Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1996, Page 4
4
FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1996
Fréttir
Flestir kjósendur bak viö hvern þingmann í Reykjavík en fæstir í Vestfjarðakjördæmi:
Hlutfallslega mest fjölgun á kjör-
skrárstofni í Reykjaneskjördæmi
Vægi hvers atkvæðis í alþingis-
kosningum er mjög misjafnt eftir
kjördæmum, mun minna í mann-
mörgu kjördæmunum en þeim fá-
mennu og hafa oft spunnist miklar
umræður um þau mál.
Nýr kjörskrárstofn var gefinn út
fyrir fosetakosningarnar 29. júní
síðastliðinn. Kjósendur á kjörskrár-
stofni á landinu öllu voru 194.784.
Fjöldi karla og kvenna er svo til
jafn, karlarnir eru 94.340 og konurn-
ar 97.444.
Flestir kjósendur bak við hvern
þingmann, miðað við fjöldann nú,
eru i Reykjavík, 4178, Reykjanes-
kjördæmi fylgir fast á eftir með 4159
kjósendur en fæstir eru i Vestfjarða-
kjördæmi, 1228.
Árið 1988 voru 173.829 kjósendur
á kjörskrárstofni og hefur þeim því
fjölgað um 20.955.
í fjórum kjördæmum hefur kjós-
endum á kjörskrárstofni fjölgað, í
Reykjavik um 10.931 eða um 16%, í
Reykjanesi um 9.396 eða um 23,2%,
Norðurlandskjördæmi eystra um
911 eða 5% og í Suðurlandskjör-
dæmi um 861 eða 6,3%.
í hinum fjórum kjördæmunum
hefur kjósendum fækkað, í Vestur-
landskjördæmi um 356 eða 3,5%,
Vestfjarðakjördæmi um 624 eða
9,2%, í Norðurlandskjördæmi vestra
um 105 eða 1,4 og í Austurlandskjör-
dæmi um 59 eða 0,7%.
Hlutfallslega hefur kjósendum því
fjölgað mest í Reykjaneskjördæmi og
fækkað mest í Vestfjarðakjördæmi.
Einu breytingamar sem orðið
hafa á fjölda þingmgnna síðan 1988
eru þær að einn hefur færst frá
Norðurlandi eystra til Reykjaness.
Nú eru 19 þingmenn í Reykjavík en
þess ber að geta að flakkarinn svo-
kallaði heldur til þar nú, í Reykja-
nesi eru þingmenn 12 en voru 11 árið
1988, í Vesturlandskjördæmi eru 5
þingmenn, Vestijarðakjördæmi 5,
Norðurlandskjördæmi vestra 5,
Norðurlandskjördæmi eystra 6 þing-
menn en voru 7 árið 1988, í Austur-
landskjördæmi eru þeir 5 og í Suður-
landskjördæmi 6. -ÞK
Erum í sambandi við
stjórnvöld í Tyrklandi
- segir Ólafur Egilsson sendiherra
„Við erum í sambandi við stjórn-
völd í Tyrklandi eftir því sem þörf
gerist vegna máls Sophiu Hansen og
jafnframt lögfræðing hennar til þess
að fylgjast með framvindunni hjá
honum á þeim þáttum sem eru á
hans vegum og verða að vera á hans
vegum,“ sagði Ólafur Egilsson
sendiherra þegar hann var inntur
eftir því hvort stjómvöld hér væm i
sambandi við tyrknesk stjómvöld
vegna máls Sophiu Hansen.
Ekki hefur verið taiað við þann
utanríkisráðherra sem nú tekur við
í Tyrklandi enda málið nýtt bendir
Ólafur á.
„Ég átti fund á sínum tíma með
þáverandi utanríkisráðherra og
dómsmálaráðherra. Þeir em báðir
úr flokki Tansu Ciiler og hún verður
varaforsætisráðherra og utanríkis-
ráðherra í nýju stjóminni og hún er
leiðtogi annars af sfjómarflokkun-
um. Hún var áður forsætisráðherra,
reyndar ekki í þeirri stjóm sem nú
er að fara frá heldur í stjóminni þar
á undan. Þeir ráðherrar sem rætt
var við fyrir nokkru era flokksmenn
Tansu Ciller.
Eins og þessi stjómarmyndumar-
mál hafa þróast er ekki sérstök
ástæða til að ætla að þau hafi áhrif
á framgang þessa máls,“ sagði Ólaf-
ur aðspurður. -ÞK
Vestfirðir
Norðurland eystra
Norðurtand vestra
1229,6 atkvæðl
3163,3 atkvæði
1431,8 atkvæðl
Vesturiand
Austuriand
Reykjavík
1949,0 atkvæöl /
Reykjanes f
,4 atkvæðl
Vestfirðlr
5 þlngmenn—Reykjavík
19 þingmenn
4178,
4159,6 atkvæði
vægi eins atkvæðis
2410,0 atkvæðl
- atkvæði á bak við hvem þingmann -
Bakkavör flytur í Reykjanesbæ
Bakkavör mun þann 1. september
flytja alla sína starfsemi frá Kópa-
vogi til Reykjanesbæjar. Talið er að
allt að 70 manns muni vinna hjá fyr-
irtækinu þegar það er komið í full-
an gang en i dag eru þeir 35-50.
Bakkavör hefur fest kaup á 1.500
fermetra húsnæði sem áður var í
eigu íslenskra ígulkera hf. í Njarð-
vík. Þá hefur bæjarráð Reykjanes-
bæjar samþykkt kaupsamning að
upphæð 18 milljónir vegna Fram-
nesvegar 11 í Keflavík. Bakkavör
hefur haft húsnæðið á leigu undir
hluta af starfsemi sinni. Bæjarráð
samþykkti einnig 35 milljóna króna
einfalda bæjarábyrgð sem tryggð
verður með 1. veðrétti í Framnes-
vegi 11 þegar endurbótatíma lýkur.
Þar til leggja eigendur Bakkavarar
hf. fram hlutabréf sín í fyrirtækinu
sem tryggingu.
Ellert Vigfússon, annar eigenda
íslenskra ígulkera hf., sagði ástæð-
una fyrir sölunni vera þá að hætt
var við að fara út i rækjuvinnslu
vegna erfiðleika við að finna fjár-
festa. Hann sagði að nú væri verið
að leita eftir minna húsnæði í
Reykjanesbæ undir ígulkeravinnsl-
ima.
-ÆMK
Jóhann Ágústsson með stærsta rauömaga sem komið hefur á Faxamarkað frá upphafi. Þessi feiti og fallegi fiskur
veiddist úti viö Akurey og vegur 4,5 kg. Þessi litli er hins vegar 800 gömm sem þykir nokkuð eðlilegri stærö.
DV-mynd Sveinn
Mörg heitavatns-
slys á ári í Úthlíð
„Á þessu Úthliðarsvæði verða,
samkvæmt upplýsingum frá heilsu-
gæslustöðinni þar, um 6-10 slys á
ári sem tengjast heitu vatni. Vatnið
á þessu svæði er mjög heitt og alltaf
einhver tæknivandamál vegna
þess,“ segir Herdis Storgaard hjá
Slysavarnafélaginu, en ung stúlka
brenndist illa í sundlauginni í Út-
hlíð fyrir rúmri viku. Á opinberum
sundstöðum er skylt að setlaugar
séu búnar hitavara, hitanema sem
settur er á innrennsli vatns. Áður-
nefnt slys varð vegna þess að kalda
vatnið datt niður eins og svo oft er
á þessum hitasvæðum. „Hitanemi
sem var til staðar var hins vegar
bilaður. í raun var treyst um of á
hitastýringu sem svo ekki var til
staðar," segir Elsa Ingjaldsdóttir,
heilbrigðisfulltrúi Selfoss. Hún seg-
ir að á háhitasvæðum sem þessum
leggi heilbrigðsieftirlitið áherslu á
að gerðar séu handhitamælingar en
ekki eingöngu treyst á hitastýringu.
I sundlauginni í Úthlíð er nú unnið
að úrbótum og verður sett tvöfalt
öryggiskerfi, að sögn Elsu.
-saa
Sérleyfisbifreiðar Keflavíkur:
Segja upp starfsmönnum
vegna endurskipulagningar
DV, Suðurnesjum:
„Öllum starfsmönnum fyrirtækis-
ins verður sagt upp og það væntan-
lega fyrir septemberlok. Stofnað
verður hlutafélag um reksturinn
sem yfirtekur hann um áramótin.
Það verður siðan hlutverk nýrrar
stjómar að ráða starfsmenn," sagði
Steindór Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Sérleyfisbifreiða Keflavikur,
en hann er einn af átján starfsmönn-
um fyrirtækisins sem fá uppsagnar-
bréf. SBK er í eigu Reykjanesbæjar.
Talið er líklegt að þeir starfs-
menn sem vilja vinna hjá SBK verði
endurráðnir. Að sögn Steindórs
verður mikið að gera hjá nýrri
stjóm sem mun skipuleggja framtíð
SBK og ráða starfsmenn. Hann seg-
ir að ekki megi vera færri starfs-
menn en em þegar starfandi hjá fyr-
irtækinu í dag.
-ÆMK