Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1996, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1996, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1996 Fréttir Svínakjötsútsölunni lýkur um helgina: Búumst við að selja hundrað tonn - segir formaöur Svínaræktarfélagsins „Við búumst við að selja um hundrað tonn af svínakjöti á þessu lága verði og tel ég að bændur séu í raun að gefa 6-8 milljónir," segir Spurt og svarað: Vaxtatekjur Eldri borgari hringdi og viidi vita hvort vaxtatekjur frá banka myndu dragast frá tekjutryggingunni 1. septem- ber nk. Hann borgar vaxta- gjöld af láni og vill vita hvort tekið sé tillit til þess við ákvörðun skerðingar. „Ef vaxtagjöldin eru dregin frá vaxtatekjum, getur þá verið að ég komi út i mínus, hafi meiri vaxtagjöld en tekjur,“ spyr hann. Einnig vill hann vita hver gefi upplýsingar um vaxtatekjur fólks. Eru það bankarnir? „Menn hafa ekki þurft að gefa upp þessar tekj- ur á skattskýrslu,“ segir hann. Svar Ekki er hægt að segja til um hvort vaxtatekjumar muni hafa áhrif á tekjutrygginguna án þess að vita upphæð vaxtateknanna eða hvort þær em einu tekjum- ar. Tekjur maka gætu líka haft áhrif. Með ráðstöfun í ríkisfjármál- um, „bandorminum,“ sem samþ. var á Alþingi fyrir áramót, var samþykkt að helmingur tjár- magnstekna lífeyrisþega hefði áhrif á greiðslur Tryggingastofn- unar til þeirra. Þegar reiknað er út hvaða áhrif tekjur lífeyris- þega hafa á greiðsiur til þeirra em skattskýrslur hafðar til hlið- sjónar. Tekjur ársins 1995 fara að hafa áhrif á greiðslur 1. sept- ember nk. Allar tekjur era framtals- skyldar, hvort sem þær eru skattskyldar eða ekki. Það er því rangt aö menn hafi ekki þurft að gefa þær upp á skattskýrslu. Tekjutryggingin byrjar að skerðast hafi menn í almennar tekjur kr. 18.110 á mánuði, hjón kr. 25.354. Helmingur tekna vegna vaxta, veröbóta, affalia eða gengishagnaðar reiknast inn í þessa upphæð. Ef einu tekjurn- ar, fyrir utan greiöslur frá TR, era þessar vaxtatekjur þá þurfa fjármagnstekjur að vera yfir kr. 36.220 á mánuði, kr. 434.640 á ári, til þess að það hafi einhver áhrif á tekjutrygginguna. Tekjumörk- in vegna tekna úr lífeyrissjóði era nokkru hærri en reglumar að öðru leyti eins. Ekkert hefur komið fram um að vaxtagjöld verði frádráttar- bær eöa breyti áhrifum vaxta- tekna á greiðslur frá TR. Hins vegar greiðir ríkisskattstjóri vaxtabætur til þeirra sem bera mikil vaxtagjöld og hafa lágar tekjur. Hvað viltu vita? Menn eiga þess kost á að koma spumingum varðandi komugjöld á sjúkrahús, greiðslu ferðakostn- aðar vegna ferða til lækna innan- lands, ellilífeyri, örorkulífeyri, slysabætur eða annað sem varö- ar greiöslur Tryggingastofnunar til neytendasíðu DV sem mun leita svara hjá Tryggingastofhun. Svörin era svo birt hér á síðunni viö fyrsta tækifæri. Síminn á DV er 550 5000, faxnúmerið er 550 5020. -saa Kristinn Gylfi Jónsson, formaður Svinaræktarfélagsins. „Það hefur verið gríðarleg sala og ég tek eftir að það era ekki bara við sem höfum lækkað verðið heldur eru það versl- anirnar sem keppast um að hafa lægsta verðið þannig að þetta er gósentíð fyrir neytendur," bætir hann við. Kristinn býst ekki við að verðið haldist niðri nema út helg- ina. Eftir það fari það í sama horf og fyrir útsölu sem hann reyndar telur einnig mjög hagstætt, um 10% lægra en síðasta sumar. Ekki er bú- ist við annarri útsölu á svínakjöti. „Útsalan var til að fá hjólin til að snúast og svínakjötið hefur selst vel og er vinsælt á grillið" bætir hann við. Það voru verslanir Hagkaups, Nóatúns og Bónuss sem hófu söluna á ódýru svínakjöti. Aðrar verslanir hafa þó fylgt í kjölfarið. í lausu lofti Jakob Örn Haraldsson, kjötiðnað- armaður í Nóatúni, segir að þau hafi varla haft undan sölunni og svínabændur varla undan verslun- armönnunum. Kjöt hafi borist i verslanir og selst upp á skömmum tíma. „Við höfum tekið niður pant- anir til þessa en minnkum það nú þar sem við vitum ekki hvað við fáum mikið í næstu sendingu," sagði Jakob. Um klukkan 15 í gær var lítið til af svínakjöti í Nóatúni en Jakob bjóst við sendingu seinna um daginn. „Svo fáum við nóg á morgun, að því ég best veit,“ sagði hann og viðurkenndi að kjötkaup- menn væru töluvert í lausu lofti þessa dagana, hvað svínakjötið varðaði. -saa Jakob Örn Haraldsson sagaði kjöt af krafti í gær og hafði ekki tíma til að lesa blöðin og vissi því ekkert um veröið á svínakjötinu. DV-mynd Sveinn. Neytendur ánægðir: Kjötið fryst og beðið eftir næstu útsölu „Ég kom í morgun en það var ekkert svínakjöt til og mér var sagt að það kæmi eftir hádegi. Kjötið Ásta lét ekki svínahnakkasneiöar á útsölu fram hjá sér fara. Elva ánægö með lærið sem hún hafði pantaö. DV-myndir Sveinn kom víst en seldist upp á tuttugu mínútum nema svínahnakkar. Ég ætla nú að kaupa hann frekar en ekkert," sagði Ásta Jónsdóttir sem segist grípa tækifæri sem þetta og versla ódýrt. „Maður fær nú ekki svo mikla peninga frá þessu ríki að maður hafi efni á að sleppa svona tækifæri," sagði hún um leið og hún fékk 2,2 kg af skornum svínáhakka- sneiðum fyrir 949 krónur. „Við komum hingað áðan þegar 30000 kr 25000 20000 15000 10000 5000 Olís Shell Húsasmiðjan BYKO * með gaskút ** feröagrill 24,995* 25.255* ' 16,900* 14,780 'lift 2747 2225 3822 653** Kolagrill Gasgrill OV ekkert var til og pöntuðum þvíc kjöt,“ sögðu Elva Björg Pálsdóttir og‘ Páll Björnsson sem keyptu háift læri, tæp 5 kíló, á 1905 krónur í gær. Einnig keyptu þau svínahnakka- sneiðar. „Þetta er rosalega gott verð, a.m.k. á lærinu, sagði Elva. Þau, eins og Ásta, komu gagngert til að kaupa svínakjöt á útsöluverði. „Maður frystir hluta af þessu og bíð- ur eftir næstu útsölu," sagði Páll hlæjandi. -saa Tilbreyting í eldamennskuna Grillin hafa selst vel í sumar að sögn verslunarmanna. Gasgrillin era vinsælli en kolagrillin þrátt fyr- ir að þau séu mun dýrari. Þau hafa jafnvel sums staðar selst upp. Úrval þeirra er líka mun meira. Helst að til séu ferðakolagrill. Neytendasið- an gerði könnun á verði meðalstórra grilla sem gætu nýst í matreiðslu fyrir 4. í töfluna hér á síðunni voru lægstu uppgefin verð tekin. Að sjálfsögðu eru grillin mi- sjöfn og misútbúin og er ekki tekið tillit til þess í könnuninni. Flest gas- grillin eru seld með gaskút en ga- skútar kosta um 2700 krónur. -saa Húsavíkurjógúrt: Tvær nýjar Um þessar mundir er Mjólkur- samlag KÞ á Húsavík aö setja á markað tvær nýjar tegundir af Húsavikurjógúrt, annars vegar með pera- og vanillubragði og hins vegar kákasusjógúrt með bláberjum. Að auki hefur jarðar- beijajógúrtin verið sett í nýjan búning. Alls fást nú tíu bragðteg- undir af Húsavíkurjógúrt. Jógúrtin fæst í matvöruverslun- um um land allt og það er Mjólk- ursamsalan í Reykjavík sem annast dreifmguna á höfuðborg- arsvæðinu. Bók fyrir alla: Viltu „Mér finnst alveg ömur- legt að eyða meiri pening- um en ég þarf og ég hef kom- ist að því að með því að skipuleggja matarinn- kaupin hef ég lækkað matar- reikninginn um 25 prósent,“ seg- ir Vigdís Stefánsdóttir sem gefur nú í annað sinn út bók sem heit- ir Viltu spara? í bókinni eru ýmsar ráðleggingar fyrir fólk, hvemig skipuleggja megi matar- iimkaupin langt fram í tímann, uppskriftir að ýmsum ódýrum réttum o.s.frv. Vigdís segir bók- ina koma til með að fást í öllum helstu matvöruverslunum um land allt. Henni er dreift í fimm þúsund eintökum og hún kostar 498 krónur. Ný krydd frá Pottagöldrum Pottagaldrar hafa sent frá sér tvær nýjar kryddblöndur, Taaza masala og Bahara, svo og eins konar „season" krydd, Eðalsteik- og grillkrydd og Eðal-kjúklinga- krydd sem innihalda hrein krydd og hið íslenska heilsusalt frá Reykjanesi. Pottagaldrar viö- halda markmiðum sínum með hreinum afurðum og framleiða nú 20 kryddblöndur og season krydd, auk þess að pakka sér- kryddum, s.s. timian, steinselju, oregano, basilikum og ýmsu öðra. Kjörís og Sól hf: Framleiðsla hefsl á svala- frostpinnum Kjörís hf. hefúr gert samning við Sól hf. um framleiöslu og sölu á svalafrostpinnum. Til að byrja með verða settar tvær teg- undir á markað, appelsínu- og eplafrostpinnar. I sumar verða pinnarnir eingöngu seldir í lausu en stefnt er að fjölskyldu- pakkningu í haust. Svalabræður hafa verið búnir til, einn fyrir hverja bragðtegund af svala og búin hefur veriö til teiknimynd til aö auglýsa vörana. Samið var sérstakt lag sem Svalabræðm- sungu. Innihaldi svalans hefui- verið breytt og þannig hefur holl- usta vörunnar aukist. -sv

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.