Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1996, Qupperneq 8
8
FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1996
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum veröur háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Bfldshöfði 14, vesturhluti 2. hæðar í
framhúsi, 290,9 fm skrifstofuhúsnæði
ásamt sameign, merkt 0202, þingl.
eig. Kristinn B. Eiríksson, gerðarbeið-
endur Gjaldheimtan í Reykjavík og
Verðbréfamarkaður íslandsb. hf.,
þriðjudaginn 9. júlí 1996 kl. 11.00.
Dalsel 27, þingl. eig. Guðbjörg Helga-
dóttir, gerðarbeiðendur Búnarðar-
banki fslands, Byggingarsjóður ríkis-
ins, Gjaldheimtan í Reykjavík og fs-
landsbanki hf., 526, þriðjudaginn 9.
júlí 1996 kl. 13.30.__________
Frakkastígur 5, hlutí í íbúð 1. hæð og
kjallari, merkt 01-01, þingl. eig. Þórir
Jóhannsson, gerðarbeiðandi Lands-
banki íslands, þriðjudaginn 9. júlí
1996 kl. 15.00.______________
Gyðufell 16, íbúð á 2. hæð t. h., merkt
2-3, þingl. eig. Jón Ingibjörn Ingólfs-
son og Nína Kristín Sverrisdóttir,
gerðarbeiðendur Gjaldheimtan í
Reykjavík og Lífeyrissjóður Dags-
þrúnar/Framsóknar, þriðjudaginn 9.
júlí 1996 kl. 15.30.__________
Mánagata 24, íbúð á 1. hæð, þingl.
eig. Elías Rúnar Elíasson og Kolbrún
J. Sigurðardóttir, gerðarbeiðendur
Byggingarsjóður ríkisins, Byggingar-
sjóður ríkisins, húsbréfadeild, og
sýslumaðurinn á Akranesi, þriðju-
daginn 9. júlí 1996 kl. 11.30.
Otrateigur 50, þingl. eig. Þorbjörg
Jónsdóttir, gerðarbeiðendur Spari-
sjóður Reykjavíkur og nágr. og Walt-
er Jónsson, þriðjudaginn 9. júlí 1996
kl. 14.30.
SÝSLMAÐURINN í REYKJAVfK
Utlönd
Zjúganov óskar keppinauti sínum til hamingju með sigurinn:
Jeltsín getur þakkað
konunum endurkjörið
Borís Jeltsín, nýendurkjörinn for-
seti Rússlands til næstu fjögurra
ára, þarf ekki annað en að líta í eig-
in rann þegar hann leitar að ástæð-
um fyrir glæsilegum sigri sínum
yfir Gennadi 2júganov, frambjóð-
anda kommúnista. Það er nefnilega
ekki síst eiginkonu hans og yngri
dóttur, þeim Naínu og Tatjönu, að
þakka að honum tókst að snúa al-
menningi á sitt band.
Jeltsín vísaði hvað eftir annað í
framtíð fjölskyldu sinnar þegar
hann varaði við því í kosningabar-
áttunni að landsmenn leituðu aftur
á vit kommúnískrar fortíðar, kom
m.a. með brosandi barnabörn sín á
síðasta framboðsfundinn í heima-
borginni, Jekaterínbúrg.
En konurnar í lífi þekktasta
„múzjíks“, eða drykkfellda karl-
rembusvíns, Rússlands léku stærra
hlutverk og milduðu imynd leiðtoga
sem milljónir manna höfðu horft
upp á breytast úr djarfri, frjáls-
lyndri hetju í blóði drifinn Kremlar-
stríðsherra.
Það var líka Naína sem veitti
fyrsta viðtalið eftir kosningamar
þar sem hún sagði að eiginmaður
sinn væri með hæsi. Hún sagði frá
því hversu stolt fjölskyldan væri af
Vinningaskrá
w ^
9. utdráttur 4. júb' 1996.
Bifreiðarvinningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvðfaldur)
52256
Ferðavinningar
Kr. 100.000 Kr, 200.000 (tvðfaldur)
3021
41858
74265
77312
Ferðavinningar
Kr. 50.000 Kr. 100.00 0 (tvöfaldur)
17095 19270 31946 34135 40205 67033
18066 29558 32435 37295 42812 76990
Húsbúnaðarvinningar
Kr. 10.000
223 10388 23633 32920 40667 46442 56802 70182
424 10756 24024 33187 40978 46963 57120 70533
647 10830 24236 33469 41244 47157 57320 70764
1062 11711 24461 33514 41641 48236 57764 70928
1538 12013 24862 33544 41839 48509 58015 71056
1626 13194 25068 33969 42001 48741 58088 71433
1682 13348 25427 34172 42187 48882 59385 71449
1896 14168 25706 34348 42417 48964 59687 71552
2167 14550 26302 34497 42822 49574 59900 71604
2807 14573 27238 34924 42955 49601 59969 71766
2812 15491 27410 35279 43080 49647 60001 72629
3504 15861 27613 35654 43110 50876 60035 72912
3538 16249 27738 35811 43185 50994 60789 73063
3604 16571 27854 35845 43457 51065 61214 73410
4313 17696 27997 35870 43641 51297 61421 73547
4522 18104 28133 37235 43750 52085 62494 74088
4569 18194 28683 37577 44078 52206 62765 74519
4891 18676 29046 37797 44376 53098 62999 74608
4902 18902 29228 37804 44586 53512 63075 75288
5054 19652 29312 38430 44794 53539 63250 75335
5745 19771 29461 38434 45143 53855 63360 75403
6423 19937 29634 38527 45174 54122 63945 76030
6510 20335 29655 38869 45181 54369 64141 76330
6591 20392 30940 39096 45376 54407 64887 76646
6862 20415 31227 39758 45458 54546 65789 76826
7425 21941 31532 39983 45530 54745 67617 78152
8543 22607 32148 39996 46004 55329 68041 78156
8624 22671 32390 40209 46028 55973 68162 78248
9026 22797 32733 40458 46068 56287 69258
9965 23256 32741 40528 46395 56374 69647
sigri hans en hann þyrfti nú að fá
að hvíla sig.
„Hann er ekkert ofurmenni, hann
er maður eins og allir hinir,“ sagði
hin 64 ára gamla Naína í viðtali við
sjónvarpsstöðina NTV í gær.
Jeltsín skipaði Viktor Tsjerno-
myrdin á ný í embætti forsætisráð-
herra í gær. Á fundi með frétta-
mönnum sagði forsætisráðherrann
að hann mundi ekki kynna nýja
stjóm fyrr en eftir eina tíu daga og
sagði mjög líklegt að innan hennar
yrðu menn úr öðrum flokkum og
hreyfingum.
Þegar nær öll atkvæði höfðu ver-
ið talin hafði Jeltsín fengið 53,7 pró-
sent en Zjúganov 40,4. Leiðtogi
kommúnista kvartaði yfir því
hvernig Jeltsín hefði notað sér rík-
isapparatið og fjölmiðlana í kosn-
ingabaráttunni en hann bar sig
engu að síður mannalega. „Við virð-
um vilja þegna rússneska ríkjasam-
bandsins," sagði hann.
Zjúganov sendi Jeltsín meira að
segja heillaóskaskeyti og hvatti til
þess að kommúnistar fengju hlut-
verk í nýrri stjórn landsins.
Reuter
Félagsráðgjatinn Garry Johnson í nunnuklæðum gefur dragdrottningunni
Gordon MacDonald smokk á hommabar í Vancouver í Kanada og er það lið-
ur í fræðsluherferð um alnæmi í tengslum við ráðstefnu í borginni.
Símamynd Reuter
Ráðherrastóll búinn
til fyrir Ariel Sharon
Benjamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra ísraels, ráðgerir að biðja í
dag stjórn sína um ráðherrastól
handa Ariel Sharon, fyrrverandi
varnarmálaráðherra og húsnæðis-
ráðherra. Stjómmálaskýrendur
segja að slík ákvörðun muni reita
araba til reiði.
I ráðherratíð sinni lenti Sharon
oft í deilum við yfirvöld í Was-
hington vegna harðlínustefnu sinn-
ar. Er Sharon var vamarmálaráð-
herra stjórnaði hann innrás ísraela
í Líbanon 1982. Hann neyddist til að
láta embættið af hendi ári seinna
eftir að ísraelsk rannsóknarnefnd
úrskurðaði að hann væri óbeint
ábyrgur fyrir því að kristnir banda-
menn myrtu hundruð Palestínu-
manna í tveimur flóttamannabúð-
um sem voru umkringdar af ísra-
elskum hermönnum. Snemma á
þessum áratug stjórnaði Sharon
uppbyggingu byggða ísraelskra
landnema á Vesturbakkanum.
Við stjórnarmyndun bauð Net-
anyahu ekki Sharon sæti i stjórn
sinni en hann hefur nú látið undan
þrýstingi frá David Levy utanríkis-
ráðherra sem hótaði að segja af sér
fengi Sharon ekki ráðherrastól fyrir
Bandaríkjafór forsætisráðherrans.
Reuter
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á v/s Dröfn RE-42, skráningarnúmer
491, þinglýst eign Indriða Kristins Péturssonar, verður
haldið á skrifstofu sýslumannsins í Reykjavík að
Skógarhlíð 6, 2. hæð, þriðjudaginn 9. júlí 1996
kl. 10.00. Gerðarbeiðandi: Sparisjóður vélstjóra.
Sýslumaðurinn í Reykjavík
DV
Stuttar fréttir
Nýtt blóð í
Rússlandi
Alexander Lebed, öryggisráð-
gjafi Jeltsíns Rússlandsforseta,
segist vera nýja blóðið í Kreml
sem tryggi breytingar eftir end-
urkjör Jeltsíns.
Maradona
til Japan
Búist er við að Diego Mara-
dona muni undirrita tveggja ára
samning upp á 20 milljónir doll-
ara við japanskt félag.
Framtíðin rædd
Serbnesk
yfirvöld hafa
hvatt nýjan
leiðtoga Bosn-
íuserba, Bilj-
ana Plavsic, til
að ræða fram-
tíð Kardzics
forseta sem
Vesturlönd
reyna að fá framseldan fyrir
stríðsglæpi.
Chirac til
ísraels
Jacques Chirac, forsætisráð-
herra Frakklands, heimsækir
ísrael, svæði Palestínumanna,
Líbanon og Sýrland í haust.
Öll lík fundin
Leitarmenn hafa ekki fundið
fleiri lík í rústum flugeldaversl-
unarinnar í Ohio í Bandaríkjun-
um sem eldur kom upp í.
Lok á hneyksl-
ismál
Leiðtogi sósíalista í Frakk-
landi, Lionel Jospin, segir kerfis-
bundið breitt yfir hneykslismál
og þaggað niður í embættis-
mönnum.
Fleiri ákærur
Saksóknarar í Ástralíu hafa
birt Martin Bryant ákærur fyrir
34 morð til viðbótar vegna
fjöldamorðsins á Tasmaníu.
„Sharon Stone"
tekin
Brasilíska lögreglan hefur
handtekið 24 ára gamla konu
sem rændi flölda banka og var
uppnefnd Sharon Stone vegna
útlitsins.
Dole vill meira
Bob Dole,
forsetafram-
bjóðandi repú-
blikana í
Bandaríkjun-
um, sagði á
þjóðhátíðardeg-
inum í gær að
þjóðin ætti að
láta meira að
sér kveða sem forysturíki á al-
þjóðavettvangi með nýtískuher.
Friður ekki í
nánd
Skæruliðar írska lýðveldis-
hersins útilokuðu í gær að enda-
lok stríðs þeiiTa á hendur bresk-
um stjórnvöldum væru i augsýn.
Þrándur í götu
Símon Peres, fyrrum forsætis-
ráðherra ísraels, segir að strang-
trúarmenn og íhaldsmenn í efna-
hagsmálum séu þrándur i götu
nýrra og frisælla Mið-Austur-
landa.
Reuter