Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1996, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ 1996
Fréttir
Rútufyrirtækið Allrahanda:
Annast akstur
fyrir Varnarliðið
DV, Suðurnesjum:
Rútufyrirtækið Allrahanda var
með lægsta tilboðið í akstur skóla-
bifreiða og strætisvagna varnarliðs-
ins á Keflavíkurflugvelli. Tilboð fyr-
irtækisins hljóðaði upp á rúmar 19
milljónir.
Starfsmenn Drifleiða, sem unnið
höfðu sem verktakar eftir að þeim
var sagt upp störfum, buðu tæpar 30
milljónir. Kostnaðaráætlun vamar-
liðsins hljóðaði upp á 25 milljópnir.
Samningurinn tók gildi 1. júli og er
til eins árs með möguleika á áfram-
haldandi framlengingu.
í tilboðinu var einungis um að
ræða starfsmenn á bíla varnarliðs-
ins sem verða notaðir í aksturinn
eins og verið hefur. -ÆM
Eyfirskar konur:
Gáfu tæpar
þrjár milljónir
Aðalfundur Sambands eyfirskra
kvenna var haldinn fyrir skömmu á
Húsabakka í Svarfaðardal og sóttu
hann rúmlega þrjátíu konur af Eyja-
fjarðarsvæðinu. Innan vébanda
sambandsins eru nú tíu kvenfélög
og störfuðu 417 konur í þeim á síð-
asta ári. Fjárveitingar þeirra til
líknar- og menningarmála voru
tæpar þrjár milljónir króna þannig
að hver þessara kvenna lagði að
meðaltali fram tæpar sjö þúsund
krónur til málanna i gegnum félags-
starfið.
Formannaskipti urðu á fundin-
um. Guðbjörg Ragnarsdóttir lét af
formennsku en við tók Svana Hall-
dórsdóttir. Aðrar konur í stjóm eru
Olga Ágústsdóttir og Kristjana Sig-
urjónsdóttir. -gdt
Frá aðalfundi Sambands eyfirskra kvenna 1996. Formaðurinn, Guðbjörg
Ragnarsdóttir, í ræðustól.
I
PHILIPS SANYO
Láttu myndavéia-
lagerinneða
atvinnuhúsnæðið
*
/f, traustur búnaður
Heimilistæki hf
TÆKNI-OG TÖLVUDEILD
SÆTÚNI 8 SÍMI 5691500
Verð aðeins frá 849.000 kr.
Verð aðeins 695.000 kr. án vsk.
1300 cc véi, styrktarbitar í hliðarhurðum, höfuðpúðar í fram- og aftursætum, barnalæsingar.
Skoda Felicia #
Þýsk gæði - frábært verð bqfur
M 1 94 * -1 99i
Nýbýlavegur 2
Sími: 554 2600