Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1996, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1996, Qupperneq 28
36 FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1996 Jóakim prins er víst alveg yndis- legur drengur. Yndislegur drengur „Það myndi svo ekki skaða aö hafa hann Jóakim litla á Bessa- stöðum, hann er yndislegur drengur." Berþóra Árnadóttir, um þá hug- mynd að ísland gangi aftur í kon- ungssamband við Dani, í DV. Ummæli Rússar ekki vélar „Við sjáum nú aö þjóð okkar er ekki hugsunarlausar vélar heldur siðmenntað fólk.“ Sergei Fílatov, einn af kosn- ingastjórum Jeltsíns Rússlandsfor- seta, eftir sigurinn í forsetakosn- ingunum, í DV. „Elegant" dama „Þótt Margrét Þórhildur sé svakalega „elegant" dama þá er ekki endilega víst að bömin henn- ar verði góðir fulltrúar okkar.“ Þórlaug Ágústsdóttir, formaður Fé- lags stjórnmálafræðinema, um Danadrottningu, í DV. Nóg af boðum „Við munum halda fleiri boð.“ Kolbrún Halldórsdóttir, ein af stuðningsmönnum Guðrúnar Agn- arsdóttur, en þeir ætla að hittast mikið í boðum á næstunni, í DV. Fólk hugsar sig um í mislang- an tíma áður en það giftir sig. Sumir stökkva beint út í hjóna- bandið stuttu eftir fyrstu kynni en aðrir taka sér mörg ár til að velta hlutunum fyrir sér frá öll- um hliðum. Lengsta trúlofum sem sögur fara af stóð í sextíu og sjö ár. Blessuð veröldin Octavio Gullen og Adriana Martinez frá Mexíkó trúlofuðu sig árið 1902. Það var svo ekki fyrr en árið 1969 að þau létu loks veröa af því að gifta sig en þá voru þau bæði 82 ára gömul. Það er ekki allir sem eru svo hikandi við hjónabandið. Ralph og Patsy Martin Arizona hafa gifst hvort öðra fimmtíu og einu sinni, í fyrsta skipti árið 1960. Vinsæll svaramaður Svo eru enn aðrir sem láta sér nægja að komast í brúökaups- veisluna og fá sér gómsæta tertu. Ting Ming Siong frá Malasíu ætti ekki að svelta. Honum hefur aldeilis verið boðið í margar veislur því að Siong hefur veriö svaramaður í hvorki fleiri né færri en 658 skipti. Vesalings Kalli prins hefði kannski átt að hugsa sig betur um áður en hann giftist Díönu. Bjartviðri vestanlands Norðaustur af Skotlandi er víð- áttumikil 994 mb lægð sem þokast heldur í austurátt og grynnist. Smá- lægðardrag er við austurströnd ís- lands en hæðarhryggur á Græn- Veðrið í dag landssundi og fyrir norðan land. Búist er við því að áfram verði norðan- og norðaustanátt á landinu, gola eða kaldi. Dálítil súld eða rign- ing verður norðaustan- og austan- lands, einkum framan af. Skýjað en úrkomulítið verður sunnanlands og bjart veður að mestu vestanlands. Á Norður- og Austurlandi verður 6 til 11 stiga hiti en sunnanlands og vest- an mun hiti komast upp í 13 til 15 stig yfir hádaginn. Sólarlag í Reykjavík: 23.49 Sólarupprás í Reykjavík: 3.16 Síðdegisflóð í Reykjavík: 21.56 Árdegisflóð á morgun: 10.24 Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri rigning 6 Akurnes rigning 9 Bergsstaóir skýjaó 6 Bolungarvík þokumóöa 6 Egilsstaðir súld 5 Keflavikurflugv. léttskýjaó 9 Kirkjubkl. skýjöa 10 Raufarhöfn alskýjaó 5 Reykjavík léttskýjaó 8 Stórhöfói skýjaö 8 Helsinki rigning 14 Kaupmannah. léttskýjaö 14 Ósló skúr 11 Stokkhólmur léttskýjaó 15 Þórshöfn skýjað 9 Amsterdam skýjaö 14 Barcelona þokumóöa 22 Chicago heiðskirt 17 Frankfurt skýjað 16 Glasgow skýjaó 11 Hamborg léttskýjað 14 London skýjaö 12 Los Angeles heiöskírt 21 Lúxemborg rigning 14 Mallorca heióskírt 20 París rigning og súld 14 Róm þokumóða 21 Valencia þokukmóóa 21 New York skýjaö 21 Nuuk þokuruöningur 2 Vín þoka 16 Washington heióskírt 20 Winnipeg léttskýjaö 23 Þorfinnur Ómarsson fréttamaður: Bíð spenntur Þorfinnur Ómarsson fréttamað- ur hefur verið ráðinn fram- kvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs. Hann tekur við því starfi i haust. „Kvikmyndasjóður er lítil stofn- un en það fer ansi margt fram þar innandyra. Meira en kannski margir halda. Aðalhlutverk sjóðs- ins er auðvitað aö styrkja islensk- ar kvikmyndir, veita styrki til framleiðslu á íslenskum kvik- Maður dagsins myndum. Úthlutanir á þessum styrkjum era aö vísu ekki á veg- um framkvæmdastjóra. Starflð snýst ekki um það að ég taki upp tékkheftið og veiti styrki til hægri og vinstri heldur þarf ég að annast daglegan rekstur sjóðsins og vera talsmaður hans. Ég bíð spenntur eftir því að takast á við þetta í haust. Engu að síður kveð ég Sjónvarpið með Þorfinnur Ómarsson. miklum söknuði. Það togaðist mjög á í mér hvort ég ætti yfir höf- uð að sækja um þetta starf. Ég ætl- aði mér ekki að hætta hjá Sjón- varpinu og var farinn að horfa fram á drjúgan tíma hérna á fréttastofunni. Þetta var erfið ákvörðun. Ég hef verið í fréttamennsku í nær tíu ár, byrjaði einmitt á að skrifa um kvikmyndir í Helgar- póstinn 1986. Síðan var ég blaða- maður og kvikmyndagagnrýnandi á Þjóðviljanum ’88 og ’89. í milli- tíðinni var ég kennari við Mennta- skólann í Hamrahlíð ’87 til ’88. Ég var í Montpellier í frönskunámi 1990 og haustið ’90 flutti ég til Par- ísar og var þar í fjölmiðlafræði- námi á tveimur stigum. Á meðan ég var erlendis var ég líka frétta- ritari fyrir sjónvarp og útvarp." Þorfinnur lauk framhaldsnámi í París 1993 og flutti þá heim. Hann hefur unnið hjá Sjónvarpinu síð- an. „Ég er giftur Önnu Karen Hauksdóttur sem er verðbréfasali. Við eigum tvo stráka, Hinrik Öm, sjö ára, og Rúrik Andra, fjögurra ára. Myndgátan Lausn á gátu nr. 1552: Veldur vatnaskilum. Myndgátan hér að ofan lýsir lýsingarorði. Það má búast við mikilli baráttu í kvennaboltanum í kvöld. Fjör í kvenna- boltanum í kvöld verður aldeilis fjör í kvennaknattspyrnunni. Fjórir spennandi leikir verða leiknir. Breiðablik, efsta lið deildar- innar, tekur á móti ÍBA sem er um miðja deild. Blikastúlkur hafa verið í banastuði að undan- förnu og hafa þær unnið alla sína leiki í deildinni til þessa. Þá keppa Skagastúlkur, sem íþróttir eru í öðru sæti, við Val, sem er i þriðja sæti, og verður það eflaust stórleikur og hart barist. Stúlkurnar úr Eyjum taka á móti Stjömunni en bæði liðin eru í neðri hluta deildarinnar. Að lokum eigast við KR, sem er um miðja deild, og Afturelding sem er í neðsta sætinu. Allir leikirnir heljast klukkan 20. Bridge Madeleine Swanström í sænska kvennaliðinu sem varð Norður- landameistari í síðustu viku sýndi góða spilatækni í þessu spili í leik fyrri umferðarinnar gegn Dönum. Sagnir enduðu í 4 hjörtum í norður á báðum borðum og spilamennskan þróaðist eins í upphafi. Útspilið var það sama, tígulsjöan sem vestur drap á ás og skipt yfir í lauf. Báðir sagnhafar drápu á ásinn en síðan skildi leiðir: ♦ KD9532 V Á643 ♦ P 4 AG 4 Á6 * D82 4- Ág * D109653 ♦ 10 * KG95 * K108432 * 87 Danski sagnhafinn spilaði næst hjartaásnum, hjarta á kóng og henti laufi í tígulkónginn. Siðan kom spaðatían úr blindum. Vestur drap á spaðaás, tók slag á hjartadrottn- ingu og spilaði laufi. Þar með var búið að eyða innkomunum á hendi sagnhcifa og þegar spaðinn féll ekki 3-3, var spilið einn niður. Swan- ström var forsjálli í útspilinu. í þriðja slag spilaði hún hjarta á kóng, henti laufi í tígulkónginn og spilaði spaðatíunni. Vestur drap á ásinn og gat þvingað norður til að trompa lauf, en það gagnaði vöm- inni ekkert. Lítill spaði var tromp- aður í blindum, hjarta spilað á ás og spöðum spilað ofan frá. Vestur fékk slag á trompdrottningu, en tromp- sexan var nauðsynleg innkoma i frí- spaðana. Sviarnir græddu því 10 impa á spilinu og leikinn unnu þær 21-9. ísak Öm Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.