Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1996 JjV %éttir íslenskir og færeyskir aöilar í samfloti: Kaupa tvo 7.700 lesta togara í Eistlandí - veroa skráðir og geröir út á úthafsveiðar frá Færeyjum „Þaö er rétt að nokkrir íslenskir einstaklingar hafa stofnaö hlutafé- lagið ísfar og eru í samvinnu við að- ila í Færeyjum með að kaupa tvo 7.700 lesta togara frá Eistlandi," sagði Sveinn R. Eiðsson, stjómar- formaður Akkurs og Búra hf. á Fá- skrúðsfirði, í samtali við DV. Hann tók fram að þau fyrirtæki væru ekki aðilar að þessu heldur hann sem einstaklingur. Hér er um að ræða fljótandi frystihús eins og stærðartölumar segja til um. Skipin em sem ný, smíðuð árin 1988 og 1990 í A-Þýska- landi. Notkunartími þeirra er stutt- ur eða aðeins um þrjú ár. Sveinn vildi ekki gefa kaupverðið upp. Hann sagði að ef smíða ætti svona skip í dag myndi hvort um sig kosta um 2 milljarða króna. Kaupverðið á þessum skipum væri langt innan við einn milljarður á hvom um sig. íslendingamir eiga þar verulegan hlut en Færeyingar hitt. Prósentan er ófrágengin í útgerðarfyrirtæki skipanna. „Skipin verða bæði skráð og gerö út frá Færeyjum. Þau munu veiða á Reykjaneshrygg, enda eiga Færey- ingar nær allan sinn kvóta þar eftir. Eins munu þau fá makríl, kolmunna og gulllaxkvóta í Færeyj- um og jafnvel síldarkvóta. Áhöfnin verður blönduð að þjóö- emi; Færeyingar, íslendingar, Eist- lendingar og jafnvel Rússar. Senni- lega um 60 manns. Skipstjórinn verður annað hvort færeyskur eða íslenskur, frá því hefur ekki veriö gengið," sagði Sveinn R. Eiðsson. Hann sagði að að búið væri að ganga frá öllu öðru en kaupsamn- ingi. Skrifað hefði verið undir kaup- tilboð og bankaábyrgð væri klár þannig að allt væri nánast frágeng- ið. Hann sagðist reikna með að fyrra skipið legði af stað til Færeyja næstkomandi þriðjudag. -S.dór Engilráð Einarsdóttir ásamt móður sinni, Jónínu Emilsdóttur, og yngri systur, Eydísi Evu, við heimili þeirra á ísafirði. DV-mynd Hörður 14 ára stúlka slasaöist illa í knattspyrnuleik: Kinnbeinsbrotn- aði og rotaðist - of mikil harka hjá svona ungum stúlkum, segir móöirin Aöstoðarlandlæknir: Ekki læknamistök „Það þarf góðan skammt af trú- girni og lítið vit á læknisfræði til þess að trúa því að svo reyndur skurðlæknir sem Þórarinn Guðna- son var útskrifi sjúkling með þrjá litra af blóði í kviðarholi. Saga kon- unnar bendir til þess að það hafi orðið bráðablæðing eftir útskrift. Þessi saga hennar var athuguð af tveimur læknum hjá landlæknis- embættinu og hún fékk svör um að það hhefði verið fullkomlega eðli- lega staöið að rannsókn málsins hjá okkur,“ sagði Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir við DV vegna frásagnar Bryndísar Emu Garðars- dóttur í DV í gær. „Þetta mál var mjög vel rannsak- að eins og venjulega er reynt að gera hér hjá embættinu og þetta voru ekki læknamistök. Okkur sárnar þegar svona kemur fram sem er algerlega út í hött, sérstak- lega þegar látinn maður er ásakað- ur á þennan hátt. Þórarinn hafði al- gerlega flekklausan feril og liklega hefur hann bjargað lífi hennar þarna. Það er mjög leiðinlegt að tala um svona persónuleg mál eins og þetta en við verðum að svara svona vitleysu," sagði Matthías. -RR Loðnan mokveiðist: Gæti orðið metár „Veiðamar hafa gengið mjög vel undanfarið. Þetta er svipuð byrjun og árið 1993 þegar veiðin entist sem best,“ segir Snorri Gestsson, skipstjóri á Guðmundi VE, í samtali við DV í gær þar sem hann var á heimleið af loðnumiðunum með fullfermi. Snorri segir að þeir hafi fyllt skipið í þremur köstum á miðun- um á 69 gráðum, 10 mínútum norður breiddar og 15 gráðum, 30 mínútum vestur lengdar eða um 10 sjómílur sunnan viö mið- línuna milli íslands og Græn- lands. Löndunarbið er nú hjá flestum verksmiðjum allt upp í tæpa þijá sólarhringa. „Ef framhaldið verður svipaö gæti stefnt í metár og veiðin enst út september,” segir Snorri. -rt „Ég man að ég var í markinu og var að fara út á móti stelpu úr hinu liðinu sem kom inn í vítateiginn. Síðan man ég ekki meira en stelp- urnar í liðinu mínu sögðu að ég hefði kastað mér niður og náð bolt- anum. Stelpan úr hinu liðinu lenti víst með löppina á höfðinu á mér og við það rotaðist ég,“ sagði Engilráð Einarsdóttir, 14 ára, en hún lenti í slæmu slysi í knattspyrnuleik ný- lega. Engilráð, sem er markvörður í 3. flokki BÍ á ísafirði, kinnbeinsbrotn- aði og rotaðist í leik með liði sínu gegn Fylki í Árbænum. Hún var flutt meðvitundarlaus á Sjúkrahús Reykjavikur og lá þar í rúman sól- arhring. Talaði eintómt rugl „Leikurinn var á laugardegi og ég man ekki eftir mér aftur fyrr en um klukkan 6 á sunnudagsmorgni. Læknamir og mamma mín sögðu að ég hefði legið í hálfan sólarhring og talað eintómt rugl því ég var ekki með réttu ráði eftir höggið. Ég tal- aði víst við stelpumar um leikinn en þær vom ekki einu sinni á staðn- um því þær voru famar vestur. Ég er annars öll að koma til og á góð- um batavegi þó ég finni ennþá fyrir svima ef ég hreyfi mig snöggt. Ég fer aftur í unglingavinnuna en verð að taka það rólega. Ég má ekki byija að æfa fótbolta aftur fyrr en eftir 3 vikur en ég er ekkert hrædd við að byrja aftur. Ég er svo mikil fótboltafrík og fer alltaf að sparka þegar tækifæri gefst. Ég er ákveðin í að halda áfram í markinu þrátt fyrir þetta óhapp,“ sagði Engilráð sem er nú komin heim til ísafjarðar. „Þetta fór betur en á horföist. Hún ruglaði í sífeflu á spítalanum og var ekki með réttu ráði. Það skelfdi mann vissulega en svo jafn- aði þetta sig smám saman. Lækn- amir vildu ekki láta hana fljúga vestur fyrr en eftir fjóra daga og hún var undir stöðugu eftirliti á meðan af hættu við svimaköst," sagði Jónína Emilsdóttir, móðir Engilráðar, við DV. „Það sem ég er svo hissa á er hvað er ofsaleg harka í þessu. Fylk- isstúlkumar vom 4-0 yfir og alveg að koma hálfleikur þegar þetta gerð- ist og það er hreinlega vaðið í stúlk- -una liggjandi. Ég veit að þetta er slys en mér finnst þetta einum um of hjá svona ungum stúlkum og ég veit að margir foreldrar, sem ég tal- aði við og eiga stúlkur sem léku leikinn, eru sammála mér. Eftir hlé gáfu ísafjarðarstúlkurnar leikinn nánast því þær áttu erfitt með að einbeita sér eftir atvikið og töpuðu, 11-0. Þær voru hreinlega í sjokki eftir þetta og sumar vom grátandi í síðari hálfleiknum. Mér er ekki ljúft að hugsa til þess að sjá dóttur mína aftur í markinu en ég læt hana gera það upp viö sig. Hún hefur geysilega gaman af að leika fótbolta og ég tek það ekki frá henni,“ sagði Jónína. -RR Landhelgisgæslan: Engin norsk skip á Jan Mayen svæðinu Samkvæmt upplýsingum land- helgisgæslunnar voru engin norsk fiskveiðiskip á Jan Mayen miðun- um í gær. Norsku loönuskipin munu því öfl vera innan íslensku fiskveiðilögsögunnar og veiöa loðnu sína þar. Samkvæmt upplýsingum Land- helgisgæslunnar flaug eftirlitsflug- vél hennar yfir Jan Mayen miðin í gær til að kanna stöðu skipanna. Vegna þoku notaði flugvélin radar og á honum sáust engin skip á þess- um miðum. -RR Stuttar fréttir Hestvagnaferöir Þýskur vagnhestamaður býð- ur upp á ferðir í hestvagni mifli Gullfoss og Geysis nú um helg- ina. 10 manns komast í einu í vagninn. Tíminn greinir frá ísbjörninn í Víkina ísbjöminn, sem skipverjar á Guðnýju ÍS fónguðu á sundi fyr- ir tveimur árum og drápu, er kominn til Bolungarvíkur upp- stoppaður og verður sýndur þar. Bylgjan sagði frá. Tugir missa vinnuna Hátt í 80 manns missa vinn- una tímabundið vegna sumar- lokana hjá Fiskiðjunni Skagfirð- ingi á Sauðárkróki og Hofsósi. Talsmenn fyrirtækisins kenna um hráefnisskorti. RÚV greindi frá. Stærsta lopapeysan Tóvinnukonur austur á Þing- borg í Flóa ætla að pijóna lands- ins, eða jafnvel heimsins, stærstu lopapeysu. Rúnar verða 17 kindur og peysan unnin úr ullinni. Grandadeilan leyst Grandi sendir ekki verkafólk í sumarfrí í ágúst gegn vilja þess. Frystihús Granda í Reykjavík verður ekki starfrækt en fastráö- ið fólk verður á dagvinnulaun- um á meðan engu að síður. RÚV sagði frá. Marei selur vélar til Noregs Marel hefur selt vinnslulínu fyrir laxvinnslu til Noregs. Sölu- verðiö er um 100 milljónir króna, að sögn Ríkisútvarps. Vonir eru bundnar við meiri út- flutning af þessu tagi næstu árin. -SÁ Þú getur svarað þessari spurningu meö því að hringja í síma 9041600. 39,90 kr. mínútan Já 1 Nei 2 j rödd FOLKSINS 904 1600 Verður KR loksins íslands- meistari í knattspyrnu?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.