Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1996, Blaðsíða 12
12
MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ 1996
Spurningin
Hver er uppáhaldsflíkin þín?
Lesendur
Dýrir myndu fleiri eftirlaunaforsetar
Hallgrímur Jónsson skrifar:
Ég ætlaði ekki að trúa mínum
eigin augum er ég las frétt í Alþýðu-
blaðinu um að ríkisstjórnin hefði
samþykkt aukagreiðslu til væntan-
legs eftirlaunaforseta, Vigdísar
Finnbogadóttur, upp á eina milljón
króna. Og þetta á að hafa „komið
upp“ í samtölum forsetaritara og þá
væntanlega ráðuneytisstjóra forsæt-
isráðuneytis, eins og haft er eftir
ráðuneytisstjóranum í blaðinu. -
Komið upp, hvernig í andsk ...?
Frú Vigdís telur sig þurfa á skrif-
stofuaðstöðu að halda svo og aðstoð
starfsmanna forsætisráðuneytisins.
Ráðnuneytisstjórinn í forsætisráðu-
neytinu segir „forseta nútímans"
sinna alþjóðlegum erindum í mun
ríkari mæli en áður og svo væri
einnig um fráfarandi forseta. Væri
ekki jafn gott að stofna til varafor-
setaembættis eins og að þurfa að
kyngja þessum fáránlegu tilbúnu
röksemdum fyrir óhófseyðslu í
hreint ekki neitt?
í fréttinni um málið segir að rík-
isstjórnin hafi samþykkt nýverið að
fráfarandi forseti fengi skrifstofuað-
stöðu og ritara á kostnað ríkissjóðs.
Ég spyr: Hver fór fram á þetta sam-
þykki ríkisstjórnarinnar? Er fráfar-
andi forseta ekki nóg að fara i utan-
landsferðir sínar til fyrirlestrahalds
sem hann hlýtur að fá greitt fyrir
eins og aðrir fyrirlesarar? Þarf ís-
lenska ríkið að kosta þessar ferðir
sérstaklega? Og hefur ekki forseta-
embættið farið árlega fram úr fjár-
lögum fyrir æðsta embættið? Gott
hjá Þorsteini Pálssyni hafi hann
lagst gegn þessum nýja ófógnuði. En
eitt er víst; þjóðin samþykkir ekki
svona nokkuð. Nú er nóg komið.
Sigurður Björgvin Hilmarsson,
vinnur í Iðnskólanum: Sólgleraug-
un min.
Magnús Oskar Magnússon, vinn-
ur líka í Iðnskólanum: Leðurjakk-
inn minn.
Haraldur Gunnar Óskarsson:
„Fila“ strigaskórnir mínir.
Hilmar Már Gunnarsson, nemi:
„Levi’s" gallabuxurnar mínar.
Eyþór Ólafsson, nemi: „Dickies"
buxumar mínar.
Nýr vettvangur
fráfarandi forseta
- mótleikur gegn Ólafi Ragnari?
í konungssamband við Dani
Magnús Sigurðsson hringdi:
Ég var að lesa í DV ummæli
tveggja kvenna þar sem þær svöruðu
spurningunni um það hvort við ætt-
um að gerast konungsþegnar á ný.
Og þá viö Dani. - Þær voru að sjálf-
sögðu á öndverðri skoðun eins og
dálkurinn „Með og á móti“ ber með
sér. Taldi önnur konan (Bergþóra
Árnadóttir) það hafa verið mistök að
skilja að fullu við Dani á sínum
tíma, árið 1944, og færði ágæt rök
fyrir máli sínu. Sagði að t.d. stæðum
við betur að vígi markaðslega.
Ingveldur Sigurðardóttir skrifar:
Nú gerast hlutimir hratt. Fljótt
og örugglega er hafist handa við að
íjarlægja embætti nýs forseta ís-
lands frá sviðsljósinu. Staðreynd er
að ákveðinn hópur manna ætlar
engan veginn að sætta sig við kosn-
ingu Ólafs Ragnars Grímssonar í
embætti forseta íslands. Þess vegna
er m.a sú ákvörðun tekin í skynd-
ingu um að kaupa húsið á Sóleyjar-
götunni til að gera næsta forseta
sem mest óvirkan í hringiðunni í
Stjórnarráðshúsinu. - Þess vegna er
skyndilega tekin um það ákvörðun
að gera fráfarandi forseta, frú Vig-
dísi, að eins konar varaskeifu, ígildi
varaforseta að því er varðar ýmis
samskipti sem frú Vigdís er sögð
þurfa að sinna, þótt hún sé ekki
lengur forseti.
Og auðvitað er frú Vigdís ekki
lengur forseti eftir 1. ágúst nk. Hún
er - eins og fyrrverandi forsetar -
hætt störfum fyrir íslenska rikið.
Það hefur hins vegar tíðkast óeðli-
lega mikið að eldri starfsmenn
ráðuneyta, t.d. ráðuneytisstjórar,
hafi fengið að malla eitthvað áfram
vegna einskærrar frekju þeirra til
aukaverka gegn greiðslu. Þetta ætti
fyrrverandi forseti ekki að láta
henda sig, svo virt sem hún hefur
verið lengst af sínum embættisferli.
En enginn má við ofureflinu,
hvort sem það kemur innan frá eða
utan. Og vist er um það að einhverj-
um hentar einmitt nú að frú Vigdís
sé hálfgildings forseti áfram þegar
Ólafur Ragnar tekur við embætti.
Það má t.d. reikna með að er boð
berst erlendis frá um að nærveru
Verður hlutverk frú Vigdísar fyrrverandi forseta að vera ígildi varaforseta -
eða a.m.k. farandforseta - eins og einhver orðaði það um þann sem hlaut
endanlega kosningu til forseta íslands?
háttsettrar íslenskrar persónu sé
óskað við eitthvert opinbert tæki-
færið, þá verði bent á fyrrverandi
forseta okkar til fararinnar.
Allt er þetta í kringum embætti
forseta íslands fyrrverandi með ein-
dæmum og flóknara en svo að al-
menningur átti sig í raun hvað að
baki býr. En ekki er það einleikið
að hvort tveggja beri upp á svo að
segja sama daginn: kaupin á sér-
stöku skrifstofuhúsnæði fyrir for-
setaembættið og ákvörðun stjórn-
valda að greiða fyrrverandi forseta
allt að milljón árlega í ferðakostnað
fyrir einkaheimsóknir til útlanda. -
Engan undrar þótt dómsmálaráð-
herra gæti ekki kyngt öllu þessu
mótmælalaust.
[LÍiÍRSÍM þjónusta
allan
Hin konan, Þórlaug Ágústsdóttir,
taldi konungssambandi við Dani
allt til foráttu. Við myndum þá
þurfa að hafa herskyldu eins og
þeir, konungssambandið myndi
breyta allri okkar ímynd, við mynd-
um missa þjóðargersemar úr landi,
o.fl., o.fl.
Ég er mjög meðmæltur endurnýj-
uðu konungssambandi, annaðhvort
við Dani eða þá Norðmenn sem eru
nú ein auðugasta þjóð heimsins.
Mér finnst engin eftirsjá í neinu
sem við höfum nú. Staðreynd er að
þjóðin er að sligast undan sjálfri
sér, vafasamt að hún nái sér upp
aftur af sjálfsdáðum.
skilja við Dani árið 1944?
DV
Kaldhæðni
Vikublaðsins
Guðni hringdi:
í Vikublaðinu hinn 28. júní sl.
- þessu nýja málgagni sósialista
og eins konar aiftaka Þjóðviljans
- mátti sjá á forsíðu andlitsmynd
af Guðrúnu Katrínu, konu Ólafs
Ragnars Grímssonar, með eftir-
farandi texta: „Á morgun velur
þjóðin fimmta forseta lýðveldis-
ins. Vikublaðið vekur athygli á
að eiginmaöur Guðrúnar Katrín-
ar Þorbergsdóttur er í framboði
en hann heitir Ólafur Ragnar
Grímsson."
Þetta er kaldhæðni í hæsta
lagi gagnvart fyrrv. formanni Al-
þýðubandalagsins. Vikublaðið
lætur sér nægja að benda á Ólaf
í framhjáhlaupi en dregur fram
mynd af konu hans á yngri árum
til birtingar - einsamalli.
Hlæi sá sem
hlæja vill
Kristjana hringdi:
Ég vil mótmæla bréfi Ingu í
DV þriðjud. 2. júli sl. um „hjá-
kátleg bílnúmer". Mér finnst í
fyrsta lagi þessi nýju einkanúm-
er lífga upp á bílinn og þetta er
mál hvers og eins og það hlýtur
hver og einn að hafa sína ástæðu
fyrir því að vilja hafa sín númer.
Hlæi þvi hver sem hlæja vill en
mér finnst nýju bílnúmerin
hreint frábær tilbreyting.
Nefndafargani
verður að linna
Sveinbjöm hringdi:
Er ekki kominn tími til að
hægja á ferðinni? Þarf alltaf að
skipa nefnd til hvers og eins sem
alþingismenn brydda upp á? Á
vegum núverandi ríkisstjómar
eru sagðar vera um 160 nefndir
og fæstar hafa lokið störfum!
Þessu nefndafargani verður að
linna. Það er óábyrgt að skipa
svona nefnd eftir nefnd. Við vit-
um sem er að hér er oftast um at-
vinnubótavinnu að ræða, oftast
fyrir stuðningsmenn þing-
manna, til þess eins að drýgja
tekjur viðkomandi. Mál er að
linni svona leikaraskap og fjár-
austri af almannafé.
Hjól Vigdísar
vel „smurt“
Ásta Björnsdóttir hringdi:
Frú Vigdís Finnbogadóttir hef-
ur orðað það svo sé hún spurð
hvað hún muni taka sér fyrir
hendur að lokinni embættis-
skyldu á Bessastöðum að hún
hyggist nú „smyrja hjólið sitt“,
sem getur svo sem þýtt hvað sem
er. Einnig hefur hún sagt að sig
langi til að reyna við svokallaða
margmiðlun og er ekki öllu ljós-
ara hvað í því felst. Auðvitað
kemur almenningi ekkert við
hvað fyrrverandi forseti tekur
sér fyrir hendur. Hitt er kátbros-
legt, eftir að hafa heyrt Vigdísi
tala um „hjólsmurninginn“, að
nú skuli ríkisstjómin hafa liðk-
að hjól hennar með því að bjóða
henni aukagreiðslur umfram
aðra fyrrverandi forseta.
Sífelldar trúar-
iðkanir?
Garðar K. hringdi:
Einkennileg er sú árátta vís-
indamanna, einkum forleifa-
fræðinga, að telja flestar minjar
og mannvirki til foma tengjast
trúariðkunum. Það síðasta sem
ég las í þessu samhengi var um
Stonehenge á Bretlandi. Þetta
hefur verið meiri tníin á þessum
tima! En svo eru steinarnir
þungir að enginn mannlegur
máttur hefur getað flutt þá þang-
að sem þeir eru í dag. Gæti ekki
einfaldlega verið um að ræða
leifar frá fyrri tæknitímabilum
eða frá verkum einhverra frá
öðrum hnöttum?