Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1996, Blaðsíða 32
44
MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ 1996
Bent Scheving Thorsteinsson
Flytur til
Flórída
„Ég er búinn að kaupa mér
hús í Orlando í Flórída svo að ég
ætla að hafa langt bil á milli mín
og þessara manna.“
Bent Scheving Thorsteinsson sem átt
hefur í deilum við nágranna sína í fjöl-
býlishúsi í Reykjavík, í DV.
Ummæli
Allt falt
„Það er náttúrulega allt falt
fyrir peninga. Það yrði þá líka
að vera vel boðið.“
Kristinn Ólafsson, starfsmaður Land-
mælinga um hvort hann muni vinna hjá
stofnuninni eftir flutning hennar upp á
Skaga, í Morgunblaðinu.
Fer hvergi
„Ég fer ekki upp á Skaga.“
Guðný Birna Rosenkjær, starfsmaður
Landmælinga, í Morgunblaðinu.
Jeltsín ekki
Súperman
„Hann er ekkert ofurmenni.
Hann er maður eins og allir hin-
ir.“
Naína Jeltsín um hinn ótrúlega sigur-
sæla eiginmann sinn, í DV.
Mozart.
Tímabær
leiðrétting
Mannskepnunni finnst ynrleitt
lítt gaman að viðurkenna mistök
sin. Stofnanir og fyrirtæki eru svo
enn þá tregari en einstaklingar að
viðurkenna að þau hafl haft rangt
fyrir sér.
Það tók til dæmis breska blaðið
Observer 199 ár og 27 daga að leið-
rétta frétt sína af dauða Wolfgangs
Amadeusar Mosarts. Þann 20. janú-
ar árið 1991 birti Observer afsökun-
arbeiðni vegna ónákvæmnar frétt-
ar af dauða tónskáldsins. Uppruna-
lega fréttin hafði haldið því fram að
Mozart væri Þjóöverji og hefði dáið
þann 15. desember 1791. í leiðrétt-
ingunni stóð: „Við getum nú stað-
fest að tónskáldið lést þann 5. des-
ember og var Austurríkismaður.
Við biðjum fjölskyldu hans afsök-
unar á þeim óþægindum sem frétt
okkar hefur valdið."
Blessuð veröldin
Rólyndir lesendur
Lesendur hinna finni bresku
blaða eru yfirleitt rólynt fólk svo að
kannski kom þessi tilkynning þeim
ekki svo mjög á óvart. Allavega hef-
ur konunni frá Fiji-eyjum, sem
skilaði inn árið 1966 lausn að kross-
gátu Times frá árinu 1932, örugg-
lega ekki brugðið mikið við leið-
réttingu Observermanna.
Veðrið í dag:
Hlýjast norðaustanlands
Um 400 km suðvestur af Reykja-
nesi er 1002 mb lægð sem þokast
austnorðaustur.
í dag er búist við sunnan- og suð-
austangolu eða kalda. Rigning eða
Veðrið í dag
súld verður með köflum sunnan- og
vestanlands en þurrt að mestu á
Norðausturlandi. Hiti verður á bil-
ínu 10 til 18 stig, hlýjast norðaustan-
lands.
Á höfuðborgarsvæðinu má búast
við hægri, breytilegri átt á morgun
og rigning eða súld verður öðru
hverju. Hiti verður á bilinu 9 til 13
stig.
Sólarlag í Reykjavík: 23.42
Sólarupprás á morgun: 3.24
Síðdegisflóð í Reykjavík: 24.52
Árdegisflóð á morgun: 12.22
Veðrið kl. 12 á hádegi í gær:
Akureyri skýjað 12
Akurnes úrkoma í grennd 12
Bergsstaöir úrkoma í grennd 11
Bolungarvík alskýjað 11
Egilsstaðir léttskýjað 16
Keflavíkurflugv. rigning 11
Kirkjubkl. skýjað 14
Raufarhöfn léttskýjað 10
Reykjavík súld á sið. klst. 11
Stórhöföi skýjað 12
Helsinki skýjað 17
Kaupmannah. skýjað 15
Ósló skruggur 18
Stokkhólmur skýjað 18
Þórshöfn hálfskýjað 10
Amsterdam skúr á síð. kls. 15
Barcelona skýjað 25
Chicago heiðskírt 23
Frankfurt skýjað 16
Glasgow léttskýjað 16
Hamborg hálfskýjaö 18
London léttskýjað 18
Los Angeles þokumóða 16
Lúxemborg skýjað 16
Madríd skýjað 23
Mallorca léttskýjað 29
París rigning 17
Róm léttskýjað 27
Valencia léttskýjað 30
New York heiðskirt 22
Nuuk þoka í grennd 2
Vin skýjaö 21
Washington þokumóða 24
Winnipeg skýjað 14
Alexander Guðmundsson smyrjari
Krakkinn bara
fæddist
Alexander Guðmundsson varð
aldeilis fyrir skemmtilegri lífs-
reynslu á fostudaginn. Kona hans,
Brynja Dögg Ingólfsdóttir, fæddi
þá dóttur á fremur óvenjulegum
stað. Þau hjónin voru á leið á fæð-
ingardeildina þegar Brynja ól
barnið í stigaganginum í fjölbýlis-
húsinu sem þau búa í í Breiðholti.
Maður dagsins
„Það bara fæddist krakkinn.
Við vöknuðum klukkan fimm. Þá
var hún komin með hríðir. Við
byrjuðum að taka okkur saman og
hringdum niður eftir. Ég fór í föt-
in og við ætluðum að fara að
leggja af stað.
Hún var lögð af stað niður stig-
ann þegar hausinn á krakkanum
kom bara út. Þá fór hún aftur
Alexander Guðmundsson
hingað upp og við hringdum á
sjúkrabílinn,“sagði Alexander.
Hann tók svo á móti barninu í
íbúðinni áður en sjúkraliðar
komu á vettvang og fluttu Brynju
upp á fæðingardeild.
„Ég ætlaði bara að fara að
keyra hana út eftir. Það munaði
ekki miklu að maður hefði bara
verið í bílnum einhvers staðar á
leiðinni.“
Alexander hefur unnið hjá
Landhelgisgæslunni frá áramót-
um en Brynja er að læra til þjóns.
Þetta er annað barn þeirra. Þau
eiga einnig Erlu Ösp sem er eins
og hálfs árs.
Bæði móður og barni líður vel
og segja læknar að fæðingin hafi
veriö með eðlilegasta móti:
„Þær eru mjög hressar. Þetta
var ekkert mál,“ segir Alexander
Guðmundsson.
Framarar ætla sér eflaust að
gera betur í kvöld en í bikarnum
á móti Skagamönnum.
Fjórir
leikir í
2. deild
Fjórir leikir verða háðir í
annarri deildinni í kvöld. Skalla-
grimur tekúr á móti Þrótti frá
Reykjavik sem er í fjórða sæti en
þeim Borgnesingum hefur geng-
ið ótrúlega vel að undanförnu og
eru þeir í efsta sæti deildarinn-
ar.
Þá tekur KA á móti Völsungi
en bæði þessi lið eru um miðja
deild.
Iþróttir
Fram sem er í öðru sæti deild-
arinnar og ætlar sér örugglega
aftur upp í þá fyrstu tekur á
móti Þórsurum.
Þá taka Víkingar á móti
Leikni en bæði liðin eru við botn
deildarinnar.
Allir leikimir hefjast klukkan
20.
Bridge
Litlu munaði að Færeyingar fengju
tvöfalda úttektarsveiflu i þessu spili í
leik sínum gegn Svíum í síöari umferð
Norðurlandamótsins í bridge. Það var
eingöngu klaufaskap sagnhafa að
kenna að það tókst ekki. Sagnir gengu
þannig í opnum sal, vestur gjafari og
allir á hættu:
* ÁD9
V G96
♦ 43
A AG832
* 863
D1084
■f ÁD986
4 G107542
V 2
4- K5
* KD97
Vestur Norður Austur Suður
Lindqv. Ámi D. LindbergMarner
pass 1* 1» 1*
3* pass 4* 4«
pass pass pass pass
Færeyingarnir stálu þarna satnningn-
um af Svíunum og vestur hóf vörnina
með því að spila hjartaáttunni út. Gör-
an Lindberg drap á kónginn og spilaði
laufi sem Mamer drap á kónginn
heima. Marner svínaði núna spaða,
Lindberg drap á kónginn, gaf félaga
sínum stungu í laufí og vömin fékk
síðar slag á tígulásinn. Marner gat
ekki séð að spaðakóngurinn væri ein-
spil en rétt spilamennska var eigi að
' síður sú að spila spaða á ás þvi sagn-
hafi gat ekki tapað á þeirri spila-
mennsku. Bæði tigull og lauf frá
austri vom yfirvofandi en það var allt
í lagi að vestur væri inni. Ef vestur
átti spaðakónginn fengi sagnhafi samt
10 slagi á svörtu litina og þess vegna
óhætt að hafna svíningunni. Til allrar
hamingju fyrir Marner náðu Bogi
Simonsen og Hedin Mouritsen að segja
sig alla leið upp í fimm hjörtu á hinu
borðinu sem að auki voru dobluð.
Þeim samningi var ekki hægt að
hnekkja og Færeyingar græddu 13
impa á spilinu. Gróðinn hefði hins
vegar ekki verið nema 16 impar ef
Marner heföi unnið 4 spaða.
ísak Örn Sigurðsson