Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1996, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1996, Blaðsíða 13
 MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ 1996 Fréttir Rútufyrirtækið Allrahanda: Annast akstur fyrir Varnarliðið DV, Suðurnesjum: Rútufyrirtækið Allrahanda var með lægsta tilboðið í akstur skóla- bifreiða og strætisvagna varnarliðs- ins á Keflavíkurflugvelli. Tilboð fyr- irtækisins hljóðaði upp á rúmar 19 milljónir. Starfsmenn Drifleiða, sem unnið höfðu sem verktakar eftir að þeim var sagt upp störfum, buðu tæpar 30 milljónir. Kostnaðaráætlun vamar- liðsins hljóðaði upp á 25 milljópnir. Samningurinn tók gildi 1. júli og er til eins árs með möguleika á áfram- haldandi framlengingu. í tilboðinu var einungis um að ræða starfsmenn á bíla varnarliðs- ins sem verða notaðir í aksturinn eins og verið hefur. -ÆM Eyfirskar konur: Gáfu tæpar þrjár milljónir Aðalfundur Sambands eyfirskra kvenna var haldinn fyrir skömmu á Húsabakka í Svarfaðardal og sóttu hann rúmlega þrjátíu konur af Eyja- fjarðarsvæðinu. Innan vébanda sambandsins eru nú tíu kvenfélög og störfuðu 417 konur í þeim á síð- asta ári. Fjárveitingar þeirra til líknar- og menningarmála voru tæpar þrjár milljónir króna þannig að hver þessara kvenna lagði að meðaltali fram tæpar sjö þúsund krónur til málanna i gegnum félags- starfið. Formannaskipti urðu á fundin- um. Guðbjörg Ragnarsdóttir lét af formennsku en við tók Svana Hall- dórsdóttir. Aðrar konur í stjóm eru Olga Ágústsdóttir og Kristjana Sig- urjónsdóttir. -gdt Frá aðalfundi Sambands eyfirskra kvenna 1996. Formaðurinn, Guðbjörg Ragnarsdóttir, í ræðustól. I PHILIPS SANYO Láttu myndavéia- lagerinneða atvinnuhúsnæðið * /f, traustur búnaður Heimilistæki hf TÆKNI-OG TÖLVUDEILD SÆTÚNI 8 SÍMI 5691500 Verð aðeins frá 849.000 kr. Verð aðeins 695.000 kr. án vsk. 1300 cc véi, styrktarbitar í hliðarhurðum, höfuðpúðar í fram- og aftursætum, barnalæsingar. Skoda Felicia # Þýsk gæði - frábært verð bqfur M 1 94 * -1 99i Nýbýlavegur 2 Sími: 554 2600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.