Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1996, Blaðsíða 12
12
FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1996
Spurningin
Hvað ætlar þú að gera
um helgina?
Hlynur Örn Herbertsson nemi:
Ég fer upp í sumarbústað.
Magnús Guðmundsdóttir land-
fræðingur: Ég verð heima, fer í
sund í sólinni og hjóla úti.
Þórður Ingi Guðnason stuðnings-
fulltrúi: Ég er að fara til Vopna-
fjarðar.
Helgi Þorvarðarson hárgreiðslu-
nemi: Ég reyni að fara í Þórsmörk.
Sigfús Valdimarsson verkamað-
ur: Ég hef ekki skipulagt helgina.
Júlíus Rafnsson framkvæmda-
stjóri: Ég tek þátt í golfmóti og af-
mælishátíð Hverageröis á laugar-
daginn. Sunnudagurinn er óráðinn.
Lesendur
Hvalveiðar
og nautaat
Jón Mariasson skrifar:
Árum saman hefur staðið yfir
heilagt stríð á milli hvalveiðimanna
og friðarsinna hvala. Segja má að
baráttan sé komin út í hreinar öfg-
ar. Hvalasinnar, svokallaöir, líkjast
helst trúflokki, sem telur hvalina
nánast heilög dýr. Þau séu auk þess
afar gáfuð. Ekki Jief ég rekist á sér-
stakar marktækar mælingar á
gáfnafari dýranna. Ég tel hins vegar
nokkuð víst að ekki hafi hvalimir
verið skapaðir til þess eins að synda
í sjónum óáreittir og éta þúsundir
tonna af fiski árlega. - Þótt Magnús
hvalavinur Skarphéðinsson sé
grænmetisæta hefur hann ekkert
einkaleyfi á að kalla þá er veiða
hval illum nöfnum.
Klifað er á að ómannúðlegt sé að
drepa hval, og það sé nánast það
sama og að drepa fólk. Ég hefi ekki
orðið þess var að hikað sé við að
drepa fólk í þúsundatali og oft ekki
gert mikið veður út af því. Væri það
þó ekki nema mannúðlegt að hætta
manndrápum í hreinu tilgangsleysi.
Ég sé hins vegar ekkert ómannúð-
legt við það að drepa hval, sel eða
aðrar skepnur og fisktegundir.
Hvalskyttur hvalbátanna eru ná-
kvæmar við sín störf og deyða hval-
inn með einu skoti.
Hundalógik hvalasinna hefur
fremur falskt yfirbragð og er fráleitt
að tala um pyntingardauða hval-
anna. Margt af því fólki sem gerir
mestan hávaða út af hvaladrápi
þyrpist svo á sýningar á nautaati.
Nautaat er að mínum dómi einhver
hinn ruddalegasti leikaraskapur
sem framinn er á skepnum. Nautin
eru stungin með löngum sverðsodd-
um, svo lekur úr dýrinu blóðið.
Fólkið ólmast og fagnar ákaft, nán-
ast tryllist af gleði yfir hetjuskap
nautabanans!
Skyldi öllum vera sama af því
búið er að telja fólki trú um að naut-
in séu heimsk? Hvað segir Magnús,
hinn vitri hvalavinur, um þetta?
Hann er kannski einn þeirra sem
telja að nautið hlaupi á eftir hinni
rauðu dulu nautabanans vegna þess
að hún er rauð. Liturinn skiptir
hins vegar engu máli, því naut eru
litblind. Að sögn fróðra manna.
Eigi að banna hvalveiðar ætti að
banna nautaat sömuleiðis. Verst er
þó að dýr eru pind og kvalin um aU-
an heim, og er því heimskan ein að
taka hvali eina út úr vegna þess að
þeir deyi kvalafuUum dauðdaga. En
svo er ekki eins og ég sagði hér að
ofan. - Snúið þið nú, hvalavinir,
ykkur að því að frelsa nautin frá
kvalafuUum dauðdaga. Þar er ljótur
leikur á ferð.
Bréfritari skorar á hvalasinna að hvíla sig um stund og frelsa frekar nautin frá kvalafullum dauðdaga.
Morgunblaðsauglýsingar gegn Ólafi Ragnari:
Rógburðurinn verkaði öfugt
Sigurjón Jónsson skrifar:
Það var ekki laust við að okkur,
stuðningsmönnum Péturs Kr. Haf-
stein forsetaframbjóðanda, sortnaði
fyrir augum er við lásum auglýsing-
arnar, frægu að endemum, í Morg-
unblaðinu á síðustu dögum kosn-
ingabaráttunnar. Og í herbúðum
Péturs Kr. Hafstein var mikið skegg-
rætt, frétti ég, um hver stæði í raun
að baki þessum auglýsingum. Menn
höföu ekki trú á að þessir menn,
sem sagðir voru „ábyrgðarmenn",
bæru skynbragð á slíka framsetn-
ingu sem birtist í auglýsingunum. -
Né réðu yfir nægu fé til að greiða
fyrir svo dýrar auglýsingar.
Menn eru sem sé á því að hér hafi
aðrir og þá fjársterkir aðilar staðið
að baki og jafnvel verið um tvöfalt
„plotf' að ræða og ætlað til að afla
Ólafi Ragnari samúðar en hrífa af
Pétri Kr. Hafstein það fylgi sem
hann hafði þó rakað að sér, þrátt
fyrir ófagleg vinnubrögð helstu að-
stoðarmanna hans. Fór enda svo að
fylgi Ólafs er talið hafa aukist að
bragði, en minnkað að sama skapi
hjá Pétri.
Enn er því ekki sannað hver eða
hverjir stóðu að hinu fádæma aug-
lýsingabralli í Morgunblaðinu. Hitt
er að þar var um einstaka ófrægingu
að ræða í garð Ólafs og skaðaði
framboð Péturs Kr. Hafstein, eins og
hann sagði sjálfur í sérstakri yfirlýs-
ingu í Morgunblaðinu. í yfirlýsingu
Péturs kom einnig fram að ýmsir
teldu að þessar auglýsingar hefðu
komið frá stuðningsmönnum hans.
Vildi hann árétta að svo væri ekki.
Auðvitað vænir enginn Pétur Kr.
Hafstein heldur um að hann viti
annað. - En það skyldi þó ekki vera
að einmitt aðilar i „stuðningshópi“
hans hafi staðið að baki auglýsing-
anna. Annað eins hefur verið brall-
að.
Griðastaður á Hótel Borg
Ragnar skrifar:
Það eru ekki margir veitinga- eða
kaffistaðimir í Reykjavík sem bjóða
upp á verulega skemmtilegt, af-
slappaö og þægilegt umhverfi þar
LliIliDái þjónusta
allan sólarhringi—
Aðeins 39,90 mínútan
eða hringíð í síma
ÍÓ 5000
milli kl. 14 og 16
sem fólk getur notið veitinganna -
helst með lágt stilltri en vandaðri
tónlist í bakgrunni. Ekki sinfóníur
eða háklassík, heldur sú gamla,
góða ameríska dægurlagatónlist frá
stríðsárunum. Stórsveitunum með
eða án stórsöngvaranna Frank
Sinatra, Ellu Fitzgerald, Nat King
og öðrum slíkum.
Hótel Borg hefur verið slíkur
griðastaður um árabil. Það er sama
hvenær maður kemur inn á Hótel
Borg, t.d. síðdegis til að fá sér kaffi
og vöfflu meö rjóma. Alltaf sama
góða andrúmsloftið, oft sömu gest-
imir og frábær þjónustu hjá afar
kurteisu framreiðslufólki af yngri
gerðinni. - Allt þetta gerir það að
verkum að fólk kemur þarna aftur
og aftur. Einnig þeir sem vilja bara
eiga þarna griðastað fyrir skröltinu
og stressinu úti á götu.
Á Hótel Borg í afslöppuöu umhverfi.
Já, veitingakóngurinn Tómas veit
alveg hvað hann er að fara. Býður
upp á mismunandi tegundir veit-
ingastaða. „Serve all, love all“, seg-
ir þar líka sums staðar. Hárrétt. En
mér finnst Borgin sífellt vera minn
griðastaður.
Lýsið undir „ís-
lands-merki"
Kjartan hringdi:
Ég hlustaði á útlistun for-
sfjóra Lýsis hf. í útvarpi síðdegis
sl. þriðjudag. Ég fagna uppgangi
Lýsis og markaðsaukningu þess
i Asíu og víðar. Ég las hins veg-
ar í blaði nýlega að Lýsi seldi af-
urð sína að mestu óunna úr
landi og síðan væri unniö úr
henni og framleiðslan seld undir
merkjum hinna og þessara dreif-
ingar- eða framleiösluaðila.
Þetta finnst mér ekki nógu gott.
Ég tel að Lýsi hf. eigi að stefna
að því að selja sem mest undir
eigin merkjum Lýsis og þá um
leið „íslands-merkinu". Lýsi er
án efa ein þeirra vörutegunda
sem verðmætastar verða á er-
lendum mörkuðum á allra næstu
árum.
Þröngsýn fram-
kvæmdagleði
Grétar Þ. Hjaltason skrifar:
Eins og samanhrotið stígvél
er troðið hefur verið upp í bóka-
hillu milli öndvegisrita - lýsandi
dæmi um „þröngsýna fram-
kvæmdagleði“ í bókstaflegri
merkingu er hin nýja bygging
undir Hæstarétt, sem nú er að
mestu komin í ljós. En þessi
bygging er ekki það eina sem
fellur undir þröngsýni i fram-
kvæmdagleði. í Saurbæ í Dölum
vestur á að eyðileggja tún og
akra, því þar skal leggja veg að
Gilsfjarðarbrú. Ekki mátti taka á
sig 300 metra krók, því slíkt
hefði gert Vegagerð ríkisins
hlægilega! - Það sem er hlægi-
legt vestur í Dölum er það ekki í
Ártúnsbrekku í henni Reykja-
vík, en þar má framkvæma
þrengingar og kyrkingar við
vega- og brúagerð og þykir sjálf-
sagt.
Símaónæði af
bókasölu
Svanhildur hringdi:
Mér þykir skörin vera farin
að færast upp í bekkinn hjá
bókasölumönnum sem hringja
nú án afláts í heimahús og bjóða
bækur með vildarkjörum. Ónæð-
ið er orðið slikt að óviðunandi
er. Ég vona sannarlega að þeir
sem eru ábyrgir fyrir þessum
símhringingum sjái að sér og
láti þeim linna sem fyrst.
Engin óvild,
segir Ómar
Gunnar Ámason hringdi:
Ekki linnir fáránleikanum í
sambandi við Morgunblaðsaug-
lýsingæmar fyrir forsetafram-
boðið, þar sem nokkrir einstak-
lingar tóku sig til og upplýstu
þjóðina um Ólaf Ragnar Grims-
son i heilsíðuauglýsingum. Nú
segir einn þeirra, Ömar nokkur
Kristjánsson, að engin persónu-
leg óvild hafi staðið aö baki aug-
lýsingunni af sinni hálfu. Hann
óskar Ólafi Ragnari til hamingju
og segist hafa stutt pólitíska
kosningabaráttu Ólafs Ragnars.
- Nú bíður þjóðin bara eftir að
hinir „mektarmennirnir", sem
stóðu að auglýsingunni með
Ómari, skrifti líka.
Trýna týndist
í Grímsnesi
Guðlaug Guðmundsdóttir
skrifar:
Tíkin Trýna, sem er hvít og
brún english springer-spaniel -
með síð eyru og skottlaus - hef-
ur verið týnd í Grímsnesinu ffá
því föstudaginn 14. júní. Hún
hefur sést á svæðinu frá Stærri-
Bæ að Öndverðarnesi. Ef ein-
hver verður var við hana er
hann vinsamlega beðinn að hafa
samband við lögregluna á Sel-
fossi eða hringja í síma 565 4356
eða 852 4515.