Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1996, Blaðsíða 10
10
MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ 1996
Fréttir
Fyrirvaralaus uppsögn bæjartæknifræðings í Mosfellsbæ:
Ekki sæmandi fyrir bæjar-
stjórn aö hegða sér svona
- segir bæjarfulltrúi og fyrrum bæjarstjóri sem sagt hefur af sér nefndarsetu
Meirihluti bæjarstjómar Mos-
fellsbæjar samþykkti á síðasta fundi
sínum fyrir sumarleyfi að segja bæj-
artæknifræðingnum, Jóni H. Ás-
bjömssyni, upp störfum. Jón hætti
störfum sama dag og honum var
sagt upp.
í kjölfarið sagði svo Róbert B.
Agnarsson bæjarfulltrúi og
fyrrverandi bæjarstjóri sig úr
stjórnsýslunefnd en hann hefur set-
ið í henni frá upphafi.
„Það er ljóst að gengið var mjög
hart fram í þessu og ekki rætt við
manninn heldur fær hann bara
spark. Þetta er maður sem búinn er
að þjóna bæjarfélaginu dyggilega í
15 ár. Engar ávirðingar hafa komið
fram á hans störf. Hann á að
minnsta kosti rétt á því að vita hvað
menn hafa að athuga við hans störf
og svara fyrir sig,“ segir Róbert.
Meirihlutinn segir þetta vera lið í
þeirri endurskipulagningu sem far-
ið hefur fram á stjórnsýslu bæjarins
upp á síðkastið en minnihluti D-list-
ans er mjög ósáttur við afgreiðsluna
á málinu. Með mótatkvæðum þeirra
fylgdi bókun þess efnis að þeir vildu
mótmæla vinnubrögðum meirihlut-
ans varðandi uppsögn bæjartækni-
fræðings.
„Bæjarstjórn er í stjórnskipulags-
vinnu sem allir eru mjög jákvæðir
fyrir. Verið er að gera tilraunir með
breytingar á stjórnskipulagi sem
eru til þess fallnar að gera kerfið
skilvirkara svo það þjóni betur íbú-
um bæjarins. Meirihlutinn er hins
vegar að blanda saman þeirri vinnu
á frumstigi og uppsögnum lykilem-
bættismanna," segir Róbert.
„Þá er mjög sérkennilegt að menn
skuli velja þennan tíma til að segja
upp bæjartæknifræðingi, sem er
æðsti stjórnandi allra framkvæmda
í bæjarfélaginu, þegar þær eru rétt
að hefjast. Mér finnst þetta ófær
vinnubrögð. í mínum huga var
þetta gjörsamlega ótímabær upp-
sögn og vinnubrögðin fyrir neðan
allar hellur. Það er ekki sæmandi
fyrir bæjarstjórn að hegða sér svona
gagnvart starfsmönnum bæjarins."
-SF
Sameining sveitarfélaga i Suöur-Þingeyjarsýslu:
Tveir þriðju
vilja viðræður
DV, Húsavík
Viðhorfskönnun um sameiningu
sveitarfélaga í Suður-Þingeyjarsýslu
fór fram samhliða forsetakosning-
sögðu já, 631 sagði nei og auðir og
ógildir seðlar voru 91. Heildarþátt-
taka var um 63 prósent. Spurt var:
Ert þú fylgjandi að þin sveitarstjórn
taki upp viðræður um sameiningu
unum. Á kjörskrá voru 3089 manns. 1242 við önnur sveitarfélög? j -AGA
Á kjörskrá Þátttaka Já Já% Nei Nei%
Húsavíkurkaupstaður 1745 1040 736 73,5 266 26,5
Aðaldælahreppur 233 167 105 65,6 55 34,4
Skútustaðahreppur 344 211 123 60,0 79 39,1
Reykdælahreppur 220 144 67 51,1 64 48,9
Bárðdælahreppur 108 71 30 44,8 37 55,2
Ljósavatnshreppur 172 126 77 64,7 42 35,3
Tjörneshreppur 62 50 22 44,0 28 56,0
Reykjahreppur 75 53 38 73,1 14 26,9
Hálshreppur 130 102 44 48,9 46 51,1
Akranes:
„Ég held að ég geti nánast fullyrt að þetta sé eina kvikmyndahúsið í heiminum sem er með gallerí í anddyrinu," seg-
ir Helga Hilmarsdóttir en í anddyri Regnbogans er sýning á átta stórum myndum listamannsins Tolla. Sýningin er
liður á Listahátíð og var reyndar fyrsta atriðið sem opnaði eftir að Listahátíð var sett. Helga segir að galleríið leggi
áherslu á að sýna stórar myndir því að þar sé mesta lofthæð í sýningarsal hérlendis auk þess sem þar séu borð og
stólar og því minni stemmningin svolítið á kaffihús á suðrænni slóðum. DV-mynd Pjetur
Reykjavík:
Sigurður skipaður héraðsdómari
Gestum í Byggða-
safninu fjölgar
DV, Akranesi
Hinn 29. apríl sl. rann út umsókn-
arfrestur um embætti dómara við
Héraðsdóm Reykjavíkur og bárust
17 umsóknir. 22. maí sl. skipaði for-
seti íslands, Vigdís Finnbogadóttir,
að tillögu dóms- og kirkjumálaráð-
herra, Sigurð Tómas Magnússon,
skrifstofustjóra, í embættið. -RR
Gestum í Byggðasafninu í Görð-
um á Akranesi fer fjölgandi enda er
safnið meðal stærstu og veglegustu
byggðasafna landsins og nýtur vax-
andi vinsælda sem áningarstaður
ferðamanna. Á síðasta ári sótti 2.271
gestur safnið á tímabilinu 1. janúar
til 15. júní en á sama tíma á þessu
ári voru þeir 2.984 sem er 24% aukn-
ing milli ára. -DÓ
Reykjanesbær:
Fataverslun í nýtt húsnæði
DV, Suðurnesjum
„Okkur líður alveg stórvel og það
er æðislegt að búa hér í gamla bæn-
um. Við hefðum aldrei trúað því
hvað það er rólegt hérna og hvað
það er virkilega skemmtilegt að
geta verið með verslunina í sama
húsnæði og þvi sem við búum í,“
sögðu hjónin Ágústa Jónsdóttir og
Guðmundur Reynisson sem reka
eina vinsælustu fataverslunina á
Suðurnesjum, Persónu í Keflavík en
hana hafa þau rekið I átta ár í leigu-
húsnæði. Ágústa og Guðmundur
áttu fallegt einbýlishús í Njarðvík
en seldu það og keyptu í staðinn
gamalt hús á þremur hæðum í
gamla hverfinu, miðbænum í Kefla-
vík. Með kaupunum ákváðu þau að
flytja verslunina á neðstu hæðina
og hefur því verið tekið mjög vel.
Verslunin er komin í framtíðarhús-
næði og var húsnæðið allt innréttað
á sem glæsilegastan hátt. Húsið var
tekið í gegn frá grunni, innan dyra
sem utan og hefur það, eftir fram-
kvæmdirnar, sett skemmtilegan
svip á gamla bæinn. Risinu var lyft
og er húsið því um 260 fermetrar að
stærð. Að sögn nágranna þeirra
hjóna, sem DV talaði við, eru ibúar
í hverfinu mjög ánægðir með fram-
tak þeirra hjóna.
„Það er búið að snyrta og laga
húsin hér í kringum okkur þannig
að það er mjög snyrtilegt og fallegt
hér í kring. Við höfum alltaf búið í
Njarðvík en erum ekki síður ánægð
að vera komin hingað," sögðu
Ágústa og Guðmundur.
Ágústa er landsþekkt persóna,
hún hefur verið umsjónarmaður
fegurðarsamkeppni Suðurnesja í
mörg ár og setið í dómnefnd þegar
kjör fegurðardrottingar íslands fer
fram. Guðmundur hefur samið
nokkur lög og er flinkur með gítar-
inn. -ÆMK
Eigendur Persónu á nýja staðnum sem er hinn glæsilegasti.
DV-mynd ÆMK
• |