrodda. Þeir passa sig
svo vel að til vandræða er. Jeltsín
leyfir sér að súpa sitt vodka, dansa
og dufla. Hann tekur sig til og
stjómar hljómsveitum í utanlands-
ferðum, mildur svo ekki sé meira
sagt, og klípur konur.
Ekkert svona leyfa menn sér í
stjómkerfmu hér. Það er varla að
menn hafi fengið sér staup frá því
að Davíð drakk Bermúdaskálina
foröum daga. Það má heita að síð-
an sé Davíð heilagur maður. Þó
vita menn af gamalli reynslu að
spaugnáttúran í honum liggur
grunnt. Þá er ekki að spauga með
það að Vigdís hefur að kalla verið
tekin í helgra manna tölu. Á árum
áður var reynt að grína svolítið í
kringum Vigdísi og embættiö. Það
fór illa í þjóðarsálina. Eitthvað
verður aö vera heilagt, sögðu menn
og jesúsuðu sig.
En ástandið er ekki svona á
þeim stóra bæ, Rússíá. Jeltsín er
langt frá því að vera heilagur.
Hann veit það og allir í kringum
hann vita það. Hann spilar því frítt
og lætur eins og unglingur þótt
hann sé nýstiginn upp úr tveimur
hjartaáfollum. Þá er ekki að sjá á
honum timburmenn. Jeltsín stríðir
við kommana og þá skal leggja með
öllum ráðum. Forsetinn hefur ráð
undir rifi hverju og fer ekki hefð-
bundnar leiðir í stjómarathöfnum
sínum. Hann man þaö til dæmis að
Kastró frestaði jólunum til þess að
ná sykuruppskerunni. Fyrst fresta
má jólum á Kúbu má líka flýta
kosningum í Rússlandi. Og þótt
lögbundið sé að kjósa á sunnudög-
um þar I landi þá skiptir það
Jeltsín forseta engu. Hann breytir
bara lögunum upp á sitt eindæmi
og lætur kjósa á miðvikudegi.
Og hví 6kyldi hann ekki gera
það? Hann hefur nefnilega komist
að því að borgarbúar meðal kjós-
enda hans drífa sig gjarnan upp í
sveit um helgar. Það er auðvitað
óþolandi að vita af atkvæöunum
sínum, áhyggjulausum í sumarbú-
stöðum, jafnvel að sötra bjór og
vodka og grilla sér pylsu, en nenna
ekki á kjörstaö. Jeltsín ætlar sér
því að gefa kommunum langt nef
og láta sína menn kjósa áður en
þeir fara í sveitasæluna.
Þá er annað til eftirbreytni fyrir
hérlenda tækifærissinna. Nú þarf
Jeltsín á hjálp annarra frambjóð-
enda að halda fyrir síðari umferð
forsetakosninganna. Hann getur
nefnilega ekki einn lamið á komm-
unum. Hann bregst ekki vænting-
um í þeim efnum og hefur þegar
skipað andstæðing sinn frá fyrri
umferð kosninganna, þann er varð
í þriðja sæti, í valdamikið embætti
og um leið rekið ráðherra sem var
þar fyrir og þótti leiðinlegur. Með
þessu ætlar Jeltsín að auka vin-
sældir sínar og ætti að takast það.
Um leið lýsti hann því yfir að hann
hefði innlimað stefnuskrá mót-
frambjóðandans í sína og væri sá
gjörningur til mikilla bóta.
Þetta væri gaman að sjá hér á
landi. Engin vandamál með stefnu
eða hugsjónir. Bara kippa andstæð-
ingnum um borö, lofa honum góðu
djobbi og nýta stefnuna ef hún er
einhver. Besta trikkið hjá Jeltsín
var auðvitað að láta kjósa á mið-
vikudegi og gera þann dag að al-
mennum frídegi. Hver er ekki til í
frídag þótt það kosti skreppitúr á
kjörstað?
En þetta er borin von. íslenskir
pólitíkusar láta það yfir sig ganga
að halda sig við fyrirfram ákveð-
inn kjördag og fara varlega í það í
seinni tíö að útvega pólitískum
andstæðingum störf. Því miður er
þess ekki að vænta að helstu póli-
tíkusar eða forsetaframbjóðendur
sprelli, klípi konur eða karla, detti
í það og stjórni hljómsveitum.
Þetta er óþægilega dauft hjá okkur
og dauðhreinsað. Það mætti hugsa
sér að Davíð kippti Möggu Frí-
manns í þolanlegt framíðarstarf og
tryggði þar með stuðning sinna
helstu fjenda. Þá gæti Pétur Haf-
stein boðið Ólafi Ragnari að eyða
ellinni sem hæstaréttarritari gegn
því einu að draga sig í hlé fyrir
kjördag, svo handahófsdæmi sé
tekið af forsetaframbjóðendum
okkar.
Jeltsín hefði ekki hikað.
Dagfari