Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1996, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1996, Page 13
FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1996 13 DV Fréttir Foreldrar skólabarna á Höfn kæra vegna skólamála: Bæjarstjórn kærö til félagsmálaráð- herra og umboðsmanns barna DV, Hornafirði: Foreldrar skólabama á Homa- firði hafa kært samþykktir bæjar- stjómar Hornaíjarðcir frá 21. mars 1996 um skipulag skólamála grunn- skólans á Homafiröi til umboðs- manns barna. Að þessari kæru standa 65 foreldrar barna á Höfn og Nesjum. Þeir hafa einnig sent kæru til fé- lagsmálaráðherra vegna afgreiðslu bæjarstjórnar Hornafjarðar á tillög- um um skólamál á fundum hennar 11. maí 1995 og 21. mars 1996. Gerð er krafa um að ákvarðanir verði ómerktar og bæjarstjórninni gert að taka málin upp að nýju. Ástæður kærunnar em þær að á þessum fundum voru mættir og tóku þátt í afgreiöslu bæjarfulltrú- amir Guðmundur Ingi Sigurbjöms- son, skólastjóri Heppuskóla, Álbert Eymundsson, skólastjóri Hafnar- skóla, og Sævar Kr. Jónsson, kenn- ari við Nesjaskóla. Telja kærendur að skv. 2. kafla stjómsýslulaga hafi þeim borið að víkja sæti við afgreiðslu málsins þar sem hún snertir störf þeirra sér- staklega. Með samþykktunum var verið að taka ákvarðanir um skóla- hald í þeim skólum sem þeir vinna við og veita forstöðu. Mikil óánægja er hjá foreldrum yngstu skólabamanna á Homafirði með þá ákvörðun bæjarstjómarinn- ar að breyta grunnskólahaldi á Höfn og Nesjum. Þessi ákvörðun vakti mikla og víðtæka óánægju meðal íbúanna og leiddi til undirskrifta- söfnunar þar sem lýst var yfir vilja til þess að grunnskólahald yrði með sama hætti og fyrr, þ.e. að 1. til 10. bekkur grunnskóla yrði áfram á Höfh og skólahald í Nesjaskóla yrði óbreytt. Undir þessa áskorun rituðu 540 íbúar nöfn sín, 480 á Höfn og 60 í Nesjum, og eru flestir þeirra for- eldrar bama í skólanum. Þá samþykktu foreldrafélög í Nesja- og Hafnarskóla ásamt kenn- urum við skólana mótmæli gegn þessum breytingum. Bæjarstjóm tók málið fyrir á ný og varð útkoman sú að aka skyldi með þijár yngstu bekkjardeildimar í Nesjaskóla. „Við teljum að ákvarðanir bæjar- stjómarinnar brjóti í bága við grunnreglur laga um rétt bama og séu ekki í samræmi við sáttmála Sameinuðu þjóðanna um rétt bams- ins. Því höfum við kært samþykktir bæjarstjórnarinnar á Hornafirði,“ Menn eru ekki á eitt sáttir um skólamál á Höfn. 65 foreldrar skólabarna hafa kært bæjaryfirvöld á staðnum. sagði foreldri á Homafirði. „Einnig viijum við benda á að hvorki hefur verið farið eftir óskum foreldra bamanna eða valin sú leið í skipan skólamála á Höfn sem þægilegust er og öruggust fyrir bömin, þvert á móti er verið að senda þau út og suður í önnur byggðahverfi í skóla.“ Að sögn foreldra verður skólinn ekki hluti af umhverfi bamanna og nágrenni ef þessi háttur er hafður á. „Þegar gengið var til kosninga um sameiningu þeirra þriggja sveit- arfélaga sem nú mynda Hornafjarð- arbæ var lögð áhersla á aö fara yrði varlega í allar breytingar í skóla- málum. Við munum beijast fyrir rétti bamanna okkar og því sem við vit- um að er þeim fyrir bestu.“ -JI/-SF Aukablað um SAUÐARKRÓK Miðvikudaginn 17. júlí mun veglegt aukablað um Sauðár- krók fylgja DV. í blaðinu verður einkum umfjöllun um afmælishá- tíðina sem stendur frá 20. júlí 1996 til 20. júlí 1997 en Sauðárkrókur fagnar á þessu ári og því næsta fernum tímamótum. Einnig verða viðtöl við forsvarsmenn fyrirtækja, ungt og gamalt afreksfólk tekið tali og stuttar og myndríkar mannlífslýsingar. Auglýsendum sem áhuga hafa á að auglýsa í þessu blaði er bent á að hafa samband við Guðna Geir Einarsson í síma 550 5722 eða Pál Stefánsson í síma 550 5726. Blaðamaður DV er Bjöm Jóhann Bjömsson. Vinsamlega athugið að síðasti skiladagur auglýsinga er fimmtudagurinn ll.júlí. Auglýsingar Sími 550 5000, bréfasími 550 5727. ehnfíÍVa" Sem WÓÖ- nofðmgium sæmir! sjá/fsðgðu á ísSu h 5200 °9 er hún að geisfednf SKb2IUfn'nni'800 Mb ha^k J0 APpJe-umboóió Skiphoíti 27 •Sími-511 r Heimasíba: httn-ÁJl'fj1*; 511 51 ^

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.